Morgunblaðið - 19.12.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
29
Hreggviður Jónsson
Friður og virðing fyrir mannlegri reisn
Sjálfsbjörg, landsamband fatl-
aðra á aðild að Alþjóðasambandi
fatlaðra, skammstafað FIMITIC.
Innan vébanda sambandsins er
bæði líkamlega og andlega fatlað
fólk um heim allan.
Á nýlega afstöðnu ársþingi FIM-
ITIC sendu fulltrúar frá sér eftir-
farandi.
Ályktun um frið og virðingu
fyrir mannlegri reisn
Fulltrúar á ársþingi Alþjóða-
sambands fatlaðra (FIMTIC) sem
haldið var í Vínarborg þann
12.—15. október sl. lýsa áhyggjum
sínum yfir þeirri staðreynd
að 50 árum eftir upphaf hinnar
ógnþrungnu síðari heimsstyijaldar
eru ennþá til þjóðir og samtök, sem
nota stríð, kúgun, hryðjuverk og
pyntingar sem tæki til þess að ná
fram eigingjörnum markmiðum.
sínum,
að tækninýjungar, hagvöxtur og
hagnaðarhvöt eru að eyðileggja
umhverfi okkar og þar með undir-
stöðu lífs á þessum hnetti,
að nýjar vísindalegar uppgöt-
vanir og ósveigjanleg beiting
þeirra gefa lítinn gaum að mann-
legri reisn og framar öðru rýra
lífsgæði fatlaðs fólks,
en jafnhliða er það gleðileg stað-
reynd að augu heimsins eru að
opnast fyrir tilgangsleysi hernað-
arkapphlaupsins og athyglin bein-
ist í síauknum mæli að afvopnun,
að þjóðfélagslegar breytingar
eiga sér stað, ekki síst í löndum
Austur-Evrópu og í kjölfar þeirra
aukið frelsi og lýðræði fyrir íbúa
þessara landa.
Allt fatlað fólk sem stendur að
baki fulltrúa á ársþingi FIMITIC
heitir á þjóðir heims og stjórnvöld
þeirra:
að gjöra frið, frelsi og afvopnun
að ófrávíkjanlegu takmarki sínu,
að nota það fjármagn, sem ekki
er lengur krafist í þágu hernaðar,
til þess að bæta félagslega aðstöðu
fólksins,
að keppa að jöfnun rétti til lífsins
fyrir jarðarbúa, að fötluðu fólki
ógleymdu,
að virða mannlega reisn óg ekki
síst hið ófædda bam við beitingu
vísindalegra og tæknilegra mögu-
leika,
að jafna mismuninn á kjörum
ríkra og fátækra þjóða,
að styðja viðleitni Sameinuðu
þjóðanna til þess að bæta aðstöðu
fatlaðs fólks.
Þessu takmarki verður að ná á
síðasta tug þessarar aldar.
(Frá Sjálfsbjörgu)
„Steftia ríkisstjórnar
Steingríms Hermanns-
sonar vekur upp marg-
ar spurningar. Ein af
þeim er þessi: Er kerfis-
bundið verið að koma á
„sósíalisma“ og breyta
þjóðfélagsgerðinni frá
sjálfseignarfyrirkomu-
lagi fólks á íbúðum í
ríkis- og bæjarforsjá?“
milljóna kr. aukningu að ræða
vegna þessara hækkana. Stefna
ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar vekur upp margar spui-ning-
ar. Ein af þeim er þessi: Er kerfis*
bundið verið að koma á „sósíal-
isma“ og breyta þjóðfélagsgerðinni
frá sjálfseignarfyrirkomulagi fólks
á íbúðum í ríkis- og bæjarforsjá?
Margt bendir til að svo sé, til að
mynda hækkun fasteignagjalda á
landsbyggðinni frá 25% til 70% í
sumum tílfellum.
Frjálslyndi hægriflokkurinn er
eini flokkurinn á Alþingi, sem hefur
lagst gegn öllum þessum hækkun-
um.
Því er brýnt að öll fijálslynd hægri
öfl i landinu sameinist um að koma
þessari ríkisstjórn frá sem fyrst.
Skatta- og eyðsluæði ríkisins
verður að linna.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Frjálsfynda hægriffokkinn.
í Kringlunni Sími:689811
Jólatilboð
Húsasmiðjunnar
SKÚTUVOG116 SÍMI 687700
Brauðrist
kr. 2.965,-
Holz-her hleðsluborvél
kr. 16.079,-
Ljóskastarar
kr. 3.343,-
í verslun Húsasmiðjunnar fást nytsamar jólagjafir við
allra hæfi og á jólamarkaði á 2. hæð er mikið úrval
skrauts og gjafavara. í Húsasmiðjunni fæst
einnig allur húsbúnaður og heimilistæki, öll
áhöld og efni sem þarf til að fegra og prýða
heimilið fyrir jólin.
Peugeot
juðari/pússivél
kr. 4.894,-
Fondusett
fyrir 6 manns
kr. 6.224,-