Morgunblaðið - 19.12.1989, Page 28
>.861 S3flM333G 61 3UDAGULG15IfJ GIGAJHMIDílQN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
Ognvænleg hækk-
un á eignarsköttum
eftir Hreggvið
Jónsson
Á síðasta þingi varð svívirðileg
hækkun á eignarsköttum, sérstak-
lega á einhleypingum. Mikið hefur
verið fjallað um þessar hækkanir
síðan. Nú hefur fjármálaráðherra
lagt fram nýtt frumvarp, sem hann
kynnir sem lækkun eignarskatta.
En fyrir nokkrum dögum fær fjár-
málaráðherra bakþanka og sendir
frá sér nýja tilkynningu með yfir-
skriftinni; „Eru skattaútreikningar
fjármálaráðuneytisins villandi?"
Hverjar eru
staðreyndirnar?
Það er rétt, að þeir einhleypingar
og hjón, sem kunna að eiga eignir
yfir núverandi háskattamörk kr.
8.050.000 fyrir einhleypinga og kr.
16.100.000 fyrir hjón og munu
njóta lækkunar og vegna lágra
launa getur verið um lækkun að
ræða. Sú lækkun er þó bundin því,
að eignir séu töluvert hátt yfir há-
skattamörkunum. Athyglisvert er,
að í útreikningum fjármálaráðherra
er ekki reiknað með Þjóðarbók-
hlöðuskattinum 0,25%.
En eftir stendur, að þorri fólks
mun verða fyrir allverulegum
hækkunum á eignarsköttum af
skuldlausu íbúðarhúsnæði og verða
hér tekin nokkur dæmi og er Þjóð-
arbókhlöðuskatturinn að sjálfsögðu
reiknaður með;
Miðað er við að íbúðareign árið
1989 og hún hækkuð til samræmis
við hækkun á fasteignamati fyrir
álagningu ársins 1990. Þannig að
frá lögunum, sem gilda fyrir árið
1989 til lagafrumvarps, sem ætlað
er að gilda fyrir árið 1990, er 18%
hækkun á fasteignamati. Því er
skattstofn á milli ára hækkaður til
samræmis svo að skattar á sömu
eign eru bornir saman.
Burt með eignarskattana
Eins og sést á þeim dæmum sem
hér eru tekin er langmesta hækkun-
in á eignarsköttum á minni eignum.
Lauslega áætlað gæti verið um 330
Eignarskattar einhleypinga (hjóna)
Skattstofn: Skattar: Breyting
Lög 1989 Frumvarp 1990 kr. 3.540.000 kr. 4.250.000 kr. 13.200 kr. 16.800 hækkun 27,3%
Lög 1989 Frumvarp 1989 kr. 6.825.000 kr. 8.050.000 kr. 58.875 kr. 71.900 hækkun 22,1%
Skattstofn: Skattar: Breyting:
Lög 1989 Frumvarp 1990 kr. 7.000.000 kr. 8.260.000 kr. 60.875 kr. 76.520 hækkun 25,7%
Lög 1989 Frumvarp 1990 kr. 14.000.000 kr. 16.520.000 kr. 255.380 kr. 257.240 hækkun 0,7%
Sömu hlutfallshækkanir eru á tvöfalt hærri skattstofn hjóna á
milli áranna 1989 og 1990.
IH nsrð
til Spónar
fyrir
7) krónur'
Það er varla til sá íslendingur, sem ekki
gieðst yfir símtali að heiman þegar
hann er erlendis.
Þegar þú hringir til vina og cettingja
erlendis fcerðu án efa að heyra hvað
veðrið er gott þarna úti, veitingahúsin
frábœrog nœturlífið eldfjörugt. Mundu
bara hvað það getur verið ánœgjulegt
fyrir þá að heyra hljóðið í gamla
landanum og nýjustu fiskisögurnar að
' heiman.
Fjölskyldan getur skiþst á að tala og
fyrr en varir hafa allir ferðast til
útlanda á mun ódýrari hátt en með
þessum hefðbundnu leiðum.
Þá er ekki úr vegi að látaþað fylgja meö
að það sé góður siður, þegar maður
ferðast út fyrir landsteinanna, að
hringja reglulega heim og láta vita af
sér.
* Midaö víð I mín. símtal. (Háð breytingum á gjaldskrá.)
Verð á mín.
Norðurlöndin (að frátöldu Finnlandi) kr. 60
Finnland og Holland kr. 66
Brctland, Spánn og V.-Þýskaland kr. 73
Frakkland kr. 85
Grikkland, ítalía og Sovétríkin kr. 95
Bandaríkin kr. 111
PÓSTUR OG SÍMI
■■BBgaMMHawaMaaiMMiiiiHiiiiwiiii
Við sþörum þér sþorin
•• Breytist samkvœmt gjaldskrá
GOTT FÓLK/SÍA