Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 34

Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 34
 m Morgunblaðið/Emilía Forseti fær bók að gjöf HAFSTEINN Guðmundsson forstjóri bókaútgáfunnar Þjóðsögu gékk í gærmorgun á fund Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, og afhenti henni nýútkomið bindi í ritflokknum Islensk þjóðmenning. Þetta nýja bindi heitir Munnmentir og. bókmenning. „Undir sólinni“: íslenskur spurningaleik ur fyrir alla aldurshópa Bókaforlagið Iðunn hefúr gefið út fjölskylduspil með spurningum fyrir alla aldurshópa. Hugmyndin að spilinu er íslensk og hefur öll vinna við hönnun þess og þróun farið fram hér á landi. Við leik spilsins reynir á vitneskju, heppni og áræði og eiga allir jafna mögu- leika til sigurs því spurningarnar skiptast í efhis- og þyngdarflokka. Spurningarnar eru á spjöldum og skiptast þær í fjóra efnisflokka, íslandssögu, íslensku og bókmennt- ir, almennar spurningar og barna- spurningar. Þær eru fjögurþúsund, á tvö þúsund spjöldum, í tveimur þyngdarflokkum og er ein spurning úr hvorum flokki á hvetju spjaldi. Spilinu fylgja tveir teningar, annar með sex flötum, hinn með tólf, en gangur spilsins er mishraður eftir því hvor teningurinn er notaður. Markmið spilsins er að svara spurningum og vinna sér inn stjörn- ur sem nota má til að koma sér áfram eftir ákveðinni leið á spila- borðinu. Reitir borðsins ákvarða hversu margar stjörnur hægt er að vinna eða tapa, hvort leikmenn komast aftur á bak eða áfram og hvort hægt er að leggja undir og vinna þá stórt eða tapa stórt. Gerð spilsins hefur staðið yfir frá því í vor en hugmyndina að því á Ingvar Hafsteinsson. Nanna Rögn- valdardóttir hefur haft umsjón með samningu spurninga, en auk hennar hefur fjöldi sérfróðra manna komið þar við sögu, Þóra Bryndís Þóris- dóttir samdi reglur spilsins og Halla Helgadóttir sá um útlit þess. Fjöldi fólks á öllum aldri hefur tekið þátt í að þróa spilið með því að spila það. Öll. hönnun spilsins, vinnsla Stjörnuspekibók eftir Gunnlaug Guðmundsson IÐUNN hefúr gefið út bókina „Hvað býr í framtíðinni?" eftir Gunnlaug Guðmundsson, stjörnuspeking. Á síðasta ári kom út eftir Gunn- laug bókin „Hver er ég?“ og í kynn- ingu Iðunnar á nýju bókinni segir að í þessari nýju bók haldi Gunn- laugur áfram að segja frá gildi stjörnuspekinnar og áhrifum himin- tunglanna á líf einstaklingsins. „Hér er einkum fjallað um hvernig gangur þeírra skiptir ævinni í tíma- bil og hvaða orka er ríkjandi í lífi einstaklingsins hveiju sinni. Við hveiju megi búast á hveiju tímabili lífsins og hvernig nota megi stjörnuspekina til að ákveða rétta tímann til athafna og aðgerða. Hver og einn getur fundið hvaða kynslóð hann tilheyrir og séð þann- ig líf sitt í víðara samhengi. Einnig les Gunnlaugur úr kortum ýmissa landa, þar á meðal íslands, og spá- Gunnlaugur Guðmundsson ir í þróun og horfur á ókomnum árum.“ Bókin er 244 blaðsíður. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Nýstúdentarnir sem brautskráðust frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. þess og prentun fór fram hérlendis, fyrir utan spílaborðið sjálft sem preptað var í Skotlandi. Ákveðið hefur verið að bæta við fleiri spurningaflokkum. Kassi með tvö þúsund barnaspurningum er væntanlegur í lok janúar og í undir- búningi eru íþróttaspurningar. Spilið hefur fengið góðar viðstök- ur og er fyrsta upplag forlagsins þegar uppselt. Morgunblaðið/Emilía Höfúndar spilsins, „Undir sólinni". Frá vinstri eru Þóra Bryndís Þórisdóttir, Halla Helgadóttir og Nanna Rögnvaldardóttir. Bók um Hring Jóhannesson BÓKAÚTGÁFAN Lögberg hefur gefið út nýja listaverkabók í ritröð- inni Islensk myndlist, og er að þessu sinni fjallað um Hring Jóhannes- son listmálara. Aðalsteinn Ingólfsson listfræð- ingur skrifar um Hring, sem er einn af þekktustu myndlistarmönnum okkar, rek'ur feril hans og segir frá framlagi hans til íslenskrar mynd- listar. Einnig skrifar Björn Th. Björnsson um Hring. í bókinni birt- ist fjöldi litprentana af málverkum Hrings, auk teikninga eftir hann og ljósmynda úr lífi hans og starfi. Hringur Jóhannesson er fæddur í Haga í Aðaldal og ólst þar upp. Hann hefur jafnan verið átthögum sínum trúr og dvalið þar á sumrum við iðkun listar sinnar. „Segja má að vitund hans um hið ótrygga jafn- vægi milli íslenskrar sveita- og borgarmenningar sé einn helsti styrkur hans sem myndlistar- rnanns," segir Aðalsteinn um Hring í bókinni. Hringur Jóhannesson Aðalsteinn Ingólfsson V estmannaeyj ar: Nýstúdentar brautskráðir Ólafúr Hreinn Sigurjónsson, skólameistari. Vestmannaeyjum. FRAMHALDSSKÓLINN í Vest- mannaeyjum útskrifaði stúd- Garðabær: Nýr leikskóli og Flataskóli stækkaður FJÁRHAGSÁÆTLUN Garðabæj- ar íyrir árið 1990 hefur verið lögð fram. Þar kemur fram að sameig- inlegar tekjur eru áætlaðar 518,2 milljónir króna og eru útsvör aðal- tekjustofninn eða- 393,4 milljónir króna sem er 75% af sameiginleg- um tekjum. Mestum hluta útgjalda verður varið til fræðslumála eða 92,9 milljónum króna. Þá er gert ráð íyrir að afborganir lána verði 48 milljónir króna. „Það hafa ekki verið lagðar fram ákveðnar tillögur um framkvæmdir á næsta ári en ég á von á að ráðist verði í byggingu leikskóla í nýju hverfi í Bæjargili og að fjórar kennslustofur verði byggðar við Fla- taskóla," sagði Ingimundur Sigurp- álsson bæjarstjóri. Áætlaður kostn- aður við leikskólann fullbúinn er um 35 til 40 milljónir og kostnaður við stækkun Flataskóla er áætluður um 20 milljónir. Að sögn Ingimundar er gert ráð fyrir að þessum fram- kvæmdum verði að fullu lokið á ár- inu. Bæjarstjórn hefur samþykkt óbreyttar álagningarreglur fyrir árið 1990 og er útsvar 7%, fasteigna- skattur á íbúðarhúsnæði 0,375%, holræsagjald 0,15% og vatnsskattur 0,15%. Álagning vegna verslunar- og þjónustu verður 0,65% og vegna iðnaðar 1%. enta í 10. skipti við lok haust- annar skólans. Þá voru braut- skráðir 8. nemendur með stúd- entspróf. Á haustönn stunduðu 220 nem- endur nám við framhaldsskólann, á 10 námsbrautum. Stúdentarnir sem útskrifuðust voru 3 af hag- fræðibraut, 3 af náttúrufræði- braut, 1 af heilsugæslubraut og 1 af uppeldisbraut. Auk þess sem nýstúdentar vom brautskráðir þá voru brautskráðir nemendur af vélstjórnarbraut og iðnbrautum. Grímur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.