Morgunblaðið - 12.03.1991, Blaðsíða 60
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Samþykkt
verði kaup á
nýrri þyrlu
ALLSHERJARNEFND Alþingis
samþykkti á fundi sínum í gær
einróma að leggja til að þings-
ályktunartillaga Inga Björns Al-
bertssonar um björgunarþyrlu
verði samþykkt óbreytt. Tillaga
Inga Björns er svohljóðandi: „Al-
þingi ályktar að fela ríkisstjórn-
inni að sjá til þess að á árinu
1991 verði gerður samningur um
kaup á fullko/ninni björgunar-
þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna."
Allsheijarnefnd kom saman til
aukafundar um málið í gær og var
álit nefndarinnar samþykkt ein-
róma af öllum sjö nefndarmönnum.
Þó skrifaði Jón Kristjánsson undir
með fyrirvara, sem hann hyggst
gera grein fyrir í umræðum þegar
tillagan verður tekin fyrir í samein-
uðu þingi.
I nefndarálitinu kemur fram að
umsagnir um tillöguna hafi borist
frá Slysavarnafélagi íslands, Far-
manna- og fiskimannasambandi ís-
lands, Sjómannasambandi íslands,
Flugmálastjórn, Flugbjörgunar-
sveitinni í Reykjavík og Landhelgis-
gæslu íslands.
Morgunblaðið/KGA
Þorsteinn Pálsson fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins óskar Davíð Oddssyni nýkjörnum formanni flokksins til hamingju með kjörið.
Milli þeirra stendur Gunnar Ragnars fundarstjóri á landsfundi flokksins.
Davíð Oddsson kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins:
Hljóp inn á
flugbraut
og tafði
flugumferð
MAÐUR hljóp inn á flugbraut
á Reykjavíkurflugvelli um
klukkan 19.30 í gærkvöldi og
varð að stöðva flugumferð urn
völlinn í um tíu mínútur af
þeim sökum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugturni var engin flugvél á
flugbrautinni eða í lendingu þeg-
ar atvikið varð og skapaðist því
ekki bráð hætta af athæfi
mannsins.
A meðan beðið var eftir að
lögregla fjarlægði manninn biðu
tvær flugvélar eftir lendingar-
leyfi og flugu í hringi á meðan.
Lögregla brást skjótt við og hafði
tekið manninn í sína vörslu innan
tíu mínútna.
Ekki í vafa um að flokkur-
inn verði sterkari en áður
• •
Onnur sál og harðara yfirbragð, segir Þorsteinn Pálsson
DAVIÐ Oddsson bar sigurorð af Þorsteini Pálssyni í formannskjöri
í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi flokksins á sunnudag. Hlaut
Davíð 733 atkvæði af 1.388 eða 52,8%, en Þorsteinn Pálsson hlaut
651 atkvæði eða 46,9%. Friðrik Sophusson var kjörinn varaformaður
flokksins með 998 atkvæðum af 1.314 eða 75,9%.
Davíð Oddsson sagði við Morgun-
blaðið að þar serh kosningabaráttan
milli hans og Þorsteins Pálssonar
hefði farið málefnalega og heiðar-
lega fram, væri hann ekki í minnsta
vafa um að þau sár sem kunni að
hafa opnast grói fljótt og flokkurinn
verði sterkari en nokkru sinni fyrr.
„Ég fann það mjög glöggt á lands-
fundinum að það er ekkert annað
í huga fólks en að Sjálfstæðisflokk-
urinn snúi sér sameinaður að and-
stæðingunum," sagði Davíð. Hann
sagðist áskilja sér rétt til að taka
sér tíma til að setja mark sitt á
flokkinn, en ætlaði ekki að geysast
Ný flugstjórnarmiðstöð í Reykjavík:
Áætlaður kostnaður
um 500 milljónir kr.
FJÁRHAGSNEFND Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) sam-
þykkti áætlanir Flugmálastjórnar um aukinn tækjakost og byggingu
nýrrar flugstjórnarmiðstöðvar á Reykjavíkurflugvelli á fundi sínum
í Montreal í Kanada í gær. Nefndin gerir ráð fyrir um 9 milljón
dollara kostnaði vegna framkvæmdanna eða sem nemu um 515 millj-
ónum króna.
ICAO greiðir 82% kostnaðar í
formi húsaleigu á 20 árum, en hlut-
ur íslenska ríkisins er 18%. Heimild
er fyrir framkvæmdunum á fjárlög-
um og sagðist Steingrímur Sigfús-
son samgönguráðheiTa vona að
fyrsta skóflustungan yrði tekin á
næstu vikum, því mikill vaxtar-
broddur^væri samfara framkvæmd-
unum. Áætáaður byggirtgartími er
12 mánuðir. Samgöngu- og fjár-
málaráðuneyti taka endanlega
ákvörðun um framhaldið á næstu
dögum.
Að sögn Hauks Haukssonar, að-
stoðarflugmálastjóra, hefur málið
verið í undirbúningi í fjögur til fimm
ár, en flugumferð á svæðinu, sem
Flugmálastjórn sinnir á norðan-
verðu Atlantshafi, hefur aukist um
70% á tímabilinu og er nú um
70.000 flug á ári. Haukur sagði að
þessi mikla umferð kallaði á aukinn
mannafla og tækjakost, því kerfið
væri sprungið og framkvæmdirnar
nauðsynlegar til að halda starfinu
áfram.
Haukur sagði að nýtt sjálfvirkni-
kerfi yrði sett upp í lok ársins og
væri æskilegt að setja það upp strax
í nýju byggingunni. Því þyrftu
framkvæmdir að heijast sem allra
fyrst. „Þetta er arðbær verktaka-
starfsemi, sem skilar gjaldeyri inn
í landið og er farvegur fyrir mikla
uppbyggingu á tækniþekkingu hér
á landi,“ sagði Haukur.
þar fram með fyrirgangi, heldur
fara með löndum og njóta krafta
og ráða þeirra sem fyrir eru og vel
þekkja til.
Þorsteinn Pálsson sagði við
Morgunblaðið, að vinnubrögð í
kringum framboð Davíðs, væru
þess eðlis að niðurstaða formanns-
kjörsins hljóti að túlkast sem ósk
landsfundarins um harðara yfir-
bragð á Sjálfstæðisflokknum en
áður. Þetta væri svolítið önnur sál,
en þekkst jiefði í flokknum fram
til þessa. „Ég taldi að ég hefði ver-
ið búinn að byggja flokkinn.upp í
mjög góða stöðu, bæði með því að
samræma sundruð öfl og skila um
margra missera skeið bestu niður-
stöðunum í skoðanakönnunum, sem
við höfum fengið, þannig að ég er
mjög sáttur við þá stöðu Sjálfstæð-
isflokksins sem ég skil við,“ sagði
Þorsteinn.
Friðrik Sophusson sagði við
Morgunblaðið að það hefði verið
óvænt staða fyrir hann, jafnt sem
aðra, að leitað var til hans í vara-
formannskjöri. „Ég býst við að sá
mikli stuðningur sem ég hlaut, sé
fyi'st og fremst vegna þess að menn
telja að ég, vegna reynslu minnar
og hvað ég þekki vel til í flokknum,
geti hjálpað til við að búa um þau
sár sem kannski verða að loknu
þessu formannskjöri," sagði Frið-
rik.
í miðstjórnarkjöri á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins fékk Þorgrím-
ur Daníelsson bóndi og guðfræði-
nemi á Tannastöðum, Vestur-
Húnavatnssýslu, flest atkvæði eða
888. Þuríður Pálsdóttir yfirkennari
í Reykjavík fékk næst flest atkvæði
eða 869. Af ellefu miðstjórnar-
mönnum, sem kosnir voru á fundin-
um, voru átta af landsbyggðinni.
Sjá einnig bls. 2, 16-21, 24-25,
miðopnu og 33.
Hrefnu- og langreyða-
veiðar verði leyfðar
TIU nefndarmenn af fjórtán í sjávarútvegsnefndum beggja deilda Al-
þingis leggja í dag fram þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að
veiðar á hrefnu og langreyði verði teknar upp á ný hið fyrsta í sam-
ræmi við niðurstöður vísindarannsókna Hafrannsóknastofnunar.
Jón Sæmundur Siguijónsson, einn
flutningsmanna tillögunnar, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
tillagan væri lögð fram nú vegna
þess að beðið hefði verið eftir að
vísindanefnd Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins kæmi saman í Reykjavík í síðustu
viku og staðfesti niðurstöður um
ástand langreyðastofnsins.
Aðrir flutningsmenn tillögunnar
eru Stefán Guðmundsson, Kristinn
Pétursson, Alexander Sþefánsson,
Halldór Blöndal, Guðni Ágústsson,
Matthías Bjarnason, Karvel Pálma-
son, Guðmundur H. Garðarsson og
Jóhann Einvarðsson.
Jón Sæmundur sagði ekki ljóst
hvort tillagan fengist afgreidd fyrir
þinglausnir.