Morgunblaðið - 17.11.1988, Side 1
88 SÍÐUR B
264. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eistneska þingið lýsir yfir fullveldi Eistlands:
Eistlendingar hafna
forræði frá Moskvu
George Bush, sem nýlega var
kjörinn nœsti forseti Banda-
ríkjanna, (t.v.) ræðir við Andrei
Sakharov, leiðtoga sovézkra and-
ófsmanna, í Hvita húsinu í Was-
hington í gær. Milli þeirra situr
túlkur. Sakharov hefur verið í
fylkingarbrjósti sovézkra um-
bótasinna.
Tallín. The Daily Telegraph. Reuter.
ÞING Eistlands hafhaði einróma fyrirhuguðum breytingum á sfjórn-
arskrá Sovétríkjanna á neyðarfiindi sínum í gær, og lýsti yfir full-
veldi lýðveldisins innan Sovétríkjanna. Jafnframt samþykkti þingið
að stjórnarskrá Eistlands væri æðri þeirri sovézku. Samþykktu þing-
menn með 254 atkvæðum gegn 7 að sovézk lög öðluðust ekki gildi
í Eistlandi unz þing þess hefði staðfest þau.
Reuter
Bandaríkjastjórn um samþykkt Þjóðarráðs Palestínu:
Viðurkenning á Israels-
ríki ekki nógu ótvíræð
Washiugton. Reuter.
Auk þessa samþykkti neyðar-
fundur eistneska þingsins breyting-
ar á stjómarskrá lýðveldisins sem
heimila stjóm þess að veita samtök-
um á borð við Þjóðfylkinguna og
Græningjaflokkinn, samtök um-
hverfisverndarmanna, opinbera við-
urkenningu. Einnig var bætt við
ákvæði um að náttúruauðlindir og
iðnaður í lýðveldinu væri í eigu þess.
Amold Ruutel, forseti eistneska
þingsins, og flestallir ræðumenn á
neyðarfundinum, kröfðust þess að
Eistlendingar fengju að ráða sínum
málum sjálfír í stað þess að vera
fjarstýrt frá Moskvu.
Leiðtogar eistneska kommún-
istaflokksins og Þjóðfylkingar Eist-
lands, ijöldahreyfingar sem stofnuð
var til höfuðs stjómarskrárbreyt-
ingunum, hvöttu sameigihlega til
þess að saminn yrði nýr sambands-
sáttmáli um skiptingu valds milli
stjómarinnar í Moskvu og stjóma
lýðveldanna.
Þingið hófst með því að umbóta-
maðurinn Indrek Toome, hug-
myndafræðingur eistneska komm-
únistaflokksins, var kjörinn forsæt-
isráðherra Eistlands í stað Bmnos
Sauls, sem gegnt hafði því starfi
um langt skeið.
Leiðtogar í Eistlandi héldu því
fram að fyrirhugaðar breytingar á
stjómarskrá Sovétríkjanna minnki
svigrúm lýðveldanna til að hafa
áhrif í eigin málum. Míkhaíl Gorb-
atsjov, Sovétleiðtogi, hefur lýst yfir
því, að breytingarnar séu forsenda
Bandaríkin:
Dollar lækkar
þótt viðskipta-
halli minnki
Lundúnum, Washington. Reuter.
GENGI Bandaríkjadals í Lundún-
um hafði aldrei verið jafii lágt
miðað við japanska jenið í ár þeg-
ar kauphöllinni þar var lokað í
gær.
Viðskiptahalli Bandaríkjanna
minnkaði um 15 af hundraði í sept-
ember, fór niður í 10,46 milljarði
dala miðað við 12,27 milljarði í
ágúst, en það nægði ekki til að
stöðva lækkun dalsins.
Talsmenn Bandaríkjastjómar
sögðu að erfitt yrði að minnka við-
skiptahallann frekar. Beryl Sprinkel,
efnahagsráðgjafi Bandaríkjaforseta,
sagði að efnahagur Bandaríkjanna
væri á batavegi þótt dollarinn hefði
lækkað eftir forsetakosningarnar í
síðustu viku.
þess að umbótastefna hans, per-
estrojka, skili tilætluðum árangri.
Stefnt er að því að æðstaráð Sov-
étríkjanna samþykki þær á fundi
sínum 29. nóvember næstkomandi.
Gorbatsjov sendi Viktor Tsje-
brikov, fyrrum yfirmann KGB, til
Eistlands um síðustu helgi þeirra
erinda að vara leiðtoga þar við að
ganga of langt í kröfum sínum um
sjálfstæði. Hann sagði leiðtoga eist-
neska kommúnistaflokksins í raun
„biðja um að þeir verði sviptir völd-
um“ með kröfum sínum um aukið
sjálfsforræði. Einnig sagði hann til-
lögur Þjóðfylkingarinnar um að
eistneska yrði opinbert mál Eist-
lands og að Rússar fengju ekki eist-
neska ríkisborgararétt fyrr en eftir
10 ára búsetu í lýðveldinu í „anda
suður-afrískra stjómarhátta“.
Leiðtogar Þjóðfylkingar Eist-
lands neituðu því að afstaða þeirra
væri ögrun við stjómina í Moskvu.
Stjórnmálaskýrendur telja hins veg-
ar að fari yfirvöld í Lettlandi og
Litháen að fordæmi Eistlendinga
kunni það að grafa undan Sovét-
stjóminni. Gorbatsjov sendi einnig
Vadím Medvedev, hugmyndafræð-
ing flokksins, og Níkolaj Slyunkov,
sem sæti eiga í stjómmálaráðinu,
til Lettlands og Litháens sömu er-
inda og Tsjebrikov til Eistlands.
Um síðustu helgi samþykkti þing
Armeníu ýmsar breytingar- og við-
bótartillögur við fyrirhugaðar
breytingar á sovézku stjómar-
skránni.
CHARLES Redman, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði í gær að samþykktir
Þjóðarráðs Palestinu er lytu að
viðurkenningu á Ísraelsríki væru
of tviræðar og gengju ekki nógu
langt til þess að réttlæta það að
bandarísk stjórnvöld tækju upp
beinar viðræður við PLO, Frelsis-
samtök Palestinumanna.
Á fundi sínum í Algeirsborg sam-
þykkti Þjóðarráð Palestínumanna að
fallast á ályktun Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna númer 242 og 338,
sem fela í sér viðurkenningu á til-
verurétti ísraelsríkis. Redman sagði
að PLO yrði að lýsa viðurkenningu
BENAZHIR Bhutto, leiðtogi
stjómarandstöðunnar í Pakistan,
lýsti i gærkvöldi yfir sigri flokks
sins, Þjóðarflokksins, í þingkosn-
ingum, sem firam fóm i Pakistan
í gær. Sagði hún flokkinn hafa
unnið yfirburðasigur i Sind-hér-
aðinu og með forystu i Punjab.
Bhutto sagði að „óþefur" væri af
þeirri ákvörðun kjörstjómar að
fresta því að birta úrslit í Punjab,
á ísraelsríki yfír mun afdráttar-
lausar áður en samningaviðræður
við samtökin gætu hafízt.
ísraelsk yfírvöld ákáðu í gær að
hefja diplómatíska herferð til þess
að koma í veg fyrir að PLO takist
að skapa sér ímynd boðbera friðar
í Miðausturlöndum. „Okkur er vandi
á höndum því PLO hefur tekizt að
læða því inn hjá mönnum að um
stefnubreytingu hafí verið að ræða
af þeirra hálfu," sagði talsmaður
Shimons Peresar, utanríkisráðherra.
Sjá ennfremur „Flest arabaríki
viðurkenna..." á bls. 32.
en þar er kosið um 115 af 207 sæt-
um múslima á þingi Pakistans, þar
sem alls 237 þingmenn sitja.
Hún sagði að þegar talningu var
lokið í 26 kjördæmum í Punjab hefði
flokkur sinn unnið 22 sæti en ísl-
amska lýðræðisfylkingin, helzti
keppinautur flokks Bhutto, fjögur.
Kjörstjóm hafði ekki skýrt frá þess-
um úrslitum, heldur sagðist Bhutto
hafa upplýsingar um talninguna frá
fulltrúum flokksins í Punjab.
Krefjast launahækkana
Belgískir lögregluþjónar rétta fram húfur sínar á kröfugöngu
sem þeir efiidu til í Briissel í gær. Um 6.000 lögregluþjónar tóku
þátt í göngunni og kröfðust þeir launahækkana og betri vinnuskil-
yrða.
Bhutto sigurviss
Larkana, Pakistan. Reuter.