Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.12.1988, Blaðsíða 10
lo MORGÚNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 Morgunblaðið/Svernr Blásarakvintett Reykjavíkur á æfingu í Kristskirkju. Blásarakvintett í Kristskirkju í kvöld Tónlistarfélag Kristskirkju efiiir til aðventutónleika í kirkjunni, „Kvöldlokkur á jólafostu", í kvöld kl. 20.30. Þar leika félagar úr Blásarakvintett Reykjavíkur, þeir Einar Jóhannesson, Daði Kolbeins- son, Josep Ognibene og Hafsteinn Guðmundsson, ásamt félögum úr Sinfóníuhljómsveit íslands: Peter Tomkins óbóleikara, Kjartani Óskarssyni, Óskari Ingólfssyni og Jóni Aðalsteini Þorgeirssyni, sem leika á bassethorn, Sigurði I. Snörrasyni klarinettuleikara, Þorkeli Jóelssyni hornleikara og Rúnari Vilbergssyni fagottleikara. Þessi hópur nokkurra fremstu blásara landsins munu leika verk eftir Mozart, Beethoven og Fiala. Verkin eftir Mozart eru tvö Adagio fyrir þijú bassethorn og tvö klari- nett, hljóðfærasamsetningu sem er dæmigerð fyrir litbrigðatilraunir Mozarts síðustu æviárin. En aðal- verk tónleikanna er líka eftir Moz- art, Serenada í Es dúr KV 375. Verkið eftir Beethoven er hinsvegar létt og lipurt, þ.e. Sextettinn op. 71, sem hann mun hafa samið kom- ungur heima í Bonn. Fiala, bæ- heimskt tónskáld og samtímamaður Mozarts, er snjall fagmaður á tón- listarsviðinu og Divertimento hans sem hópurinn mun leika að þessu sinni er ljúf og aðgengileg tónsmíð. Tónlistarfélag Kristskirkju mun halda fleiri tónleika á næstunni, m.a. á nýársdag, 1. janúar, en þá munu sönghópurinn Hljómeyki og Hörður Askelsson organleikari flytja verk eftir Þorkel Sigurbjöms- son í Kristskirkju. 12. febrúar verð- ur svo Manuela Wiesler með alís- lenska flaututónleika í kirkjunni, verk eftir Atla H. Sveinsson og Leif Þórarinsson. Sú efnisskrá mun verða gefin út á geisladiski á vegum Tónlistarfélags Kristskirkju og BIS í Svíþjóð og koma út í byrjun júní. Sagnfræðirit um iðnbyltingu hugarfarsins Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefiir gefið út 9. bindi í ritröðinni Sagnfræðirannsóknir — Studia historica — sem Sagnfiræðistofiiun Háskóla íslands og Menningarsjóður hafa staðið fyrir frá 1972, en ritstjóri hennar er Bergsteinn Jónsson dósent. Nefnist bók þessi Iðnbylting hugarfarsins og er eftir ungan sagnfræðing, Ólaf As- geirsson cand. mag. Útefandi kynnir Iðnbyltingu hug- arfarsins þannig á bókarkápu: „Fyrstu áratugir 20. aldar voru umbrotatími í íslensku atvinnulífi og breytingar á þjóðlífinu urðu þá örar. Afstaða til sjálfstæðisbarátt- unnar hætti að skipa mönnum í fylkingar og skipting í stjómmála- flokka tók að ráðast fyrst og fremst af stéttastöðu og afstöðu til þjóð- félagsmála. I þessari bók fjallar ungur sagn- fræðingur, Ólafur Ásgeirsson, um ákveðinn þátt í stjómmálasögu þessa tímabils, sem tengist hagsögu og hugmyndasögu. Meginviðfangs- efni hans er, hvemig menn skiptust iðulega þvert á flokkslínur, eftir afstöðu til þróunar atvinnulífs og afskipta_ ríkisvaldsins af henni. Er túlkun Ólafs á þessu efni að mörgu leyti nýstárleg. Hann leggur ekki til grundvallar greiningu á eðli hinna nýju stjómmálaflokka eftir hefðbundnum hægri-vinstri- kvarða. Meginmáli telur hann skipta, að í afstöðu til atvinnuþró- unar hafi menn skipast í tvær meg- infylkingar allt það tímabil, sem bókin nær yfir, þrátt fyrir þau miklu umskipti, sem þá urðu. Annars veg- ar voru þeir, sem mátu mest hefð- bundin gildi og landbúnað sem at- vinnuveg, vildu viðhalda dreifðri byggð smábýla og lögðu áherslu á handverksiðnað og útgerð smábáta; hins vegar voru þeir, sem voru hlynntir vexti þéttbýlisstaða, iðn- væðingu, eflingu sjávarútvegs og tiltölulega stórum framleiðsluein- ingum í landbúnaði. Ólafur álítur átök milli þessara hópa hafa sett sterkan svip á íslensk stjómmál á tímabilinu." Iðnbylting hugarfarsins er 168 blaðsíður að stærð. Bókin er unnin í Prentsmiðjunni Eddu, en kápu gerði Sigurður Öm Brynjólfsson. Suðurlandsbraut íslenskt atvinnu- og íbúðarhúsnæði: Viðhald allt að 17 milljarðar á ári ÆTLA MÁ að heildarkostnaður við viðhald á atvinnu- og íbúðar- húsnæði hérlendis geti verið um 13 til 17 milljarðar króna á ári, segir í tímaritinu Arkitektúr og skipulag. Hugsanlega kostar viðhaldið ekki þessar upphæðir nú, þar sem hús á Islandi eru yfirleitt nýleg. Viðhaldsþörfin á eftir að stóraukast á næstu 20 árum en ekki er enn séð hvort viðhaldskostnaður verður meiri eða minni en fram kemur í ofangreindri áætlun. Viðhaldsþörf sumra húsa, sem byggð voru eftir árið 1960, er veruleg umfram það sem vænta mátti. Um 60% íslensks íbúðar- og at- vinnuhúsnæðis er 20 ára og yngra og 82% 30 ára og yngra en tæpur helmingur alls húsnæðis á íslandi er byggður fyrir árið 1960. Upp úr 1960 voru byggð mörg hús með nánast eða alveg flötum þökum sem mörg hver hafa reynst viðhaldsfrek. Á seinni árum eru mörg dæmi um að þök séu lek þótt halli sé sæmileg- ur þegar notuð er báruð málm- klæðning. Mörg dæmi eru um vand- ræði af þéttingu raka í þökum. Þá er viðhaldsþörf bygginga frá árun- um 1965 til 1980 mikil vegna lítils veðrunarþols steypu og alkalíverk- unar. Samkvæmt erlendum upplýsing- um er áætlað að árlegur viðhalds- kostnaður liggi á bilinu 1,5 til 2% af stofnkostnaði bygginga. Algengt virðist þó að miða við um 2%. Ef litið er á vísitölu Qölbýlishúss þýða þessi 2% um 750 þúsund krónur á ári í viðhaldskostnað. Það samsvar- ar 75 þúsund króna kostnaði við hveija íbúð hússins. Ef reynt er að meta hvort þessi kostnaður er raunhæfur er rétt að líta á hugsanlegt viðhald hússins í 100 ár og áætla hve oft hver hluti þarfnast viðhalds: Að mála húsið að utan um 10 sinnum kostar 4,7 milljónir króna. Kostnaður við steypuviðgerðir er 2 milljónir króna. Að skipta um gler og glugga á 35 ára fresti kostar 4,5 milljónir króna. Kostnaður við að endumýja útihurðir á um 40 ára fresti er 1,3 milljónir króna, innrétt- ingar á um 25 ára fresti kosta 17 milljónir króna og gólfefni á um 20 ára fresti 6,6 milljónir króna. Þá er kostnaður við að endumýja raflagnir 2,5 sinnum 4,2 milljónir króna, hreinlætistæki þrisvar sinn- um 1,9 milljónir króna, hita-, vatns- og frárennslislagnir einu sinni 1,3 milljónir króna og lóð einu sinni 1,5 milljónir króna. Samkvæmt þessum tölum er kostnaður við viðhald á fjölbýlis- húsinu í 100 ár samtals 76,5 millj- ónir króna. Vegna viðhaldskostnað- ar er ekki óeðlilegt að hækka þess- ar tölur um 25 til 30%. Samkæmt því verður heildarkostnaður við áætlað viðhald á húsinu í 100 ár 96 til 100 milljónir króna eða 960 þúsund til ein milljón króna á ári. Að sjálfsögðu er umdeilanlegt hvort ending byggingarefnanna er eins og reiknað var með hér að framan og verulega vantar á að list- inn sé tæmandi. Eigi að síður er hér vísbending um að hugsanlega megi gera ráð fyrir viðhaldskostn- aði sem nemi um 2 til 3% af stofn- kostnaði, segir í tímaritinu Arki- tektúr og skipulag. Til sölu ca 640 fm húsn. á tveimur hæðum. Stórar innkeyrsluhuröir. Á efri hæð er glæsilega innróttuð íb. 5-6 herb. með fallegum innrétting- um. Parket á gólfum. Á neðri hæð er stórt verslunar- og iönaöar- húsnæöi innróttað á skemmtil. hátt. Húsið er allt nýinnréttað. Góð bílastæði. Upplagt fyrir hvers konar starfsemi. Uppl. á skrifst. Bergur Oliversson hdl., Gunnar Gunnarsson hs: 77410. Til sölu er skrifstofuhæð á horni Dugguvogs og Súðarvogs Hæðin er 342,3 fm og selst tilbúin undir tréverk og málningu. Sameign í stigahúsi er teppalögð og máluð. Lóð er frágengin og bílastæði malbikuð. Upplýsingar aðeins á skrifstofu. Gott skrifstofuhúsnæði til sölu íSkeifunni Um er að ræða aðra og þriðju hæð í þriggja hæða lyftu- húsi. Hvor hæð er um 250 fm og selst tilbúin undir tréverk og málningu. Sameign frágengin. Bílastæði malbikuð. Til afh. nú þegar. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Hagstæð lán fylgja. EIGVAMIDLOVIIV 2 77 11 ÞINGHOLTSSTRÆ T I 3 Sverrir Kristínsson, sölustjóri - Þorleilur Guðmundsson, sölum. Þórólfur Halldórsson, lögfr.—Unnsteinn Beck, hrl., sími 12320 VITASTÍG 13 26020-26065 Unnarbraut — Seltjnesi. 2ja herb. góö íb. 60 fm á jaröh. Góöur garður. VerÖ 3,6 millj. Boðagrandi. 2ja herb. góö íb. 55 fm i lyftubl. Fráb. útsýni. Ný teppi. Verö 3,9 millj. Jörfabakki. 2ja herb. falleg íb. 65 fm á 3. hœö. Suöursv. Hraunbœr. 2ja herb. 60 fm á 3. hæö. Suöursv. Verö 3,6 millj. Hringbraut. 3ja herb. íb. 70 fm á 1. hæö. Laus. Góö lán. Verð 3,8 millj. Bólstaðarhlíð. 3ja herb. risíb. 55 fm. Fallegt parket. Verö 3,5 millj. Njálsgata. 3ja herb. ib. 70 fm á 1. hæö. Verö 3,9 millj. Unnarbraut. 3ja herb. íb. 80 fm á l.hæö. Góö lán. VerÖ 4,8 millj. Æsufell. 4ra herb. íb. 90 fm á 4. hæö. Frábært útsýni. Parket. Verö 4,7-4,8 millj. Dverghamrar. 4ra-5 herb. efri sérhæð í tvíb. 170 fm auk bílsk. í nýbyggingu. Húsinu veröur skilaö tilb. u. tróv. fullb. að utan. Teikn. á skrifst. VerÖ 7,9 millj. Barðavogur. 5 herb. hæö auk riss. Hæðin 117 fm og risið 56 fm auk 26 fm bílsk. Stór lóö. Verö 7,5 millj. Engjasel. 4ra herb. íb. öll mjög vönduö 117 fm ó 3. hæö auk bílskýlis. Verö 5,7 millj. Hraunbær. 4ra herb. íb. 110 fm ó 3. hæð. Tvennar sv. Herb. í kj. Verö 6,0 millj. Fannafold. Parhús á einni hæö 130 fm auk 25 fm bílsk. Góö lán. VerÖ 7,9-8 millj. Skipti mögul. ó 3ja herb. íb. í sama hverfi. Neðstaleiti. 4ra-5 herb. glæsil. íb. 140 fm á 2. hæÖ. Tvennar suöursv. Sérþvottah. ó hæöinni. Bílageymsla. Mögul. ó garöst. Skipti á minni íb. mögul. Breiðvangur — Hf. 5-6 herb. góö endaíb. 136 fm auk 25 fm bílsk. Tvær geymslur í kj. Ákv. sala. Verö 6,5 millj. Bogahlíð. 4ra herb. íb. ó 1. hæö endaíb. auk herb. i kj. 120 fm. Verö 6,3 m. Funafold. Einbhús á tveimur hæö- um 160 fm auk 30 fm bílsk. Skemmtil. teikn. af lóöinni. Verð 10,2 millj. Sœbólsbraut. Endaraöhús á þremur hæöum 275 fm. Innb. bílsk. Mögul. á séríb. í kj. Teikn. á skrifst. Verö 10 millj. Kársnesbraut Parhús á tveimur hæöum 183 fm meö 35 fm bílsk. Húsinu verður skilaö fullb. aö utan, fokh. aö innan. Fannborg - Kóp. Til sölu skrifsth. ó þremur hæðum í hjarta Kópa- vogs. Hver hæö ca 494 fm. Upplagt fyrir tannlækna, lækna, arkitekta o.fl. Eiðistorg. 70 fm verslhúsn. ó 2. hæö. Góö lón. Ákv. sala. Kársnesbraut. Iðnaðarhúsn. 185 fm meö stórum innkdyrum. Malbik- uö bílastæöi. Til afh. strax. Skólavörðustígur. Til sölu verslunarhúsnæöi 42 fm. Verö 3,7 millj. Tískuvöruverslun í stóru húsn. viö Laugaveg. GóÖ vörumerki. Hagst. verö. Uppl. á skrifst. Skoðum og verðmetum samdægurs. Bergur Oliversson hdl., Gunnar Gunnarsson, s. 77410. Wterkur og kJ hagkvæmur auglýsingamiðill!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.