Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 76

Morgunblaðið - 19.12.1989, Side 76
76 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989 TÖLVUBORÐ A JÓLfl-TÍLBOÐI m kr. 8.880 TÖLVU IflHDIID hugbúnaður W kilLVIm SKRIFSTOFUTÆKI SKEIFAN 17 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 91-687175 ub £ =3 < Ebalhádegisverbir á Hótel Holti í desember verður á Hótel Holti sérstakur matseðill í hádeginu. Forréttir, aðalréttir og eftirréttir sem hver velur að vild. Príréttaður hádegisverður á viðráðanlegu verði án þess að slakað sé á gæðakröfunum. "^$«0 Forréttir Hreindýrapáte Innbökuð skinka Pastasalat með kjúklingi Grænmetissúpa Spínat ravioli með reyktum lax Abalréttir Hreindýrasmásteik Waldorf Hamborgarhryggur í jólaskapi Steikt heilagfiski með rækjum og kapers í rauðaldinsósu Spaghetti Vongoli með skeldýrum QuÉ Eftirréttir Heitt jólapúns og munngæti eða Tiramisú Forréttur, aðalréttur og eftirréttur kr. 995 pAl lli Bergstaðastrœti 37, Sími 91-25700 Leitin að uppruna alheims Kæri Velvakandi. í Morgunblaðinu þann 6. desember síðastliðinn, er lesendabréf um „Alspryngið", þar er talað um fyrir- lestur, sem vakti mikla hrifningu Þorsteins Guðjónssonar og kannski hefur erindið verið gott og vel flutt, en Þorsteini finnst þó ástæða til að vanda um við „lesara" út af einu orði, — það er „Miklihvellur". Ekki tek ég það svo nærri mér, því málið snýst ekki um það, heldur hvað var í upphafi! Ef það var eitthvað sém sprakk, þá var það til á undan sprengingunni sjálfri, — því annars hefði ekkert sprungið. í gömlum ind- verskum fræðum er þetta betur orð- að, þar segir: „Ein var sú kvika, sem hreyfðist án samhljóms né fylgis við aðra, í eilífu tómi, sem þrýsti henni svo og þrengdi að hún hlaut að springa, þá varð kærleiksþörfin til og krafðist ljóssins, og sköpunin hófst og aðskildist efra og neðra, að ofan kom fijóvgun og undir varð ræting og vöxtur." En annað finnst mér athyglisverð- ara, sem fyrirlesarinn mun hafa sagt „að alheimurinn væri það eitt, sem við næðum að mæla og skynja með nútíma tækni og þar fyrir utan væri ekkert, sem væri þess vert að leggja hugann að“. Ekki get ég fallist á þá hugmynd, því var ekki í eina tíð sagt að ekkert væri fyrir utan sjóndeildar- hringinn og stjarnfestinguna? Hvað höfum við þá lært síðan? Sjóndeildar- hringurinn hefur að vísu stækkað örlítið og enn segjum við: þar fyrir utan er ekkert, Hvílík framför! nei, það er ekki til að hæla sér af, eða gera þann mann að spekingi sem þetta mælir, hann er hugmynda- snauður og vanmegnugur að skilja annað en það eitt, sem hann getur þreifað á. Enn höfum við ekki séð langt út fyrir þá vetrarbraut, sem við til- heyrum og þó vitum við að ótal slíkar eru til, sem við þekkjum ekki nema af ágiskunum, sem við drögum af takmarkaðri þekkingu á okkar eigin sólkerfi og nánasta nágrenni þess. En þó leitin að uppruna alheimsins hafi alltaf leitað á huga mannsins, þá er hún enn jafn fjarri vitund okk- ar og endirinn, og á því sviði og mörgum öðrum hefur okkur ekkert farið fram. Mín hugmynd er sú að úti í ómæl- isvídd alheimsins séu ótal aðrar vetr- arbrauti með okkur óupphugsandi breytileika og tilverum, sem okkur muni varla nokkru sinni óra fyrir og það líf sem við þekkjum þroskaðast er þá gjarnan mjög lágþróað í saman- burði við það, sem þar mætti finna, — kannski er þar „Örbylgjukliður- inn“. En þar er fyrst og fremst frið- ur, en engin sprenging eða hvellur. Þar er almættið hvað, sem upphaf inu líður, því eilífðin er án upphafs og án endis og við munum aldrei skilja þau rök, en þaðan fljúga fegurstu hugmyndir um hug okkar og gefa lífinu það gildi sem það hefur best upp á að bjóða, því ekkert erum við af sjálfum okkur, við þurfum ekki að miklast yfir neinu. Jón Þ. Haraldsson KÍNAPANNA (WOK), glerlok og bókin , Kínversk matseld frá (É í gjafakassa framleiðab íslensk framleiösla Kínapanna fyrir snöggsteikingu, djúpsteikingu og gufusuðu. Hentug fyrir pottrétti og alla fjölbreytta matargerð. 80 útsölustaðir. Heildsöludreifing Amaro-heildverslun, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.