Morgunblaðið - 13.12.1988, Page 64

Morgunblaðið - 13.12.1988, Page 64
 64 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988 F élag-sleg- og- fj árhagsleg staða aldraðra í framtíð eftirHrafh Sæmundsson Það er takmark hvers einstakl- ings að hfið hafi einhvern tilgang. Að hver komandi dagur heilsi með einhveijum fyrirheitum. Að maður- inn beri gæfu til að takast á við fijó verkefni og að hver dagur skili einhveijum árangri — í starfi og í einkalífi. Þetta eru meðvituð eða ómeðvituð viðbrögð hvers og eins. Hins vegar skapa margvíslegar að- stæður mismunandi skilyrði fyrir því að ná þessu takmarki. Ytri skil- yrði vega þarna þungt en einnig kemur annað til svo sem heilsa og persónulegar aðstæður ýmis konar. Líklega er þó enginn þáttur eins mikið á valdi okkar sjálfra og ytri skilyrði til að lifa góðu lífi. Þar vefjast saman gerðir einstakling- anna og gerðir þeirra sem stjóma þjóðfélaginu. Sameiginlega ráða þessir aðilar mjög miklu um það hvort einstaklingamir geta notið þeirra lífskjara að vakna að morgni og takast á við komandi dag með tilhlökkun og njóta þannig eðlilegr- ar lífsfyllingar. Staða málsins Einn er sá hópur fólks sem orðið hefur útundan hvað varðar góðar ytri aðstæður til góðs lífs og þessi þjóðfélagshópur hefur einnig og ekki síður orðið illa úti hvað innri skilyrði varðar. Mál fullorðins fólks og aldraðra hafa verið í afmörkuð- um farvegi undanfama áratugi. Hvorki stjómvöld eða fullorðna fólkið sjálft hefur komið neinu heildarskipulagi á þessi mál. Astandið í málum aldraðra er allt frá því að vera algert neyðarástand einstaklinga og að því marki að ekki er tekið tillit til félagslegra þarfa fullorðins fólks sem gengur til móts við ellina. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um neyðarástandið hjá mörgu öldmðu fólki. Sá smánar- blettur lýsist ekki heldur dökknar. Oldruðum einstaklingum er ekki sinnt oft á tíðum nema hvað varðar algerar fmmþarfir og stundum ekki einu sinni það. Aldrað fólk býr oft á tíðum við hroðalegar aðstæður í heimahúsum eða er hrúgað saman á stofnanir sem hafa litla möguleika á að sinna félagslegum þörfum þessa fólks. Og gamalt fólk hefur oft engin lífskjör miðað við það sem meginþorri fólks býr við í landinu. Þetta em staðreyndir sem allir vita um sem þekkja eitthvað til þessara mála og það breytir ekki þessum staðreyndum að á vissum sviðum og á vissum stöðum em gerðar veikburða tilraunir til úr- bóta. Engin þróun Fyrir utan það að ástandið í málym aldraðra batnar ekki og víða er ekki einu sinni haldið í horfínu, þá hefur nánast engin þróun orðið í hugmyndafræðinni. Sömu úrræðin eða svipuð em yfirleitt enn á dag- skrá og fyrir mörgum áratugum. Viðbrögð þjóðfélagsins við þessu verkefni em oft á tíðum þau að hringja í steypubíl þegar allt er komið í óefni. Hér verður nú í fáum orðum drepið á þær breyttu þarfir sem vegna þróunar þjóðfélagsins hafa komið fram á síðari ámm í sam- bandi við aðdraganda og undirbún- ing ellinnar. Breyttur lífsstíll hefur orðið þess valdandi að staða fullorð- ins fólks hefur breyst mikið. Sá tími er liðinn eða er að líða að fullorðið fólk dvelji hjá bömum sínum í ell- inni. Böm fara að heiman og lifa sínu eigin lífi í sinni eigin ijölskyldu en fullorðnir foreldrar sitja eftir einir og svo kemur að því að annar makinn deyr og þá situr hinn einn eftir í búinu. Og svo em þeir sem alltaf hafa verið einir en þessi hóp- ur er stærri en margir ætla. Þó að böm og ættingjar séu ræktarsöm við fullorðið fólk oft á tíðum, þá nægir það ekki. Margt gerist þama á sama tíma sem veld- ur því að fullorðið fólk einangrast á góðum aldri. Heilsa fólks fer oft versnandi á þessu aldursskeiði. Erf- iðara verður að standast kröfur vinnumarkaðarins og margir fara raunar af vinnumarkaði á aldrinum 60—70 ára og sumir fyrr, sérstak- lega konur. Að fara af vinnumark- aði er margfalt áfall fyrir marga sem enn hafa þokkalega heilsu. Það kippir ekki aðeins stoðum undan efnahagnum heldur missir fólk bæði þá ánægju sem vinnan gefur og ekki síður sambandið við vinnu- staðinn og vinnufélagana. Ofan á þetta bætist stundum missir maka og stundum hefur það gerst áður. Til að fylla allt þetta tómarúm dug- ir ekki það eitt að hafa samband við böm og ættingja þó að þeir séu góðir og ræktarlegir og vilji með glöðu geði og ánægju koma þarna og leggja sitt lið. Aðstæður í þjóð- félaginu, vinna og lífsstíll, bjóða ekki upp á það. Sveitarfélögin Þó að hér hafí verið dregin upp dökk mynd vita allir sem til þekkja Útsala!!! Mjög mikill afsláttur af öllum okkar skóm. Götuskór- Spariskór- Kuldaskór. $ktrval Skólavörðustíg 22, sími 14955. (Áður við Óðinstorg) J ÓLAGJÖF VEIÐIMANNSINS ENGIN JÓL ÁN MÖMMUSULTU! Það er ekki sama hvaða sultu þú berð á borð með jólamatnum. Þess vegna skaltu velja jólasultuna vandlega, þegar þú kaupir inn. Láttu ekki lélega sultu eyðileggja fyrir þér jólasteikina. Fáðu þér Mömmusultu - og nóg af henni! Mömmusulta er vægast sagt frábær bæði með hátíðamatnum, í baksturinn í pönnukökurnar eða beint á brauðsneiðina. Þú getur valið um Mömmu Rabarbarasultu, Mömmu Jarðarberjasultu - og svo má ekki gleyma hinu vinsæla Mömmu Appelsínumarmelaði. Hrafn Sæmundsson að þetta eru staðreyndir. Þrátt fyr- ir það hjakkar allt f svipuðu fari þegar á heildina er litið. Það er engin skýr stefnumörkun, enginn rammi, engin skipuleg verkaskipt- ing, ekkert heildarsamstarf. Það þarf að skilgreina verkefnið betur og samræma þjónustuna og tilboð- in. Og hvað þarf þá að gera og hveijir eiga að gera það? Þáttur sveitarfélaganna er auðvitað mest- ur. Þar er málið afmarkað í hnot- skum á hveijum stað. Þar á að vera fyrir hendi stýring og meðvituð vinnubrögð þegar kemur að því að ellin sæki fólkið heim og þegar fer að líða að verklokum. Sveitarfélögin þurfa að meta þennan þátt félags- legrar þjónustu af raunsæi án þess að um forræðishyggju sé að ræða. Auðvitað er margt fullorðið fólk vel statt og á til dæmis áhugamál til að snúa sér að. Engu að síður er víst að þama er um mikið mál að ræða sem auðvitað á að taka á og raunar ætti fólkið sjálft fyrst og fremst að gera það í samvinnu við stjómendur sveitarfélaganna. Þama þarf fyrst og fremst að byija að vinna miklu fyrr og skapa skil- yrði fyrir auknu fyrirbyggjandi starfi á mörgum sviðum áður en kemur að hinni raunvemlegu elli. Sveitarfélögin bíða oft eftir „vanda- málunum" og eyða þá ómældri vinnu og fjármunum til að leysa þau. Það er raunar grátlegt að heyra fulltrúa sveitarfélaganna í ræðu og riti og í sjónvarpi lýsa skelfingu sinni vegna fjölgunar gamals fólks. Þeir hafa reiknað dæmið og vita nákvæmlega hver fjölgunin er eftir 5, 10 eða 20 ár. Þessi skelfing sveitarstjórnar- manna er að því leyti skiljanleg að ef engin breyting verður á skipulagi eða hugmyndafræði heldur neyðar- ástandið áfram að versna. Með breyttu skipulagi og breyttri hug- myndafræði er hins vegar hægt að breyta neyðarástandinu í eðlilega þróun. Það er til dæmis ekki nokk- ur vafi, og það hefur raunar verið reynt á einum stað, að hægt er að fresta ellinni í mörgum tilvikum með samstarfi fólksins sjálfs og sveitarfélagsins. En til þess að ná árangri á þessu sviði þurfa sveitar- félögin almennt að skapa ytri skil- yrði fyrir forvamarstarfi á breiðum grunni áður en að hinum raun- verulegu elliárum kemur. Þetta þarf að gerast á eðlilegan hátt und- ir stýringu fólksins sjálfs. Með þessu móti og svo því að 'komast út úr steypubílnum í hugmynda- fræðinni, gæti orðið um eðlilega þróun að ræða og með því að bytja fyrr þá myndi aðlögun starfsloka í mörgum tilvikum verða eðlileg þró- un en ekki sú martröð sem oft vill verða. " ' 11 Engar stöðumælasektir -í CeirUvwc ovb go 'isnnnsgtiiIyoidBÓýlsjiisv

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.