Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐiUDAGUR;19.‘ DESEMBER 1980
7
Eskifjörður:
Heimamenn
kaupa eign-
ir Pöntun-
arfélagsins
HEIMAMENN á Eskifirði hafa
keypt fasteignir þrotabús Pöntun-
arfélags Eskfirðinga. Fjögur
verslunarhús voru seld Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar hf. og bæj-
arsjóði Eskifjarðar og munu þess-
ir aðilar standa fyrir stofnun
hlutafélags um rekstur verslunar
í þeim. Einstaklingar keyptu íbúð-
arhús þrotabúsins. Kaupfélag
Héraðsbúa, sem hefúr haft eignir
félagsins á leigu frá því fyrir gjald-
þrot, bauð einnig í fasteignirnar.
Eignirnar, sem Hraðfrystihúsið og
bæjarsjóður keyptu, eru nýtt verslun-
arhús að Strandgötu 50, tvö verslun-
arhús að Strandgötu 44-46 og vöru-
skemma við höfnina. Samkvæmt
kaupsamningi sem undirritaður var
í gær er kaupverðið 32 milljónir kr.
60% kaupverðsins greiðast á tíu
mánuðum og eftirstöðvarnar ári
síðar. Söluverð íbúðarhússins við
Bleiksárhlíð 34 var 4,7 milljónir kr.
og greiðist alit á átta mánuðum.
Þrotabúið fær því 36,7 milljónir fyrir
fasteignirnar en Kaupfélag Héraðs-
búa á Egilsstöðum bauð 31 milljón.
Sigurður Helgason skiptastjóri
þrotabús Pöntunarfélagsins segir að
með öðrum eignum verði heildarsölu-
andvirði eigna búsins rúmlega 38
milljónir kr. Þá væri útlit fyrir að
farsæl lausn fengist á ágreiningsmál-
um þannig að um 40 milljónir kr.
gætu hugsanlega komið upp í skuld-
ir en þær eru um 60 milljónir kr.
Kaupfélag Héraðsbúa hefur eign-
irnar á leigu til áramóta og sagði
Sigurður að félaginu stæði til boða
að hafa þær til 1. mars, en þá taka
nýju eigendurnir við verslunarhús-
næðinu.
Eydís aftur
í áætlun
EYDÍS, flugvél Flugleiða, sem
stöðvaðist í Ósló í sl. viku, eft-
ir að skemmdir urðu á skrúfu-
blöðum og vélarhlíf vélarinn-
ar, er byrjuð að fljúga sam-
kvæmt áætlun á ný. Eydís kom
frá Ósló á sunnudaginn og fór
þá strax áætlunarflug til Lon-
don.
Viðgerð flugvélarinnar
heppnaðist vel. Nú er verið að
kanna hver ber ábyrgð á að hita-
barkinn, sem sogaðist upp í
hreyfijinn, var á flugvallarstæð-
inu í Ósló. Mjög strangar reglur
eru í gildi um að léttir hlutir liggi
ekki lausir á flugvallarstæðum.
Reykjavík:
AA-samtökin fá
Tjarnargötu 20
BORGARRÁÐ helúr samþykkt til-
lögu Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra, um að AA-samtökin fái inni
í Tjarnargötu 20, þar sem Félags-
málastofnun borgarinnar er nú til
húsa.
í tillögu borgarstjóra kemur fram,
að AA-samtökin hafa um árabil haft
til afnota tvö hús á Alþingisreit.
_ Forsetar þingsins hafa nú sagt sam-
' tökunum upp húsnæðinu og er stefnt
að niðurrifi þeirra og flutningi á
næstu vikum.
Félagsmálastofnun sem nú hefur
meðal annars aðsetur í húsinu við
Tjarnargötu 20, mun flytja starfsemi
sína þaðan í nýtt húsnæði við Síðum-
úla.
Gert er ráð fyrir að AA-samtökin
leigi húsnæðið frá 1. apríl 1990 eða
fyrr verði húsið rýmt fyrir þann tíma.
Verður leiga hússins miðuð við að
standa undir fasteignagjöldum og
tengdum gjöldum af húseigninni.
Auk þess annist samtökin allt nauð-
synlegt viðhald hússins að utan sem
innan og umhirðu garðsins.
Bandaríska sveitasöngkonan Tammy Wynette heldur þrenna tónleika
á Hótel Islandi í febrúar.
Tammy Wynette
á Hótel íslandi
BANDARÍSKA sveitasöngkon-
an Támmy Wynette er væntan-
leg hingað til lands í febrúar til
tónleikahalds. Wynette er ein
kunnasta núlifandi sveitasöng-
konan og heldur hún þrenna
tónleika á Hótel íslandi dagana
8., 9. og 10. febrúar ásamt 16
manna hljómsveit. Undirbúning-
ur að komu Wynette til landsins
hefúr staðið frá því i sumar, að
sögn Birgis Hrafnssonar mark-
aðssljóra hjá Ólafi Laufdal.
Tammy Wynette býr í borginni
Nashville í Bandaríkjunum, sem er
þekkt fyrir sveitasöngva, og þaðan
kemur hún beint til íslands. Hún
heldur tónleika að jafnaði 15 daga
í hveijum mánuði. Einnig hefur hún
haldið fjölmarga tónleika í Evrópu
og á þar stóran aðdáendahóp.
Wynette hefur unnið tii fjölda
verðlauna fyrir söng sinn, þar á
meðal Grammy-verðlaunanna, en
eitt frægasta lag hennar er Stand
By Your Man sem hún söng fyrst
inn á plötu 1968. Þá hefur hún í
tvígang verið valin kona ársins í
Bandaríkjunum af bókaútgáfunni
Who’s Who.
rlög g;
§em leituðu ásjár Islendinga
eu var vísaö úr landi.«
... eru viðkvæmnismál sem legið hefur í þagnargildi hérlendis í hálfa öld. Magnaður
sjónvarpsþáttur Einars Heimissonar um móttökurnar sem gyðingarnir hlutu hér á landi,
fordóma og síðan hrottvikningu þeirra frá Islandi vakti þjóðarathygli og gífurleg viðbrögð.
Götuvísa gyðingsins, fyrsta skáldsaga Einars, fjallar um þetta varnarlausa fólk og hefur
nú verið valin ein af tíu athyglisverðustu bókum ársins. Einar er yngstur þeirra höfunda
sem tilnefndir hafa verið til Islensku bókmenntaverðlaunanna 1989.
Götuvísa gyðingsins er snilldarlega skrifuð saga um efni sem snertir síðumúla29
alla íslendinga. HpWHM siMi6-88-300
-J
b é #4 #4 éé é 4 i'éá 44 # 114