Morgunblaðið - 13.12.1988, Side 74
74
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. DESEMBER 1988
GEGN HARLOSI
Loksins á íslandi
Foliplexx
Efnlð, sem varð til vegna rannsókna á blóðþrýstingslyfinu
Minoxidil. Hópur vísindamanna og lækna hafa þróað efni
er inniheldur efnakerfi sem viðurkennt er að stöðvar
hárlos og örvar endurvöxt.
Foliplexx fœst hjá:
Hársnyrtingu Villa Þórs,
Ármúla 26, s: 34878
-M
wfflms
KOSTUR FYRIR ÞIG
NÖRiTirNOX
a nd3.-
mTR KR-1-043''
1,0 LTR-
. ,-rft KR- 1-507''
1.4 LTR-
. ,TR KR.1-696’'
,25 LTH-
n itB KR.1-449''
2,0 LTR-
c|Tr kr-1-866-'
í,75 LTR.
(TB KR.2-454-'
6.5 LTH-
Kfí 1-349’'
24 CM Kh‘
s I/R. 2.429--
= 28 CM
LLT!
Röntgenmyndataka í
skólatannlækningum
Til Velvakanda.
I Morgunblaðinu 30. nóv. sl. kom
grein í Velvakanda, sem bar yfir-
skriftina Vísvitandindi heilsuspill-
ing? í þessari grein er gefið í skyn
að skólatannlæknar spilli heilsu
bama vísvitandi með ofnotkun á
röntgenmyndum og þá líklega í
ábataskyni. Ég tel því rétt að gera
hér í sama blaði grein fyrir þeirri
starfsemi skólatannlækna, sem
röntgentæki eru notuð við.
Aðalstarf skólatannlækna hefir
verið að leita að holum í tönnum
og fylla þær. Á þeim flötum tanna,
sem sýnilegir eru, greinast holur
auðveldlega með handverkfærum
tannlæknis, en þeir fletir, sem liggja
að næstu tönn, eru ekki sýnilegir
ef tennur liggja þétt saman og
sjaldnast er hægt að kanna þá til
hlítar nema með því að taka rönt-
genmynd.
Tennur í bömum skemmast hrað-
ar en tennur í fullorðnum. Og þeg-
ar skemmd hefír náð gegnum gler-
ung tanna í barni, vex hún fljótt í
tannbeininu og getur á fáum vikum
opnað sýklum leið inn í kviku tann-
arinnar með slæmum afleiðingum,
svo sem tannpínu og ígerð. Þess
vegna er mikilvægt að finna
skemmdina á byrjunarstigi til þess
að geta stöðvað vöxt hennar í tíma.
Eins og áður segir, verða snerti-
fletir tanna varla kannaðir vel nema
með aðstoð röntgenmyndar. Þess
vegna eru oftast við hveija skoðun
teknar tvær röntgenmyndir, svo-
kallaðar „bitewing“-myndir, af
krónum jaxlanna sín hvoru megin.
Á þessum myndum koma snertiflet-
ir jaxlanna vel í ljós.
Hvert barn er skoðað einu sinni
til tvisvar á ári, en röntgenmyndir
eru aðeins teknar einu sinni á ári
nema ástand tanna krefjist tíðara
og riákvæmara eftirlits.
Á síðustu árum hefír tannheilsa
skólabarna batnað mjög og tann-
skemmdir hægt á sér. Það er því
ekki eins nauðsynlegt og áður að
taka „bitewing“-myndir við hverja
skoðun.
I starfsreglum skólatannlækna í
Reykjavík segir:
Röntgenmyndatökum skal stillt
í hóf.
Ef ekkert sést athugavert á
„bitewing“-mynd og barnið er
jafnframt með góðar og vel hirt-
ar tennur, er „bitewing“-mynd
ekki nauðsynleg við næstu skoð-
un.
Skólaárið 1986—87 voru skoðuð
11.003 börn hjá skólatannlækning-
um Reykjavíkur og sum þeirra oftar
en einu sinni, eða alls 13.138 sinn-
yisvitandi heilsuspiliing?
um. Fjöldi röntgenmynda, sem
teknar voru þar á sama tíma, var
12.367. Svarar það til að 6.184
börn hafi verið röntgenmynduð við
skoðun.
Ef „bitewing“-myndir hefðu ver-
ið teknar af hverju bami, sem á
engan hátt gæti talist óeðlilegt,
hefði röntgenmyndaflöldinn verið
22.006.
Ég vona að í þessum línum hafi
Til Velvakanda.
Eitthvað hefur gengisfellingu
borið á góma að undanförnu en um
ágæti hennar em mjög skiptar
skoðanir. Sumir telja hana hina
mestu ósvinnu en aðrir bjargræði
sem dugir. Atvinnurekendur og
stjórnvöld virðast þreytt orðin á
leit sinni að lausn vandans. Það að
rýra verðgildi krónunnar er lítils
virði nema til komi hliðarráðstafan-
ir henni samfara, telja stjómarand-
stæðingar hvers tíma að minnsta
kosti. Undir slík sjónarmið er auð-
velt að taka. Líklega er búið að
fella gengið 30-40 sinnum á und-
anförnum ámm og áratugum og
af fjölmörgum stjórnendum. Allar
em gengisfellingamar því marki
brendar að hafa mistekist. Ein
megin ástæða þess að gengislækk-
anir em fyrirfram dæmdar til að
fara úr böndunum á Islandi, sem
og víða annars staðar í heiminum,
er einmitt sú að svokallaðar hliðar-
ráðstafanir líta aldrei dagsins ljós
í kjölfar slíkra ólukku aðgerða enda
um að ræða „magniltöflukúraað-
ferðir“ sem duga skammt ef lækna
á alvarlegan krankleika. Alþjóð er
væntanlega fullkunnugt um það að
áhrifa frá verkjalyfjum gætir frem-
ur stutt, í besta falli nokkrar
klukkustundir. Einnig lætur þeim
ég getað sýnt fram á, að hjá skóla-
tannlæknum Reykjavíkur er rönt-
genmyndatöku mjög stillt í hóf.
Sjö ára barn gæti vel lýst „bite-
wing“-myndatöku á þann hátt að
teknar hefðu verið nokkrar rönt-
genmyndir af efri og neðri kjálka
báðum megin, eins og segir í áður-
nefndri grein.
Auðvitað er röntgengeislun ekki
heilsusamleg og enginn heldur því
fram, en stundum er hún nauðsyn-
leg og skaðlegum áhrifum er haldið
í lágmarki með því að gera lög-
boðnar öryggisráðstafanir. Geisla-
varnir ríkisins ganga ötullega fram
í því að reglum um útbúnað og
notkun röntgentækja sé hlýtt.
Ræðnir og skemmtilegir menn
geta stundum valdið ástæðulausum
ótta með fullyrðingum sem þeir ef-
til vill sjálfrr gera ekki ráð fyrir að*
teknar verði bókstaflega.
Stefán Finnbogason
yfírskólatannlæknir
hátt rómur er trúa því að íslenskur
gjaldmiðill sé rangt skráður og
krefjast leiðréttingar þar á strax.
Þessi staðhæfing skýtur af og til
upp kollinum og vex sífellt fiskur
um hrygg. y
Er þess háttar vangaveltur vakna
koma margar spúrningar upp í hug-
ann. Til að mynda, hvað þarf verð-
gildi krónunnar að hrapa mikið í
viðbót áður en hún getur talist rétt
skráð? Við hvað hyggjast menn
miða komist þetta sjónarmið á
framkvæmdastig? Dollarann sem
sífellt er að minnka, breska pundið,
japanska yenið, þýska markið eða
kannski rússnesku rúbluna. Þannig
mætti lengi halda áfram. Mörgum
manninum, og þá sérstaklega
háttvirtum alþingismönnum, er það
nefninlega tamt að kveða hálf-
kveðnar vísur í ræðum sínum með
þeim afleiðingum að þegninn á göt-
unni botanar ekki neitt í neinu.
Hann klórar sér skilningsvana í
höfðinu, hristir úfinn kollinn og lab-
bar þvínæst á braut ruglaður og
ráðvilltur, pottþéttur á að annað
hvort hafi skrúfa losnað í höfðinu
á honum sjálfum ellegar ræðuskör-
ungunum sem stigu í pontu á
hæstvirtu Alþingi.
Konráð Friðriksson
Gengisfelling —
ósvinna eða bjargræði
Víkverji skrifar
Víkverji var fyrir skömmu far-
þegi í þotu Arnarflugs á heim-
leið frá Amsterdam. Þegar flugvélin
nálgaðist landið ávarpaði flugstjóri
farþegana og veitti þeim upplýsing-
ar um lokaáfanga ferðarinnar.
Hann sagði m.a.:“...leiðin tekur
okkur yfir Vestmannaeyjar...."
Er þetta hægt? Getur íslenzkur
flugmaður ekki hugsað sér að segja
einfaldlega:“Við fljúgum yfir Vest-
mannaeyjar“?!
XXX
Dag einn í síðustu viku varð
Víkvetji fyrirþví a.m.k. fjórum
sinnum að koma inn á símtöl ann-
ars fólks, þegar hringt var. Hér
skal ósagt látið, hvort þetta var
vegna bilana í skiptiborði því, sem
Víkverji notar eða símstöðvum bæj-
arsímans. Hins vegar hefur heyrzt
um önnur dæmi af sama toga. Er
símakerfið í ólagi? Er álagið of
mikið?
XXX
Isíðustu viku birtist lesendabréf
í DV , þar sem athugasemd var
gerð við það, að merki Flugleiða
hafði verið notað í baksíðufrétt hér
í Morgunblaðinu um málefni félags-
ins. Þetta er auðvitað alveg rétt
athugasemd hjá bréfritara. Að sjálf-
sögðu á slíkt merki ekki heima í
fréttum. Vonandi, að Morgunblaðið
taki sig á!
XXX
Ifréttum Morgunblaðsins um
helgina kom fra, að um 500 fjöl-
skyldur hér á landi hafa nú aðgang
að brezku sjónvarpsstöðinni Sky
Channel. Víkveiji hefur nokkrum
sinnum séð útsendingar þessarar
stöðvar í útlöndum. Enn sem komið
er a.m.k. er efni hennar slíkt rusl,
að það er óskiljanlegt að fólk hafí
áhuga á að leggja fram fjármuni
til þess að ná í þetta ómerkilega
efni.