Morgunblaðið - 13.12.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
25
Alfreð Flóki við eitt verka sinna.
Danir minnast Flóka
Sorg til sölu
ÚRVAL ljóða danska skáldsins
Ulfs Gudmundsen, Life is a pen-
cil, kom nýlega út í enskri þýðingu
eftir Tony Pusey og Jörgen Veis-
land. Útgefandi er Dunganon,
Orkelljunga í Svíþjóð.
Life is a pencil er tileinkuð minn-
ingu Alfreðs Flóka 1938—1987.
Teikning eftir Flóka prýðir forsíðu
bókarinnar og í bókinni er einnig
mynd eftir hann. Aðrir kunnir mynd-
listarmenn eiga teikningar í Life is
a pencil. Dunganon gefur einkum
út bækur eftir súrrealista og einnig
samnefnt tímarit. Útgáfan er al-
þjóðleg.
Danir hafa minnst Alfreðs Flóka
með ýmsum hætti. Nýlega kom út
hjá Gyldendal í ritröðinni Gyldendals
Bibliotek, sem ritstýrt er af Willy
Sörensen, skáldsagan Historien om
en anden Mouchette (Nouvelle Hist-
orie de Mouchette) eftir franska rit-
höfundinn Georges Bernanos. Þýð-
ingin, sem gerð er af Marianne 01-
sen, er tileinkuð minningu .Alfreðs
Flóa með svofelldum orðum: „Þýð-
ingin er tileinkuð minningunni um
hinn mikla íslenska teiknara 1938—
1987“.
Tildrögin voru þau að Gyldendal
hafði leitað til Alfreðs Flóka í því
skyni að fá hann til að myndskreyta
bókina, en honum entist ekki aldur
til þess.
eftir Astu Maríu
Þórarinsdóttur
Ég var að kaupa kaffi í einni af
sjoppum bæjarins, þegar ég rak aug-
un í forsíðuna á nýjasta eintaki
Heimsmyndar. Ég kannaðist við and-
litin og keypti blaðið. Svo fór ég
heim, kom mér vel fyrir í sófanum
og fór að lesa. Þetta voru minningar
fólks sem upplifði eitt mesta flugslys
sögunnar. Og þarna sat ég í sófanum
og las nánar lýsingar á síðustu
lífsstundum föður míns.
Desember er kominn og jólaundir-
búningurinn að hefjast. Fólk er farið
að huga að því hvemig hægt sé að
gera jólin í ár (litlu-jólin) sem
ánægjulegust. Og úr hugleiðingum
um að búa til heimatilbúið konfekt
á laugardaginn hrekk ég niður í
minningar um angist og örvæntingu.
Og ég fyllist svo óstjómlegri reiði til
ritstjórans, sem tók sjálf viðtöl við
þetta-ólánsama fólk, að ég veit ekki
hvað til bragðs skal taka. Þarna er
hún, í þroskaleysi og óvitaskap, að
selja það hvar faðir minn sat í vél-
inni, hveijir áttu og áttu ekki að
„Það getur verið til
góðs að skrifa minning-
ar fólks sem lent hefiir
í óvenjulegum aðstæð-
um, en það þarf að hafa
gát á að særa ekki aðra
í leiðinni.“
vera um borð, erfíðleikana sem
fylgdu því að fá líkamsleifar sendar
heim o.s.frv. Átti ég að skrifa rit-
stjóranum bréf? Nei, því yrði senni-
lega stungið undir stólinn. Átti ég
að hringja í hana og segja henni álit
mitt á þessu tillitsleysi? Nei, enda
ekki líklegt að það hafi áhrif á fólk
sem mér virðist hafa lifibrauð af því
að selja sorgir annarra. Niðurstaðan:
Ég læt Herdísi Þorgeirsdóttur eiga
sig.
En hin óþægilega spuming situr
eftir; hvað er einkalíf? Hafa syrgj-
endur ekki rétt á að öðlast innri frið
í næði? Hvað má ganga langt í að
særa fólk opinberlega? Fréttin var
frétt, en hún er það ekki lengur. Nu
er tími fallegra minninga um gott
fólk, og sú minning lifir. Það getur
verið til góðs að skrifa minningar
fólks sem lent hefur í óvenjulegum
aðstæðum, en það þarf að hafa gát
á að særa ekki aðra í leiðinni.
I okkar nútímaþjóðfélagi, þar sem
allt gengur út á að hraða og sölu-
mennsku, gleymist oft að enn er til
fólk með raunverulegar tilfinningar.
Ég vona að Herdís öðlist með tíman-
um þroska til að skilja það.
Ég stenst ekki freistinguna með
að vísa í sama bréf í hinni helgu bók
(Tímóteusarbréf) og ritstjórinn vísar
í í leiðara sínum, en þar segir: „ . ..
að á síðustu dögum muni koma örð-
ugar tíðir. Menn verði sérgóðir, fé-
gjamir, raupsamir, hrokafullir, last-
mælendur, vanþakklátir, kærleiks-
lausir, ósáttfúsir, rógberandi, taum-
lausir, grimmir, sviksamir, fram-
hleypnir, ofmetnaðarfullir og elsk-
andi munaðarlífið meira er. guð.“
(Tilvitnun lýkur.) Skyldu þessir dag-
ar vera komnir?
Nú er kominn tími til að fara að
reyna aftur að huga að jólahaldinu.
Ég vona að reiðin komi ekki í veg
fyrir að ég geti ýtt þessum hræðilegu
minningum til hliðar yfir hátíðina.
Höfundur er menntaskólanemi.
Góð jakkaföt
Góðar dragtir
Gott úrval af
glæsilegum
fatnaði
Hófadynur
í Dölum
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Glaður
í Dölum hefúr gefið út afmælisrit-
ið Hófadynur í Dölum, en félagið
er 60 ára.
Af spjöldum sögunnar nefnist fyrsti
kafli ritsins og annar ber sama nafn
og afmælisritið. Mörg kunn hross og
hestamenn koma þar við sögu. Þriðji
kaflinn segir af sögu Glaðs, sem er
annað elsta hestamannafélag lands-
insum og er þar sagt frá störfum,
stjórnum og framkvæmdum. Sérstak-
ir þættir eru af Jóhannesi Stefáns-
syni á Kleifum og Eyjólfi Jónassyni
í Sólheimum og eru í þáttunum marg-
ar vísur.
Að lokum eru svo skrár yfir bikar-
hafa á mótum félagsins. Afmællisrit-
ið er 87 blaðsíður.
Umboðsmenn um land allt:
Adoin og Evo, VestmonnaÐyjum - Bóron, Grindavik - Búðin, Blonduósi • Ðíono, Ólafsfirði -
Eplið, ísolirði ■ Falavol, Keflavik • Gorðorshólmi, Húsavik • Hornabær, Höfn, Hornafirði -
ísbjörninn, Borgarnosi - lindin, Selfossi - Nesbær, Neskoupsloð ■ Nino, Akranesi • Skógor,
Egilsstöðum - Sporlo, Souðórkiðki - Þörshomor, Stykkishólmi - Koopl, V Húnvetningo, Hvomms-
tango - Koupf. Longnesingo, Þórshöfn - Koupf. Rongæingo, Hvolsvelli - Amor, Akureyri
b O G A
Austurstræti 22 S. 22925
Cloer vöfflujárnin eru sjálfvirk, hitaeinangruð
með nákvæmri stiglausri bakstursstillingu.
Smekkiegt útiit í dökku eða Jjósu ber
gæðunum vitni. Nýbakaðar vöfflur eru
hreint lostæti.
Fást í næstu raftækjaverslun
i.I ít£
[UUHÍ
I
iiukj;11 ypl
tsb