Morgunblaðið - 28.05.1992, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992
Eru böm einstæðra for-
eldra eingetin á Islandi?
eftir Ásthildi
Sveinsdóttur
íslendingar vilja ógjarnan vera
eftirbátar annarra þjóða en á einu
sviði eru þeir það svo um munar. A
íslandi er foreídri gert að greiða kr.
7.425,- á mánuði sem framfærslu-
eyri með bami sínu til þess sem hef-
ur forræðið. í öðrum löndum (þar
sem ég þekki til) er þessi upphæð
tekjutengd og/eða metin eftir kring-
umstæðum í hveiju tilfelli.
Þess misskilnings hefur orðið vart,
nú í nokkur ár, að einstæðir foreldr-
ar hafi það harla gott og njóti alls-
konar hlunninda. Mæðralaun með
einu barni eru kr. 4.653,-. Ósköp
væri gaman áð vita í hveiju þessi
hlunnindi felast. Liggja drög að þeim
e.t.v. á borðum viðskipta- og hag-
fræðispekúlanta sem skilja ekki að
það er jafndýrt, ef ekki dýrara, að
sjá fyrir heimili sem hefur aðeins
eina fyrirvinnu? Á íslandi er það
opinber staðreynd að tvær fyrirvinn-
ur þurfí til að framfleyta heimili.
Einstæð móðir, sem rekur heimili á
u.þ.b. 60-70 þús. kr. mánaðarlaun-
um, á skilið riddarakross fálkaorð-
unnar. En þeir eru víst ekki fjölda-
framleiddir. Ég segi móðir því konur
eru frekar í láglaunastörfum en karl-
ar og er þessi upphæð, 60-70 þús.
kr. ríflega áætluð í mörgum tilfellum.
Sl. sumar var ég stödd hjá vina-
fóiki í Þýskalandi. Þar bar þessi mál
á góma í samkvæmi og sagði ég við-
stöddum að lögbundið framlag feðra
til barna sinna á íslandi væri um 7
þúsund krónur á mánuði. Ég þurfti
að vísu að útskýra það nánar því
útlendingar eru yfírleitt ekki vel
heima í gengi íslensku krónunnar.
Ég sagði þeim að fyrir þessa upphæð
væri hægt að fá matvörur í 3-4 plast-
poka í stórmarkaði. Menn hváðu og
vissu ekki hvort þeir ættu að hlæja
eða gráta.
í Dusseldorf ber foreldri, sem ekki
hefur bamið í sinni umsjá, að greiða
allt að 600 mörkum á mánuði
(21.600 ÍSK) og er það metið eftir
kringumstæðum og tekjum viðkom-
andi. Raunar hækkar sú upphæð í
730 DM til barna frá 7-12 ára og í
860 DM (30.960 ÍSK) til bama á
aldrinum 13-18 ára. Óf langt mál
er hér upp að telja reglur þeirra í
Dusseldorf en þess má geta að eftir
18 ára aldur eiga börn líka rétt á
verulegum framfærslueyri. Sé barn
sjúkt eða fatlað er upphæðin metin
sérstaklega í hveiju tilfelli. Svo vitum
við að margfalt ódýrara er að kaupa
lífsnauðsynjar í Þýskalandi en hér á
landi.
í Bandaríkjunum er meðlag metið
af dómara í hveiju tilfelli, með hlið-
sjón af tekjum. Þó munu reglur vera
mismunandi eftir fylkjum.
í Noregi eru meðlagsgreiðslur
tekjutengdar. Að vísu er ákveðin lág-
marksupphæð sem miðað er við að
þeir greiði sem eiga í félagslegum
vanda, t.d. atvinnuleysi. Sú upphæð
er samt hærri en lögbundið meðlag
á íslandi, eða 930 Nkr. (8.556,- ÍSK)
og hækkar sú upphæð 3. júní nk. í
950,- (8.740,- ÍSK). Að öðru leyti
er meðlag tekjutengt prósentvís og
ber að greiða 11 prósent af tekjum
með einu bami, 18% með tveimur
bömum og upp í 28% með 4 bömum
eða fleiri. í einstaka tilfellum 30%.
Laun munu almennt vera hærri í
Noregi en á íslandi. Tel ég að frænd-
ur okkar Norðmenn gætu verið okk-
ur fyrirmynd í því að bera hag upp-
vaxandi kynslóðar fyrir bijósti.
Fyfír skömmu orðaði ég þessi mál
við konu sem mikið hefur borið á í
stjórnmálum hér á landi. Svarinu,
sem hún hafði á takteinum, get ég
ekki gieymt. „Það má nú ekki mism-
una börnunum," sagði hún. Getur
verið að stefnan sé sú á íslandi að
draga böm einstæðra foreldra í ein-
hvern fátæklingadilk? Mega börn
ekki njóta þess ef þau eiga vel stæða
foreldra hvort sem er innan hjóna-
bands eða utan? Það ríkir nefnilega
heilmikill stéttamunur á íslandi hvort
sem okkur líkar betur eða verr. Það
kemur m.a. fram í því að sum böm
hafa efni á að stunda tónlistarnám
og önnur ekki. Mánaðardvöl í sumar-
búðum sl. sumar kostaði á bilinu
50-60 þúsund kr. og tel ég ekki að
þar hafi verið rekin nein gróðafýrir-
tæki þótt í þessu fælist eingöngu
húsaskjól, fæði og tómstundagaman.
Nýlega var mikið fjallað um söfn-
un til handa vegalausum börnum á
íslandi. Það er gott og blessað svo
langt sem það nær. En hvers vegna
lenda böm á vergangi í allsnægta-
þjóðfélaginu okkar? Getur ekki verið
að einstæðum mæðmm á lágum
launum sé það hreinlega um megn
að geta séð sómasamlega fyrir böm-
um sínum og leita því á náðir vímu-
efna af einhveiju tagi? Móðirin sinnu-
laus og faðirinn oftast laus allra
mála. Þá kemur til kasta ríkisins
(okkar allra) að leysa vandann og
greiða umtalsverðan kostnað, sér-
fræðiþjónustu, vistun á stofnunum
o.s.frv. Víst dreg ég upp ófagra
mynd en ég efast um að í mörgum
tilfellum sé hún svo fjarri sanni.
______________Brids__________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsdeild eldri borgara
í Kópavogi
Spilaður var tvímenningur 19. maí
sl. og urðu úrslit þessi:
Helga Amundadóttir - Hermann Finnbogason 141
Garðar Sigurðsson - Stefán J. Jóhannsson 139
Jón Hermannsson - Páll Sigurbjömsson 117
Ingin'ður Jónsdóttir - Jóhanna Sigurðardóttir 109
Stefán Bjömsson - Bjarni Guðmundsson 109
Ásta Sigurðardóttir - Margrét Sigurðardóttir 108
Spilað er alla þriðjudaga og annan
hvern föstudag í Framsóknarhúsinu
við Digranesveg.
Sumarbrids i Reykjavík
Ágæt þátttaka var í Sumarbrids
sfðasta laugardag. 20 pör mættu til
leiks, en þetta er í fýrsta skipti sem
Sumarbrids er reyndur á laugardegi.
Úrslit urðu (efstu pör).
N-S:
GylfiBaldursson-ÓlafurLárusson 304
HjálmarS.Pálsson-ÓliBjömGunnarsson 247
Magnús Sverrisson - Guðjón Jónsson 241
A-V:
ÞórirMagnússon-EinarGuðmannsson 258
Halla Ólafsdóttir - Sæbjörg Jónasdóttir 249
AndrésÁsgeirsson-AronÞorfinnsson 233
Skor þeirra Gylfa og Ólafs er eitt-
hvað yfír 70%. sem trúleera verður
„Er ekki löngu tíma-
bært aö einstæðar
mæður o g feður á Is-
landi taki sig saman og
auglýsi í fjölmiðlum eft-
ir Félagi einstæðra for-
eldra, sem barðist af
einurð hér á árum áður
við að halda kjörum
einstæðra foreldra í
mannsæmandi horfi?“
Lengi hef ég tekið eftir því að þá
sjaldan þessi mál hefur borið á góma,
hefur umræðan jafnharðan verið
kveðin niður af konum sem hafa tek-
ið upp sambúð við fráskilda feður.
Vissulega er það oft súrt í brotið að
hluti af tekjum mannsins fari í
meðlagsgreiðslur með börnum úti í
bæ. Þó tel ég að fyrir því sé hefð
að ekki sé tekið meðlag með íleiri
börnum en þremur. Raunar skil ég
ekki hvaða rök mæla gegn því að
þessr konur taki börn mannsins með
í reikninginn. Enn sem komið er eru
böm ekki eingetin. Venjuleg laun á
íslandi eru ekki há, en skv. lögum
ber föður að framfleyta bami sínu
til jafns við móður.
Mér skilst að árið í ár heiti Vinnu-
verndarár. Er það ekki kaldhæðni á
sama tíma og vinnuálag er að sliga
stóran hóp uppalenda næstu kynslóð-
ar? Börn og ekki síst unglingar,
þarfnast umhyggju sem kostar tíma.
En tími er peningar. Hvernig getur
erfitt að slá í Sumarbrids þetta árið.
Á mánudaginn var geysilega góð
aðsókn, enda Mitchell-tvímenningur
með tölvuútreikningi. 42 pör mættu
til leiks. Úrslit urðu (efstu pör):
N-S:
Þrösturlngimarsson-ÞórðurBjörnsson 508
Guðjón Bragason - Bjöm Amarson 485
Guðrún Jóhannesdóttir - Ragnheiður Tómasd. 471
Hanna Friðriksdóttir - Inga Lára Guðmundsd. 464
Erla Siguijónsdóttir - Óskar Karlsson 462
Ólína Kjartansdóttir - Hulda Hjálmarsdóttir 449
A-V:
EyjólfúrMagnússon-HólmsteinnArason 521
Bjöm Theódórsson—Gísli Hafliðason 483
Vilhjálmur Sigurðsson - Þráinn Sigurðsson 461
Dan Hansson - Elvar Guðmundsson 459
Erlendur Jónsson - Jón Steinar Ingólfsson 457
Guðmundur Samúelsson - Þórarinn Bech 447
Eftir 5 kvöld í Sumarbrids hafa 58
spilarar hlotið stig. Efstir eru Þröstur
Ingimarsson og Þórður Bjömsson með
106 stig. Þá koma Bjöm Theódórsson
og Gísli Hafliðason með 64 stig og
Lárus Hermannsson og Guðlaugur
Sveinsson með 51 stig.
Sumarbrids verður spilaður í dag
(fimmtudag) og verður húsið opnað
kl. 16.30. Spilamennska hefst svo frá
kl. 17 og síðsti riðill fer af stað kl.
19. Allt spilaáhugafólk velkomið. Ekki
verður spilað næsta iaugardag vegna
afmælismóts Bridsfélags Reykjavíkur
í Perlunni.
einstætt foreldri unnið tvöfalda
vinnu, utan heimilis og innan, en
samt haft tíma til að sinna þessum
mikilvæga þætti sem uppeldið er?
Kannski misskil ég orðið „vinnu-
vemd“ en í því ætti að felast að fólk
þyrfti ekki að vinna sér til óbóta
fyrir lífsnauðsynjum. Það er ekki
nema vona að víða sé pottur brotinn
í uppeldi bama og fjölskyldutengsl-
um.
I uppvextinum bjó ég í nábýli við
skógarþrestina í vesturbænum. Faðir
og móðir ólu bæði önn fyrir ungun-
um, þótt eins og vill verkast í ríki
náttúrunanr, mér virtist móðirin
hugsa meira um líkamlegar þarfír
afkvæmanna á meðan faðirinn
hreykti sér í hæsta tré og hélt vörð
um fjölskylduna. En ábyrgðin var
jöfn. Við emm ekki aðeins eftirbátar
annarra þjóða heldur em villtir smá-
fuglarnir okkur fremri.
Að mínu mati gætu samtök for-
eldra, sem hefðu hagsmuni barna að
leiðarljósi, verið öflugur félagsskapur
sem veitti stjórnvöldum aðhald í
þessum efnum og krefðist þess að
hagsmunir bama og unglinga væm
ekki fyrir borð bornir eins og er því
miður núna. Dæmi um það er niður-
skurðurinn í skólakerfinu.
Er ekki löngu tímabært að ein-
stæðar mæður og feður á íslandi
taki sig saman og auglýsi í fjölmiðl-
um eftir Félagi einstæðra foreldra,
sem barðist af einurð hér á ámm
áður við að halda kjömm einstæðra
foreldra í mannsæmandi horfí?
Árið 1986 var gerð könnun á veg-
um FEF til að varpa ljósi á hvað það
kostaði að framfleyta barni á aldrin-
um 0-18 ára. Ég man eftir klausu í
fréttabréfí félagsins þess efnis að
einhver ósköp vantaði upp á að
meðlagsgreiðslur dygðu fyrir helm-
ingi framfærslukostnaðarins. En
hvað svo? Eiga böm einstæðra for-
eldra að lifa á tölum í fréttabréfí?
Ég minnist þess ekki að félagið hafí
gert róttækar aðgerðir til að koma
þessum málum í viðunandi horf.
Fyrir skömmu var örstutt frétt í
Morgunblaðinu þess efnis að félagið
væri nú að gera aðra slíka könnun.
Hvað hyggst félagið taka til bragðs
í þetta sinn þegar í ljós kemur að
kr. 14.850,- (framlag beggja for-
eldra) dugar engan veginn?
Vissulega er góðra gjalda vert að
kaupa hús og hýsa foreldra sem
hvergi eiga höfði sínu að að halla.
En hvað um alla hina sem vinna
daglangt í illa launuðum störfum og
fá kr. 7.425,- á mánuði sem fram-
færslueyri frá hinum aðilanum? Er
ekki skylda félagsins að beijast fyrir
bættum hag þessara foreldra og
barna þeirra? Því miður held ég að
í augum almennings séu flóamarkað-
ir FEF eina tákn þess að félagið
hafí ekki fyrir löngu lagt upp laup-
ana.
Tryggingalögfjöfín á íslandi er í
mörgu orðin úrelt. Skv. henni mætti
ætla að böm einstæðra foreldra væru
eingetin. í það minnsta að of mörg
þeirra skuli lifa langt undir fátæktar-
mörkum. Hvernig væri að taka mið
af öðrum þjóðum og koma á kerfí
svipuðu því sem þar tíðkast? Á ís-
landi þýðir víst ekki að miða við
skattaframtöl, en við gætum farið
að dæmi Þjóðveija og tekið mið af
kringumstæðum beggja foreldra.
Fyrst og fremst er brýnt að gera
meðlög tekjutengd. Að mínu mati
er þessi þáttur undirrót mikils vanda
í þjóðfélaginu. Það er mein sem vex
ef ekkert er að gert og ætti FEF að
ganga þar fram í broddi fylkingar.
Eg tel ekki að þeim peningum yrði
illa varið sem notaðir yrðu til að
koma á fót sérstakri deild, t.d. innan
Félagsmálastofnunar eða dómsmála-
ráðuneytisins, sem sæi um afgreiðslu
þessara mála í hveiju tilfelli fyrir
sig. Það yrði liður í fyrirbyggjandi
aðgerðum og myndi fljótt skila sér
í minnkandi kostnaði vegna neyða-
raðgerða.
Eg vona að þessi orð mín opni
augu sem flestra fyrir því hve fár-
ánlega er staðið að þessum málum
hér á landi. Samanburðurinn við aðr-
ar þjóðir ber þess gleggst vitni. Svo
væri afskaplega ánægjulegt ef þing-
menn gerðu minna af því að eyða
tíma háttvirts Alþingis í innbyrðis
karp og beittu í staðin kröftum sínum
til að gera lagabreytingar er stuðluðu
að því að einstæðum foreldrum yrði
kleift að sjá bömum sínum faraborða
á mannsæmandi hátt.
SUMARFATNAÐUR FRÁ V^h
DRAGTIR - STAKIR JAKKAR - BLÚSSUR
PILS - BUXUR, STUTTAR OG SÍÐAR.
GLÆSILEGT ÚRVAL AF SILKIFATNAÐI
SILKIKJÓLAR - DRAGTIR - JAKKAR - BUXUR OG PILS.
^ r LAUGAVEGI 84, SÍMI 10756
PC eða Macintosh námskeið fyrir 10 -16 áia
2ja eða 3ja vikna námskeið í júni, júlí eða ágúst. Kennt frá 9-12 eða
13-16 fimm daga vikunnar. q
Mjög hagstatt v«rö
Tölvu- og verkfræðiþjónustan *$>
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16-stofnuð 1. mars 1986
<F
Höfundur er sjónvarpsþýðandi.