Morgunblaðið - 28.05.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992
Framhaldsaðalfundur Lögmannafélags íslands:
Tillaga stjórnar um greiðsl-
ur í ábyrgðarsjóð var felld
FRAMHALDSAÐALFUNDUR Lögmannafélags íslands felldi á mánu-
dag tillögu stjórnar um greiðslur til ábyrgðarsjóðs félagsins sem ætlað
er að standa undir greiðslum á því tapi sem gjaldþrot eða fjárþurrð
lögmanna veldur viðskiptamönnum sínum. Ragnar Aðalsteinsson, for-
maður Lögmannafélagsins, segir þetta þýða að tekjur Lögmannafélags-
ins og þar með bæði ábyrðgarsjóðs og námssjóðs félagsins dragist
saman um 70-80% frá síðasta ári og þeir verði í raun óvirkir. í tillögun-
um fólust einnig breytingar sem miðuðu að því að skylda lögmenn til
að skilja á milli eiginfjár lögmannsstofa og fjármuna viðskiptavina og
um eftirlit félagsins og trúnaðarendurskoðenda þess. Lagði Ragnar
fram bréf á fundinum frá dómsmálaráðherra þar sem hann lýsir sig
reiðubúinn að beita sér fyrir lagabreytingu i haust í samræmi við tillög-
ur stjórnarinnar. Ragnar segir að með niðurstöðu fundarins stefni að
því að sjálfstæði lögmannastéttarinnar verði skert og það leiði til skerð-
ingar á réttaröryggi í landinu.
Sagði Ragnar að sjóðnum hefðu
borist óskir um háar greiðslur vegna
gjaldþrota eða á bilinu 10 til 15 millj-
ónir króna og famar væru að berast
beiðnir um greiðslur vegna gjald-
þrots nýverið sem næmu svipaðri
upphæð. Sagði Ragnar að menn ótt-
uðust að fleiri gjaldþrot á næstunni.
Að sögn Ragnars mun réttarfars-
breytingin sem tekur gildi 1. júlí
hafa í för með sér að tekjur ábyrgða-
sjóðsins minnki verulega. Fálagið
hefur auk árgjalda haft tekjur af
svokölluðum málagjöldum, sem lögð
eru á öll þingfest mál í héraði og
Hæstarétti en stjórn félagsins gerði
tillögu um að við þá breytingu sem
tekur gildi 1. júlí renni málagjöld
vegna innheimtu tékka, víxla og
skuldabréfa einnig til félagsins. Þá
var lagt til að lagður verði sérstakur
skattur að upphæð 15.000 krónur á
hvern félagsmann á þessu ári sem
renni óskipt í ábyrgðarsjóðinn og að
helmingur heildartekna félagsins
renni til sjóðsins í stað 20% eins og
verið hefur.
„Á aðalfundi í mars sögðust menn
ekki vera reiðubúnir að borga í svona
sjóð þar sem lögmannafélagið, sem
á að hafa eftirlit, hefur engin virk
úrræði til að framkvæma eftirlitið
og bregðast við ef stjórnin finnur
eitthvað athugavert. Þá var aðal-
fundinum frestað og stjómin samdi
tillögur um breytingar á málfundar-
lögunum sem kváðu á um að lög-
menn skyldu halda aðgreindu fé við-
skiptamanna sinna og bókhaldi yrði
þannig fyrir komið að hvenær sem.
er væri hægt að fá vottorð frá endur-
skoðanda lögmannsins þess efnis að
viðskiptamannafé hans væri til
reiðu,“ sagði Ragnar.
„Því er ekki að leyna- að það er
ekki alveg samstæður hópur innan
Lögmannafélagsins. Auk lögmanna
sem stunda almenn lögmannsstörf
eru þar einnig mánaðarkaupsmenn
sem starfa hjá bönkum, lánastofnun-
um, samstökum og ýmsum fyrirtækj-
um. Þeirra afstaða til tillagnanna
mótaðist af því að þeirra aðstaða er
allt önnur en okkar,“ sagði Ragnar.
Þá sagði hann að lögmenn sem
eingöngu fengjust við innheimtu
hefðu talið að greiðslur í ábyrgðarstj-
óðinn myndu fyrst og fremst lenda
á þeim. Þetta sagði Ragnar þó byggt
á misskilningi þar sem flestar lög-
mannsskrifstofur fengjust við inn-
heimtur.
Tillögur stjórnarinnar þurftu sam-
þykki aukins meirihluta fundar-
manna eða 66,6% atkvæða til að
öðlast gildi. Niðurstaðan varð að til-
iögur stjórnar fengu 55-60% at-
kvæða og voru því felldar.
Ég tel að með þessari aðgerð höf-
um við verið að stefna að því að sjálf-
stæði lögmannastéttarinnar verði
skert. Verði fleiri gjaldþrot á næstu
mánuðum tel ég að það verði póli-
tískt óhjákvæmilegt að eftirlitinu
verði þvingað á okkur og þá hugsan-
lega falið utanaðkomandi aðila, sem
er óheppilegt," sagði Ragnar.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
íþróttaskór
Verð
kr. 2.495,-
Stærðir: 36-46
Litur: Hvítur.
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
Toppskórinn,
Vellusundi,
sími 21212
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
RAX
Bera Nordal forstöðumaður Listasafns íslands með einn viðhafn-
arbúninginn sem verður á sýningunni.
Listasafn Islands:
Sonur Jórdaníukon-
ungs opnar sýning-
una 2.000 ára litadýrð
PRINS Feisal Bin A1 Husein, sonur Husseins Jórdaníukonungs,
mun á laugardaginn opna fyrir hönd Noor A1 Hussein drottning-
ar Jórdaníu, sýninguna: 2.000 ára litadýrð, mósaikmyndir og
búningar frá Jórdaníu og Palestínu í Listasafni íslands en Noor
drottning er verndari sýningarinnar. Elstu verkin á sýningunni
eru 1.500 ára gömul. Sýningin verður opnuð fyrir almenning
sunnudaginn 31. maí kl. 12 og henni lýkur 26. júlí nk. Hún
verður opin alla daga nema mánudaga milli kl. 12 og 18.
á efri hæð safnsins voru fengin
að láni frá Þjóðminjasafni Jórdan-
íu.
Sýningunni á neðri hæð hússins
verður skipt í tvo hluta. Annars
vegar verða til sýnis búningar,
úr einkasafni frú Widad Kawar
sem býr í Amman, hins vegar
fylgihlutir og skart sem voru
ómissandi þáttur búninganna.
Frú Widad Kawar kom hingað
til lands í gærmorgun en hún
hyggst aðstoða við að stilla bún-
ingunum upp og vera viðstödd
opnun sýningarinnar.
Þetta er í fyrsta skipti sem
listaverk frá þessum heimshluta
eru sýnd á íslandi. Annars vegar
verða sýnd mósaikverk, sem eru
hluti klassískrar, rómverskrar
menningar og kristinnar býs-
anskrar menningar, hins vegar
viðhafnarbúningar kvenna, bæði
úr hirðinga- og bændasamfélög-
um, er rekja má til íslamskrar
menningar. Sýningin spannar nær
tvö þúsund ára menningu þessa
svæðis og lýsir ólíkum menningar-
straumum.
Mósaikverkin sem sýnd verða
Þegar þú skróir þig í Vaxtalínuna
opnast þér ýmsir möguleikar:
AFSLATTARKORT
SKOLADAGBOK
'**rTA**%f
FJÁRMÁLANÁMSKEIÐ
VAXr«/NOV&’lU,i
BÍLPRÓFSSTYRKUR
Félagar fú Vaxtalínubol um leið og þeir
skró sig - þeim oð kostnaðarlausu.
.bOnaðarbanki
JSLANDS
hvIta húsio / SlA