Morgunblaðið - 19.12.1989, Síða 72
MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
fclk í
fréttum
50. leikvika - 16.desember 1989
Vinningsrööin: 122-121-11X-XX2
HVER VANN ?
2.135.172- kr.
0 voru með 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð
5 voru með 11 rétta - og fær hver: 84.983- kr. á röð
ÞREFALDUR POTTUR
- um næstu helgi !!!
TOMSTUNDIR
Þúsundir grunnskóla-
nema í keppni og leik
Stúlkur úr Álftamýrarskóla í hugmyndaíorðun.
Starf íþrótta- og tómstundaráðs
í grunnskólum Reykjavíkur á
haustönn hefur verið með hefð-
bundnum hætti en í því felst að
gróska hafi verið mikil í starfinu.
Alls störfuðu 260 flokkar með 2.647
þátttakendum og voru viðfangsefn-
in hin margvíslegustu, allt frá
frímerkjasöfnun og upp í stjörnu-
fræði. Haustönninni lauk með því
að haldin voru borðtennis- og skák-
mót, borðtennismótið í Laugardals-
höllinni en skákmótið í nýju félags-
heimili Taflfélags Reykjavíkur. 65
sveitir kepptu í borðtqnnis og voru
það Öldusels- og Seljaskóli sem
sigruðu á öilum barna- og unglinga-
stigum. I skákkeppninni sigraði
hins vegar Hagaskóli í eldri flokki
en-Breiðholtsskóli í yngri flokki. 43
sveitir mættu til leiks.
Þrjú efstu liðin í skákkeppninni, lið Breiðholtsskóla, Æfingaskóla KHÍ og Hlíðaskóla.
TÓNLIST
Ætlaði ekki að róa á
öldum ljósvakans
Nýlega kom út hljómplatan
Logadans, en höfundur henn-
ar, þ.e.a.s. laga- og téxtahöfundur,
er Eyjamaðurinn Lýður Ægisson.
Áður hefur Lýður sent frá sér tvær
skífur, Ljósbrot og Lómurinn
L-Æ.vís. Morgunblaðið hafði tal af
Lýð fyrir skömmu og spurði hann
um þessa nýjustu afurð hans.
„Það var alls ekki ætlunin að róa
á öldum ljósvakans enda hefur mitt
ævistarf verið bundið við sjóinn
fram að þessu. Ég hef verið skip-
stjóri í Vestmannaeyjum í mörg ár,
en óvænt varð ég að yfirgefa öld-
urnar söltu af heilsufarsástæðum.
Ég varð fyrir slysi og er ekki heill
eftir. Það varð því úr að ég gaf
meiri gaum að þessu áhugamáli
mínu, laga- og textagerð, og athug-
aði hvort ekki mætti hafa einhveij-
ar tekjur af því,“ sagði Lýður.
Alls sagði Lýður að rúmlega 20
Iistamenn hefðu aðstoðað sig við
gerð Logadans og kynni hann þeim
öllum bestu þakkir fyrir. Þá hefði
Lýður Ægisson
plötunni verið tekið vel, hún hefði
selst prýðilega og útvarpsstöðvarn-
ar hefðu tekið vel á móti henni.
LISTAJÓL
BOEG
Pósthússtræti 9, Austurstræti 10, sími 24211.
7.-9. bekkjar borðtennislið stúlkna úr Seljaskóla varð sigursælt.