Morgunblaðið - 28.05.1992, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAI 1992
I
I
f;
I
I
I
1
I
Evrópubandalagið:
Evrópubandalagið hefur haf-
ið rannsókn á innflutningi á
járnblendi sem framleitt er í
lýðveldum fyrrum Sovétríkj-
anna og Júgóslavíu, auk Svíþjóð-
ar, Noregs, Venesúela, Brasilíu
og íslands, vegna kvartana frá
framleiðendum innan Evrópu-
bandalagsins um undirboð. Jón
Gengur í hús og býður
hjónabandsmiðlun:
ítrekaðar
kvartanir
til lögreglu
MAÐUR nokkur hefur stundað
þá iðju í ýmsum borgarhlutum
að undanförnu að ganga í hús
og bjóða hjónabandsmiðlun af
ýmsum toga. Hefur fólk ítrekað
kvartað undan manninum við
lögreglu sem hefur nú mál þetta
í athugun. Maður þessi var
dæmdur fyrir hórmang fyrir um
tveimur árum síðan.
Maðurinn hefur boðið tvö ólík
dreifibréf eftir því hvort um konu
eða karl er að ræða sem svarar
honum. Konunum er boðin ókeypis
þjónusta við að finna maka eða vini
en körlum er gert að borga 300
krónur fyrir að fá sendan upplýs-
ingabækling um konur sem eru í
leit að vinskap, sambúð eða gift-
ingu. Fullum trúnaði er heitið í
báðum tilfellum.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar hefur hún áður þurft að hafa
afskipti af manni þessum vegna
svipaðra mála en þessar kvartanir
nú eru til athugunar hjá embættinu.
----» ♦ »
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
íslenska járnblendifélagsins,
segir að þetta sé framhald á
rannsóknum sem hafi komið upp
annað slagið allan síðasta ára-
tug.
Jón sagði að þetta væri gömul
saga því Evrópubandalagið hefði
fyrst fyrirskipað rannsókn í þess-
um efnum 1982-83. Sú rannsókn
hefði beinst gegn þessum sömu
löndum að frátöldum Sovétríkjun-
um og Brasilíu. Niðurstaðan hefði
verið sú að samið hefði verið við
Evrópubandalagið um lágmarks-
verð. í kjölfarið hefðu komið fram
undirboð frá öðrum löndum eins
og Brasilíu og þessi rannsókn hefði
verið endumýjuð 1988-89. Nú hafí
fyrrum lýðveldi Sovétríkjanna
komið inn á þennan markað með
undirboð af miklum krafti og skap-
að öllum framleiðendum í Vestur-
Evrópu óskaplega erfíðleika og enn
ein rannsóknin verið sett af stað.
Þetta skipti okkur engu máli því
þess væri að vænta að samkomu-
íag um Evrópska efnahagssvæðið
yrði komið til framkvæmda þegar
niðurstöður rannsóknanna lægju
fyrir.
Morgunblaðið/KGA
Geysisterkt bridsmót hafið
Eitt sterkasta bridsmót sem haldið hefur verið á íslandi hófst á Hótel Holiday Inn í gærkvöldi. Mjög
sterkar erlendar sveitir eru mættar til leiks, m.a. landslið Pólvetja, sem keppa mun við heimsmeistara-
sveit íslands. Þjóðimar hafa ekki mæst við græna borðið síðan í fyrra, þegar ísland vann Pólland í
eftirminnilegum úrslitaleik í Heimsmeistarakeppninni í Japan. Mótið er haldið í tilefni af 50 ára af-
mæli Bridsfélags Reykjavíkur.
Kvótasala gæti þýtt meiri rösk-
un byggða en áður hefur þekkst
- segir Dagbjartur Einarsson, formaður SÍF
Enn heitast
á Vopnafírði
ENN er heitt á Norð-Austurlandi
og komst hitinn í 22,7 stig á
Vopnafirði í gær. Spáð er áfram-
haldandi hita þar í dag, en á
föstudag kólnar með hægri
breytilegri átt um allt land.
A Raufarhöfn komst hitinn í 22
stig í gær og 21,3 stig á Mánár-
bakka á Tjörnesi. Á Egilsstöðum
komst hitinn í 20,6 stig.
í SETNINGARRÆÐU sinni á aðalfundi Sambands íslenskra fiskfram-
leiðenda á Hótel Sögu í gær sagði Dagbjartur Einarsson, formaður
SÍF, að átt hefði sér stað stórkostleg eignatilfærsla í formi kvóta-
sölu til stærri fyrirtækjanna sem yrðu sífellt stærri. „Sumir kalla
þetta hagræðingu en ég tel að þetta gæti leitt til meiri byggðarösk-
unar en átt hefur sér stað á þessari öld og ef við ætlum að halda
uppi atvinnu í landi verðum við ekki aðeins að stöðva þessa þróun,
við verðum að snúa henni við,“ sagði Dagbjartur.
Dagbjartur sagði að enginn
mætti skilja orð sín sem svo að
hann væri alfarið að kenna kvóta-
kerfinu um þetta hörmulega
ástand. „En við hljótum að spyija
okkur hvort við höfum gengið til
góðs götuna fram eftir veg,“ sagði
hann.
Sjá nánar um aðalfund SÍF
á miðopnu.
Dagbjartur Einarsson gerði
kvótakerfið m.a. að umtalsefni í
ræðu sjnni. Um það sagði hann
m.a.: „Á sama tíma og vertíðarbát-
amir sigla kvótalausir í land eftir
að hafa verið að dóla þetta með
örfáar trossur í nokkrar vikur flýst
sífellt meira af kvótanum yfir á
togarana og einkum frystitogar-
ana. Nú hefur myndast ný atvinnu-
grein í útgerðinni, vertíðarbátar
eru famir að veiða fyrir stóru
frystihúsin sem eiga það mikinn
kvóta að þau komast ekki yfir hann
sjálf.
Þegar við samþykktum kvótann
yfír okkur á sínum tíma var það
talin neyðarráðstöfun til þess að
vemda fískistofnana. Enginn
árangur virðist hafa orðið af þeim
vemdaraðgerðum því í ár hefur
kvótinn verið minnkaður, fímmta
árið í röð. Eftir stendur að átt hef-
ur sér stað stórkostleg eigna-
tilfærsla í formi kvótasölu til stærri
fyrirtækjanna sem sífellt verða
stærri og einkum hefur kvótinn
farið yfír á frystitogarana."
Norræni kvikmynda-og sjónvarpssjóðurmn:
Karlakórínn Hekla
fær 18 milijónir kr.
NORRÆNI kvikmynda-og sjón-
varpssjóðurinn mun veita kvik-
myndinni Karlakórinn Hekla
styrk að upphæð 18 mityjónir
króna. Þessi ákvörðun var tekin
á fundi sjóðssins í Stokkhólmi í
Vitavörðurinn á Hombjargsvita meðal nýstúdenta:
Varðskipsmenn sátu yfir í prófunum
- sagði Ólafur Jónsson vitavörður
ÓLAFUR Jónsson, vitavörður á Hombjargsvita, var meðal nýstúd-
enta frá Fjölbrautaskólanum á Selfossi í vor. Námið hefur tekið
hann fimm ár og hafa prófin ýmist verið tekin í vitanum eða á
Selfossi. Þegar prófin hafa verið í vitanum hafa varðskipsmenn
setið yfir Ólafi og gætt þess að allt færi fram eftir bókinni. í
sumar mun Þór Vigfússon skólameistari gera sér ferð í vitann
og afhenda Ólafi prófskírteinið, en það var hann sem rak Ólaf
í námið.
„Það urðu nú fleiri þúsundir
stúdentar," sagði Ólafur, sem er
kominn í vitann á ný að loknum
prófum og vildi lítið gera með
áfangann og þá staðreynd að
hann stundaði námið utanskóla.
„Fjölbrautaskólinn á Selfossi var
næstur," sagði hann. „Það var
eiginlega Þór Vigfússon sem rak
mig í námið. Ég fékk þær bækur
sem um var að ræða, nú svo las
ég þetta í rólegheitum. Sum próf-
in tók ég héma. Þeir komu með
þau stýrimennirnir á varðskipun-
um og sátu yfír mér og tóku próf-
ið til baka. Sumt tók ég á Sel-
fossi þegar ég kom þangað í frí
á vorin og ég var einmitt að klára
þetta núna og er nýkominn hingað
aftur. Auðvitað fékk ég nokkuð
metið í byijun. Ég er með iðnrétt-
indi. Var skipasmiður. Svona gekk
þetta fyrir sig einhvern veginn og
svo einn góðan veðurdag var þetta
búið.
Nú, ég verð að halda áfram og
ná mér í réttindi til að- fara í verk-
fall og ætla ég í sagnfræði í Há-
skólanum í haust. Ég get þá
kannski betur skilið þann boðskap
sem Morgunblaðið ber þegar nám-
inu er lokið.“
Ólafur sagðist hafa gott næði
til að lesa en það gætu komið upp
vandamál þegar í Háskólann væri
komið, þar sem langt væri á bóka-
söfn. „Það er alveg sama. Það
verður leyst einhvem veginn,“
sagði hann. „Ég er nú búinn að
dunda við stúdentsprófið í fímm
ár og ég les mikið hvort sem er
og það er þá allt í lagi að lestur-
inn hafí tilgang. Svo er hugsan-
legt, ef ég hætti einhvern tíma
þessu vitavarðarstarfí, að ég gæti
notað prófið. Það eru fímm ár síð-
an ég kom hingað. Alkar taka
einn dag í einu en ég tek eitt ár
og er að byija sjötta árið hérna."
Mjög erfíðlega gekk að ná sam-
bandi við Ólaf fram eftir degi og
það var ekki fyrr en komið var
undir kvöld að farsíminn hans
svaraði. „Þér tókst að ná þessu í
fímm tilraunum en þetta verð ég
að búa við,“ sagði hann. „Ef þeir
fara að einkavæða símann þá hlýt
ég að fá einhveija úrlausn."
vikunni. Það er kvikmyndafélag-
ið Umbi sem framleiðir myndina
en leikstjóri er Guðný Halldórs-
dóttir.
Að sögn Ólafs Ragnarssonar, sem
sæti á í stjórn sjóðsins fyrir íslands
hönd, var alls tekin ákvörðun um
styrkveitingar að upphæð 70 milljón-
ir króna á þessum fundi sjóðsins.
Auk Karlakórsins Heklu hlutu
myndimar Kalli og englamir frá
Noregi, Heima hjá mér frá Dan-
mörku og Lengi lifi Eistland frá
Finnlandi styrki.
Ólafur Ragnarsson segir að á
fundinum hafi verið til meðferðar
17 mjög vænleg kvikmyndaverkefni
en því miður hafí ekki verið unnt
að styrkja fleiri. „Það er ljóst að
þörfin fyrir fjármögnun á norrænum
samstarfsverkefnum á þessu sviði
er mikil og þó sjóðurinn hafi úr 400
milljónum króna að spila í ár dugir
það hvergi nærri til að anna eftir-
spum eftir fjármagni," segir Ólafur.
Norræni kvikmynda-og sjón-
varpssjóðurinn var stofnaður 1990
en með þessum styrkveitingum nú
hefur hann veitt fé til yfir 100 kvik-
mynda- og sjónvarpsverka á starfs-
ferli sínum. Þar af eru 37 kvikmynd-
ir, 11 sjónvarpsmyndir og 54 heim-
ildar- og stuttmyndir. Sjóðnum var
komið á fót af Norðurlandaráði og
er ætlað að starfa í fímm ár frá
stofnun.
Undirboð á jám-
blendi athuguð
Island á meðal þeirra landa sem eru í athugun