Morgunblaðið - 12.03.1991, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
23
sönnun þess að við eigum enn
verk að vinna. Við gerum okkur
einnig grein fyrir að ekki er auð-
velt að leysa mál af þessu tagi í
eitt skipti fyrir öll. Þess vegna er
nauðsynlegt að stuðla að því bæði
með kjarasamningum og félags-
legum aðgerðum að draga úr
ójöfnuðinum.“
Ekki einfait að breyta
launahlutföllum
— Hafa ekki árangurslitlar til-
raunir til að bæta kjör láglauna-
hópanna í kjarasamningum leitt
til að ríkið hefur tekið yfir hlut-
verk tekjujöfnunar í gegnum
skattkerfið?
„Þetta er óhjákvæmilegt hlut-
verk ríkisins og frá upphafi verka-
lýðsbaráttunnar hefur stjórnvalds-
aðgerðum verið beitt að kröfu
verkalýðshreyfingarinnar til að
bæta stöðu þeirra sem verst
standa. Þetta er því ekki neyðarúr-
ræði heldur eðlilegur þáttur í að
leita lausnar á vandamálum af
þessu tagi.
Það er ekki einfalt mál að breyta
launahlutföllum. Það er ekki að-
eins við einhveija vonda atvinnu-
rekendur og illvígar ríkisstjórnir
að eiga heldur er líka togstreita í
hópi launamanna gagnvart launa-
hlutföllunum. Reynslan sýnir að
ef einum hópi er lyft í launum til
jafns við annan hóp þykir þeim
síðarnefnda oft að gengið hafi
verið á sinn hlut.
Aðvitað eigum við að beita fé-
lagslega kerfinu til að treysta
stöðu þeirra hópa sem eiga erfitt.
I dag er þar sérstaklega um tvo
hópa að ræða; einstæða foreldra
og barnmargar fjölskyldur með
litlar tekjur. Það má svo bæta
þriðja hópnum við, sem er fólk sem
komið er yfir miðjan aldur og er
oft ekki í aðstöðu til að vinna full-
an vinnudag, til dæmis vegna
heilsubrests. Þetta fólk hefur
kannski 40 til 60 þúsund krónur
í laun á mánuði.“
Fylgja ávinningum eftir
— Telurðu æskilegt að end-
urnýja „þjóðarsáttarformúluna“
við gerð næstu kjarasamninga?
„Eg tel æskilegast að fylgja
málinu eftir á þann hátt, að við
týnum ekki þeim ávinningi sem
náðst hefur af samningunum á
síðasta ári. Það ætti ekki að vefj-
ast fýrir fólki að rifja upp hvað
það var sem það óttaðist fyrir
gerð síðustu samninga. Þá liafði
gengið yfir 12-15% kjaraskerðing
á rúmum tveimur árum. Rekstrar-
stöðvun blasti við mörgum fyrir-
tækjum og mikið atvinnuleysi
vofði yfir. Febrúarsamningarnir
endurspegla þessa stöðu.
Almennt séð hefur atvinnu-
ástand verið þokkalegt á samn-
ingstímabilinu og það er atvinnu-
öryggið sem skiptir máli fyrir lág-
launafólkið sérstaklega. Það er svo
auðvitað nauðsynlegt að missa
ekki verðbólguna aftur upp.
Á síðustu árum höfum við ýtt
alls konar sérmálum til hliðar. Við
gerðum það á vissan hátt gróflega
í febrúarsamningunum, þar sem
við tókum engar lagfæringar til
umræðu, hversu réttmætar sem
þær voru. Af þeim sökum er ríkj-
andi töluverð spenna og ýmsir
hópar telja sig hafa orðið illa úti.“
— Skiptir máli í því sambandi
hvemig ríkisstjórn verður samsett
eftir kosningar?
„Vissulega getur það skipt máli.
Ég tel þó meginatriði að stjórnmál-
amenn verði tilbúnir að fylgja eft-
ir þeim viðhorfum sem voru ráð-
andi við samningagerðina í fyrra.
Það er trúlega stærra mál en
hvaða flokkar mynda í ríkisstjórn.“
Endurnýjun á sér stað
— Þarf verkalýðshreyfingin á
endurnýjun forystunnar að halda?
„Það á við þessi störf eins og
önnur að þau gera tilkall til að
fólk setji sig inn í marga og ólíka
hluti. Starfsfólk sér það á hveijum
vinnustað að því fylgir töluvert
álag að vera trúnaðarmaður á
vinnustað. Fæst verkefni eru leyst
á einum degi.
Það er að vissu leyti eðlilegt,
að þeir sem eru í forystu í verka-
lýðsfélögunum, starfi þar í ein-
hvern tíma þó deila megi um hve
langur hann eigi að vera. Auðvitað
eru menn í forystu verkalýðshreyf-
ingarinnar sem hafa starfað þar í
mörg ár en engu að síður er stöð-
ug endurnýjun líka í gangi og
ekki hægt að búa til neina for-
skrift að þessu. Ég tel að allar
reglur um slíkt væru óvitlegar.“
Fjármagn lífeyrissjóðanna
— Verkalýðshreyfingin er orðin
að meira bákni en hún var. Lífeyr-
issjóðir félaganna velta miklu fé
og hreyfingin hefur látið til sín
taka t.d. í •bankakerfinu. Er þetta
heppileg þróun?
„Það er ekki hægt að gefa ein-
hlítt svar við því. Það getur sett
verkalýðshreyfinguna og þá ein-
staklinga sem sem þar starfa í
erfiða stöðu að vefjast inn í of
mikið.
í lífeyrissjóðunum er mikið fjár-
magn og það þarf að tryggja því
fé ávöxtun. Sjóðirnir eru sjálf-
stæðir hver fyrir sig og því kemur
þetta ekki svo mjög inn á borð
Alþýðusambandsins. Við erum
ekki með neitt leiðbeiningarstarf
gagnvart lífeyrissjóðunum um
hvernig þeir eiga að haga sínum
málum. Það væri þó kannski rök-
rétt að við gerðum það.
Hreyfingin hefur ekki haft mik-
il afskipti af atvinnurekstri. Við
áttum yfirgnæfandi meirihluta í
Alþýðubankanum og eftir samein-
inguna í íslandsbanka eiga verka-
lýðsfélög og lífeyrissjóðir um 30%
hlutafjár. Tilgangurinn með
eignaraðild að banka er í mínum
huga fyrst og fremst tengdur líf-
eyrissjóðunum, því miklu skiptir
fyrir þá að hagsmunir þeirra séu
tryggðir.
Fjárfesta í atvinnurekstri
Þátttaka verkalýðshreyfingar-
innar í atvinnurekstri er tvíbent
mál. Ef lífeyrissjóðirnir fara í
auknum mæli út í fjárfestingar í
atvinnurekstrinum, þá verður að
gera upp með hvaða hætti á að
standa að því að beita sér í krafti
eignaraðildarinnar.
Lífeyrissjóðirnir hafa verið að
kaupa hlutafé í fyrirtækjum á
undanförnum árum. Stærst eru
kaupin á hlutafé í Flugleiðum á
síðasta ári en segja má að ekki
hafi verið tekin nein afstaða til
þess hvernig eigi að^ standa að
þessu í framtíðinni. Á vettvangi
lífeyrissjóðanna hafa menn fyrst
og fremst litið á hlutafjárkaupin
út frá arðsemissjónarmiðum en
ekki til að tryggja sér þar ítök og
áhrif.“
— Er ekki rökrétt að hreyfingin
auki þátttöku sína og áhrif í al-
menningshlutafélögum í framtíð-
inni?
„Ég er eindregið á þeirri skoðun
að það sé æskilegt að lífeyrissjóð-
irnir komi inn í atvinnurekstur
með beinum hætti. Lífeyrir fram-
tíðarinnar verður ekki tryggður á
annan hátt en með öflugri atvinnu-
uppbyggingu. Um leið verður þó
að gæta þess að tefla ekki á tvær
hættur því máii skiptir að sjóðirn-
ir séu færir um að borga lífeyrinn
út þegar að því kemur. Því má
ekki taka stórfellda áhættu og er
nauðsynlegt að dreifa hlutafjár-
kaupunum vel.
Við höfum sgð það gerast í lönd-
um, til dæmis Bandaríkjunum, þar
sem hlutabréf eru mikilvægari
þáttur á fjármagnsmarkaði en
hér, að lífeyrissjóðir eiga stóran
hlut í flestum stærri fyrirtækjum,
jafnvel meirihluta," segirÁsmund-
ur Stefánsson.
Aukin framleiðni er forsenda aukins
hagvcixtcir. f fríunleiðsluiðnaði fæst aukin
hagræðing með vel hönnuðum lager- og
flutningskerfum.
Interroll hefur í áratugi framleitt og þróað
færibandamótora, flutningsrúllur,
flutningskerfi og lagerkerfi sem eru
viðurkennd gæðavara.
Auktu framleiðnina með INTERROLL.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RAÐGJOF
Vilt þú stjórna loftinu
á þínum vinnustað?
Þá kemur JÖTUNN til liðs við þig.
Loft- og hitablásararnir frá NOVENCO henta vel á alla vinnustaði, stóra og smáa
Þeir fást í stærðum frá 4500-40000 kgkal/t.
Þá má tengja við hitaveituvatn, gufu og ketilvatn.
Hægt er að fá inntak fyrir ferskt loft til loftræstingar og
inntak fyrir blandað loft.
Þreplaus stilling eða þriggja hraða.
Nýju HJV þakblásararnir frá NOVENCO fást í fimm
stærðum.
Hámarksafköst eru 2,9 m:í á sekúndu.
Að baki allrar framleiðslu NOVENCO liggur mikið starf í rannsóknarstofum fyrirtækisins.
Afraksturinn er hágæða vara á góðu verði.
Beinn sími sölumanna er 68 56 56.
cfKsfutyj
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
ARGUS/SlA