Morgunblaðið - 20.12.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1991
31
Stjórnendur Borgarspítala um sameiningu sjúkrahúsa:
Viðbrögð lækna Landakots sér-
hagsmunagæsla vegna launa
„VIÐ erum ekki ánægð með þær sviptingar sem hafa orðið á
Landakoti, og mislíkar mest þau vinnubrögð sem hafa komið
upp, bæði í nefndinni um sameiningu spítalanna, af hálfu nefnd-
armanna Landakots og þeirra sem hafa grafið undan þessum
störfum innan spítalans, og hafa ekki komið hreint fram gagn-
vart okkur,“ segir Jóhannes M. Gunnarsson yfirlæknir á Borg-
arspítalanum. Jóhannes Pálmason framkvæmdastjóri spítalans
segir að viðbrögð lækna Landakots verði ekki skilin örðuvísi
en sem hrein sérhagsmunagæsla vegna launakerfis lækna spít-
alans. „Hópur lækna og starfsmanna Landakots grófu undan
þessu starfi," segir hann.
Meirihluti fjárlaganefndar Al-
þingis hefur afgreitt tillögur heil-
brigðisráðherra um fjárveitingar
til Landakotsspítala, Borgarspítala
og St. Jósefsspítala nær óbreyttar
til þriðju umræðu. Skv. tillögunni
verður hreint ríkisframlag til Borg-
arspítalans tæplega 2,6 milljarðar
kr. sem er óbreytt fjárveiting að
raungildi frá yfirstandandi ári. Jó-
INNLENT
hannes M. Gunnarsson, yfírlæknir
á Borgarspítalanum, segir að þetta
sé skásti kosturinn fyrst ekki gekk
að fylgja þeirri áætlun að sameina
Borgarspítala og Landakot eins og
tillaga var gerð um í skýrslu nefnd-
arinnar.
Vegið að Borgarspítalanum
Jóhannes átti sæti í nefndinni
af hálfu Borgarspítalans auk Jó-
hannesar Pálmasonar og Sigríðar
Snæbjörnsdóttur hjúkrunarfor-
stjóra. Þau segja að sérálit hjúkr-
unarforstjóra Landakots í nefnd-
inni, hafi ekki komið fram fyrr en
í lok nefndarstarfsins eftir að
haldnir höfðu verið tugir funda en
hún hafi ekki haft frammi and-
mæli gegn niðurstöðu hópsins fyrr
en þá. „Okkur finnst vegið faglega
að Borgarspítalanum þegar því er
haldið á lofti að þjónustan á Landa-
koti sé sérstaklega góð. í raun er
um svipuð þjónustukerfi að ræða
á spítölunum. Það sem skilur á
milli eru hins vegar ólík launakerfi
spítalanna, þar sem læknar Landa-
kots fá greitt fyrir hvert viðvik en
hér eru læknar á mánaðarlaunum.
Laun hjúkrunarfræðinga á Landa-
koti eru einnig hærri en hjá okk-
ur,“ sagði Sigríður.
Jóhannes Pálmason sagði að
fulltrúar Borgarspítalans hefðu
samþykkt skýrslu nefndarinnar og
það muni reynast erfitt fyrir þá
að hefja viðræður upp á nýtt á
allt öðrum forsendum, „eins og
þessi uppreisnarhópur á Landa-
koti, úndir forystu Sigurðar
Björnssonar, hefur talað um“,
sagði hann.
„Okkur virðist það líka vera lúa-
legt bragð að draga St. Jósefssyst-
urnar fram í þessum leik og skilja
þær svo eftir einar. Þær hefðu
ekki gengið fram fyrir skjöldu
nema fyrir þrýsting," sagði Jó-
hannes Pálmason.
Hljótum að fá obbann af 200
milljónum
í tillögum heilbrigðisráðherra
-eru lagðar til hliðar tæplega 200
millj. kr. óskipttil spítalanna vegna
nauðsynlegra framkvæmda við
endurskipulagningu sjúkrahús-
þjónustu á höfðuborgarsvæðinu.
Fulltrúar Borgarspítalans segja að
með þessu sé ráðherra að taka
afstöðu með niðurstöðu nefndar-
innar um að lagt verði í ákveðnar
framkvæmdir á Borgarspítalanum,
eins og að ljúka við B-álmuna,
vegna áforma um sameiningu
sjúkrahúsanna. „Þegar að þessari
ákvörðun kemur hljótum við því
að fá obbann af þessari upphæð,"
sagði Jóhannes Gunnarsson.
Fram kom í máli þeirra, að
vegna niðurskurðar á framlögum
til Landakots sé vandséð að spítal-
inn geti eftirleiðis sinnt sömu þjón-
ustu og hann hefur gert, og því
muni stærri hluti bráðaþjónustunn-
ar óhjákvæmilega lenda á
Landspítalanum og Borgarspíta-
lanum.
Sameining við Landspítala
útilokuð
Aðspurð hvort hugsanlega kæmi
til að könnuð verði sameining
Borgarspítala og Landspítala
sögðu þau að ávallt hefði legið
skýr afstaða Reykjavíkurborgar
gegn slíkri sameiningu. „Hins veg-
ar virðast ákveðin öfl innan
Landspítalans ganga með það í
maganum um að sameinast Borg-
arspítalanum. Borgin hefur engan
áhuga á slíku og það hefur komið
mjög skýrt fram hjá ráðherra að
enginn vilji sé til að gera þetta.
Skynsamlegast sé að byggja upp
tvo spítala, Landspítala og Borgar-
spítala. Það hafa Landspítalamenn
átt erfitt með að þola vegna þess
að þeir teldu sig geta misst ein-
hveija tugi milljóna á ári,“ sagði
Jóhannes Gunnarsson.
Jón Eiríksson bóndi, oddviti og
ljósmyndari.
Ljósmyndir
frá Skeiðum
ODDVITANEFND Laugarás-
læknishéraðs og Afréttarmálafé-
lag Flóa og Skeiða hafa gefið út
myndabókina „Aldahvörf á Skeið-
um, ljósmyndir Jóns Eiríkssonar
í Vorsabæ. Bókin er gefin út í til-
efni 70 ára afmælis bóndans og
ljósmyndarans í Vorsabæ.
Jón Eiríksson í Vorsabæ á Skeið-
um hefur verið áhugaljósmyndari í
50 ár, því að árið 1941 eignaðist
hann fyrstu ljósmyndavél sína,
Kodak-kassavél. Síðan hefur hann
tekið myndir, bæði svart-hvítar og í
lit, og á nú um 10.000 myndir í safni
sínu. Yfirleitt eru það ekki landslags-
myndir, heldur mannlífsmyndir,
teknar við hin ýmsu tækifæri.
Myndirnar í bókina völdu auk Jóns
Eiríkssonar sjálfs Inga Lára Bald-
vinsdóttir og Páll Lýðsson, sem skrif-
ar formálann að bókinni, „Að grípa
augnablikið“, þar sem hann rekur
æviferil Jóns Eiríkssonar.
/ beinni útsendingu á Stöð ffannan hvern þriðjudag.
Jóla-Happó 26.DES.
Dregið 24. DES. Vinningar birtast 26.DES.
Sölu lýkur 22. DES.
7JAN., 21.JAN., 4.FEB., 18.FEB., 3.MARS .... -efþúáttmiða!
ovDRÆrr/