Morgunblaðið - 19.12.1989, Page 80
Gott fólk
býður góðán daginn
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Hafís landfastur við Hornbjargsvita teygir sig langt á haf út.
Morgunblaðið/Ómar Ragnarsðon
Mesti hafís í desember síðan 1917
HAFÍS hefur lokað siglingaleiðum fyrir
Horn. Skipafélögin hafa af þessum sökum
orðið að endurskipuleggja áætlunarferðir.
Við ískönnunarflug í gær kom í ljós að
hann er landfastur allt frá ^Munaðarnesi á
Ströndum og vestur um að ísafjarðardjúpi.
Að sögn Þórs Jakobssonar veðurfræðings
hefur ekki verið jafn mikill hafís við landið
í desember siðan haustið 1917, þ.e. við upp-
haf frostavetrarins mikla.
Sjá nánar á miðsíðu.
Samkomulag um þingstörf til jóla:
Umhverfísráðuneyti og bif-
reiða- og orkuskatti frestað
Fallið frá hugmyndum um að Reykjavíkurborg
greiði 15% af rekstrarkostnaði Borgarspítala
RÍKISSTJÓRNIN mun væntan-
lega falla frá hugmyndum um að
Reykjavíkurborg greiði 15% af
rekstrarkostnaði við Borgarspít-
alann á næsta ári. Sjálfstæðismenn
Álver í Eyjafirði:
Sveitarfélög-
in bjóða höfii
SVEITARFÉLÖGIN við Eyja-
fjörð hafa boðist til að kosta
byggingu hafnarmannvirkja og
bera ábyrgð á rekstri hafhar
verði álver byggt við Eyjafjörð.
Kostnaður við þá framkvæmd er
áætlaður 420 milljónir kr.
I bréfi sem sveitarfélögin hafa
skrifað Jóni Sigurðssyni iðnaðar-
ráðherra óska þau eftir að endur-
skoðaður verði samanburður á
kostnaði við byggingu og rekstur
álvers í Eyjafirði og Straumsvík.
Einnig verði Byggðastofnun falið
að kanna áhrif þess að álver rísi í
Eyjafirði annars vegar og í
Straumsvík hins vegar.
Sjá „Sveitarfélögin tilbúin ...“
á Akureyrarsíðu, bls. 46.
teija sig jafnframt geta sæst á að
ríkið fái fulltrúa í stjórn spítalans,
þó ekki stjórnarformann eins og
stjórnarfrumvarp um heilbrigðis-
þjónustu gerir ráð fyrir. Þetta
tengist samkomulagi sem náðist
um þingstörfin í gærkvöldi, og
samkvæmt því lýkur þinghaldi á
fostudag með afgreiðslu fjárlaga-
frumvarpsins.
Samkomulagið felst að öðru leyti
í því að frestað verður afgreiðslu á
frumvarpi um umhverfisráðuneyti,
frumvarpi um tekjuskatt á orkufyrir-
tæki, frumvarpi um bifreiðagjald og
gjaldagar í því færðir til, og frum-
varpinu um heilbrigðisþjónustu. Gert
er ráð fyrir að þessfmál verði af-
greidd eftir að þing kemur saman
aftur 22. janúar.
Ólafur G. Einarsson formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins sagði
þó við Morgunblaðið að sjálfstæðis-
menn féllust ekki á það að ríkið
ákvæði einhliða að helmingur kostn-
aðar við skólatannlækningarnar, 346
milljónir króna, félli á sveitarfélögin,
eins og tillaga væri um í fjárveitinga-
nefnd. Um þetta ýrði að gera sam-
komulag milii ríkis og sveitarfélaga.
„Þetta er skilyrði af okkar hálfu
ef á að vera hægt að halda hér áfram
í sæmilegri sátt og þingi Ijúki fyrir
jól,“ sagði Ólafur G. Einarsson.
GuðmundurBjarnason heiibrigðis-
ráðherra sagði við Morgunblaðið að
málin væru enn í nokkuð lausu lofti.
Þó væri líklegra að fallið yrði frá
þeim hugmyndum að sinni, að
Reykjavíkurborg greiddi liluta af
rekstri Borgarspítalans en frum-
varpsdrög þess efnis voru rædd í
þingflokkum stjórnarflokkanna í
gær.
Spariskírteini
ríkissjóðs:
Heildareign
landsmanna
um 30 millj-
arðar króna
EIN STAKLIN GAR og samtök
þeirra eiga nú um 30 milljarða
króna í spariskírteinum ríkis-
sjóðs, á núgildandi verðlagi, að
sögn Péturs Kristinssonar fram-
kvæmdastjóra Þjónustumið-
stöðvar ríkisverðbréfa. Skírteini
fyrir um 5 milljarða króna hafa
selst á þessu ári.
Pétur segir að sala spariskírteina
og ríkisvíxla hafi gengið vel á ár-
inu. Ríkisvíxlar hafa einnig selst
fyrir um 5 milljarða króna.
Um þijú þúsund manns hafa
gerst áskrifendur að spariskírtein-
um og segir Pétur að þeim hafi
þegar verið boðið að halda áfram
áskrift á næsta ári. Fljótlega verður
sent bréf til áskrifenda, þar sem
þeim verður boðinn nýr flokkur
skírteina með sérstökum kjörum.
Pétur kvað ekki tímabært að greina
frá því, í hveiju kjörin væru fóigin.
Þjónústumiðstöð ríkisverðbréfa
starfar samkvæmt samkomulagi,
sem nýlega var gengið frá milli
Seðlabanka íslands og fjármála-
ráðuneytisir.s og hefur umsjón með
útgáfu og sölu ríkisverðbréfa og á
að efla tengsl milli eigenda og vænt-
anlegra kaupenda spariskírteina og
annarra ríkisverðbréfa.
„Ég lít svo á að verði þetta dregið
til baka og afgreiðslu frumvarpsins
frestað, sé málið allt í sama farvegi
og þegar það var iagt fram. En á
meðan gefist mánuður til að ræða
þessi mál eins og sveitarfélögin hafa
farið fram á,“ sagði Guðmundur.
Umræður um viðræður EFTA og
EB stóðu enn í sameinuðu þingi þeg-
ar Morgunblaðið fór i prentun og
stóð til að ljúka þeim í nótt. Ekki
hafði náðst samkomulag milli stjórn-
ar og stjórnarandstöðu um sameigin-
lega niðurstöðu.
DAGAR
TIL JÓLA
Harðnar í ári hjá smáfuglunum:
Bamaskólar fá sent fuglakom
Sólskríkjusjóðurinn hefúr nú sent fuglakorn til flestra barna-
skóla á Vestur-, Norður- og Austurlandi og til nokkurra skóla á
Suðurlandi. „Við ákváðum að senda fyrst fúglakom til snjó-
þyngstu svæða landsins," sagði Erlingur Þorsteinsson, formaður
Sólskríkjusjóðsins. I frostum og snjóum undanfarna daga hefúr
harðnað í ári hjá smáfúglunum eins og venjulega á þessum árstíma.
Búið er að senda fimmtíu 30 Að sögn Erlings er fuglakornið
kg sekki af fugiakomi í skólana. mjög gott fyrir snjótittlinga, en
í sekkjunum er malað maískorn
frá Kötlu hf. Lýsi hf. fær tilbúið
fuglakorn frá V-Þýskalandi, en
hjá þessum fyrirtækjum getur
fólk keypt korn í sekkjum.
þeir borða einnig brauðmola og
hrísgijón. Þrestir og starrar
snerta aftur ekki á þessu korni.
Þeir vilja frekar matarleifar eins
og kjöt, fisk, kartöflur og rófur.
Þá eru fuglarnir gráðugir í fitu,
eins og t.d. mör.
Erlingur vildi benda fólki, sem
hefur ekki gefið fuglum áður, á
að gefa þeim á svæðum sem kett-
ir komast ekki inn á, eins og á
svalir eða á bílskúrsþök. „Fólk
verður stundum að sýna þolin-
mæði til að byija með. Fuglar
sjást kannski ekki í nokkra daga,
en þeir þefa fljótiega upp þann
stað sem gefið er á.“