Morgunblaðið - 12.03.1991, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
ATVIN WWAUGL YSINGAR
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ólafs-
firði, auglýsir eftir hjúkrunarforstjóra frá og
með 15. júií 1991.
Upplýsingar um starfið og starfskjör, hús-
næði og fríðindi, veitir forstöðumaður, Krist-
ján Jónsson, í síma 96-62480.
Héraðssjúkrahúsið
á Blönduósi
Óskum að ráða í eftirtaldar stöður:
★ Deildarstjóra á blandaða deild.
★ Hjúkrunarfræðinga í fastar stöður og til
sumarafleysinga.
★ Sjúkraliða ti sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
95-24206.
BORGARSPÍTALINN
Skurðlækningadeild
Tvo reynda aðstoðarlækna (súperkandidata)
vantar á skurðlækningadeild. Stöðurnar veit-
ast til eins árs, önnur frá 1. júní og hin frá
1. júlí 1991.
Umsóknarfrestur er til 27. mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Gunnlaugs-
son, yfirlæknir.
Fiskvinnsla
Óskum eftir starfsfólki í snyrtingu og pökk-
un. Unnið samkvæmt bónuskerfi.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 52727.
Sjólastöðin hf.,
Hafnarfirði.
Frá
Flensborgarskólanum
Vegna forfalla vantar Flensborgarskólann
íþróttakennara nú þegar í rúmlega fullt starf
um óákveðinn tíma.
Upplýsingar hjá aðstoðarskólameistara í
síma 650400.
Skólameistari.
. TIL SÖLU
Lagerhúsnæði óskast keypt
2000-4000 fm gott lagerhúsnæði óskast
keypt í Reykjavík.
Góð lofthæð æskileg. Má vera á byggingar-
stigi eða þarfnast lagfæringa.
Kirkjuhvoll sf.,
Karl J. Steingrímsson,
s. 20160 og 39373.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Atvinnuhúsnæði
Til leigu 380 fm lager- eða iðnaðarhúsnæði
í vesturbæ Kópavogs. Stórar innkeyrsludyr.
Upplýsingar í síma 41760 á skrifstofutíma.
KENNSLA
„Advanced Hotel
Management diploma“
Neuchatel - Sviss
Skírteinið veitir aðgang að háskólagráðunámi
við virta háskóla í Bandaríkjunum og Eng-
landi.
Einnig er boðið upp á: „Hotel Operations"
(2 ár), „Catering Management" (1 ár), „Front
Office & Housekeeping Management“ (1 ár).
Námið felur í sér launaða verklega þjálfun í
svissneskum hótelum. Námið hefst 15. júlí
1991.
Sumarnámskeið í „Business Administration"
og „Management Development" í samtals 6
vikulöngum áföngum, hefst 22. júlí 1991.
Kennsla fer fram á ensku.
Upplýsingar og bækling veitir Lovísa, sími
12832.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Tilboð óskast
í málningarvinnu á fjölbýlishúsinu Skógarási
1-5.
Nánari upplýsingar veittar í síma 674609.
E
LANDSVIRKJUN
Útboð
Loftræsikerfi
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í smíði og
uppsetningu fjögutra loftræsikerfa fyrir
birgða- og þjónustudeild á Krókhálsi 7,
Reykjavík.
Verkinu skal að fullu lokið 10. maí 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar í Reykjavík frá og með mánudegin-
um 11. mars 1991 gegn óafturkræfu gjaldi
að upphæð 1.500,- krónur.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjun-
ar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir
klukkan 10.00 mánudaginn 18. mars 1991,
en þau verða opnuð þar sama dag klukkan
10.30 að viðstöddum þeim bjóðendum, sem
þess óska.
FUNDIR — MANNFAGNAÐUR
Rangæingar
Árshátíð Rangæingafélagsins í Reykjavík
verður haldin í Sigtúni 3 laugardaginn 16.
mars næstkomandi.
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 19.30.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Miðasala verður í Sigtúni 3 miðvikudaginn
13. mars frá kl. 17.00-19.00.
Fundarboð
Aðalfundur Mjólkurbús Flóamanna verður
haldinn í félagsheimili Vestur-Landeyinga,
Njálsbúð, þriðjudaginn 19. mars 1991.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur
mál. Fundurinn hefst kl. 13.30.
Stjórn Mjólkurbús Flóamanna.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
Þriöja og síðasta á eigninni Lindargötu 5, n.h., Sauðárkróki, þingl.
eigandi Steindór Árnason, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn
14. mars 1991 kl. 10.00. Uppboösbeiðendur eru: Jón Egilsson hdl.
og Lögmenn Seltjarnarnesi.
Þriðja og síðasta á eigninni Víðigrund 24, íbúð á 1. hæð, Sauðár-
króki,. þinglesinn eigandi Benedikt Agnarsson, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 14. mars 1991 kl. 10.30. Uppboösbeiðandi er
veödeild Landsbanka Islands.
Þriðja og síðasta á eigninni Suðurbraut, fiskvinnsluhús, Hofsósi,
ásamt vélum og tækjum, talinn eigandi þb. Hraðfrystihússins hf.,
fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 14. mars 1991 kl. 14.00.
Uppboösbeiöendur eru: Fiskveiðasjóður islands og Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson, hdl.
Þriðja og síðasta á eigninni Sætún 7, Hofsósi, talinn eigandi Guð-
björg Björnsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 14. mars
1991 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru: Eggert B. Ólafsson, hdl.,
veðdeild Landsbanka (slands, Steingrímur Þormóösson hdl. og
Sigríður Thorlacius hdl.
Sýslumaðurinn í Skagafjarðarsýslu.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki.
" FÉLAGSSTARF
Kópavogur - Kópavogur
Kosningar framundan
Sjálfstæðisfélagið í
Kópavogi heldur
fund i Hamraborg
1, fimmtudaginn 14.
mars kl. 20.30.
Gestir fundarins:
Árni Mathiesen og
Sigríður Anna Þórð-
ardóttir, frambjóð-
endur Sjálfstæðis-
flokksins í Reykja-
neskjördæmi, ræða um komandi kosningar og svara fyrirspurnum.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Stjórnin.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. Rb. 1 = 1403128 - 9.I.
□ EDDA 59911237 = 5 Frl.
□ HELGAFELL59913127 VI 2
□ HAMAR 59913127 = 1 Frl.
Aðalfundur
Húsmæðrafélags Reykjavíkur
verður í Félagsheimilinu, Bald-
ursgötu 9, fimmtudaginn 14.
mars kl. 20.00. Mætiö vel og
stundvíslega.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19532
Páskaferðir
Ferðafélagsins
1. Snæfellsnes - Snæfells-
jökull 3 og 4 dagar (28/3-
30/3 og 31/3)
Ein besta svefnpokagisting á
Snæfellsnesi að Görðum, Stað-
arsveit. Sundlaug í nágrenni.
Jökulganga og gönguferðir um
fjöll og strönd. Ath.: Það var
fuilbókað í fyrra, svo pantið
tímanlega. Matsala á staðnum.
2. Landmannalaugar,
skiðagönguferð 5 dagar
(28/3-1/4)
Gengið frá Sigöldu. Sívinsæl
ferð. Gist í sæluhúsinu Laugum.
3. Þórsinörk 5 og 3 dagar
(28/3-1/4 og 30/3-1/4)
Gist i Skagfjörðskála, Langadal.
Gönguferðir við allra hæfi. Góð
færð.
4. Miklafell - Lakagígar,
ný skíðagönguferð 5 dagar
(28/3-1/4)
Gist í gangnamannaskálum.
5. Skaftafell - Fljótshverfi
(28/3-1/4)
Gist að Hofi í Öræfum og Tungu-
seli. Skoðunar- og gönguferðir.
Feröist með Ferðafélaginu um
páskana. Pantið timanlega.
Myndakvötd
miðvikudagskvöldið
13. mars
í Sóknarsalnum, Skipholti 50a,
og hefst það stundvfslega kl.
20.30. Pétur Þorleifsson sýnir
myndir m.a. frá Langjökuls-
svæðinu, gönguferð yfir Vatna-
jökul o.fl. Myndefnið tengist
ýmsum ferðum í ferðaáætlun
Ferðafélagsins í sumar. Vönduð
myndasýning eins af okkar
reyndustu ferðamönnum. Eftir
hlé munu fararstjórar kynna
páskaferðirnar og sýndar verða
myndir úr vættaferðinni góðu að
Eyjafjöllum og í Mýrdal í febrúar
síðastliðnum. Kaffiveitingar i
umsjá félagsmanna i hléi.
Ferðaáætlun 1991 liggur
frammi og ennfremur verða
Ferðafélagsspilin til sölu. Allir
velkomnir. Munið spilakvöldið
fimmtudaginn 21. mars kl.
20.00. Eflið Ferðafélagið með
þátttöku í félagsstarfi þess.
Námskeið íferðamennsku
að vetri
verður um næstu helgi 16.-17.
mars á Hengilssvæðinu. Til-
gangur námskeiðsins er að búa
fólk betur undir feröalög að
vetri. Kennd meðferð brodda og
ísaxa, snjóhúsagerð o.fl. Undir-
búningsfundur fimmtudags-
kvöldið 14. mars.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni, Öldugötu 3, sfmar 19533
og 11798. Telefax: 11765.
Ferðafélag islands.
Skógræktarfélag
Kópavogs
heldur aðalfund mánudaginn
18. mars 1991 kl. 20.30 í félags-
heimili Kópavogs 2. hæð.
Fundarefni: Venjulega aðalfund-
arstörf.
Stjórnin.