Morgunblaðið - 28.05.1992, Síða 54
54
MORGVNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAl 1992
/íérh
sfce.
-aubhstor, e£
þettaQe/igi ekkl.'
Ertu viss um að þú hafir
lagt bamið hér?
HÖGNI HREKKVÍSI
BRÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Athuga-
semd vegna
fréttar
um meið-
yrðamál
Frá Ólafi Sigurgeirssyni:
Á Akureyrarsíðu Morgunblaðsins
í síðustu viku var greint frá tveim-
ur meiðyrðamálum sem nú eru rek-
in á Akureyri gegn Pétri Péturssyni
lækni. í greininni var ennfremur
greint frá nokkrum ummælum Pét-
urs úr síðari greinargerðinni. Til
að gætt sé jafnræðis vil ég fá að
koma eftirfarandi athugasemdum á
framfæri:
Á því rúma ári sem liðið er frá
málshöfðun vaxtarræktarmanna
gegn Pétri hefur tilefni málaferl-
anna skolast nokkuð til og ekki síst
þar sem læknirinn hefur á síðari
stigum í ræðu og riti og ekki síst
í ofangreindri greinargerð látið líta
svo út sem upphafið megi rekja til
baráttu hans gegn misnotkun stera-
lyfja. Þetta heitir að drepa málinu
á dreif, segja hlutinn nógu oft svo
honum sé trúað.
Upphafið má rekja til lítils þáttar
í ríkisútvarpinu. Viðtal var við
lækninn um háþrýsting. Án nokk-
urs tilefnis frá spyrjanda vék lækn-
irinn að notkun vaxtarrækt-
armanna og kraftlyftingamanna á
sterum og alhæfði svo um vaxtar-
ræktarmenn að þeir væru á spraut-
um, væru ræflar og fór niðrandi
orðum um kynfæri þeirra. Orð
læknisins voru svo endurtekin í
hádegisfréttum, sennilega vegna
þess að fréttamanni blöskraði.
Orð læknisins eru dónaleg og þau
eru meiðandi fyrir þá sem fyrir
urðu. Þó að læknirinn hafi horn í
síðu þeirra af einhverjum orsökum,
þá eiga þessir menn konur, börn
og ættingja. Þeir eiga sína æru og
sitt einkalíf.
Málið gegn lækninum snýst um
þessi ljótu orð eingöngu og hvort
einhveijir þeirra hafi brotið siða-
reglur íþróttamanna með notkun
lyija er ekki inntakið í málinu.
Umræða um lyfjamisnotkun íþrótt-
amanna á alltaf rétt á sér, en meið-
yrði aldrei.
Nú fór svo í vetur að meiðyrða-
málinu var vísað frá dómi af héraðs-
dómaranum á Akureyri vegna galla
sem hann taldi á málatilbúnaði. Þá
gerist það að ég undirritaður, lög-
maður stefnenda, er tekinn fyrir í
ýmsum fjölmiðlum af lækninum.
Fór hann mörgum háðulegum orð-
um um hæfileika mína til að reka
mál fyrir dómi.
Skyldur lögmanna eru að leggja
sig allan fram fyrir sína skjólstæð-
inga og til að rétta hag þeirra
kærði ég frávísunina til Hæstarétt-
ar. Þar voru allar mínar kröfur
teknar til greina, lagt fyrir héraðs-
dómarann að leggja efnisdóm á
málið og læknirinn var látinn borga
allan kostnað af málinu fyrir Hæst-
arétti.
Læknirinn var ekki af baki dott-
inn í meiðingum sínum gagnvart
mér og nú var eftirfarandi haft eft-
ir honum í fjölmiðli: „... Ólafur
Sigurgeirsson, sem fengið hefur
nöfn 35 manna lánuð til að geta
stundað þá þokkaiðju að hindra
embættismann í íslenska heilbrigð-
iskerfinu í að stunda sín skyldu-
störf. “
Þessi síðustu orð þykja mér und-
arleg í Ijósi þess, að einmitt vegna
alhæfinga sinna og meiðyrða hafði
siðanefnd Læknafélags íslands úr-
skurðað honum hörðustu viðurlög
sem nefndin ákvarðar fyrir fyrsta
brot.
Vegna ærumeiðinga um mið og
vegna atvinnurógs stefndi ég Pétri
Péturssyni lækni í nýju meiðyrða-
máli, svo nú eru rekin gegn honum
tvö mál. í greinargerðinni sem skrif
þessi spruttu af og læknirinn af-
henti Morgunblaðinu má sjá að
Pétur Pétursson er ekki af baki
dottinn í því sem hann kallar kjarn-
yrt mál, en ég meiðyrði. Honum
skal ekki takast að fegra sig og
sitt mál því sannleikurinn hlýtur
að koma í ljós fyrr en síðar.
ÓLAFUR SIGURGEIRSSON HDL,
Austurströnd 3, Seltjarnarnesi.
Víkveiji skrifar
Ibréfi til blaðsins_ síðastliðinn
föstudag svarar Ómar Einars-
son, framkvæmdastjóri íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur, skrif-
um Víkveija á dögunum þar sem
fjallað var um illa tímasettar, að
mati Víkveija, framkvæmdir í
Laugardalnum. Víkveiji telur sig
knúinn til að svara Ómari í nokkrum
orðum.
XXX
A
Omar segir að síðastliðinn vetur
hafi verið skipt um jarðveg
undir nýju hlaupabrautunum á aðal-
vellinum í Laugardal, en Víkveiji
fékk ekki betur séð í vikunni, en
verið væri að vinna af krafti við
undirbyggingu þeirra. Að sjálf-
sögðu gerir Víkveiji sér grein fyrir
því, að malbik og gerviefni verða
ekki lögð í vetrarhörkum, en síð-
ustu viku hefur hiti verið um og
jafnvel talsvert yfir 10 gráður og
vonandi hlýnar enn á næstunni.
Skrifari fær því ekki skilið að fyrst
verði mögulegt að ljúka þessum
framkvæmdum þegar komið verður
fram í ágústmánuð, en vissulega
eru sérfræðingar um málefni Laug-
ardalsvallar og það sem þar hefur
verið gert á undanförnum áratugum
annars staðar en á ritstjórn Morg-
unblaðsins.
Víkverja er fullkunnugt um
árangur íslandsmeistara Víkings
og ágæta grasflöt félagsins í Vík-
inni í Fossvogi, sem Ómar nefnir í
grein sinni. Víkveija er líka kunn-
ugt um, að forystumenn knatt-
spyrnudeildar Víkings skrifuðu ITR
í vetur og fóru fram á afnot af
aðalleikvanginum í Laugardal fyrir
leiki félagsins í 1. deild. Erindið var
samþykkt hvað þetta varðar. Það
er því ekki tilviljun að allir heima-
leikir Víkings eru sagðir fara fram
í Laugardal í mótabók KSÍ þó svo
að félagið hafi nú orðið að flytja
leiki sína, að minnsta kosti í fyrri
umferð mótsins, á völlinn í Víkinni.
Ef til vill felst svarið við þeim uppá-
komum sem orðið hafa út af Laug-
ardalsvellinum í eftirfarandi orðum
Ómars Einarssonar: ...þótt fram-
kvæmdirnar verði e.t.v. með öðrum
hætti en upphaflega var reiknað
með“.
Víkveiji hefur heyrt óánægju-
raddir úr herbúðum Fram og Vík-
ings með að geta ekki leikið heima-
leiki á aðalleikvanginum í Laugar-
dal fyrr en síðsumars. Reyndar var
það nefnt við skrifara í þessu sam-
bandi að hugmyndir hefðu komið
fram meðal Framara og Víkinga
að athuga möguleika á að fá heima-
leiki meistaranna og silfurliðsins frá
síðasta íslandsmóti á grasvellinum
við Varmá í Mosfellsbæ.
Víkveiji ítrekar þá skoðun, sem
tvívegis að undanförnu hefur komið
fram í skrifum hans, að glæsileg
aðstaða fyrir dugmikið fijálsíþrótt-
afólk borgarinnar hefði betur átt
heima á efri vellinum í Laugardal,
þar sem iðkendur þessara greina
hefðu getað verið eins og kóngar í
ríki sínu.
XXX
rátt fyrir aðfinnslur þær sem
Víkveiji hefur sett fram varð-
andi framkvæmdirnar í Laugardal
vill skrifari ekki ljúka þessum pistli
án þess að minnast hins mikla starfs
sem unnið er af hálfu Reykjavíkur-
borgar í íþrótta- og æskulýðsmál-
um. Á margan hátt er borgin þar
í fararbroddi og ekki veitir af á
þessum síðustu og verstu tímum
þegar stöðugt berast alvarlegri
fréttir af afbrotum og ógöngum
ungs fólks. Embættis- og stjórn-
málamenn sem fara með þennan
málaflokk í borginni hafa unnið
markvisst að forvörnum og upp-
byggingu og þeirra helstu banda-
menn eru forystumenn íþrótta- og
æskulýðsfélaga, sem leggja allan
metnað sinn í dugmikið starf.