Morgunblaðið - 19.12.1989, Síða 63
' TflORGUNBlJtÐlB-ÞRIÐJUÐAGUR 19. DKSKMBKR 1989
-6Í3
Verkaskiptasamning-
ur ríkis og sveitarfé-
laga er ekki til sölu
eftir Þorvald
Jóhannsson
Hæstvirtur borgarstjóri, Davíð,
hefur síðustu daga látið stór orð
falla um að ríkisvaldið sé nú að koma
í bakið á sveitarstjórnum með ósví-
finni breytingu á stjórnarskipun
sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva, í
tengslum við verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga, sem tekur gildi um
nk. áramót.
Fullyrðingar borgarstjórans hafa
valdið slíku írafári, að sjálfur fjár-
málaráðherra er farinn að flytja
þann boðskap opinberlega að hann
sé til búinn að bijóta gerðan samn-
ing ríkisvaldsins við sveitarfélögin.
Hingað og ekki lengra:
Staðfestur samningur löggjafans
milli ríkis og sveitarfélaga á landinu,
um skýrari skil verkaskiptingu
þeirra á milli, hefur verið ein höfuð-
krafa allra sveitarstjórna í mörg ár.
Þar hefur Reykjavíkurborg ekki haft
sérstöðu. Við skiptingu verkefna
þeirra á milli, sem hefur í mörgu
verið mjög óljós hingað til, var mik-
ið tekist á um á hvern hátt þeim
verði best fyrir komið. Sitt sýndist
hveijum í þeim efnum eins og geng-
ur. En eitt voru allir sveitastjórnar-
menn sammála um: Skýrari skil, þar
sem saman fari fjárhagsleg og
rekstrarleg ábyrgð, hjá þeim aðiia
sem tekur að sér verkefnið. Um
þetta atriði ver aldrei ágreiningur.
I staðfestum verkaskiptasamningi
skipast mál þannig að ríkisvaldið
tekur að sér m.a. rekstur sjúkrahúsa
og heilsugæslustöðva, alfarið.
Fram að þessu hafa sveitarfélögin
að mestu séð um rekstur heilsu-
gæslustöðva. Hinsvegar hafa flest
sjúkrahúsanna verið rekin af ríkis-
valdinu, annað hvort með fjárveit-
ingum í fjárlögum eða á svonefndum
daggjöldum.
Fáir. rekstrarliðir í útgjöldum
sveitarfélaga hafa vaxið meir á
síðustu árum, en einmitt rekstrarút-
gjöld til heilbrigðismála. Þar hafa
fámenn sveitarfélög, flest fjárvana,
við lítt ráðið.
Það var því að ósk sveitarfélaga
sem rekstur heilsugæslustöðva og
heilbrigðisþjónsta henni tengd verð-
ur fluttur yfir til ríkisins um nk.
áramót. Bein afleiðing þeirrar skipan
mála er, að sá sem borgar ber líka
ábyrgð á stjórnun.
Treystiröuannarri íilmu
fyrir dýrmœtu
minningunum þínum?
Þorvaldur Jóhannsson
„Fjármálaráðherra hef-
ur enga heimild til þess
að versla við borgar-
stjórann fyrir framan
alþjóð um verkaskipta-
samninginn. Hann er
einfaldlega ekki til
sölu.“
Það er því út í hött þegar borgar-
stjórinn talar um svik ríkisvaldsins
við sveitarfélögin með breyttri skip-
an í stjórnir heilsugæslustöðva og
sjúkrahúsa. Pólitískar deilur borgar-
stjórans við ríkisvaldið og sér í lagi
fjármálaráðherra nú þessa dagana
breyta í engu þeim samningi sem
staðfestur hefur verið milli ríkis og
sveitarfélaga um verkaskiptingu og
tekur gildi um nk. áramót. Hann
skal standa.
Fjármálaráðherra hefur enga
heimild til þess að versla við borgar-
stjórann fyrir framan alþjóð um
verkaskiptasamninginn. Hann er
einfaldlega ekki til sölu, hvað svo
sem borgarstjóra Davíð finnst ann-
ars um það mál.
Skrifað á Seyðisfirði,
14. desember 1989
Höfundur er bæjarstjóri á
Seyðisfirði.
------- HANS
Skemmtileg saga fyrir/ BORGÞÓRS
alla fjolskylduna/-----A ,ÓNAS v w
.. . / \ JÓNASSON
BRÚÐAN HANS BORGÞÓRS
eftir útvarpsmanninn vinsæla i
Jónas Jónasson. /
Hlýleg kímni einkennir þessa l
hugljúfu sögu um Borgþór Þ
smið, Ólínu konu hans, jfj
brúðuna Hafþór skipstjóra, fn
Heiðu litlu, borgarstjóra-
hjónin Jörund og Kolfinnu j
og fleiri íbúa í Ljúfalandi. / -
Fallegar myndir Sigrúnar
Eldjárns falla einkar vel að f
sögunni. L/
bókarinnar LEÐUR-
JAKKAR OG SPARI-
SKÓR.- Hvað hefur
gerst hjá Lúlla, og
hvað er hann að
braska? Hvernig tekur
Nína því? Var Tóta
rænt eða fór hann vilj-
ugurávitævintýra? Af
hverju réð Gerður sig
sem ráðskonu í sveit?
Hvernig bregst Örh
við? Hverjar eru
Sonja, Linja og Eiísa?
Hver velur hvern? -
Spurningunum er
svarað í spennandi og
fjörlegri frásögn - í
bráðskemmtilegri bók.
JÆSKAN/