Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 67

Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 67
kerfisins verða fyrst og fremst frjálsræði í verslun með fisk og hvers kyns fiskafurðir. Fijálsræði á sviði vöruviðskipta er því aðeins raunverulegt fijálsræði fyrir íslend- inga að það taki til sjávarafurða. Frelsi til fjármagnsviðskipta: Einn sameiginlegur markaður fjármagns er lykilatriði í EB. Það felur í sér að ríkin fella niður á milli sín hindranir á rétti annarra EB-íbúa að geyma fármagn sitt eða taka fjármagn að iáni milli ríkjanna. Sömuléiðis að fjárfesta í atvinnu- rekstri. I reynd þýðir þetta að eign- arréttur í atvinnurekstri er ekki bundinn við þjóðerni og þar með er þjóðernislegum sjónarmiðum al- farið vikið til hliðar fyrir arðsemi. BMHR telur fráleitt að útlend- ingum sé veittur, með einum eða öðrum hætti, eignar- eða ráðstöfun- arréttur á aflaheimildum eða að- gangur að fiskveiðiauðlindunum. Sjálfsagt er einnig að vara við þeirri hættu að erlend fyi’irtæki geti keypt upp lykilfyrirtæki í heilum starfs- greinum ef Islendingar veittu hér fullt frelsi í þessum efnum. Möguleikar til að reka „þjóðlega“ vaxta- og gengisstefnu skerðast einnig til muna eða hverfa alger- lega. Með einni sameiginlegri mynt er mikilvægum hluta af innlendri hagstjórn fórnað. Um það snýst deila Breta við aðrar bandalags- þjóðir þessa dagana. Það er mat BHMR að íslendingum sé nauðsyn- legt að búa yfir skilvirkum hag- stjórnartækjum til að mæta óvænt- um og oft óhjákvæmilegum sveifl- um í þjóðarbúskapnum, en þessar sveiflur eru meiri á Islandi en ger- ist víðast í Evrópu. Frelsi í þjónustuviðskiptum: Hagkvæmni í þjónustuviðskipt- um, t.d. banka og tryggingastarf- semi, þykir afar léleg á Islandi. Talið er að aukin hagkvæmni í þess- um viðskiptum fáist með því að opna íslenskan þjónustumarkað fyr- ir erlendri samkeppni og erlendum stórfyrirtækjum með sterkan fjár- hagsgrundvöll. BHMR hlýtur þó að vara við þeirri augljósu hættu að mikill hluti íslenskrar þjónustu- starfsemi falli í hendur erlendra stórfyrirtækja en önnur íslensk fari á hausinn ef þjónustuviðskiptin verða gefin alveg fijáls. Fijáls búsetu- og atvinnuréttur: Fijáls búsetu- og atvinnuréttur á íslandi kemur varla til greina gagn- vart öllum ríkjum EFTA og EB. Hins vegar er það mat BHMR að sameiginlegur norrænn vinnumark- aður með eðlilegum takmörkunum hafi haft jákvæð áhrif. Fámenni íslendinga útilokar hins vegar al- gera opnun vinnumarkaðar og at- vinnuréttinda. Áhrif samræmingar í skattkerf- um: Samræming skattkerfa er talin nauðsynleg við samruna-í eitt efna- hagssvæði. Það þýðir í reynd áð fámennari þjóðríki fá rýrari skatt- tekjur en þau þurfa til að halda uppi sambærilegum félags-, vel- ferðar- og þjónustukerfum á við hin fjölmennari kjarnaríki í miðju bandalagsins. Þannig geta hug- myndir um samræmingar á skatt- heimtu þjóðríkjanna þjónað sam- keppnisskilyrðum en strítt' gegn grundvallarhagsmunum einstakra þjóðríkja. Stofnanir og lög: í viðræðum embættismanna hafa EFTA-ríkin fallist á að frelsin fjög- ur og „aquis communautaire“ (EB- réttur) skuli gilda sem forsendur viðræðna EFTA og EB og ekki verði vikið frá þessum reglum nema tíma- bundið samkvæmt sérstökum samningi eða þegar grundvallar- hagsmunir eru í húfi. Af þessu er ljóst að ísland verður að gera víðtæka sérsamninga við EB-ríkin um undanþágur frá „frelsunum fjórum" og EB-rétti til að tryggja grundvallarhagsmuni landsins. Is- land getur því varla tekið lengi þátt' í almennum viðræðum EFTA-ríkja og EB án 'þess að vekja athygli allra aðila á sérstöðu landsins og nauðsyn tvíhliða viðræðna. Á það vet’ður einnig að benda að EFTA er allt annars konar stofn- un en EB. EFTA hefur engin yfir- þjóðleg völd og kemur til viðræðn- anna sem hópur sjálfstæðra ríkja. BHMR telur firru að breyta þessu MORGUNBLADIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 31989 eðli EFTA. Og á sama hátt er BHMR algerlega mótfallið hug- myndum um að koma á yfirþjóðlegu valdi innan evrópska efnahags- svæðisins. BHMR telur mikilvægt að benda á að stofnanir EB hafa yfirþjóðlegt vald í mörgum málefnum og ,af- staða þeirra ræðst ekki af vilja þjóð- kjörinna fulltrúa aðildarríkja EB á Evrópuþinginu. Þetta verða fulltrú- ar íslenskra hagsmuna í viðræðum EFTA og EB ávallt að hafa í huga og gæta þeirra lýðræðishugsjóna sem' íslenska þjóðfélagið byggist á. BHMR getur aldrei fallist á nauðsyn þess að íslenskir grundvallarhags- munir verði teknir úr höndum þjóð- kjörinna fulltrúa og framseldir yfir- þjóðlegu valdi. 4. Afstaða BHMR sem heildarsamtaka stéttarfélaga hæfðu vinnuafli. Þetta gæti í fyrsta lagi haft þau áhrif að til íslands sækti mikill fjöldi atvinnulausra sem gætu sætt sig við léleg kjör og myndu halda launakjörum hér á landi áfram niðri. I öðru lagi má reikna með að margir sérmenntaðir íslendingar taki þann kost að flytja utan á vit betur launaðra starfa þar sem sérhæfni þeirra nyti sín. Áhrif þessa á stéttarfélög og launaþróun eru augljós. Má fullyrða að Islend- ingar myndu á þennan hátt flytja inn í landið launamisrétti af áður óþekktri stærðargráðu. Þess vegna er það mat BHMR að ftjáls at- vinnu- og búseturéttur innan EFTA-EB-svæðisins stangist á við grundvallarhagsmuni íslendinga. BHMR vill benda stjórnvöldum á að forsenda þess að hér sé unnt að halda uppi lífskjörum eins og þau gerast í nagrannalöndum er fjölskrúðugt atvinnulíf sem nýtir sér margvíslega sérfræðiþekkingu. 4. Afstaða BHMR sem hagsmunasamtaka háskólamanna Áform um innri markað EB eru m.a. tengd því að samræma náms- skrár og staðla námsefni og náms- kröfur í aðildarríkjunum og laga skólakerfi þeirra að þörfum atvinn- ulífsins. Þetta er í takmörkuðum skilningi jákvætt. BHMR varar hér við augljósri tilhneigingu til ein- hæfni og skilningsleysis á mikil- vægi húmanískra greina. Hins vegar leggur BHMR áherslu á að íslensk stjórnvöld tryggi með aðild sinni að viðræðum EFTA og EB eða með tvíhliða viðræðum við EB möguleika íslenskra náms- manna til að stunda nám við menntastofnanir í EB-ríkjum. Á sama h átt er mikilvægt að treysta og efla aðild íslendinga að evrópsku vísindasamstarfi. Þegar lítil þjóðríki með sjálf- stæða menningararfleifð taka þátt í nánu efnahagslegu samstarfi við voldugri og fjölmennari þjóðir er mikil hætta á því að menningararf- leifð smáríkisins glatist. Sameigin- legur vinnumarkaður og full og gagnkvæm búseturéttindi allra íbúa EB- og EFTA-ríkja eru án vafa ógnun við menningarlegt sjálfstæði íslendinga. Af þessari ástæðu telur BHMR að íslendingar geti ekki gengið að skilmálum EB um fijáls- an búsetu- og atvinnurétt. (Samþykkt í launamálaráði BHMR 14. desember 1989.) Hagsmunir launamanna í EB: Upphaf Evrópubandalagsins er að finna í hagsmunasamtökum kola- og stálfyrirtækja sem komið var á laggirnar snemma á sjötta áratugnum. Með Rómarsáttmálan- um var þetta bandalag þróað í víð- tækt viðskipta- og hagsmuna- bandalag sex þjóðríkja sem byggð- ist á sáttmála um öflugt styrkja- kerfi til vissra atvinnugreina og landsvæða. Hagsmunir launafólks voru ekki hvatinn að stofnun EB og hafa alla tíð mátt sín lítils í þró- un þess. Til eru áætlanir um að breyta þessu. Fi’á framkvæmdastjórn EB liggja drög að sameiginlegri Félags- málayfirlýsingu sem kveður á um atriði eins og lágmarkslaun, rétt til að vera í stéttarfélagi og rétt launa- fólks til endurmenntunar. Þessi drög hafa enn ekki verið staðfest af ráðherraráði EB, þrátt fyrir að aðiidarríkin séu sammála um að þessi yfirlýsing myndi í engu auka núverandi rétt launafólks í aðild- arríkjunum, svo varfærin eru við- miðin. Það er í samræmi við stefnu EB að ábyrgðin á (starfs)kjörum launafólks sé alfarið á herðum samningsaðila á vinnumarkaði. Framkvæmdastjórnin hefur einn- ig lagt fram félagsmálaáætlanir (1974, 1984 og 1989), þar sem m.a. hefur verið reynt að draga úr hinu mikla atvinnuleysi, einkum meðal ungs fólks. Starfsemi stéttarfélaga: Þátttaka launafólks í stéttarfé- lögum er miklu minni í En (15-45%) en almennt þekkist á Norðurlöndum (80-95%). Stéttarfélög- í EB-ríkjum hafa m.a. átt í erfiðleikum með að fá samningsrétt viðurkenndan og að fylgja honum eftir með verk- fallsrétti. Einnig hafa stéttarfélög í EB-löndum átt í erfiðleikum með að veija gerða kjarasamninga, bæði gagnvart vinnuveitendum og ríkis- valdi. í þessum efnum ríkir allt önnur hefð á Norðurlöndum, e.t.v. að íslandi undanskildu. Víða í EB- löndum er samningsréttur og verk- fallsréttur ekki bundinn við stéttar- félög heldur einstaklingsbundinn. Þess vegna hefur virkni launa- manna í EB-löndum verið lítil og haft þau áhrif að stéttarfélagsleg sjónarmið mega sín lítils í ákvarð- anatöku í þjóðríkjunum og innan bandalagsins. EB grundvallast á hagsmunum vinnuveitenda og fjáragnseigenda. Hins vegar starfa launamannasam- tökin ýmist svæðisbundið eða starfsgreinabundið í einstökum að- ildarríkjum. Það gefur því augaleið að stéttarfélög innan EB eru þess vanbúin að tryggja heildarhags- muni launamanna, þrátt fyrir form- legan samstarfsvettvang, ETUC (Evrópska verkalýðssambandið). Þessi atriði eru rakin hér til að benda á að BHMR getur ekki fall- ist á evrópskan samruna sem fæli í sér að starfsemi íslenskra stéttar- félaga yrði takmörkuð á sama hátt og er til siðs í ríkjum EB. Sameiginlegur vinnumarkaður: Það er ein af niðurstöðum emb- ættismannanefndar EFTA og EB að nauðsynlegt verði að koma á einum sameiginlegum vinnumark- aði á evrópska svæðinu. Áhrif þéss á íslenskan vinnumarkað eru marg- þætt. í EB-ríkjum er mikið atvinnu- leysi en einnig viss skortur á sér- AFSLATTUR Vorum að taka upp nýja og sjóðandi heita sendingu af hljómplötum og geisladiskum á stórkostlega góðu verði. Allt að 70% afsláttur af bestu og næst bestu plötum rokksögunnar. Komið-skoðið-sannfærist. Geisli allt öðruvísi plötuverslun. GEISLI HLJÓMPLÖTUR SNORRABRAUT 29(VIÐ LAUGAVEG) SÍMI 626029

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.