Morgunblaðið - 19.12.1989, Qupperneq 44
Hrávara
Vevðlækkun spáð á
áli og öðrum málmi
Frá og með 1. desember 1989 tekur Millilandaafgreiðsla Flugleiða að
BÍLDSHÖFÐA einnig við stórum og smáum sendingum fyrir
INNANLANDSFRAKT. Afgreiðslur Innanlandsfraktar verða þvi tvær, að
BÍLDSHÖFÐA 20 og á Reykjavíkurflugvelli.
Að BÍLDSHÖFÐA 20 verður Innanlandsafgreiðslan opin 9.00-12.00 og
13.00-17.00 virka daga eins og Millilandaafgreiðslan. Símar
690435 og 82855.
Afgreiðslan á Reykjavíkurflugvelli er opin 8.00-18.00 mánudaga til
föstudaga og 8.00-12.00 laugardaga. Símar 690585 og 690586.
NÝR OG BREYTTUR BÍLDSHÖFÐI - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
FLUGLEIDIR
tm*. /
rmtcv
Búist er við, að málmframleiðsla
fari fram úr eftirspurn á næsta
ári og leiði til allnokkurrar verð-
lækkunar á hrámálmi yfirleitt.
Er því til dæmis spáð, að álverð
lækki úr 1.930 dollarar tonnið í
1.575 dollara, sem er 18% verð-
lækkun, og verð á öðrum málm-
um enn meira.
í nýjustu skýrslu The Economist
Intelligence Unit er talið, að vöxtur-
inn í álnotkun muni nokkuð minnka
á næsta ári en þá er þess líka að
gæta, að hann hefur aldrei verið
meiri en á árinu, sem nú er að
kveðja. Er áætlað, að álnotkun á
Vesturlöndum verið 14,6 milljónir
tonna á árinu 1990 en það er 1,5%
aukning frá yfirstandandi ári. Ars-
notkunin nú er hins vegar 3,9%
meiri en á síðasta ári.
Samdrátturinn á næsta ári stafar
aðallega af hægari hagvexti og af
því, að hann snertir strax greinar
eins og bíla- og byggingariðnaðinn,
sem eru miklir álnotendur.
Dregið úr framleiðslu?
Álbræðslur hafa að undanförnu
verið reknar með fúllum afköstum
til að anna eftirspurn en nú er þó
farið að gæta nokkurrar birgða-
söfnunar. Segir í skýrslunni, að
dragi framleiðendur ekki úr fram-
leiðslu og birgðasöfnun sé hætt við,
að verðið lækki allverulega um
stund. Verði ekki brugðist við með
þessum hætti er því spáð, að áverð-
ið geti farið niður undir 1.500 doll-
ara tonnið á síðara misseri 1990.
Offramleiðslan nú hefur gefið
kaupendum jafnt sem framleiðend-
um tækifæri til að laga birgðastöð-
una en samt er hún enn fremur
slök. Svarar hún til útskipana í 40
HEIMSENDI!
NÝ, GUESILEG HESTHÚS
I hinni nýju hesthúsabyggð í landi
Vatnsenda, á milli Kjóavalla og
Víðidals, eru til sölu ný, glæsileg hesthús.
ATH.: Festið ykkur hús fyrir áramót.
Stórhækkun verður á húsunum með
tilkomu virðisaúkaskattsins.
Leitið upplýsingo á
skrifstofu S.H. verktaka,
Stapahrauni 4,
Hafnarfirói, sími 652221
W
S.H. VERKTAKAR HF.
STAPAHRAUN 4 - 220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 652221
m
MALMUR — Spáð er 18% verðfalli á áli á þessu ári og enn
meira á ýmsum öðrum málmi.
daga en fyrir aðeins fáum árum var
talið eðlilegt að eiga birgðir fyrir
næstu 60 daga. Er áætlað, að um-
framframleiðsla á næsta ári verði
250.000 tonn, nokkru minni en á
þessu þegar tekið hefur verið tillit
til minni útflutnings til kommún-
istaríkjanna.
Bandaríkin-EB:
Harðar deilur um
niðurgreiðslur
■ Brusscl. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁRLEGUR fúndur bandarískra
ráðherra með fulltrúum fram-
kvæmdastjórnar Evrópubanda-
lagsins (EB) var haldinn í Brussel
síðdegis á Fóstudag. Ljóst er að
mikið ber á milli í afstöðunni til
niðurgreiðslna á landbúnaðaraf-
urðir.
Bandaríkjastjórn kærði EB fyrir
GATT vegna niðurgreiðslna sem hún
taldi bijóta í bága við samkomulagið
um tolia og viðskipti (GATT). Sam-
kvæmt heimildum í Brussel úrskurð-
aði nefnd á vegum GATT að niður-
greiðslur EB m.a. á ólívuafurðir
brytu í bága við samkomulagið og
Bandaríkjamenn hafa krafist þess
að þeim verði hætt umsvifalaust.
Innan EB er mikil andstaða við
þá tillögu Bandaríkjamanna innan
GATT að öllum niðurgreiðslum verði
hætt á landbúnaðarafurðir. Sambúð
Bandaríkjanna við Evrópubandalag-
ið hefur undanfarin ár verið stirð
fyrst og fremst vegna gagnkvæmra
ásakana um viðskiptahömlur. James
Baker utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna vék að samskiptunum við
EB í ræðu sem hann hélt í Berlín í
síðustu viku þar sem hann hvatti til
formlegri og nánari samskipta þess-
ara aðila í ljósi pólitískra breytinga
í Evrópu.
Á fundinum var m.a. rætt um
mögulega samvinnu EB og Banda-
ríkjanna á sviði umhverfismála s.s.
að stemma stigu við eyðingu regn-
skóga og takmarkana á notkun óso-
neyðandi efna.
A MARKAÐI
Bjarni Sigtryggsson
Segulmagnaðir
gjaldmiðlar
á tölvuöld
Allir vita að tíminn er peningar,
en færri gera sér grein fyrir því
að peningar eru fyrst og fremst
upplýsingar. Ávísanir á verðmæti,
en ekki verðmæti í sjálfu sér frekar
en pappírinn sem þeir eru prentaðir
á. Munurinn á peningaseðlum og
öðrum verðbréfum, eins og til dæm-
is hlutabréfum, er sá að seðlabank-
ar landanna ábyrgjast í krafti ríkis-
valdsins nokkuð stöðugt verðgildi
þessara ávísana. Kauphallir hluta-
bréfaviðskiptanna tryggja engum
neitt. Þar ríkir fijálsræði framboðs
og eftirspurnar sem jafnan stjórn-
ast af.afkomu fyrirtækjanna og
ekki síður afkomuhorfum.
Þegar eðli peninga sem upplýs-
inga er krufið og það skoðað í sam-
hengi við tækni samtímans er eðli-
leg niðurstaða að heppilegasta boð-
leið þessara upplýsinga sé um raf-
eindanet tölvanna — án pappírsvið-
komu. Pappírinn sem boðleið upp-
lýsinga um eignir var tækni samtíð-
ar, sem nú er löngu orðin fortíð.
í Ijósi þessa er ögn spaugilegt
að umræða um notkun greiðslu-
korta hér á landi sé á sama stigi
og umræða um sölu áfengs öls var
fyrir nokkrum árum. Semsé um það
hvort fólki sé treystandi fyrir frels-
inu.
Ávísanir eru dýrar!
Innan bankakerfisins hér á landi
hefur að undanförnu farið fram
greining á kostnaði við hina ein-
stöku þjónustuliði bankanna og þar
kom í ljós að kostnaður við tékka
virðist við fyrstu sýn vera sex sinn-
um meiri fyrir bankana en haldið
var. Þá er ekki meðreiknuð sú vinna
og fyrirhöfn sem viðtakendur ávís-
ana í viðskiptalífinu hafa af því að
fiokka og gera upp tékka sérstak-
lega.
I nágrannalöndum okkar er sú
meginstefna að verða ríkjandi í
bankaþjónustu að notendur greiði
hana sjálfir en velti kostnaði ekki
út í vaxtamun bankanna. Þetta er
sama röksemd og beitt er fyrir því
að notendur greiðslukorta beri sjálf-