Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 4
pr
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992
Lífeyrissjóðir byggingamanna og málm- og skipasmiða sameinaðir:
Sameinaði lífeyrissjóðurimi með
um 8 milljarða heildareignir
FORMLEGA var gengið frá sameiningu Lífeyrissjóðs málm- og skipa-
smiða og Lífeyrissjóðs byggingamanna á stofnfundi Sameinaða lífeyris-
sjóðsins í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem svo stórir lífeyrissjóðir eru
sameinaðir en hinn nýji sjóður verður sá fjórði stærsti hérlendis hvað
eignir snertir. Eignir sjóðanna voru um síðustu áramót um 8 miHjarð-
ar króna og er fjöldi virkra sjóðfélaga um 4 þúsund.
Viðræður um sameininguna hóf-
ust í mars á sl. ári milli byggingar-
manna, málmiðnaðarmanna og
rafiðnaðarmanna og var þá ákveðið
Heimsferðir og Turavia eru einu
aðilarnir sem bjóða beint leiguflug
frá íslandi til Barcelona. Þar verða
Ólympíuleikamir í sumar og er íbúð-
argisting í boði í Salou. Það er þekkt-
að láta fara fram tryggingarfræði-
lega úttekt á sjóðunum. í september
hófust síðan viðræður milli aðila um
sameiningu. Rafiðnaðarmenn lýstu
ur baðstrandarbær í grennd við
Barcelona og er klukkustundar akst-
ur á Ólympíuleikvanginn fyrir
áhugasama íþróttaunnendur.
því þá yfir að þeir vildu draga sig
út úr viðræðunum að svo komnu
máli. Viðræður héldu hins vegar
áfram milli byggingarmanna og
málmiðnaðarmanna og lauk þeim
með skriflegum samningi milli
stjóma sjóðanna og Vinnuveitenda-
sambands íslands 4. mars sl. Sam-
einingin var síðan staðfest á þingi
Málm- og skipasmiðasambands ís-
lands sem haldið var 7-9. maí og á
fulltrúaráðsfundi Lífeyrissjóðs bygg-
ingamanna 23. maí sl.
Sameining sjóðanna mun gerast í
þremur áföngum. Hinn 31. maí verða
gömlu sjóðimir lagðir niður og gerð-
ir að deildum í Sameinaða lífeyris-
sjóðnum. Annar áfánginn á sér stað
á aðalfundi sjóðsins á næsta ári þeg-
ar tekin verður ákvörðun um með-
ferð réttinda og í þriðja áfanga sem
kemur til framkvæmda 31. desember
1993 verða deildirnar endanlega
lagðar niður.
Sjá viðtal við Jóhannes Sig-
geirsson í viðskiptablaði bls. 4C.
Leiguflug frá Barcelona
HEIMSFERÐIR hf. og Turavia, sem er ein stærsta ferðaskrifstofa
Spánar, verða með beint leiguflug frá Spáni til íslands frá Barcelona
og Alicante til Keflavíkur. Flogið verður vikulega, alla föstudaga frá
17. júlí til 11. september. Gestir geta ráðið hvort þeir dvelja á Islandi
í eina eða þrjár vikur. Heimsferðir annast fyrirgreiðslu við Spánveij-
ana og skipuleggja ferðir meðan þeir eru hér.
Morgunblaðið/Júlíus
Norðurhöfnin dýpkuð
Við miðbakkann í Norðurhöfninni í Reykjavík eru hafnar fram-
kvæmdir við lagningu Geirsgötu og flutning hafnarbakkans fram í
höfnina. Áætlaður kostnaður við verkið á árinu er 40 milljónir króna
en kostnaður við lokafrágang á næsta ári er áætiaður 8 milljónir.
Verkið er unnið í samvinnu Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurhafnar
og verður höfni dýpkuð og skemmtiferðaskipum gert kleift að leggj-
ast þar að bryggju í framtíðinni.
VEÐUR
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hiti veöur 15 alskýjað 11þokumóða
Bergen 21 léttskýjað
Helsinki 24 léttskýjað
Kaupmannahöfn 22 léttskýjað
Narasaraauaq 1 heiðskírt
Nuuk -r-1 skýjað
Ósló 24 léttskýjað
Stokkhótmur 24 léttskýjað
Algarve 22 skýjað
Amsterdam 20 skýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 22 iéttskýjað
Chicago 4 heiðskírt
Feneyjar 22 skýjað
Frankfurt 22 hálfskýjað
Glasgow 10 léttskýjað
Hamborg 20 skýjað
London 22 heiðakírt
LosAngeles 18 alskýjað
Lúxemborg 21 skýjað
Madrld 22 skýjað
Malaga 25 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Montreal 10 slskýjað
New York 12 skýjað
Orlando 23 heiðskírt
París 24 skýjað
Madeira 20 hátfskýjað
Róm 23 léttskýjað
Vín 20 léttskýjað
Washington 12 skúr
Winnipeg 5 léttskýjað
íDAG k\. 12.00 =
s
Helmild: Veðurstofa ístands
(Byggt ó veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 19. MAI
YFIRLIT: Skammt vestur af landinu er lægðardrag sem þokast norðaust-
ur, en austur við Noreg er 1.033 mb hæð.
SPÁ: Suðiæg átt um allt land, fremur hæg. Þokusúld sunnanlands en
heldur bjartara og skúrir vestanlands. Á Norður- og Austurlandi verður
víða bjart veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAQ: Hæg breytileg átt og þokusúld eða rigning
með köflum um vestanvert landið. Austanlands verður fremur hæg aust-
læg átt, skýjað með köflum norðan til en víða þokusúld sunnan til. Hlýtt
norðaustanlands en heldur kólnandi annars staðar.
HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg suðaustanátt og rigning um
suðvestanvert landið. Þokusúld suðaustanlands en bjart veður víðast
annars staðar. Hægt kólnandi veður.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
r r r
r r
r r r
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú færir, undantekning er þó á Norð-
austurvegi (Sandvíkurheiði), þar er mikil aurbleyta og er því aðeins fyrir
jeppa og fjórhjóladrifna bíla. Einstaka vegakaflar eru þó ófærir svo sem
Þorskafjarðarheiði á Vestfjörðum, Hólssandur og Óxarfjarðarheiði á
Norðausturlandi og Mjóafjarðarheiði á Austfjörðum er lokuð vegna aur-
bleytu. Vegna aurbleytu eru sums staðar sérstakar öxulþungatakmarkan-
ir á vegum og eru þær tilgreindar með merkjum við viðkomandi veg.
Allir hálendisvegir landsins eru lokaðir vegna aurbleytu og snjóa. Skrif-
stofa Vegaeftirlits verður lokuð á uppstigningardag.
Vegagerðin.
Vísbendingar um olíu-
mengnn frá E1 Grillo
VÍSBENDINGAR hafa verið um olíumengun frá flaki breska olíu-
skipsins E1 GriIIo, sem sökkt var á Seyðisfirði í heimsstyijöldinni
síðari og hefur bæjarsfjórn Seyðisfjarðar af þeim sökum óskað eftir
því við stjórnvöld að kanna möguleika á að dæla olíu úr flakinu.
„Við höfum haft áhyggjur af þessu
máli, þar sem við höfum séð vísbend-
ingar um leka frá flakinu," sagði
Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri á
Seyðisfirði við Morgunblaðið. „Það
er að vísu ekki nýtt mál, en í haust
tókum við á því aftur og óskuðum
eftir því við umhverfisráðuneytið að
ástand flaksins yrði kannað, og hvort
einhver ieið væri til að fjarlægja þá
olíu sem þar er eftir. Nú er verið að
hugsa um að senda leiðangur til þess
ama,“ sagði Þorvaldur.
Ekki liggur ljóst fyrir hver ætti
að bera kostnað af slíkri könnun, en
samkvæmt náttúruverndarlögum eru
sveitastjórnir ábyrgar fyrir að koma
í veg fyrir mengun. Þorvaldur sagði
að það mál hefði samt ekkert verið
rætt, en sér þætti að minnsta kosti
ekki líklegt að bærinn þyrfti að
greiða rannsóknarþáttinn.
Mikael Ólafsson hjá Siglingamála-
stofnun sagði að það væri ósk stofn-
unarinnar að veitt yrði fé til að skoða
flakið vel svo hægt væri að meta hve
mikil olía sé um borð, hvort hún
hafi jafnvel lekið öll út og sjór sé
kominn í staðinn.
Mikael sagði, að Svíar hefðu á
síðustu árum þróað búnað til að
dæla úr sokknum tankskipum og
einnig búnað til að fínna út hvort
olía eða sjór væri í geymum á skipsfi-
ökum á sjávarbotni.
. Siglingamálstofnun telur að for-
könnun á ástandi flaks El Grillo og
mat á hve mikil olía er enn í tönkum
þess, kosti um 1,5 milljónir króna.
Eignarhaldsfélag Verslunarbankans:
Matið kynnt Islenska
sjónvarpsfélaginu
STJÓRN Eignarhaldsfélagsins Verslunarbanki íslands hf. ákvað á fundi
í gær að kynna íslenska sjónvarpsfélaginu hf. með formlegum hætti
niðurstöðu dómkvaddra matsmanna á verðmæti hlutabréfa sem
Fjölmiðlun hf. keypti í Sjónvarpsfélaginu í ársbyijun 1990. Fjölmiðlun
hefur krafist lækkunar kaupverðs hlutabréfanna vegna rangra upplýs-
inga sem fyrirtækið hafi fengið lyá Verslunarbankanum við kaup hluta-
bréfanna og komust matsmennirnir að þeirri niðurstöðu að kaupverð
bréfanna hafi verið 23 milljónum yfir raunverulegu verðmæti þeirra.
Höskuldur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins,
sagði í gær að þegar Fjölmiðlun fór
fram á dómkvaðningu matsmanna
vegna þessa máls hafí Eignarhalds-
félagið látið íslenska sjónvarpsfélag-
ið, sem raunverulegan seljanda bréf-
anna, vita þannig að það gæti gætt
hagsmuna sinna með upplýsingagjöf
við matið. Eðlilegt væri að kynna
félaginu niðurstöðuna með formleg-
um hætti. Þá sagði Höskuldur að
Eignarhaldsfélagið hefði falið sér-
fræðingum sínum að fara betur ofan
í matið.
Alþýðuflokkurinn á Reykjanesi:
Flokksfólk stándi ein-
huga að baki formanni
Á kjördæmisþingi Alþýðuflokksins á Reykjanesi á þriðjudagskvöld
var samþykkt ályktun þar sem fagnað er frammistöðu formanns
flokksins í samningunum um evrópskt efnahagssvæði. Ályktunin var
lögð fram af 30 fulltrúum á þinginu og var hún samþykkt samhljóða:
Ályktunin er á þessa leið: „Kjör-
dæmisráð Alþýðuflokksins í Reykja-
neskjördæmi fagnar frábærri
frammistöðu formanns flokksins í
samningunum um EES, sem nú hafa
verið leiddir til lykta undir hans for-
ustu.
Jafnframt skorar Kjördæmisráðið
á allt flokksfólk að standa einhuga
að baki formanninum í þeirri baráttu
sem framundan er í því máli sem
og öðru.“