Morgunblaðið - 19.12.1989, Síða 65
'MORGUNMiAÍOII) ÞRIÐJWÐAGOR'OT. <BESBMBBR'1989
sett eignir sínar til að halda lífinu
í fiskinum.
V
Og þá kemur að spurningunni:
Hveijir eru valdir að einu afdrifarík-
asta víxlspori íslenskrar atvinnu-
þróunar? Svarið er auðsætt að því
leyti, að hrakföllunum hefur ráðið
einstefnu-áróður í fjölmiðlum. í
kjölfar áróðursins virðast almenn-
ingur, ríkisstjórnir, Alþingi, laxa-
sérfræðingar og peningarmenn,
innlendir sem erlendir, hafa tekið
þá „trú“, - að laxaiðnaður, og þá
fyrst og fremst matfiskeldi, sé eitt
helsta efnahagsbjargráð þjóðarinn-
ar! Þessi „trú“ birtist m.a. í formi
margra laxeldisfyrirtækja og fjölda
ungs fólks sem lagt hefur stund á
fiskeldisnám.
En grundvallarspurningunni er
enn ósvarað: Hveijir hafa staðið að
og bera ábyrgð á áróðrinum? Aróðri
sem helst líkist blekkingaherferð. I
grein minni í Morgunblaðinu 19.
maí 1987 reifaði ég þetta mál nokk-
uð, en einhlítt svar hef ég ekki nú
frekar en þá. Þó er ljóst, að sérfræð-
ingar, eða þeir sem telja sig „sér-
fræðinga", hafa ætíð mikið að segja
um tæknileg efni af þessum toga,
enda vitna stjórnvöld eða „ábyrgir"
aðilar jafnan til mats sérfræðinga,
þegar mistök verða ekki lengur
dulin almenningi. Og bersýnilega
hafa „sérfræðingar" ráðið miklu um
leiðbeiningar og hannanir einstakra
fyrirtækja. Hins vegar er athyglís-
vert, að sjaldan hafa heyrst varnað-
arorð í fjölmiðlum frá laxa-sérfræð-
ingum um þá ráðandi stefnu, sem
leitt hefur til ófarnaðar og fjársóun-
ar, eins og rakið hefur verið hér
að framan. Þetta viðhorf er þó skilj-
anlegt að því leyti, að sérfræðingur
í tiltekinni atvinnugrein veigrar sér
við að lýsa því opinberlega yfir, að
starfsgreinin eigi sér ekki framtíð!
En þegar syrta tók alvarlega í
álinn um uppbyggingu og rekstur
fiskeldisfyrirtækja magnaðist áróð-
urinn, í því skyni að gylla ágæti
þessa atvinnuvegar og lappa þannig
upp á lánstraust starfsgreinarinnar!
Að vísu hef ég ekki fylgst gerla
með áróðursflóðinu, en sem dæmi
get ég tínt til fáeinar setningar úr
grein minni: „Fiskeldis-lofsöngur í
ríkisútvarpi", _ei' birtist í DV 10.
mars 1989. í klukkustundar út-
varpsþætti 20. janúar 1989 fórust
stjórnanda þáttarins, Páli Heiðari
Jónssyni, m.a. orð á þessa leið:
„Fiskeldi er ævintýri sem mun
verða öllu meiri lyftistöng fyrir
íslenskt efnahagslíf en önnur þau
er orðið hafa á undanförnum ára-
tugum, ævintýri sem megi jafna til
þess þegar sjávarútvegur okkar
hófst af róðrarbáta- og skútustiginu
í þá stóriðju sem hann er í dag.“
Ennfremur tók Páll fram, „að
áhugamenn um fiskeldi telji
tvímælalaust að framtíðardraum-
arnir séu engin ævintýri, heldur
muni þeir rætast sem blákaldur
veruleiki". Eyjólfur Konráð Jónsson
sagði við þetta tækifæri: „Og
draumarnir eru svo stórir, að það
er ekkert mál á einum áratug eða
svo að fá, meiri gjaldeyri af fisk-
rækt en nokkurn tíma af sjávarút-
vegi.“ Og Guðmundur G. Þórarins-
son mælti: „Þarna getum við aukið
þjóðartekjurnar meira en í nokkurri
annarri atvinnugrein." Hér er um
furðulega hugaróra og auðsæjar
blekkingar að ræða, eins og ráða
má af því sem fyrr greinir í þessari
ritsmíð.
VI
Alvarlegar verða að teljast þær
ásakanir mínar sem koma fram í
þessu greinarkomi, nefnilega þess
efnis að áróður og fullyrðingar fé-
lagahópa og einstaklinga eigi mikla
sök á því, að á hveija fimm manna
fjölskyldu í landinu muni á næstu
árum leggjast að meðaltali nálega
100.000 króna skattur. Og mér
sýnist eðlilegt, að þeir sem hafa
haft, og hafa ef til vill enn, trölla-
trú á laxi til matar sem mikilvægri
lyftistöng fyrir ílenskt efnahagslíf
reyni að sýna fram á að ásakanir
mínar séu rangar og að þeir hafi
einatt haft rétt fyrir sér.
Að lokum: Við blasir að leggja
niður matfiskeldi við íslandsstrend-
ur, og þá vonandi með þeim hætti,
að hið vanhugsaða ævintýri valdi
sem minnstum sársauka fyrir ein-
staklinga og þjóðféiagið í heild. Þó
fer ekki hjá því að við þetta skref
komi berlega í ljós stórfellt eigna-
tjón samfara vonsvikum, atvinnu-
missi, gráti og gnístran tanna.
IlöHmdur er verkíræðingur og
starfaði um árabil hjá
Þróunarstofhun Sameinuðu
Iijóðanna.
Vinningstölur laugardaginn
16. des. '89
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 o 2.326.714
áL. 4af5*^M 3 134.818
3. 4 af 5 100 6.976
4. 3af 5 4.018 405
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.056.058 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Höfundur bókanna um
Innflytjendurna hefur fyrir
löngu haslað sér völl hér
á landi. I þessari bók fjallar
hann um ofsóknirnar á
tímum MacCarthysmans.
Bókin fjallar um
stríðsfréttaritara sem
starfar í Washington en
er grunaður um
kommúnisma og ofsóttur.
Höfundurinn þekkir
vel til þessa tíma,
því hann var sjálfur
ofsóttur, hann neitaði
að vitna gegn vinum
sínum í rithöfunda-
stétt.
Syngjum og dönsum er þriðja bók-
in í röðinni af hinni margrómuðu
sjálfsævisögu Mayu Angelou. Tvær
þær fyrstu - Ég veit af hverju
fuglinn í búrinu syngur og
Saman komin í mínu nafni hafa
hlotið ótrúlegar vinsældir. .
Hún hefur eins og hún segir
sjálf lifað rússibanalífi.
Billie Carden er lýsandi dæmi um
hina nýju kynslóð kvenna - djörf
og sjálfstæð. Hún hefur enga þörf
fyrir karlmenn og engan áhuga á
hjónabandi, enda þarfnast
hún ekki þessháttar öryggis
þar sem hún er einkaerfingi
frænda síns, hins stórauðuga,
bandaríska Silasar Carden.
Líf hennar tekur þó
óvænta stefnu þegar tveir
atburðir ógna lífsskoðun
hennar...
[ áratugi hafa bækur
Denise Robins átt
milljóniraðdáenda.