Morgunblaðið - 28.05.1992, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.05.1992, Qupperneq 14
i n - r 14 MORGUNBLAÐIÐ'FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992 ir unga fólkið eftir Þórarin Tyrfingsson Flestir landsmenn, sem nú eru á miðjum aldri, þekkja þær miklu breytingar sem orðið hafa á högum áfengissjúkra og aðstandenda þeirra á síðustu 15 árum. Þeir muna tímana þegar vonleysið og sorgin fylgdi stöðugt hinum ógæfu- sama óreglumanni og það þurfti kraftaverk til að einhver þeirra sneri lífi sínu til betri vegar. Nú þykir orðið sjálfsagður hlutur að óreglumaðurinn fari í meðferð og nái bót og sundraðar fjölskyldur sameinist að nýju við það. Flestir geta bent á og þekkja dæmi um slíkt hjá vini eða ættingja. Við sem vinnum hjá SÁÁ höfum séð þetta eiga sér stað, fundið þakklæti ást- vina og séð gleði og stolt óreglu- mannsins þegar hann nær aftur tökum á sínu lífi og sýnir hvað í honum býr. Þannig verður starf okkar gefandi og okkur finnst að við séum þátttakendur í einhveiju sérstöku. Æ yngra fólk í meðferð Þrátt fyrir þetta vitum við vel að flestir hefðu mátt koma til með- ferðar fyrr og margir skjólstæðinga okkar hafa það á orði. Það er því ánægjuefni að fólk kemur nú yngra til meðferðar en áður og tekur fyrr á vandanum. Á þann hátt verður skaðinn minni og vonin um bata meiri. Ungt fólk hefur því sett æ meiri svip á sjúklingahóp okkar. Þannig voru t.d. 358 innritanir á Vog 1991 þar sem í hlut áttu þeir sem voru á aldrinum 15-24 ára. Þó að þannig megi benda á margt sem fer vel og að ástandið í áfeng- is- og vímuefnamálum hafi skánað undanfarin tvö ár ber þó stóran og dökkan skugga á. Þeir yngstu hafa ekki notið þess sem skyldi. Stöðugt fleiri unglingar virðast geta orðið reglulegir neytendur ólöglegra vímuefna eins og kannabis og am- fetamíns og auðveldara virðist fyrir þá að ná í vímuefnin þótt þeir séu kornungir, eða 16-17 ára. Tæpur helmingur þeirra 106 einstaklinga sem leituðu meðferðar hjá SAÁ 1991 og voru 19 ára eða yngri hafði þannig notað kannabisefni vikulega eða oftar í eitt ár eða leng- ur. Við þessu verður að bregðast. Leggjum æskunni lið SÁÁ mun efla þjónustu sína við unga fólkið og reyna að styðja bet- ur við bakið á því að meðferð lok- inni. Komið verður betur til móts við foreldra þess og hugað betur að forvörnum. Ungiingarnir tóku sig saman fyrir ári og stofnuðu félagið Ungt fólk í SÁA og leggur það heildarsamtökunum mikið lið Þórarinn Tyrfingsson „Þó að þannig megi benda á margt sem fer vel og að ástandið í áfengis- og vímuefna- málum hafi skánað und- anfarin tvö ár ber þó stóran og dökkan skugga á. Þeir yngstu hafa ekki notið þess sem skyldi.“ nú þegar. Þeir munu verða áber- andi í Álfasölunni sem fram fer um næstu helgi. Ágóði af sölunni verð- ur nú allur notaður í þágu unga fólksins. Ég vil fyrir hönd Samtaka áhuga- fólks um áfengis- og vímuefnavand- ann, SÁÁ, skora á alla landsmenn að leggja æsku þessa lands lið. Tökum vel á móti sölufólki Álfsins helgina 29.-31. maí. Með því leggj- um við góðu máli lið og fjárfestum í framtíðinni. Höfundur er formaður SÁÁ. Pepsi 03 Dtet P®psi Ræiqur 500 gr l ' I / -' T” Maltabitar 200 gr. A UJ -> mjh I i “•■•■seses Tckex 250 3r* DALOOH Kínarúllur, vorrúlluroggrænmetisrullur KAUPSTAÐUR QÓLFDÚKATUOD 38 dúkategundir meö 38% meðalafslætti í 38 opnunartíma Hefst áföstudag kl. 11 til miðvikudags kl. 18. DÆMI: Aður kr. 1.730.-...Nú kr. 865 -...-50% Áður kr. 1.298.-...Nú kr. 844.-...-35% Teppaland Opið kl. 9-18 mán. - fös. og 10-14 lau. GRENSASVEGI 13, SIMI813577 VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! MfÐVAKGÍ HÁFNARFfRÐÍ | VESTUR í BÆ (JL- HÚSINU) l mf.&.if'i; JÁ mm í MJÓDD

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.