Morgunblaðið - 28.05.1992, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR PIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1992
57
bfém
HANDKNATTLEIKUR
íslenska landsliðið tilbúið að fara á Ólympíuleikana ef leiðin opnast:
FOLK
■ ÞORVALDUR Örlygsson
knattspyrnumaður sem handar-
brotnaði fyrir skömmu, ætlar að
reyna að setja spelkur á handlegg-
inn til að láta á það reyna hvört
hann getur leikið knattspyrnu. Ef
þessi tilraun gengur vel mun hann
gefa kost á sér í landsleikinn gegn
Ungverjum í næstu viku.
B MARTHA Ernstdóttir er stödd
Ekkert hefúr breyst
varðandi Júgóslava
í Þýskalandi ásamt Gunnari Páli
Jóakimssyni, þjálfara til að keppa
í 10 km hlaupi í borginni Jena.
Mótið er úrtökumót fyrir þýska
hlaupara fyrir Ólympíuleikana.
B HELGI Bragason körfuknatt-
leiksdómari náði alþjóðlegu dóm-
araprófi sem fram fór í Noregi í
tengslum við Norðurlandamótið í
körfuknattleik. Helgi hefur þegar
fengið fyrsta verkefnið sem er að
fara með drengjalandsliðinu til
Belgíu og dæma þar í undankeppni
Evrópumeistaramótsins.
B KRISTINN Óskarsson, sem
, einnig þreytti prófið, náði ekki próf-
inu. 22 dómarar gengust undir próf-
ið og 12 náðu því.
B STJARNAN sigraði HK 7:0 en
ekki 6:0 í bikarkeppninni á þriðju-
daginn. Það var Rúnar Sigmunds-
son sem gerði sjöunda markið.
B HLYNUR Stefánsson knatt-
spyrnumaður úr Vestmannaeyjum
sem leikur með Örebro í sænsku
úrvalsdeildinni, hefur verið meiddur
- tognaði á liðböndum í hné, og
hefur ekki getað leikið með liðinu
síðustu þtjá leiki í deildinni. Örebro
hefur gengið illa upp á síðkastið
og er í næst neðsta sæti.
B SIGRÍÐUR Jónsdóttir var
endurkjörinn formaður Badmint-
onsambands íslands á ársþingi
sambandsins um sl. helgi. Með
henni í stjórn eru Jóhannes Hela-
son, Sigríður M. Jónsdóttir,
Andri Stefánsson og Kristín
Magnúsdóttir. Sigfús Ægir Árna-
son og Friðrik Þór Halldórsson
gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.
B ÁRNI Þór Hallgrímsson,
landsliðsmaður í badminton, hefur
verið ráðinn þjálfari UMFK í Kefla-
vík næsta vetur. Hann tekur við
af Ásu Pálsdóttur sem er að flytja
til Danmerkur og verður þar við--
nám í þrjú ár.
B LUKA Peruzovic, fyrrum
landsliðsmaður Júgóslava í knatt-
spyrnu, var í gær ráðinn þjálfari
belgíska liðsins Anderlecht. Hol-
lenski þjálfarinn Aad de Mos var
rekinn frá félaginu á þriðjudag,
eftir þriggja ára starf. Króatinn
Peruzovic er 41 árs og lék með
Anderlecht fyrir sex árum. Hann
þjálfaði Hajduk Split fyrir tveimur
árum og réðist síðan til belgíska
félagsins Charleroi seint á síðasta
ári. Peruzovic tekur við nýja starf-
inu formlega 1. júlí.
FRJALSIÞROTTIR
Elliðaárhlaup
Fylkis í dag
í tilefni 25 ára afmælis íþróttafélagsins
fylkis, þann 28. mal, verður ! fyrsta sinn
efnt' til almenns víðavangshlaups í Elliða-
árðalnum ! dag. Boðið verður uppá tvær
hlaupalengdir 3 km og 9 km. Allir þátttak-
endur fá viðurkenningarskjal og þrir fyrstu
í hveijum flokki fá verðlaunapening.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum karla
og kvenna: 15 ára og yngri, 16-19 ára,
20-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára og 50 ára
og eldri. Þátttökugjald er kr. 200 fyrir 16
ára og yngri, eldri greiða 400 krónur. Lagt
verður af stað frá Fylkisheimilinu og fer
skráning fram þar í dag og lýkur kl. 13.40
en hlaupið hefst kl. 14.
Idag
Knattspyrna
1. deild karla:
KA-völlur: KA-FH.......kl. 16.00
Kópavogsvöllur: UBK - Þór..kl. 16.00
Valbjarnarvöllur: Fram - KRkl. 20.00
1. deild kvenna:
Valsvöllur: Valur-ÍA...kl. 20.00
2. deild kvenna:
Siglufjarðai*v.: KS - Dalvík...kl. 17.00
- segirframkvæmdastjóri alþjóða handknattleikssambandsins
HUGMYNDIR eru uppi meðal forystumanna Knattspyrnusam-
bands Evrópu (UEFA) að meina Júgóslövum þátttöku í úrslita-
keppni Evrópukeppni landsliða, sem hefst í Svíþjóð 10. júní, eins
og greint er frá annars staðar á íþróttasíðu ídag. Eins og stað-
an er í dag virðist hins vegar ekkert bendatil annars en landsl-
ið Júgóslavíu í handknattleik verði með á Ólympíuleikunum í
Barcelona, að sögn framkvæmdastjóra alþjóða handknattleiks-
sambandsins. ísland erfyrsta varaþjóð í keppnina, og forystu-
menn HSÍ fylgjast því vel með gangi mála og landsliðsþjálfarinn
segir liðið tilbúið að fara ef sú staða kæmi upp.
Ef kall kemur þess efnis að við
tökum sæti Júgóslava á
Ólympíuleikunum, erum við tilbúnir
að svara því og fara til Barcelona,"
sagði Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik.
„Peningahliðin er svo annað mál,
sem þarf að kanna.“
Ástandið í Júgóslavíu fer versn-
andi og þrýst hefur verið á Evrópu-
bandalagið um refsiaðgerðir gegn
Serbum og einn ráðherra í sænsku
ríkisstjórninni lýsti því yfir í gær
að hugmyndir væru uppi um að
banna landsliði Júgóslavíu að koma
til landsins vegna Evrópukeppni
landsliða í knattspyrnu.
Jörg Bahrke, framkvæmdastjóri
alþjóða handknattleikssambandsins
(IHF) sagði hins vegar í samtali við
Morgunblaðið í gær að ekkert hefði
breyst varðandi Júgóslavíu að því
er snerti handknattleikskeppni
Ólympíuleikanna. „Júgóslavía er
Morgunblaðið/Bjami
Þorbergur Aðalsteinsson.
enn til, og þar af leiðandi hand-
knattleikssamband Júgóslavíu, sem
er aðili að IHF. Meðan svo er breyt-
ist ekkert, og ég sé ekki annað en
lið landsins verði með í Barcelona,"
sagði hann.
Þorbergur Aðalsteinsson sagðist
hins vegar litla trú hafa á því að
landslið Júgóslavíu, „eða lið ann-
arra ríkja innan gömlu Júgóslavíu,
séu tilbúin eða hafi efni á að taka
þátt í keppninni á Ólympiuleikun-
um. Við erum ekki að sperra okkur
upp, heldur munum við fylgjast með
málum og erum í viðbragsstöðu,"
sagði Þorbergur.
Hann sagði landsliðið yrði á góðu
róli þegar Ölympíuieikarnir hefjast
25. júlí. „Við byrjum að æfa á
næstu dögum og fyrsta verkefni
landsliðsins verða leikir gegn Þjóð-
veijum hér á landi 21. og 22. júní.
Við förum á sterkt mót á Spáni í
byrjun júlí og þaðan höldum við til
Þýskalands_ og tökum þar þátt í
öðru móti. Á þessu sést að landslið-
ið á að vera í nokkuð góðri leikæf-
ingu.“
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Portland stendur vel að vígi
Portland sigraði Utah, 127:121, eftir fram-
lengingu í fimmta leik liðanna í úrslitum
Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfuknatt-
Ieik í fyrrinótt. Portland hefur
Frá því tekið 3:2 forystu og getur
Gunnæ tryggt sér sæti í úrslitum
Bandaríkjunum deildarinnar með sigri í Utah
í dag.
Leikurinn var sögulegur fyrir það áð besti
leikmaður Utah, John Stockton, bakvörður
liðsins, meiddist á auga nokkrum sek. fyrir
hálfleik — fékk fmgur í augað, og lék ekki
meira með; hvorki í seinni hálfleiknum né
framlengingu. Þó er búist við að Stockton
leiki með í dag.
Heimamenn höfðu ávallt forystu. 60:52 í
hálfleik, en varabakvörður Utah, Delaney
Rudd, jafnaði með þriggja stiga skoti,
107:107, þegar fimm sek .voru eftir.
En leikmenn Portland tóku leikinn svo
strax í sínar hendur í framlengingu, skoruðu
10 stig gegn einu í upphafi og gerðu út um
viðureignina.
Það var framvörður Portland, Gerome
Kersey, sem var stigahæstur með 29 stig.
Þrír voru með 24, Clyde Drexler, Terry Port-
er og Kevin Duckworth. Hjá Utah var „bréf-
berinn" Karl Malone stigahæstur með 38 stig.
Landsliðið tekur þátt
í sex mótum
Landsliðið í handknattleik tók þátt í sex
mótum fyrir HM í Svíþjóð 1993.
Mótin sem landsliðið tekur þátt í, eru:
BÁ Spáni 3.-5. júlí.
Bí Þýskaland 10.-12. júlí.
Bí Sviss 27. október - 1. nóvember.
Bí Danmörku 2.-6. desember.
Bí Frakklandi 14.-16. febrúar.
•Þá eru miklar líkur á að landsliðið taki þátt
í Lottó Cup 24.-27. janúar í Noregi. Liðið tekur
þá sæti Júgóslavíu.
Ekki er endanlega búið að ákveða hvaða lands-
leikir verði hér á landi næsta vetur, nema að
Danir koma og leika þijá landsleiki í lok febrúar.
JUDO
Tryggvi efnilegastur
Júdódeild Ármanns hefur valið
efnilegasta júdómanninn í
flokki 21 árs og yngri. Fyrir valinu
að þessu sinni var Tryggvi Þór
Gunnarsson, en hann hefur skarað
framúr í þessum aldursflokki í
vetur, auk þess varð hann íslands-
meistari í sínum aldursflokki og
vann bronsverðlaun á Norður-
landamótinu.
Tryggvi fékk að launum viður-
kenningarskjöld, sem gefinn er til
minningar um Halldór Gunnar
Ragnarsson, sem hefði orðið 20
ára 24. maí sl., en hann lést í bíl-
slysi í desember í fyrra. Halldór
Gunnar var meðal efnilegustu jú-
dómanna landsins. Þessi skjöldur
verður veittur árlega og er tilgang-
urinn að hvetja unga júdómenn til
dáða.
Tryggvl Þór Gunnarsson var
kjörinn efnilegasti júdómaður Ár-
manns.
HANDBOLTI
Lokahóf 1. deildar
Lokahóf fyrstu deildar félaganna, karla og kvenna, í handknattleik
verður haldið að Hótel íslandi á laugardaginn. Húsið opnar kl. 19.
Bestu leikmenn, þjálfarar og dómarar eru útnefndir á hófínu.
Húsið opnar aftur kl. 23 fyrir handknattleiksunnendur sem ekki kom-
ast við borðhaldið. Miðar verða afgreiddir á skrifstofu HSÍ á laugardag
milli kl. 13 og 15, en handknattleiksmenn eru benir að hafa samband
við stjórnir félaganna varðandi miðapantanir.
Ellióaárhlaup Fylkis
í tilefni 25 áro afmælis íþróttafélagsins Fylkis, þann 28. maí nk., verður í fyrsta sinn
efnt til almenns víðavangshlaups í Elliðaárdalnum. Boðið verður uppá tvær hlaupalengd-
ir, 3 km og 9 km. Þeir, sem vilja njóta útivistar í fögru umhverfi og virða fyrir sér
fjölskrúðugt fuglalíf, eru jafn velkomnir og þeir, sem hlaupa í kapp við tímann. Allir
þátttakendur fá viðurkenningarskjal og þrír fyrstu í hverjum flokki fá verðlaunapen-
ing. Ávaxta- og orkudrykkir eins og hver og einn getur i sig látið. Keppt verður í
eftirfarandi flokkum karla og kvenna: 15 ára og yngri, 16-19 ára, 20—29 ára,
30-39 ára, 40-49 óra og 50 ára og eldri. Þátttökugjald er kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri, eldri greiða 400 kr. Lagt verður af stað frá Fylkisheimilinu og fer skráning þar
fram hlaupadaginn. Skráningu lýkur kl. 13.40. Mætum tímanlega og forðumst biðrað-
ir. Hlaupið hefst kl. 14.00.
íþrátlii fyrir alla
Opna Selfoss!
Opna Selfoss mótið í golfi fer fram á Svarf-
hólsvelli vió Selfoss laugardaginn 30. maí
1992.
Leiknar veróa 18 holur, punktar samkvæmt
Stableford 7/8 forgjöf.
Verðlaun verða veitt fyrir 10 efstu sæti,
aukaverðlaun fyrir aó vera næstur holu á
4./13. braut og 7./16. braut.
Ræst verður út frá kl. 8.00-10.30 og 13:00-
15.30. Rástíma er hægt að panta frá
kl. 16.00 föstudaginn 29. maí í golfskála
eða í síma 98-22417.
Málaneffnd GOS.