Morgunblaðið - 19.12.1989, Síða 54

Morgunblaðið - 19.12.1989, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989 ■i JO'_MARKftDUR á hálMröi M> RtiMFATA 5 Skettan 13 AuðbrekkuS Óseyri 0 ^ 108 Reykjavík 200Kópavogi 600Akureyri ^ Heimsmynd og hagfræði eftir Sigrúnu Helgadóttur Fólk, sem vinnur að mannúðar- málum, þróunarhjálp, náttúru- vernd, kvenfrelsi, friði, afvopnun, menningarmálum og sjálfstæði ein- staklinga og þjóða, er alls staðar að reka sig á sama hornið; það er hagkerfi heimsins sem kemur í veg fyrir að hægt sé að skapa börnum Jarðar lífvænlegan heim þar sem réttlæti ríkir. Heimsmynd hagfræðinnar, vélræn smættarhyggja Öfugt við það sem margir virðast álíta, þá er hagkerfið ekki náttúru- lögmál, heldur mannanna verk. „Faðir“ hagfræðinnar, Adam Smith, var uppi á 18. öld. Hann og aðrir, sem lögðu hönd á verkið, mótuðu hagfræðina eftir og til styrktar ríkjandi heimsmynd þess tíma. Tíma endurreisnar og bylt- inga sem kenndar hafa verið við iðnað og frelsi: Vestur-Evrópumenn sigldu æ lengra út í hinn stóra heim. Ráða- menn þjóða áttu í hatrammri sam- keppni sín á milli um yfirráð yfir löndum og auðlindum, siglingum og verslun. Sjálfsagt var að van- virða, drepa eða selja í þrældóm íbúa hinna fjarlægu landa. Það uppgötvaðist að Jörðin væri hnött- ur, en auðlindir hennar ótakmark- aðar. Með ferðalöngunum bárust til Evrópu menningaráhrif frá fjar- lægum löndum. Gamlir Grikkir voru endurreistir og vísindamenn gerðu fræði þeirra að sínum og bættu um betur: Heimurinn var skapaður stærðfræðilega fullkominn, úr full- komnum einingum og hringjum í óbreytanlegu jafnvægi. Lengi vel eimdi eftir af elstu heimsmynd manna, að Jörðin væri hin allt gefandi mikla móðir, lifandi og fólk hluti hennar. Nú var snúist af heift gegn slíkum hugmyndum. Náttúran var greind frá fólki, gerð ópersónuleg og vélræn. Hún hafði verið útbúin fyrir fólk af miklum stærðfræðisnillingi og vélaverk- HVERS VEGNA SKARAR SENSODYNE TANNBURSTINN FRAM ÚR? í SENSODYNE tannburstanum eru vel slípuð hárfín ávöl hreinsihár — sérstaklega gerð til að skaða ekki viðkvæmt tannholdið. Tannburstar með óslípuðum, grófum hárum geta sært tannholdið og auðveldað þannig sýklum að komast að, en þeir geta valdið tannskemmdum. SENSODYNE tannburstar fást í mörgum litum og gerð- um og nú eru komnir tannburstar með myndum af Gretti. SENSODYNE tannburstar fást í öllum apótekum og helstu stórmörkuðum. „TANNLÆKNIR- INN 5AGÐI MÉR Ab BURSTA TENNURNAR EFTIR MÁLTfelR 06' FYRIR SVEFN.... É6 ER BÓK- .STAFLEGA ALLTAF AD BUR5TA TENN - URNARl o' KEMIMIÍA HÖRGATÚNI 2, 210 GARÐABÆ, SÍMI: 40719 fræðingi, en menn ættu og gætu náð tökum á henni með því að hluta hana niður í smáar einingar og beita skynsemi, skilningi og stærð- fræði. Öllum öðrum hugmyndum var útrýmt og um svipað leyti og verið var að leggja (eða endurreisa) grunninn að nútíma vísindahyggju þá var fólk sem þekkti eða var tal- ið þekkja eitthvað til hinna fornu fræða eða trúar umsvifalaust brennt á báli. Þetta voru að lang- mestu leyti konur, þær höfðu lært að lifa af mæðrum sínum kynslóð fram af kynslóð, en voru ekki sendar í skóla eins og strákarnir til að læra dauð fræði, latínu og stærðfræði. Francis Bacon var lögfræðingur og tók sem slíkur þátt í mörgum réttarhöldum yfir „galdrakerling- um“ en hefur líka verið nefndur höfundur vísindalegra vinnubragða. Hann líkti náttúrunni við konu og orðaði sína speki m.a. á þann hátt, að afhjúpa þyrfti náttúruna, svipta hulunni af leyndardómum sem enn leyndust í barmi hennar, og að menn yrðu að leggja hana undir sig og yfirbuga því enn væru í legi hennar mörg, gagnleg leyndarmál sem þyrfti að uppgötva og komast í gegn um. Ekki verður um villst hver afstaða þessa manns var bæði til kvenna og náttúrunnar en hann var einn af yfirsmiðum þeirrar heimsmyndar sem var lagður grunnur að á þessum tíma og enn stendur að miklu leyti. Vísindamönnum varð sannarlega mikið ágengt. Einn af þeim var Newton, sem furðaði sig á að eplið dytti niður úr trénu og uppgötvaði eitt af hinum „sjálfvirku" lögmálum náttúrunnar, þyngdarlögmálið. Vísindahyggjan leiddi til tæknivæð- ingar og iðnbyltingar. Fólk flutti eða var rekið burt af landi sínu þar VEISLUELDHUSIÐ ÁLFHEIMUM 74 • Veislumatur og öli áhöld. • Veisluráðgjöf. • Salarleiga. • Málsverðir í fyrirtæki. • Tertur, kransakökur. • Snittur og pinnamatur. 686220-685660 Bílalyftur 2ja og 4ra pósta Verö Irá kr. 105.100.- án sölusk./vsk. M Olíufélagið hf 681100 í í í í í i i I í í í H

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.