Morgunblaðið - 12.03.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
21
Alyktun 29. landsfundar Sjálfstæðisflokksins um utanríkismál:
Staðfesta NATO-ríkja skilaði árangri
I ALYKTUN 29. landsfundar
Sjálfstæðisflokksins uni utanríkis-
niál segir að frá því að Islending-
ar í upphafi seinni heimsstyrjald-
ar hafi verið knúnir til að taka
utanríkismálin í eigin helndur
hafi utanríkisstefna þjóðarinnar
ávallt tekið mið af landfræðileg-
um, sögulegum og pólitískum for-
sendum, sem íslendingar liafi litlu
um ráðið. Markmið uLmríkis-
stefnunnar hafi ávallt verið að
tryggja frelsi og sjálfsákvörðun-
arrétt þjóðarinnar, vinna að frið-
samlegum samskiptum ríkja og
tryggja öryggi og frið í okkar
heimshluta.
Sjálfstæðisflokkurinn hafi haft
forystu um mörkun þeirrar utanríkis-
stefnu sem varð til á fyrstu árum
lýðveldisins og feli í sér áherslu á
varnarsamstarf vestrænna lýðræð-
isríkja, aðild að Sameinuðu þjóðun-
um, samstarf við aðrar Norðurlanda-
þjóðir og fríverslun í alþjóðlegum
viðskiptum.
Rakið er að undanfarin 2-3 ár
hafi orðið gífurlegar breytingar í
samskiptum austurs og vesturs. Hver-
þjóðin á fætur annarri hafi losnað
undan viðjum kommúnismans í A-
Evrópu og athyglisvert sé að þar sem
ftjálsar kosningar hafi farið fram í
þessum löndum hafi sjónarmið ftjáls-
lyndra og borgaralega sinnaðra
flokka hvarvetna náð mestu fylgi.
Sameiningu Þýskalands, sjálfstæði
Ungvetjalands, Tékkóslóvakíu og
Póllands hafi fylgt stórkostlegur ár-
angur í samningaviðræðum austurs
og vesturs um samdrátt hefðbundins
herafla í Evrópu. Skilyrði hafi skap-
ast fyrir stórbættri sambúð og ná-
inni efnahagslegri samvinnu ríkja í
okkar heimshluta og stafi sá árangur ,
öðru fremur af staðfestu ríkja Atl-
antshafsbandalagsins sem hvergi
hafi hvikað frá markaðri stefnu í
öryggismálum en einnig hafi efna-
hagslegar forsendur neytt stjórnvöld
til að losa um tökin og breyta um
stefnu gagnvart þeim löndum sem
þeir lögðu undir sig eftir lok heims-
styijaldarinnar. Það sé vonandi til
marks um farsælar lyktir kalda
stríðsins að Varsjárvbandalagið hafi
nú verið lagt niður. Þó hljóti nylegir
atburðir að vera mönnum til umhugs-
unar um nauðsyn traustra varna og
samstöðu vestrænna lýðræðisríkja.
I fyrsta lagi beri að nefna stríðið
fyrir botni Persaflóa, sem Saddam
Hussein hafi blásið til þegar hann
ruddist með herlið sitt inn í Kúvæt.
Þetta hafi leitt til þess að ríki Sam-
einuðu þjóðanna hafi ekki átt um
annað að ræða en að beita íraka
valdi.
í öðru lagi er bent á að ofbeldis-
verk sovéskra hermanna í Eystra-
saltsríkjunum undanfarnar vikur hafi
skapað nokkra óvissu í viðræðum við
Sovétmenn um nýja skipan öryggis-
mála í Evrópu. Rakinn er mikill og
eindreginn stuðningur Islendinga við
sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsþjóða
og sú stefna sjálfstæðismanna árétt-
uð að íslendingar taki upp fullt
stjórnmálasamband við ríkin þtjú
jafnskjótt og færi gefst. Þá segir að
ofbeldi Sovéthersins í Eystrasalts-
ríkjunum, fregnir af brotum gegn
nýlega gerðum samningum um af-
vopnun og áframhaldandi hernaðar-
uppbygging á Kóla-skaga, geri að
verkum að íslendingar eins og aðrar
vestrænar þjóðir hljóti að fara að
öllu með gát í samskiptum við so-
véska heimsveldið. Sjálfstæðismenn
leggi sem fyrr áherslu á pólitíska
samstöðu ríkja Atlantshafsbanda-
lagsins og að öll skref sem stigin eru
í varnar- og öryggismálum verði tek-
in í samræmi við markaða stefnu
bandalagsins. Með samdrætti hetja
í Evrópu kunni gildi samgönguleiðar-
innar yfir Atlantshaf að aukast fyrir
varnir ríkja V-Evrópu. Otímabærar
og illa grundaðar hugmyndir um
„afvopnun á höfunum" geti skaðað
hagsmuni ríkja bandalagsins sem
eigi allt undir öruggum sjóflutning-
um.
Aðild að EB ekki útilokuð
Þá segir að hugsanlegt sé að
samningar um EES verði ekki annað
en aðlögunarsamningur EFTA-ríkj-
anna að EB. íslendingar verði að
marka sér stefnu um það hve langt
þeir vilji ganga með ríkjum EFTA í
þessu efni. Ríkisstjórnin hafi enga
ákveðna stefnu heldur láti reka á
reiðanuni'enda sé mikill ágreiningur
innan stjórnarliðsins um afstöðu til
annarra ríkja og einangrunarstefna
sé landlæg í Framsóknarrflokki og
Alþýðubandalagi. Sjálfstæðismenn
telja að íslendingar eigi samleið með
öðrum EFTA-ríkjum um þátttöku í
evrópsku efnahagssvæði að því til-
skildu að samningar takist um hindr-
unarlaus viðskipti með sjávarafurðir.
Ef viðhlítandi samningar takast ekki
um hindrunarlaus viðskipti með sjáv-
arafurðir leggja sjálfstæðismenn
áherslu á að Islendingar leitist við
að ná fram þessiim markmiðum eftir
öðrum leiðum. íslendingar eigi ekki
fremur en aðrar Evrópuþjóðir að úti-
loka fyrirfram að til aðildar geti kom-
ið að Evrópubandalaginu.. Viðfangs-
efnið sé að tryggja þjóðinni efna-
hagslega farsæld í framtíðinni og sjá
til þess að sjálfstæði og sjálfsákvörð-
unarréttur landsins skuli ávallt
tryggður ásamt fullri stjórn á auð-
lindum landsins.
VIRÐISAUKASKATTUR
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
til íbúðarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaskattur af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði er endurgreiddur:
• Byggjendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna á
byggingarstað hússins.
•Eigendur íbúðarhúsnæðis geta fengið
endurgreiddan þann virðisaukaskatt
sem þeir greiða vegna vinnu manna við
viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis
síns.
• Þeir sem framleiða íbúðarhús í verk-
smiðju hér á landi geta fengið endur-
greiddan hluta virðisaukaskatts af
söluverði húsanna.
Sérstaklega skal tekið fram að hvorki er
endurgreiddur virðisaukaskattur vegna
tækjavinnu né af efni sem notað er til
byggingarframkvæmda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
• RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis til
sölu eða leigu.-
• RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Athygli skal vakin á því að frumrit
sölureiknings skal fylgja umsókn um
endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna
endurbóta og viðhalds. Vegna ný-
byggingar verður umsækjandi að geta
lagtfram umbeðin gögn, t.d. sölu-
reikninga þar sem skýrt kemur fram
hver vinnuþátturinn er og að vinnan sé
unnin á byggingarstað.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir:
janúar og febrúar, mars og apríl, maí og
júní, júlí og ágúst, september og október,
nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
Hvenær er
endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma skal endur-
greiðslan fara fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
RSK
RIKISSKATTSTJORI