Morgunblaðið - 13.12.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
39
Lausgegn tryggingu
Reuter
Suður-afríski verkalýðsleiðtoginn Moses Mayekiso fyrir utan húsakynni hæstaréttar í Jóhannesar-
borg í gær ásamt eiginkonu sinni Kola. Hann var látinn laus úr fangelsi í gær gegn tryggingu.
Mayekiso og fjórir aðrir andófsmenn voru níu mánuði í einangrun í fangelsi áður en réttarhöld
hóáist í máli þeirra í janúar síðastliðnum. Þeir voru ákærðir fyrir landráð.
Forsætisráðherra Póllands í blaðaviðtali:
Óháðir flokkar fá
ef til vill að starfa
Útilokað að leyfa starfsemi Samstöðu
Bonn. Reuter.
MIECZYSLAW Rakowski, forsætisráðherra Póllands, sagði í blaða-
viðtali, sem birtist í gær, að hugsanlegt væri að flokkum stjórnarand-
stæðinga yrði leyft að starfa í landinu í framtíðinni. Hann útilokaði
hins vegar að starfsemi Samstöðu, hinnar óleyfilegu hreyfingar
pólskra verkamanna, yrði heimiluð.
Rakowski sagði í viðtali við vest-
ur-þýska dagblaðið Die Welt að
stjórnvöld vildu innleiða ijölræði í
landinu og væri þá ráð fyrir því
gert að sjálfstæð stjórnmálasamtök
gætu starfað við hlið kommúnista-
flokksins. „Það má jafnvel ímynda
sér að flokkar stjórnarandstæðinga
starfi í landinu en þetta á ekki við
um Samstöðu," bætti hann við.
Hann kvaðst ekki draga í efa rétt
Lechs Walesa, leiðtoga Samstöðu,
til að leita eftir því við stjórnvöld
að starfsemi samtakanna yrði leyfð
en sagði það „grófa einföldun" að
leggja rétt samtakanna til að starfa
að jöfnu við aukið frelsi alþýðu
manna í landinu.
Forsætisráðherrann sagði að
tryggja þyrfti frið í Póllandi ef tak-
ast ætti að leysa efnahagsvandann
og kvaðst líta svo á að starfsemi
samtaka á borð við Samstöðu myndi
hafa aukna spennu í för með sér.
Lech Walesa hefur sett það sem
skilyrði fyrir viðræðum við ráða-
menn um framtíð landsins að jafn-
framt verði sú krafa hans, að Sam-
stöðu verði leyft að starfa, tekin til
skoðunar. Samtökin voru lýst ólög-
leg árið 1981 er herlög voru sett í
Póllandi.
Rakowski sagði að Pólveija sár-
vantaði lánsfé frá Vesturlöndum til
að unnt reyndist að rétta efnahag
landsins við en bætti við að hanri
teldi ólíklegt að vestrænar ríkis-
stjórnir og bankastofnanir væru
reiðubúnar til að veita lánsloforð á
næstunni. Því þyrftu Pólveijar enn
um sinn að sætta sig við skort á
nauðsynjavörum auk þess sem ekki
yrði hvikað frá þeirri stefnu að loka
óarðbærum ríkisfyrirtækjum.
V estur-Sahara:
Pólisaríó viðurkennir
árás á hjálparflugvél
Algeirsborg. Reuter.
SKÆRULIÐAR Polísaríó-fylkingarinnar, sem berst fyrir sjálfstæði
Vestur-Sahara, fyrrum Spánarnýlendu, við Marokkómenn, sögðust
á sunnudag hafa skotið niður flugvél á vegum bandarískrar hjálpar-
stofnunar á fímmtudag. Stofriunin hefur lagt ýmsum Afríkuríkjum
lið í baráttunni við engissprettufaraldur. Fimm menn voru um borð
í vélinni og fórust þeir allir í árásinni.
í yfirlýsingu Pólisaríó er Banda- Bandaríkjamönnum líkin tafarlaust.
ríkjastjórn beðin afsökunar. Árásin
er sögð hafa verið gerð fyrir mistök
og segjast skæruliðarnir harma
hana. Skæruliðarnir lofa að afhenda
ERLENT
Skæruliðarnir segjast hafa skotið
á tvær flugvélar af gerðinni DC-7
þegar þær hafi verið á lágflugi
skammt frá yfirráðasvæði Mar-
okkóhers. Þeir hafi haldið að vélarn-
ar hafi verið herflugvélar af gerð-
inni C-130 í eigu Marokkómanna.
Önnur vélin skemmdist í árásinni
en flugmönnunum tókst að nauð-
lenda henni í Marokkó.
Pólísaríó-fylkingin aðhyllist
marxisma, nýtur stuðnings Álsír-
manna, og hefur barist við Mar-
okkóher fyrir sjálfstæði Vestur-
Sahara í þrettán ár.
Frakkland:
Samtök
hundaþjófa
leyst upp
Agcn. Reuter.
FRANSKIR lögreglumenn
hafa fundið 40 dauða hunda
á heimili hundaræktarmanns
í Suðvestur-Frakklandi, að
því er heimildamenn innan
lögreglunnar sögðu á föstu-
dag. Hundarnir voru djúp-
frystir og grunar lögreglan
manninn um að vera í tygjum
við samtök hundaþjófa sem
hagnast á sölu hunda til
rannsóknarstofa.
Átta menn, sem tilheyra
samtökunum, hafa verið sakað-
ir um hundaþjófnað og illa
meðferð á dýrum. Lögreglu-
menn sem vinna að lausn máls-
ins segja að allt að 100.000
hundum sé stolið á hveiju ári
í Frakklandi og þeir seldir til
rannsóknarstofa í Frakklandi
og á Spáni.
Að sögn lögreglumannanna
fara hundaþjófarnir um þorp
úti á landi með tíkur á lóðafari
í bandi og tæla til sín hunda
sem þeir svæfa og flytja á brott
í sendibílum.
Hundaþjófarnir hafa útveg-
að sjúkrahúsum dauða hunda
sem læknastúdentar kryfja.
Einnig hafa rannsóknarstofur
fengið lifandi hunda frá sam-
tökunum til rannsókna. Lög-
reglan telur að mörgum lækn-
um hafi verið kunnugt um að
hundunum hafði verið stolið.
Til og með
16. desember
næstkomandi
getur þú lagt inn á
Afmælisreikning
Landsbankans
og féngið
7,25% ársvexti
umfram verð-
tryggingu næstu
15 mánuðina.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
uáiv uJeuóI?.