Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 31
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAjt 1992
31
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið.
Banvænt reykjar-
kóf - drepum í
sígarettunni
Ognvænlegar fréttir spurð-
ust um heimsbyggðina í
síðustu viku eftir útkomu hins
virta brezka læknablaðs, Lanc-
et. Þar voru birtar niðurstöður
í nýrri rannsókn á áhrifum tób-
aksreykinga. Hún var gerð á
einni milljón manna og stóð
yfir í sex ár. Meginniðurstaðan
er sú, að skaðsemi reykinga er
miklu alvarlegri en áður var
talið og þótti víst flestum nóg
um fyrir. Samkvæmt rannsókn
brezku vísindamannanna deyr
fimmti hver maður af vöidum
tóbaksreykinga.
í skýrslunni segir, að af
1.250 milljónum íbúa í þróuðu
ríkjunum muni 250 milljónir
manna deyja af völdum reyk-
inga, eða fimmti hver maður.
Þetta er álíka fjöldi og allir
íbúar Bandaríkjanna. Einn
skýrsluhöfundanna, Richard
Peto prófessor, segir:
„Flestir vita, að reykingar
eru skaðlegar en fáa hefur órað
fyrir því, hve hættulegar þær
eru. Það skiptir öllu, að fólk
átti sig á þessum tölum. Það,
sem við stöndum nú frammi
fyrir, er bamaleikur hjá því sem
verður, ef engin breyting verð-
ur á lífsháttum reykinga-
manna.
Margir halda, að reykingar
séu eitthvað, sem geti hugsan-
lega leitt til dauða á gamals-
aldri, en svo er ekki. Helmingur
reykingamanna mun deyja á
miðjum aldri, tapa 23-24 árum
af ævinni, og þeir, sem deyja
aldraðir, hefðu ella lifað átta
árum lengur. Góðu fréttimar
em hins vegar þær, að hætti
menn að reykja jafnar líkaminn
sig furðu fljótt. Sá, sem hefur
verið hættur í tíu ár, hefur
næstum eðlilegar lífslíkur.“
Þetta er niðurstaða brezku
vísindamannanna og það er
vægt til orða tekið, að hún er
hrikaleg. Aðrir vísindamenn
em jafnvel enn svartsýnni á
afleiðingar reykinga og í því
sambandi má benda á ummæli
dr. Alans Lopez, sem starfar
hjá Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni, en hann segir, að
þriðjungur reykingamanna,
sem hafi reykt árum eða ára-
tugum saman, muni láta lífið
af völdum tóbaksins eða jafnvel
helmingur þeirra.
í skýrslu brezku vísinda-
mannanna er komizt að þeirri
niðurstöðu, að nú þegar deyi
um tvær milljónir manna í þró-
uðum ríkjum af völdum reyk-
inga á ári hverju og mannfallið
á þessum áratug er áætlað um
21 milljón. Tóbaksreykingar
eru nú taldar valda mun meiri'
og víðtækari skaða á líkams-
starfseminni en áður var álitið.
Meðal sjúkdóma, sem reyking-
ar valda, eru krabbamein í
lungum, munni, koki, vélinda,
nýrum og þvagblöðru, en auk
þess valda þær hjarta-, heila-
og æðasjúkdómum, svo og öðr-
um sjúkdómum í lungum og
öndunarvegi.
Rannsóknin beindist að
áhrifum reykinga í svonefndum
þróuðum ríkjum. Þar býr fólk
í upplýstum þjóðfélögum og
flestir hafa notið meiri eða
minni menntunar. Samt er
ástandið jafn alvarlegt í þess-
um efnum og raun ber vitni.
Margir læknar og aðrir vísinda-
menn hafa einna mestar
áhyggjur af stórauknum reyk-
ingum í löndum þriðja heims-
ins, þar sem fátækt, fáfræði
og menntunarskortur ráða ríkj-
um. Það auðveldar tóbaksfram-
leiðendum að koma vöru sinni
á framfæri og ekki bætir það
úr skák, að ýmsar fátækar
þjóðir eygja einna mesta tekju-
möguleika með stóraukinni
ræktun tóbaksplöntunnar.
Verði ekki snúið við blaðinu er
auðvelt að ímynda sér ástandið
í þriðja heiminum í framtíð-
inni. Sízt af öllu mega íbúar
hans taka reykjarkófíð í þróuðu
ríkjunum sér til fyrirmyndar.
Orækar upplýsingar um
skaðsemi tóbaksreykinga hafa
hrannast upp síðustu ár og
áratugi og reykingamenn geta
ekki lengur horft fram hjá
þeim. Öilum á að vera ljóst, að
heilsan er dýrmætari en allt
annað. Án góðrar heilsu nýtur
enginn sem skyldi annarra
gæða lífsins. Reykingamönnum
ber að verðveita heilsuna
sjálfra sín vegna og sinna nán-
ustu. Það hlýtur að vera illbæri-
leg tilhugsun fyrir reykinga-
menn og ástvini þeirra, að þeir
falli frá í blónia lífsins eða þjá-
ist árum saman af hvers kyns
sjúkdómum af völdum tóbaks.
Það eru þjáningar, sjúkdómar
og dauði, sem auðvelt er að
koma í veg fyrir með því einu
að drepa í sígarettunni.
Aðalfundur SIF 1992:
Sérleyfi SÍF verði endurnýjað eða
útflutningur á saltfíski gefínn frjáls
Jenný Guðmundsdóttir kjörin í stjórn SÍF fyrst kvenna
AÐALFUNDUR SIF, sem haldinn
var í gær, telur þann hátt sem
nú er á útflutningsmálum salt-
fisks óviðunandi, enda hafi
stjórnvöld i reynd fellt niður sér-
leyfi SÍf á útflutningi saltfisks frá
Iandinu. Fundurinn harmaði að
utanríkisráðherra skuli ekki hafa
farið eftir eigin reglum við veit-
ingu útflutningsleyfa síðastliðna
12 mánuði. Því skoraði fundurinn
á ríkisstjórnina að endurnýja sér-
leyfi SÍF eða ella gefa þennan
útflutning frjálsan. Þá var sam-
þykkt á fundinum ályktun þar
sem nýgerður samningur um
Evrópska efnahagssvæðið er
sagður til mikilla hagsbóta fyrir
íslenzkan saltfiskiðnað. Stjórn
SÍF var að mestu endurkjörin á
fundinum. Tvær breytingar voru
þó gerðar og situr nú kona í
stjórn samtakanna í fyrsta sinn,
en það er Jenný Guðmundsdóttir
frá Ólafsvík.
Heildarútflutningsverðmæti salt-
fiskafurða Sölusambands íslenskra
fiskframleiðenda á árinu 1991 nam
13,6 milljörðum króna, sem er 1,1
milljarði, eða tæplega 9%, meira en
fékkst árið áður. Á sama tíma varð
6% samdráttur í heildarútflutningi
SÍF í tonnum talið, en alls voru flutt
út 46 þúsund tonn af saltfiski í
fyrra. Þetta þýðir að útflutnings-
verðmæti fyrir hvert tonn hafi auk-
ist um 18% milli ára mælt í krónum.
í ár er þess minnst að 60 ár eru
liðin frá stofnun SÍF og var í gær
haldið upg á afmælið á margvísleg-
an hátt. A aðalfundi, sem fram fór
á Hótel Sögu í dag, sátu forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og
formenn stjómmálaflokkanna sér-
stakan hádegisverð með framleið-
endum. Forseti íslands fékk afhenta
heiðursútgáfu af handriti af 60 ára
sögu SÍF. Fyrirhugað er að gefa
söguna út innan skamms, en hún
er stór hluti af atvinnusögu íslensku
þjóðarinnar á öldinni. Auk þess gaf
SÍF Slysavamafélagi íslands „þjóð-
argjöf" í tilefni afmælisins, sem er
þrjú miðunartæki að verðmæti einn-
Frá aðalfundi Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda í gær.
ar milljónar króna. Miðunartækin
eru liður í að efia enn frekar björg-
unar- og slysavamastarfsemi við
strendur landsins. Þá ávarpaði ut-
anríkisráðherra fundarmenn. Hann
gat þess að SÍF hefðu unnið ómet-
anlegt starf í þágu þjóðarinnar með
útflutningi sínum á saltfisks. Sölu-
sambandið væri stærsta sölusam-
band heimsins á sviði saltfisk og
myndi verða það áfram, þó að svo
kynni að fara að sérleyfi SÍF til
útflutnings á saltfiski yrði dregið
til baka. Ráðherrann sagði hins
vegar hvorki af né á um hvort það
yrði niðurstaðan.
í gærkvöldi var afmælishóf á
Hótel íslandi, þar sem fjórir
spænskir matreiðslumeistarar frá
Barcelona matreiddu margréttaðan
veislumat úr úrvals íslenskum salt-
fiski fyrir saltfiskframleiðendur og
gesti þeirra að hætti Spánveija.
Samdráttur í framleiðslu
Framleiðsla á saltfiskafurðum
hefur dregist saman undanfarin ár
samfara samdrætti í þroskafla. Árið
1991 voru 85% framleiðslunnar
unnin úr þorski, 12% úr ufsa og 3%
úr löngu og keilu. Heildarframleiðsl-
an 1991 var rúmlega 46 þúsund
tonn, sem er 2.500 tonnum minna
en 1990. Rúm 36% af heildarþorsk-
afla landsmanna fóru í framleiðslu
á saltfiski og saltfískafurðum. Salt-
fískbirgðir í landinu í byijun 1991
voru rúmlega eitt þúsund tonn, en
í lok ársins námu þær 1.200 tonn-
um.
Morgunblaðið/Sverrir
286 framleiðendur
Á sl. ári seldi SÍF saltfiskafurðir
fyrir 286 framleiðendur um allt
land, sem var 12 framleiðendum
færra en árið áður. Flestir framleið-
enda eru á Norðurlandi, eða alls 91.
Mest var framleiðslan á Reykjanesi
eða 24% af heildarmagninu. Hæsta
meðalframleiðslan er á Suðurlandi,
eða 359 tonn að meðaltali á fram-
leiðanda. Stærsti einstaki fram-
leiðandinn á árinu var Skerseyri hf.
í Hafnarfirði með rúmlega tvö þús-
und tonna ársframleiðslu.
Mest flutt til EB-ríkja
Um 98% útfluttra saltfískafurða
fóru til landa Evrópubandalagsins
í fyrra ef miðað er við verðmæti.
Árið 1991 voru saltfiskafurðir tæp
Dagbjartur Einarsson, formaður SÍF, í ræðustól.
26% af þeim sjávarafurðum sem
seldar voru til EB-ríkja. Spánn og
Portúgal eru stærstu viðskiptalönd
SÍF. Saltfískafurðir eru nær eini
vöruútflutningur íslendinga til
Spánar og Portúgals og stór huti
vöruútflutnings til Ítalíu og Grikk-
lands, en þessi ríki eru öll í EB.
Alls var saltfiskur seldur til 15 landa
í flestum heimsálfum og um 400
tonn af skreið voru seld til fjögurra
landa.
Stærsta viðskiptalandið er Port-
úgal með tæp 15 þúsund tonn, sem
er um 32% af heildarútflutningi
SÍF. Þar á eftir kemur Spánn með
um_ 12 þúsund tonn. í þriðja sæti
er Ítalía með rúmlega 6.000 tonn.
í fjórða sæti er Frakkland með rúm-
lega 4.000 tonn.
Erlend dótturfyrirtæki og
söluskrifstofur
Útflutningur Nord-Morue, dótt-
urfyrirtækis SÍF í Frakklandi, til
annarra landa jókst um 140% á
milli áranna 1990 og 1991. Þar
komu til sögunnar nýir markaðir í
löndum eins og Angóla, Barbados,
Ítalíu og Brasilíu. Framleiðsla í
verksmiðju Nord-Morue jókst um
40% og var afkastageta hennar í
þurrkun aukin án þess að í nýjar
fjárfestingar væri ráðist. Velta
Nord-Morue var 2,2 milljarðar
króna í fyrra, sem er 44% aukning
milli ára. Útflutningur fyrírtækisins
reyndist 37% af veltu þess en alls
voru fluttar afurðir þaðan til 24
landa í þremur heimsálfum.
Söluskrifstofa SÍF í Mílanó á ítal-
íu var opnuð í byijun árs 1991, en
hún sér um samksipti við ítalska
kaupendur, auglýsinga- og kynn-
ingarmál, sölu á framleiðsluvörum
Nord-Morue og sölu á skreið frá
SÍF þar á landi.
Starfsemi Union Islandia, dóttur-
fyrirtækis SÍF á Spáni, var með
heðbundnum hætti á sl. ári, en hún
sér m.a. um sölustarfsemi og sam-
skipti við spænska viðskiptavini,
auk þess auglýsinga- og kynningar-
mál á Bacalao Islandia merkinu,
sem er viðurkennt gæðamerki þar
um slóðir.
Stjóm SÍF skipa eftirtaldir: Ari
Þorsteinsson, Homafirði, Benedikt
Sveinsson, Reykjavík, Einar Sig-
urðsson, Þorlákshöfn, Dagbjartur
Einarsson, Grindavík, Gunnar Tóm-
asson, Grindavík, Jenný Guðmunds-
dóttir, Ólafsvík, og Tryggvi Finns-
son, Húsavík, en þau voru í gær
kjörin í stjórnina til tveggja ára.
Áfram í stjórn kosnir til tveggja ára
í fyrra eru Finnbogi Jónsson, Nes-
kaupstað, Guðjón Indriðason,
Tálknafirði, Gunnar Þór Magnús-
son, Ólafsfirði, Karl Njálsson, Garði,
Kristján Guðmundsson, Rifi, Magn-
ús Björgvinsson, Garði, og Viðar
Elíasson, Vestmannaeyjum. Á fundi
stjórnarinnar í gær var Dagbjartur
Einarsson endurkjörinn stjórnar-
formaður.
Landvernd og Kaupmannasamtökin:
20 milljónum króna
úthlutað úr Pokasjóði
RÚMLEGA 20 milljónum kr. var úthlutað úr Pokasjóði Landverndar
við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu í gær. Alls var styrkjum úthlut-
að til 85 verkefna á sviði friðunar og gróðurverndar, fræðslu og rann-
sókna, allt frá 20 þúsund kr. upp í 1,5 milljónir kr. Forseti Islands,
Vigdís Finnbogadóttir, flutti ávarp við athöfnina.
Úthlutað hefur verið úr Pokasjóði
Landverndar allt frá árinu 1989, sam-
tals um 50 milljónum kr., þar af rúm-
um 40 milljónum kr. til gróðurvemd-
ar og friðunar. Samkvæmt samningi
Landverndar og Kaupmannasamtak-
anna rennur helmingur af andvirði
hvers plastpoka sem seldur er í versl-
unum, að frádregnum virðisauka-
skatti, í Pokasjóð og fé sem í hann
safnast er notað til landgræðsluverk-
efna.
8 styrkjum var úthlutað til aðila á
Suðvesturlandi, 12 styrkjum til
Vesturlands, 12 styrkjum til Vest-
fjarða, 15 styrkjum til Norðurlands
vestra, þar af 600 þúsund kr. til frið-
unar lands í eigu 20 lögbýla í Kinnar-
felli í Ljósavatnshreppi og 500 þúsund
kr. til lagfæringa á göngustígum í
Dimmuborgum, 9 styrkjum til Aust-
urlands og 16 styrkjum til Suður-
lands, þar af hæsta einstaka styrkn-
um, 1,5 milljónum kr., til Vestmanna-
eyjabæjar til að hefta sandfok úr hlíð-
um Eldfells. Fimm styrkjum var veitt
tíl fræðslu, samtals 970 þúsund kr.
og sjö styrkjum til rannsókna, sam-
tals 1.680.000 þúsund kr.
Frá 1989 hefur verið úthlutað
styrkjum til 233 verkefna úr Poka-
sjóði Landverndar, þar af hafa 43
verið vegna verkefna á Suðurlandi,
34 á Norðurlandi eystra, 31 á Vest-
urlandi, 25 á Suðvesturlandi, 23 á
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra
og 20 á Austurlandi, auk fjölda
styrkja til fræðslu og rannsókna.
Meðal verkefna sem úthlutað var
til að þessu sinni er gerð göngustíga
og sáning í svæði í landi Fossár í
Kjós, lagning vegar í nágrenni hraun-
hellisins Víðgelmis í Fljótstungu í
Hvítarsíðuhreppi, lagning göngustíga
í Kálfanesborgum í Hólmvíkurhreppi,
uppsetning 5 km langrar rafmagns-
girðingar í Ásbyrgi, gróðursetning
skjólbelta fyrir ofan Fáskrúðsfjörð og
uppgræðsla á landsvæði innan við
Gullfoss austan Hvítár. Þá var
Náttúrugripasafni Vestmannaeyja
veittur styrkur til merkingar á steina-
safni og styrkur veittur tíl könnunar
á stofnstærð og útbreiðslu flórgoða.
Fiskeldi Eyjafjarðar hf.:
200 millj. verði settar
í tilraunaeldi á lúðu
Álitlegt segir sjávarútvegsráðherra
„ÞAÐ er mat þeirra, sem að eldisrannsóknum standa, að frekari rann-
sóknir á matfiskeldi þurfi að fara fram áður en farið sé í miklar fram-
kvæmdir í uppbyggingu lúðueldis. Stöðin ísþór í Þorlákshöfn hentar
ágætlega í tilraunaeldi á lúðu en slík tilraun kostar 200 milljónir króna
á næstu 5 árum,“ sagði Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri Fisk-
eldis Eyjafjarðar hf., á fundi, sem Fiskeldi Eyjafjarðar, Samherji hf.
og Útgerðarfélag Akureyringa hf. stóðu fyrir í Þorlákshöfn á þriðjudag
um tilraunaeldi á lúðu fiskeldisstöðinni ísþór en stöðin varð gjaldþrota
í fyrra. Reiknað er með að í tilrauninni verði framleidd 100-150 tonn.
Á fundinn í Þorlákshöfn mættu
m.a. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra, fulltrúar nokkurra sjávar-
útvegsfyrirtækja, Eimskips hf. og
Sjóvár-Álmennra hf. Sjávarútvegs-
. ráðherra sagði á fundinum að þetta
verkefni geti verið mjög álitlegt en
brýnt sé að rasa ekki um ráð fram.
Náttúran er undirstaða
þess að við getum lifað
segir Óli Kr. Sigurðsson forstjóri Olíuverslunar íslands hf.
ÓLI Kr. Sigurðsson, forsljóri OHuverslunar íslands hf., segir afar
mikilvægt að fara vel með náttúruna því hún sé undirstaða þess að
við getum lifað. Hans uppáhalds tími er vorið þegar náttúran breyt-
ir um lit og fólk fyllist bjartsýni. Hann segir að náungakærleikurinn
blómstri á þessum tima, rifrildi séu fremur skammdegisins. Olis til-
kynnti á þriðjudag að fyrirtækið myndi láta 20 aura af andvirði hvers
bensínlítra næstu fjögur árin renna til Landgræðslunnar. Miðað við
núverandi sölu fyrirtækisins verða þetta 50 milljónir króna á tímabil-
inu. Óla fínnst vel við hæfi að gjöfina skuli bera upp á 100 ára af-
mæli fyrsta forstjóra Olíuverslunarinnar, Héðins Valdimarssonar.
Óli segir að ekki sé hægt að rekja
fjárframlagið til samkeppni olíufé-
laganna eða þess að hann sé svo
mikill fjallagarpur. Hann bendir
þess í stað á að öll umræða í þjóð-
félaginu gangi út á náttúruvernd
og mengun. „Ég hef aðeins fylgst
með þessu en segja má að ég hafi
fyrst byijað að meta þetta og átta
mig á þessu þegar ég kynntist
Ómari Ragnarsyni. Við töluðum oft
saman og hann var eiginlega sá sem
fékk mig til að fylgjast betur með
umhverfínu en áður. Jafnframt er
ástæðan sú að ég ákvað fyrir nokkr-
um árum að ef ég kæmist klakk-
laust í gegnum allt bramboltið í
kringum Olís þá myndi ég fara af
stað í einhvers konar uppgræðslu
til að endurgjalda stuðninginn við
mig. Ég hefði aldrei farið í gegnum
allan þennan hasar og öll þessi læti
nema vegna þess að ég fékk það
mikinn stuðning út í þjóðfélaginu,"
segir hann.
Verkefnið hentar Olíuverslun ís-
Iands ákaflega vel að dómi Óla.
„Við notum jú græna litinn mikið,“
segir hann og rifjar um leið upp
kynni sín af Sveini Runólfssyni land-
græðslustjóra. „Ég komst að því að
hann var að vinna gott starf og
hafði ekki nærri nógu mikið fjár-
magn til að þeir gætu gert það sem
þá langaði til að gera í Gunnars-
holti,“ segir hann og leggur áherslu
á að lítið þýði að styrkja Land-
græðsluna í eitt ár. Fjögur ár séu
lágmark til þess að hægt sé að fylgja
verkefninu eftir.
Gjöf á 100 ára afmæli fyrsta
forstjórans
Óli vill sem minnst ræða hvort
söluaukning verði í kjölfar gjafar-
innar enda segir hann að það skipti
ekki öllu máli því Landgræðslan fái
örugglega 40 milljónir. Engu að síð-
ur sé gjöfín hvetjandi því ef meira
seljist komi meira í hlut hennar.
Hann minnist þess að tilkynning-
in um gjöfína hafí borið upp á 100
afmæli Héðins Valdimarssonar,
fyrsta forstjóra fyrirtækisins. „Ég
vissi þetta ekki fyrr en hringt var
í mig í gærkvöldi. Hér er um að
ræða alveg sérstaka tilviljun og ég
hefði örugglega getið þess hefði ég
vitað af þessu því Héðinn var mikill
náttúruunnandi og varð frægur fyr-
ir það sem hann ræktaði til dæmis
í Mývatnssveitinni. Ég held að hér
hafí forlögin verið að verki því ég
ætlaði að kynna framlagið degi
seinna," segir Óli.
Hann segist mikið ferðast um
landið og varla sé til sá staður á
íslandi sem hann hafi ekki komið
á. „Það byijaði strax þegar ég var
ungur maður því að ég var sölumað-
Óli Kr. Sigurðsson, forstjóri Olís.
ur og ferðaðist út um allt land. Síð-
an hefur lítið breyst því ég fer frek-
ar keyrandi en fljúgandi um landið
vegna þess að ég er alltaf svo flug-
hræddur. Maður sér ýmislegt sem
betur mætti fara einn á ferð í bíl,“
segir Óli. „Annars held ég að við
séum að vakna upp við það að við
höfum farið illa með landið okkar
og tími sé kominn til að lagfæra
það. Þá fínnst mér ekki óeðlilegt
að fyrirtæki af þessari stærðargráðu
taki einhver verk að sér,“ segir
hann.
Vorið
Óli er þungur á brún þegar hann
talar um neikvæða umræðu í þjóðfé-
laginu. Yfír svip hans birtir hins
vegar þegar talið berst að vorinu.
„Hefur þú tekið eftir því hvernig
þú breytist þegar vorar og þú sérð
allan græna litinn koma í náttúr-
unni, trén blómgast, grasið grænk-
ar, þú lyftist upp, vaknar fyrr á
morgnanna og vilt fara seinna að
sofa. Þess vegna er svo mikið atriði
að fara vel með náttúruna í kringum
okkur. Hún er undirstaða þess að
við getum raunverulega lifað í þessu
þjóðfélagi og þessu landi og hlutirn-
ir gangi ekki alltaf út á gróðasjón-
armið og pólitískt dægurþras," segir
Óli.,
„Á vorin megum við heldur ekki
gleyma að gera fínt hjá okkur. Mér
finnst gaman að sjá hvernig ungu
krakkarnir koma hér öllu í fínt lag
á vorin, mála og snurfusa. Maður
sér hvernig gamalt þak verður nýtt
og breytir svipnum á umhverfinu.
Mér finnst þeir stórkostlegir, maí
og júní. Ekki er hægt að bera þessa
mánuði saman við neitt annað. ís-
lendingar eru líka þannig gerðir að
vorið er sá tími sem allir vilja vera
til og fáum dettur í hug að fara til
útlanda. Maður verður líka var við
að miklu minna verður um rifrildi
og menn tala í miklu meiri gleði-
tón,“ segir hann.
Fundum blaðamanns og forstjóra
ber saman í fundarherbergi Ölís.
Úti í glugga liggur lítíl bók með
Hávamálum og Völuspá. Óli brosir
lítið eitt hugsi þegar spurst er fyrir
um hlutverk hennar. „Ég hef
kannski ekki mikinn tíma til að lesa
en mér þykir gaman að ljóðum. Ef
þungt er í mér loka ég mig stundum
af og les ljóð eftir Stein Steinarr
eða Einar Ben. Ég þarf ekki mörg
ljóð eftir þessa kumpána til að kom-
ast í gott skap,“ segir hann og vík-
ur talinu að samstarfsmönnum sín-
um í stjórninni. „Ég man ekki til
þess að nokkum tíma hafí verið rif-
ist í þessu herbergi," segir hann.
„Strákarnir eru orðnir mínir bestu
vinir og hér er rætt um miklu meira
en olíuviðskipti. Oft glatt á hjalla
og mikið skrafað um lifið og tilver-
una.“
Að lokum leiðist talið aftur að
landgræðslunni og Óli segir að
margt myndi breytast ef meira fjár-
magn rynni til þeirra sem græddu
upp landið. Ein af afleiðingunum
yrði sú að fólk yrði heilbrigðara og
veikindum fækkaði. Hann vill líka
að ríkið ráði unglinga til að græða
upp landið. Nóg væri að gera og
unglingarnir myndu ekki hópast
saman niður í bæ.
Viðtal: Anna G. Ólafsdóttir.
Milljarðar króna liggja nú í strandeld-
isstöðvum hér á landi, sem verða
ónýtar eftir 4-5 ár ef þær verða ekki
nýttar undir t.d. lúðueldi, að sögn
Harðar Jónssonar hjá Rannsóknaráði
ríkisins. „Ég tel að hægt sé að auka
framboð af lúðu verulega án þess að
verðið hrynji," sagði Friðrik Pálsson,
forstjóri SH. „Við eigum ekki að líta
svo á að fjárfestingar í fískeldisstöðv-
um víða um land séu tapað fé.“
Ólafur Halldórsson leggur til að
tilraunir með lúðueldi í Þorlákshöfn
verði fjármagnaðar með hlutafé frá
fyrirtækjum í sjávarútvegi að hálfu
og opinberu rannsóknafé að hálfu.
Einungis hefur tekist að haida
lúðuseiðum lifandi í þremur löndum,
íslandi, Noregi og Skotlandi. í fyrra
framleiddi Fiskeldi Eyjafjarðar hf. 5
þúsund lúðuseiði en Norðmenn 150
þúsund og Skotar 1.100.
Rannsóknir á lúðueldi hófust hér á
landi á vegum Hafrannsóknastofn-
unar um áramót 1985-’86 og Fiskeldi
Eyjafjarðar var stofnað um um mitt
ár 1987. Hluthafar eru um 60 en
reksturinn er eingöngu fjármagnaður
með hlutafé og rannsóknastyrkjum.
Niðurstöður þessara rannsókna benda
til að vaxandi líkur séu á hægt verði
að framleiða umtalsverðan fjölda lúð-
useiða á næstu árum en það er grund-
völlur matfiskeldis á lúðu.
Meginmarkmið tilraunarinnar í
Þorlákshöfn er að fá mat á fram-
leiðslukostnað og markaðsverð til að
séð verði hvort um arðbæran atvinnu-
rekstur að ræða en búist er við að
mjög hátt verð fáist fyrir ferska eldis-~
lúðu. Hafrannsóknastofnun hefur
fengið 600 krónur fob fyrir ferska
lúðu, sem seld hefur verið á mörkuð-
um í Evrópu og Bandaríkjunum, en
með stöðugri framleiðslu má gera ráð
fyrir að enn hærra verð fáist fyrir
eldislúðu, þar sem eftirspurn er meiri
en framboð, að sögn Ólafs Halldórs-
sonar.