Morgunblaðið - 28.05.1992, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 28.05.1992, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992 * 39 Á slóðum Ferðafélags Islands; Nesj avallaveg- ur - Háhryggur eftir Sigurð Kristinsson Með nýja Nesjavallaveginum urðu aðgengilegar fjölmargar gönguleiðir um Mosfellsheiði, Dyrafjöll og á Hengil, sem gnæfir yfír á leið austur og er mikið eftirlæti fjallgöngu- manna suðvestanlands. Hér verður þó ekki um hann fjailað en vikið að fylgifjöllum hans til landnorðurs, Dyrafjöllum, en þar ber hæst Kýr- dalshrygg og Háhrygg. Stuðst er við upplýsingar frá kunnugum manni, Guðmundi Jó- hannessyni, sem bjó á Nesjavöllum árin 1924-1928 og síðan 30 ár í Króki í Grafningi. Hann dvelur nú í hárri elli í Reykjavík, er vel ern og hefur trútt minni. Til landnorðurs frá Hengli ganga Dyrafjöll, sem eru móbergshryggir með dalaskorum á milli. Næst Hengli er Kýrdalshryggur og ber einna hæst. Austan hans er Kýrdalur, sem nær upp undir austanverð kíetta- belti Hengils. Austan Kýrdalsins er svo hálendisbrúnin fyrir ofan gufu- virkjunarsvæðið, sem kennt er við Nesjavelli. Þar er frábær útsýn til austurs og norðausturs, sem einnig er nefnt landnorður hér um slóðir. Háhryggur er í framhaldi af Kýr- dalshrygg. Milli þeirra er allmikill slakki og þar er gamli Dyravegurinn nærri Háhryggnum. Nesjavallaveg- ur er þar einnig en nokkru nær Kýrdalshrygg. Austan við Háhrygg eru Svínahlíð og Rauðuflög, þar sem Dyravegur liggur niður rétt hjá Hjallatorfu, sem var fornt skógarí- tak Hjallakirkju í Ölfusi. Skógurinn er nú eyddur. Neðan Hjallatorfu og Rauðuflaga kemur svo láglendið við Nesjavelli. Vestan Kýrdalshryggjar er Skeggjadalur, sem gengur inn og þrengist að Vöjðuskeggja á norður- brún Hengils. í framhaldi dalsins er Sporhelludalur með móbergsklöpp, sem hestafætur hafa um aldir mótað í svo glögga götu að hún er nú hné- djúp og vel það. Þarna er Dyravegur- inn. í framhaldi til landnorðurs er alllangur dalur, sem heitir Vatns- stæði en er ranglega nefndur Spor- helludaiur á kortum. í Vatnsstæðum er tjöm a einum stað. í framhaldi Vatnsstæða er Illagil og Vegghamr- ar vestan þess. Er þá skammt niður að Grafningsvegi fyrir ofan Hestvík. Vestan Sporhelludals hallar vest- ur í Dyradal og liggur gamli vegur- inn um þröngt skarð eða gljúfur niður í dalinn. Þarna heita Dyr og bera vegurinn, dalurinn og fjöllin nafn af þeim. Vestan Dyradals er miklu lægri og flatari háls að víðum flæmum Mosfellsheiðar. Þarna er Sköflungur í hánorðri en Dyradals- hnúkur til hægri við hann og miklu nær. Rismesti hnúkur Hengils, Vörðu- skeggi, nýtur sín vel héðan séð, þar sem hann trónir eins og tröllaukin nautskrúna gegn norðanáttinni. Nefndar verða nokkrar gönguleið- ir, fyrst til suðurs upp að háfjallinu: 1. Eftir Kýrdal upp undir kletta í Hengli. Utsýn er til norðurs og austurs. 2. Eftir Kýrdalshrygg upp að Hengli. Útsýn er til vesturs, norð- urs og austurs. 3. Eftir Skeggjadal, sem þrengist Á slóöum Ferðafélags íslands inn að Hengli, klettar til beggja handa. 4. Eftir hryggnum vestan Skeggjadals. Utsýn vestur og norður. Leiðir til norðurs: a) Norður eftir háhrygg og er glæsileg sýn til flestra átta. Ganga má eftir endilöngum hryggnum og að Grafningsvegi. b) Norður eftir Vatnsstæðum og síðar austan eða vestan Illagils. Er þá skammt á Grafningsveg fyrir ofan Hestvík. Mikill gróður er í Vatnsstæðum og skýlt í aust- an- og vestanáttum. c) Eftir hálsinum vestan Dyra- dals norður í Folaldadali austan Sköflungs og eftir glöggri götu norðan Jórutinds og niður í Hest- vík. Gatan er gamall heybands- vegur meðan heyjað var í Fol- aldadölum. Hér má velja um fjölda leiða eftir áhuga og aðstæðum. Ekki treystir undirritaður sér til að dæma um hver þeirra sé best eða skemmtileg- ust. Þó má nefna að hvergi er styttra að ganga á Hengil en frá Dyrafjöll- um, þar sem Nesjavallavegur liggur yfir þau. Brottför er 28. maí kl. 13. Njótum samfylgdar á fögru land- svæði. Höfundur er fyrrverandi kennari. * I dag er upplagt fyrir fjölskylduna að koma á Pizza Hut og gæða sér á gómsætri fjölskyldupizzu. Börnin fá frían íslurk frá Emmess. Fjölskyldupizzan er heil máltíð fýrir 4-6 manns. Gerðu þér dagamun og komdu með fjölskyldmia á Pizza Hut í dag. Fj ölskyldudagur á Pizza Hut Tækifæri til að gera góð bílakaup fyrir sumarið! NOKKUR DÆMI: ENGiN UTBORGUN RAÐGREIÐSLUR TIL ALLT AÐ 18 MÁNAÐA SKULDABRÉF TIL ALLT AÐ 24 MÁNAÐA Bílaumboðið hf Krókhálsi 1-3, Reykjavík, sími 686633 og 676833 í notuðum bílum Tegund Argerð Subaru Sedan 1988 Nissan March GL 198*7 Suzuki Fox 410 1988 A 1Qö< Mazaa ozo ola /,< MMC Lancer ST j i Voa 1986 BMW 316 1986 Ford Escord XR3I 1984 Fíat Uno 45 1987 Peugot 205 GR 1987 Lada Safir 1987 Lada Sport 1987 Staðg. verð Afsl.verð 750.000,- 690.000,- 370.000,- 320.000,- 630.000,- 530.000,- 390.000,- 290.000,- 400.000,- 290.000,- 650.000,- aöA Ann 530.000,- A 1 A AAA 4VU.UUU,- 250.000,- 41U.UUU,- 190.000,- 390.000,- 320.000,- 150.000,- 95.000,- 330.000,- 270.000,- OPIÐ: Fimmtudaginn 28. maí kl. 13-17, Virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl. 13-17 COTT FOLK/SlA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.