Morgunblaðið - 13.12.1988, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
29
þér gisting með morgunverði í tvær
eða fleiri nætur og ein máltíð af jóla-
hlaðborði Skrúðs tyrir einstaklega
hagstættverð.
Verð á mann í tvíbýli:
Tværnæturfrákr. 4.290
Þrjárnæturfrákr. 5.775
Fjórar nætur frá kr. 7.260
JOLAKORT
EFTIR ÞÍNUM
EIGIN
MYNDUM
Sendu vinum og vandamönnum skemmtilega
og persónulega jólakveðju með jólakorti,
eftir þínum eigin myndum.
Skipholti 31, simi 680450
f=ujnimt=K3t
Við höfum alla möguleika frá
náttúrunnar hendi og hæfan mann-
afla, en skortir hæfileikamenn til
yfirstjórnunar. Það er mikið rétt
sem síðasti maður vikunnar í sjón-
varpi, viðskiptaráðherra, sagði;
okkur vantar áætlanir um framtíð-
armarkmið, mestur tími fer í að
bjarga mistökum sem þegar hafa
orðið, bæta bót á bót ofan.
Hvaða náttúruauðæfi eiga Danir
eða Japanir umfram okkur, svo
dæmi sé tekið? Vinnusemi, hugvit
og áræði, ekki mikið meira. Hráefni
' og orku verða bæði löndin að flytja
erlendis frá.
Við íslendingar þurfum að
styrkja sjávarútveginn, sem gefur
okkur um 75% gjaldeyristekna okk-
ar og hefur verið undirstaða vel-
megunar landsmanna. Ekki blóð-
mjólka hann með gervigengi og
ofsköttun og hlaupa síðan til þegar
í óefni er komið, skattleggja mat-
væli og annað og borga til baka
hluta þess sem ranglega var af sjáv-
arútveginum tekið.
Beint og óbeint hefur sjávarút-
vegurinn innleitt stórfellda tækni-
þróun á íslandi. Við eigum ótalda
tæknimenn, sem í samráði við sjáv-
arútveginn hafa þróað og smíðað
vélar og tæki til veiða og fisk-
vinnslu. Þessi vamingur hefur verið
fluttur utan fyrir tugi eða jafnvel
hundruð milljóna undanfarin ár, en
síðan vegna skipulagsleysis, í víðu
samhengi, að verulegu leyti dottið
niður.
Við eigum ekki að vera hrædd
við samkeppni, heldur mæta henni
með þrautseigju, en um það er gott
dæmi toghleraverksmiðja Jósafats
við Súðavog, sem byggir tilveru sína
um 70% á útflutningi; og ef hægt
er að flytja út toghlera með árangri
er ótal margt annað hægt.
Það er staðreynd að stærstu bíla-
verksmiðjur Japana eru nánast ekki
annað en samsetningarverksmiðjur,
þar eru ótal verktakar, smærri iðn-
fyrirtæki sem framleiða hina ýmsu
hluta bílanna og senda til samsetn-
ingarverksmiðjunnar. Á íslandi eru
til tæki og vélar í málmiðnaði sem
afkastað gætu tíu sinnum meira en
gert er í dag og með hagræðingu
og skipulagi höfum við nægan hæf-
an mannafla. Við megum ekki allt-
af hafa að viðkvæði „þeir“, sem í
raun enginn veit hver er, gera aldrei
neitt af viti. Við erum öll „þeir“.
Launþegasamtökin taka digur gjöld
af félögum sínum og bera, eða
ættu að bera, ábyrgð og styrkja
góðar hugmyndir á fleiri sviðum en
kreíjast hærri launa. Meðal annarra
orða; það hreyfði því háttsettur
maður ekki alls fyrir löngu að hann
hafi orðað það við stallbræður sína,
að hann og þeir lækkuðu við sig
launin. Þar með færu þeir að for-
dæmi þáverandi forstjóra Sam-
bands ísl. samvinnufélaga í heims-
kreppunni miklu; hann lækkaði við
sig launin og spurði starfsfólkið
hvort það vildi taka þátt í launa-
lækkun, enginn var þvingaður.
Höfundur er verslunarmaður.
Veiðisögur og firásagnir
KOMIN er út hjá Bókaútgáfúnni
Strengjum bókin „Hann er á“.
Höfúndur og útgefandi er Þröst-
ur Elliðason fiskeldisfræðingur.
Bókin hefur að geyma meðal
annars frásagnir af átta veiðiám
þar sem slóðir margra stangveiði-
manna liggja. Rætt er við Skúla
Skarphéðinsson veiðivörð í Leir-
vogsá, Áma Baldursson, einn leigu-
taka Laxár í Kjós, Ingvi Hrafn Jóns-
son fyrrum fréttastjóri Sjónvarpsins
ræðir um Langá á Mýrum, Torfi
Ásgeirsson riflar upp sumarið 1988
í Haukadalsá, Bjöm Olafsson skóla-
stjóri í Hafnarfirði segir frá viður-
eignum við stórlaxa í Laxá í Dölum,
Sigurður Finnsson útgerðarmaður,
Lýður Bjömsson forstjóri og Þröst-
ur sonur hans segja frá eftirminni-
legum atvikum frá Víðidalsá og
Brynjólfur Markússon, .einn leigu-
taki Vatnsdalsár, segir frá veiðinni
þar. Einnig eru í þessum kafla
nokkrar stuttar veiðisögur af Skúla
Skarphéðinssyni, en hann hefur
veitt í Vatnsdalsá í mörg ár. Orri
Vigfússon formaður Laxárfélagsins
og Völundur Hermóðsson, Álftanesi
í Aðaldal, segja frá Laxá í Aðaldal
og einnig eru frásagnir Laxárveiði-
mannanna Jóhannesar Kristjáns-
sonar frá Akureyri, Ingva Hrafns
Jónssonar og Péturs Steingrímsson-
ar, Laxámesi í Aðaldal.
Næsti hluti bókarinnar heitir
Veiðispjall og veiðsögur. Þar eru
stuttar frásagnir veiðimanna víða
að. Guðlaugur Bergmann segir
þijár veiðisögur frá Norðurá, Guð-
rún Guðjónsdóttir kona hans minn-
ist á konur og veiðiskap. í því sam-
bandi er í bókinni birt mynd af
Lindu Pétursdóttur fegurðardrottn-
ingu að veiðum í Hofsá í sumar.
Stutt viðtöl eru við Kolbein
Grímsson, Rafn Hafnflörð, Kristján
Kristjánsson, Bjöm Emilsson dag-
Þröstur Elliðason
skrárgerðarmann hjá Sjónvarpinu
og Þorkel Fjeldsted, Feijukoti í
Hvftá.
MINNSTA PONTUN
10 STK.
VERÐ
KR. 42
PR. STK.*
SIMANUMERIÐ
0KKAR ER
17152
MYNDAMÓT HF