Morgunblaðið - 13.12.1988, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
+fH—I „ .1 r í 11 1.—rf—i . 1 ■ ■ • .0 i ■. J f í 1 JI '. I , í 1
60
I-H—
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson,
Jóladagskrá
I tilefni komandi hátíðar og
áramóta verður sérstök jóla-
dagskrá í þessum þætti. I
fyrsta lagi verður flallað um
sparihlið merkjanna, eða bent
á nokkra jákvæða möguleika
sero gætu verið hverju merki
til eftirbreytni. Á jólunum
verður hugleiðing um kær-
leika og hamingju og í byijun
ársins verður fjallað um árið
framundar, fyrir hvert merki
fyrir sig, en einnig fyrir
íslenskt þjóðfélag.
SparihliÖ Hrútsins
Bestu eiginleikar Hrútsins
(20. mars-19.apríl) eru fólgn-
ir í jákvæðni, krafti og drift,
en einnig því að hann er
hress, einlægur og bjartsýnn.
Hrúturinn er fljótur að fram-
kvæma ætlunarverk sín, er
duglegur og kappsamur.
Hann er jákvæður í skapi og
lítið fyrir að búa til vanda-
mál. „Þetta er ekkert mál,
við bara drífum í því,“ segir
hann gjaman.
Snerpa
Dæmigerður Hrútur er
ákveðinn og sjálfstæður mað-
ur sem fer sínu fram. Hann
hefur forystuhæfíleika og
getur verið brautryðjandi á
sínu sviði. Astæðan fyrir því
er ekki síst sú að hann laðast
að því sem er nýtt. Hann er
einnig hreinn og beinn og er
fljótur að gera upp hug sinn.
Snerpa og baráttugleði eru
meðal hæfileika hans.
Lífog hreyfmg
Hrúturinn þarf líf og hreyf-
ingu. Hann er líkamlegt
merki og koðnar niður í líflitlu
og stöðnuðu umhverfí, verður
eirðarlaus og uppstökkur, eða
slappur og áhugalaus. Vana-
binding á illa við hann. Þegar
Hrúturinn er að fást við ný
viðfangsefni lifnar hann við
og smitar aðra með ákafa
sínum. Hann þarf að koma
málum þannig fyrir að við-
fangsefnin séu íjölbreytt og
lifandi. Hann á að taka sprett,
hvíla viðfangsefnið og taka
sprett á öðrum vettvangi,
síðan er hægt að taka til við
fyrra viðfangsefni á ný.
íþróttir, útivera og önnur
líkamleg hreyfing er honum
míkilvæg.
Sprengikraftur
Þó Hrúturinn búi óneitanlega
yfir sprengikrafti og sé lif-
andi er ekki þar með sagt að
ekki finnist rólegir og yfir-
vegaðir Hrútar. Ég hef t.d.
séð nokkra Hrúta í atvinnulíf-
inu, menn sem eru ákveðnir
en samt fastir fyrir og róleg-
ir í framkomu. Þeir virðast
ekki alltaf dæmigerðir Hrútar
við fyrstu sýn. Við nánari
athugun má hins vegar sjá
Hrútseðlið, ekki síst á því að
þeir eru drífandi í starfi, berj-
ast gegn stöðnun og eru virk-
ir 1 því að setja á fót ný fyrir-
tæki, taka upp nýja viðskipta-
hætti eða endumýja þær að-
ferðir sem fyrir eru.
Sáningarmaöur
Það má segja að Hrúturinn
sem merki nýrra byrjana, sé
sáningarmaður. Hæfíleiki
hans er ekki síst sá að koma
auga á nýja vaxtarbrodda.
Það þýðir að hann er fljótur
að átta sig og hefur visst inn-
sæi í það sem koma skal.
Hrúturinn ætti að efla með
sér innsæi sitt og gæta þess
að treysta alltaf á fyrstu
skynjun sína hvað varðar
menn og málefni.
JákvœÖ viÖhorf
Hrútur í essinu sínu er já-
kvæður og lifandi baráttu-
maður. Hann er sjálfstæður
frumherji sem getur rutt nýj-
ar slóðir fyrir aðra. Hann er
hreinskilinn, einlægur og
beinskeyttur.
GARPUR
s/^e | Efí Þett/j ) AjÉ/y
'STTO /------ \ srABO^jAjuy ÞEl-tta
lÍSHÍ : GRETTIR
BRENDA STARR
I ne/NQUR/fJN ylA/W
, \ U/ÆÐ/ST HAFA FrtLL-
fOJÚPA HOLU f
ÍBÚÐ FYKKUM
KOA/U MMNAP
TALANOt UM ÖR.LÖG, USfZÐ
AÐFA/ZA ‘A BALLIE>
'A€>ufit eN ÉG
GÖTU-
MAÐUR AFTUR..
HMIIMMHIIMMMMMIMIWIWWWMWHWMMMHMWM'
I VATNSMYRINNI
OTÆ775
/M'kFLUGOR.
BF pö V/LTti/thJA
E KKI">
LATl’/tfi/A EKK/ FAKA
T/L 5P/LLIS //
FERDINAND
SMÁFÓLK
ANP UJWILE VOURE EATIN6,
l'LL BOTHER YOU C0N5TANTLY
A5K.IN6 IF EV6RYTHIN6
15 ALL RI6HT..
ANP PUT PLENTY OF LIP5TICK
ON THE UJATER 6LA55..
—
Gjörðu svo vel, herra,
njóttu matar þíns...
Og á meðan þú ert að
borða trufla ég þig alltaf
með því að spyrja hvort
allt sé í lagi...
Og makar varalit á vatns-
glasið...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Gylfi Baldursson og Sigurður
B. Þorsteinsson unnu Reykjavík-
urmótið í tvímenningi með yfir-
burðum, en það var spilað í Sig-
túni 9 um helgina. Gylfí og Sig-
urður tóku strax forystu og juku
forskotið fram á síðasta spil.
Bræðumir Hermann og Ólafur
Lárussynir lentu í öðru sæti, en
Guðlaugur R. Jóhannsson og
Öm Amþórsson urðu þriðju.
Spilagjöfin var fjörug og oft var
vandamálið það eitt, hvort spila
ætti sex eða sjö. Þetta var eitt
af þeim spilum.
Austur gefur; AV á hættu.
Norður
♦ 42
♦ ÁK74
♦ ÁK97
♦ Á98
Vestur
♦ 763
♦ 109652 i!
♦ DG6
♦ KIO
Suður
♦ ÁKDG1098
♦ 8
♦ -
♦ D7542
Nokkrir suðurspilarar opnuðu
á sterku laufi, norðri til mikillar
furðu. En eftir þá byrjun gat
niðurstaðan ekki orðið önnur en
sjö grönd. I þann samning vant-
ar einn slag, sem hvergi er hægt
að búa til með kastþröng. Þeir
sem spiluðu aðeins sex spaða
fengu því all góða skor, þótt sex
grönd sé besti tvímenninga-
samningurinn.
Einhverjir voru líka í sjö spöð-
um, en þann samning má vinna
með kastþröng á vestur í laufi
og hjarta. Lykilatriðið er að taka
ÁK í rauðu litunum og trompa
eitt hjarta. Þá getur austur ekki
staðið vörð um hjartað og vestur
lendir í klemmu þegar trompun-
um er spilað til enda.
Austur
♦ 5
♦ DG3
♦ 1085432
♦ G63
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Ólympíuskákmótinu I Salon-
iki kom þessi staða upp í skák
alþjóðlegu meistaranna Sisniega,
Mexíkó, sem hafði hvítt og átti
leik, og Illescas, Spáni.
23. Rxe6! - £xe6
Svartur tapar skiptamun eftir 23.
- Rxb2 24. Rxd8 - Hxd8 25.
Bxc6
24. Dxe6+ - Kh8 25. Bxc6 -
Dxc6 26. Bxg7+ - Kxg7 27.
Dxe7+ - Kg8 28. Dg5+ - Kh8
29. DIB+
og svartur gafst upp, því hann
er óveijandi mát eftir 29. — Kg8
30. He7.