Morgunblaðið - 28.05.1992, Side 41

Morgunblaðið - 28.05.1992, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992 41 Laugavegshátíð S VFÍ á laugardag MEÐ sumarkomu eykst til muna útivera barna og unglinga, um- ferð á þjóðvegum, útilegur og veiðiferðir og um leið þær hættur sem fylgja breyttum lífsháttum fólks. Til að minna á þessar hætt- ur og hveija til varúðar, hefst nýr þáttur í verkefninu „Komum heil heim“ á laugardaginn kemur, 30. þessa mánaðar. í samvinnu og samstarfi við fjöldamarga aðila efnir Slysavarn- afélagið til fjölskylduhátíðar á Laugaveginum í Reykjavík. Dag- skráin hefst klukkan 13.00 og lýk- ur henni klukkan 17.00 á Lækjar- torgi með tónleikum hljómsveit- anna Síðan skein sól og Galileó. Að undirbúningi þessarar hátíðar standa Laugavegssamtökin, sam- tökin Barnaheill, íþróttasamband fatlaðra, Körfuknattleikssamband íslands, Áfengisvarnarráð, Lög- reglan í Reykjavík, Goði hf., Gosan hf. og útvarpsstöðin Bylgjan að ógleymdum fjöldamörgum björg- unarsveitum Slysavarnafélagsins og Landssambandi slökkviliðs- manna. Líf og fjör verður um allan Laugaveg. Kaupmenn flytja eitt- hvað af verslun sinni út á gang- stéttir, Landsbankinn kemur við sögu, björgunarsveitir kynna tæki og búnað, sýna notkun á fluglínu- tækjum, klifur og kenna skyndi- hjálp. Lögreglan skoðar reiðhjól barna og gefur góð ráð, Barna- heill stjórnar útileikjum, Körfu- boltasambandið stendur fyrir keppni í körfuskorun, íþróttasam- band fatlaðra gefur fólki kost á að reynsluaka hjólastólum, boðið verður upp á útigrill og gosdrykki Skálholt: Fjölskyldubúð- kirkjulist BRUÐKAUPSVEISLUR Perlan á Öskjuhlíð p e r l a n sími 620200 og ýmislegt fleira verður til skemmtunar og fróðleiks. Rauði þráður þessarar útihátíð- ar verður þó sá, að hvetja almenn- ing til að gæta fyllstu varúðar við leik og störf í sumar og hafa það ávallt sem meginmarkmið að Koma heil heim. (Fréttatilkynning) ir MARÍA Eiríksdóttir kennari og Petrea Ólafsdóttir flautuleikari munu ásamt fleitum gangast fyrir fjölskyldubúðum í Skál- holti seinni hluta júnímánaðar og fram í júlíbyijun, ef næg þátttaka fæst. Tekið verður við tveimur hópum, hvorum til vikudvalar, 18.-24. júní og 29. júní til 5. júlí. Dagskrá búðanna miðast við að komið sé til móts við þau börn sem hafa ánægju af skapandi starfi, tónlist, leiklist, myndmennt, föndri og sögu fremur en íþróttum og íjölskyldum gefinn kostur á upp- byggilegri, fræðandi samveru í nokkra daga. Teg. 31212 Hvftt, svartog rautt. Leðurskór með 5 1/2 sm. hæl. SL 37-41 Teg. 236 Svartur, með grófúm sóla, gegnumsaumaður. Leður. St 40-46 Kr. 3.950.- Kr. 2.400.- 5% S1 Í3SLO- AFSLÁTTUR. SENDUM i PÓSTKRÖFU SAMDÆGURS ! Teg. 29032 Leðursandali með gúmmisóla og teygju. St. 37-42 Kr. 2.900.- ■ C KRÍl LAUGAVEGÍ 61-63 VOLKSWAGEN og MITSUBISHI bílarnir verða sýndir á eftirtöldum stöðum næstu daga: 28. maí (immtudagur: HH 29. maí föstudagur: Kl. 12.00 - 14.00 Kl. 14.00 - 15.00 Kl. 16.00 - 18.00 Hvolsvelli Hellu Flúðum Kl. 11.00 Kl. 13.00 Kl. 14.00 Kl. 15.00 12.00 Hveragerði 14.00 Þorlálshöfn 15.00 Eyrarbakka 16.00 Stokkseyri 30. m aí íHbM Kl. 10.00 - 17.00 Bílasala Selfoss A MITSUBISHI MOTORS Vandadir bílar á hagstæðu verði Dæmið sjálf að loknum reynsluakstri IHI HEKLA LAUGAVEG1174 SÍMI695500 SIMAR 21416 & 21655

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.