Morgunblaðið - 19.12.1989, Page 11

Morgunblaðið - 19.12.1989, Page 11
MÖtíÖUNÖtÁBIð ÞKIÐÍUÖAdOR' Ið. DESEMBER '1989 / FLOTTAFOLK FYR- IR HÁLFRIÖLD Bókmenntir Erlendur Jónsson Einar Heimisson: GÖTUYÍSA GYÐINGSINS. 168 bls. Vaka-Helgafell. Reykjavík, 1989. »Þú ættir að fara að gæta þín, ég hef örlög þín á valdi mínu, sagði Islendingurinn. Skilurðu það! Eg hef örlög þín á valdi mínu. Þú lærðir leðuriðjuna af mér og ég hjálpaði þér að læra málið og núna ætlarðu að hafa af mér öll við- skipti — helvískur. Ég hef sam- bönd, Ottó, ég þekki menn á rétt- um stöðum. Ég get komið þér úr landi. Skilurðu það!« Voru þetta viðtökurnar sem þýskir Gyðingar hrepptu á íslandi? Voru íslendingar þá litlu skárri en nasistarnir þýsku? Af ofangreind- um málsgreinum að dæma mætti ætla svo? Einar Heimisson er kornungur höfundur, lipur penni, hugmynda- ríkur og vel lesinn í efni því sem hann hefur unnið með. En einföld- un hlutanna fer oft saman við æskuhugsjónirnar. Þjóðveijar voru ekki allir nasistar og óþverra- skepnur eins og ætla mætti af Götuvísu Gyðingsins. Þegar Hitler komst til valda ,var þar margt kommúnista, sósíaldemóktara, miðflokkamanna og jafnvel hægri manna sem héldu fast við skoðan- ir sínar allar götur fram yfir stríð þótt þeir hikuðu við að fórna lífinu fyrir málstaðinn, að vísu. Og hvað sem öðru líður hafði íslenskur al- menningur djúpa samúð með Gyð- ingum þeim sem hingað leituðu. Sem betur fór, bæði fyrir þá og íslendinga, tókst nokkrum þeirra að ílendast hér. Ekki er annað vit- að en þeir hafi orðið góðir þegnar. En Einar vill hafa hlutina krass- andi og afdráttarlausa. Það er annars vegar heiftin og ofbeldið en hins vegar. hörmuleg örlög hinna landlausu sem hann tekur fyrir í skáldsögu sinni, og málar það allt sterkum litum. Ef til vill er erfitt fyrir ungan höfund að setja sig inn í líf og hugsunarhátt Evrópubúa fyrir fimmtíu til sextíu árum framar því sem iesa má um í sagnfræðiritum. Vægt er til orða tekið þótt sagt sé að lífsviðhorfin hafi þá verið önnur. Pólitíkin var miklu meira tilfinningamál. Varla þaif heldur að minna á að heimsstyijöld var lokið fyrir fáum árum og önnur í vændum. Margur trúði að til væri einhver einn réttur málstaður sem sjálfsagt væri að berjast fyrir hvað sem það kostaði. Útlitið í heims- málunum var ekki aðeins háska- samlegt heldur líka flókið. Það vissu íslensk stjórnvöld eins og aðrir þótt þau hefðu mátt sýna meiri manndóm gagnvart flótta- mönnum sem hingað leituðu. Ég hygg áð Gyðingum hafi ver- ið hér almennt betur tekið en ætla mætti af frásögn Einars enda þótt íslendingar væru flestir andvígir því að útlendingar settust hér að; töldu sig betur menntaða, gáfaðri og meiri en aðra! Kannski var það ■ranghverfa vanmetakenndarinnar? Því öðrum þræði var snobbað hér fyrir útlendingum. Einar hefur sýnilega kynnt sér hinn sögulega bakgrunn atburð- anna, farið ofan í embættisskjöl, dagbíöð og vafalaust fleiri heimild- ir. Þarna má gera sér í hugarlund hvernig Austurstræti leit út á síðari hluta fjórða tugarins, og reyndar bærinn yfirhöfuð. Lýst er Biblían í myndum List og hðnnun Bragi Ásgeirsson Upp í hendur mínar hefur bor- ist þriðja útgáfa hinnar frægu myndlýstu biblíu Gustave Doré frá hendi Auðuns Blöndals. Gustave Doré (f. 1832 í Strass- borg, d. 1883 í París) vár mikill teiknari og dreymdi mikla drauma um frægð og frama á sviði mál- aralistarinnar, en minna varð úr þeim en efni stóðu til. Telja má Doré fjölhæfasta og vinsælasta myndlýsi bóka seinni helmings nítjándu aldar, en hann mynd- skreytti mörg frægustu ritverk tímanna jafnt sem fyrri tíma heimsbókmenntir. Auk þess myndskreytti hann tímarit og gerði m.a. eina litógrafíu á viku fyrir tímaritið „Journal pour rire“ í þijú ár! Doré var gríðarlega af- kastamikill og er hann gerði teikningar síanr við biblíuna hafði hann eigin myndskera sér til aðstoðar og var hér mjög kröfuharð- ur, en ný tækni hafði þá valdið byltingu á sviði myndlýsinga, sem opnaði nýja möguleika er hann naut góðs af. Frumútgáfa myndlýs- ingar Dorés á biblíunni, hin svonefnda almennings- bibía, kom fyrst út árið 1866 í tveim glæsilegum bindum og kostaði skild- inginn sinn, enda einungis gefin út í 3.000 eintökum er seldust upp á einum mánuði. Slík voru afköst hans að sama ár kom einn- ig út myndskreytt útgáfa á Paradísarmissi Johns Miltons! Til sanns vegar má færa að Doré hafi unnið að fjölföidun list- ar sinnar eins og prentverk og að hin gríðarlegu afköst hans hafi sett mark sitt á útfærslu þeirra, en það verður vissulega ekki frá manninum tekið, að hann kunni með fádæmum vel að draga upp myndir. Gæti ég trúað því að frumút- gáfan með þeirri tækni sem þá tíðkaðist væri mun blæbrigðarík- ari og fínlegri en hin harða og á köflum dökka offsetprentun, en hef hér að sjálfsögðu engan sam- anburð. Þetta er sem fyrr segir þriðja útgáfa Auðuns Blöndals á bókinni hér á landi og má af því marka að íslenzkur almenningur hefur tekið henni mjög vel og náð að lifa sig inn í þessar myndlýsingar hins iðjusama meistara. Dauði Absalóns. II Sam. 18,9. Ifir Einar Heimisson hvernig fólk klæddist. Og atvinnu- leysið og kreppan minna hvarvetna á sig. Rétt má einnig vera það sem i sögunni stendur að Reykjavík hafi átt »einungis tvær vændiskon- ur og einn öfugugga«. Sá er hins vegar galli sögunnar — sem skáldverks — að persónurn- ar eru fremur málpípur tiltekinna skoðana (eða fordóma) en lifandi fólk. Fólk hugsaði ekki upphátt þá fremur en nú. Kannski var það ekki betur innrætt en lýst er í sög- unni. En það reyndi þá að minnsta kosti að leyna því, var ekki eins frumstætt og opinskátt og sögu- persónurnar í Götuvísu Gyðingsins. Og eitt enn: þótt íslendingar hafi lengi verið skömmóttir sýnist mér þarna einum of Iangt gengið. Að lokum: verulega góð saga ef hliðsjón er höfð af æsku höfund- arins. Stíll og bygging með ágæt- um. En persónusköpun allt of grunnfærnisleg. Kannski á höfundur eftir að kafa dýpra og skapa flóknari og þá um leið raunverulegri mann- gerðir? RUSKINNSJAKKAR MEÐ LOÐSKINNSKRAGA PELSINN Kirkjuhvoli -simi 20160

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.