Morgunblaðið - 20.12.1991, Síða 29

Morgunblaðið - 20.12.1991, Síða 29
V 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991 Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Þau eru búsældarleg þessi tvö við baksturinn. Vestmannaeyjar: Jólabakstur á leik- skólanum Kirkjugerði V estmannaeyjar. JÓLAUNDIRBÚNINGUR stendur nú sem hæst. Jólagjafakaup, hrein- gerningar, bakstur tilheyrir jólaundirbúningnum og á heimilunum er mikið að snúast. Börnin á leikskólanum Kirkjugerði í Vestmanna- eyjum létu sitt ekki eftir liggja í undirbúningnum og bökuðu pipar- kökur sem þau ætla að bjóða mömmu og pabba uppá á jólunum. Piparkökubaksturinn er einn af föstu liðunum í jólaundirbúningnum á Kirkjugerði ár hvert. Börnin koma með kökukefli og útskurðarform að heiman en síðan laga fóstrurnar piparkökudeig og hjálpa þeim að fletja út og móta myndirnar. Ahuginn leyndi sér ekki hjá krökkunum og virtust sum vel kunna handtökin á jólabakstrinum og báru sig fagmannlega að verki. Reyndar vildi deigið stundum fest- ast við kökukeflið en það gerði ekk- ert til, því var bará hnoðað saman aftur og síðan flatt út á ný. Börnin sungu jólalög meðan á bakstrinum stóð og annað slagið tóku þau piparkökusönginn úr Dýr- unum í Hálsaskógi, til að vera viss um að uppskriftin og aðferðin við baksturinn væri rétt. Börnin mótuðu ýmsar myndir í deigið. Jólatré, snjókarla, stjörnur og margt fleira og síðan ætluðu þau að skreyta kökumar með því að mála á þær flórsykri. Alla hlakkaði til að komast með kökurnar heim svo mamma, pabbi og önnur skyld- menni gætu smakkað jólabakstur- inn þeirra. Grímur FINLUX Hágæða litasjónvarpstæki 28" Nicam HIFI stereo, textavarp m/íslenskum stöfum, SUPER-VHS inngangi, flötum Black planar", myndlampa, 4 Euro scart tengjum, forritanlegri einfaldri, en fullkominni fjarstýringu. sértiiboð kr. 99.950,- VÖNDUÐ VERSLUN með mynd í mynd (2 stöðvar á skjánum i einu). Kr. 112.950,- MUNALÁN ,_________. AFB0RGUNARSKI1MÁLAR ÍE LJÓML9 FÁKAFENI 11 - SÍMI 688005 Bókabúð . MALS & MENNINGAR. LAUGAVEG118, SÍMI24240 Sendum einnig árituð eintök í póstkröfu. I dag, föstudaginn 20. des. kl. 16-18 árita Jónas Jónasson og Svanhildur Konráðsdóttir bókina LÍFS- HÁSKINN í bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.