Morgunblaðið - 05.12.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992
25
Ymsar uppákomur í
miðbænum um helgina
MIÐBÆJARFÉLAGIÐ í samvinnu við fjölmargar verslanir og fyrir-
tæki stendur fyrir söguleik og að vfeiyu verður gömlu íslensku fánun-
um flaggað fram til jóla og kveikt hefur verið á jólabjöllunni. Þar
að auki eru ýmis félög og stofnanir með kynningar á sínum vegum.
Verslanir og þjónustufyrirtæki í
Miðbænum bjóða þeim sem fara
niður í bæ að taka þátt í skemmti-
legum leik sem tengist sögu
Reykjavíkur. Verið er að setja upp
í verslunum, veitingastöðum og
þjónustufyrirtækjum gamlar
myndir frá Reykjavík. Þar sem
myndimar eru geta viðskiptavinir
lagt inn nöfn sín og svarað léttri
spumingu. Dregið verður um íjölda
vinninga fyrir jól frá miðbæjarfyr-
irtækjum og verða gjafimar til
sýnir í Geysisglugganum frá og
með 8. desember.
Nú um helgina verður ýmislegt
að gerast í miðbænum. í dag, laug-
ardag, syngur Dómkórinn í Geysis-
húsinu kl. 13.30. Jólasveinar koma
á svæðið kl. 14.30 og Grýla verður
á vappi frá kl. 15. Lúðrasveit
verkalýðsins leikur á Lækjartorgi
kl. 15.20 og Mosfellssveitarkórinn
syngur í Hafnarhúsportinu ef veð-
Jólabjallan í miðbænum.
ur leyfir annars í Geysishúsinu
(Borgarhúsinu) kl. 16.
Á sunnudag verður vegfaraend-
um boðið ( ökuferð um miðbæinn
á forláta hundrað ára gamalli lysti-
kerrn frá kl. 14-17. Jólasveinar
mæta á svæðið kl. 15 og harmon-
ikuleikari tekur lagið á ýmsum
stöðum frá kl. 15.30.
(Fréttatilkynning)
GEFÐU DOS TIL HJALPAR!
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 14.00 og við sækjum.
ÞJÓÐÞRIF
"KíSar LANDSBJÖRG
Dósakúlur um allan bæ.
ítölskjól
LITLU jól menningarfélags ís-
lands og Ítalíu, Italía, verða
haldin sunnudaginn 6. desem-
ber á Pasta Básta, nýjum veit-
ingastað við Klapparstíg.
Mitt í jólaundirbúningnum ætla
félagar að taka frá stund milli kl.
2 og 5 um eftirmiðdaginn til þess
að hittast með fjölskyldunum og
njóta ítalskra veitinga. Boðið verð-
ur upp á: „Torte rabbarabaro alla
rusticana con vion caldo delle
montagne" eða ítalska rabbar-
baramarsípanköku og heitt vín.
Grettir Bjömsson leikur ítölsku
lögin á nikku, jólapokar o.fl. fyrir
bömin.
(Fréttatilkynning)
Hafnfírsk sjón-
varpssyrpa
Á sjónvarpsstöðinni Sýn
hóf göngu sína sunnudaginn
29. nóvember þáttaröðin
Hafnfirsk sjónvarpssyrpa.
Þættirnir eru 5 talsins og eru
sýndir kl. 17 á sunnudögum.
Annar þátturinn í þáttaröð-
inni verður sýndur 6. desember
og fjallar hann um FraniT
kvæmdir við öldrunarheimilið
Höfn, litið verður inn á sýning-
ar hjá Leikfélagi Hafnarfjarð-
ar, starfsemi Hafnarborgar
kynnt og viðtal er við Jón Kr.
Gunnarsson í tilefni að útgáfu
bókarinnar íslenskir fossar.
Auk þess sem sýndur verður
annar hluti kvikmyndarinnar
Hafnarfjörður fyrr og nú sem
Gunnar Róbert Hansen gerði á
áranum 1957-62.
Gleðigjafar
í Firðinum
Hljómsveitin Gleðigjafar leikur
laugardaginn 5. desember kl. 14
á sviðspalli í miðbænum en hana
skipa Ándré Backman, Ellý Vil-
hjálms, Bjami Ara, Ámi Scheving,
Lárus H. Grímsson og Þorleifur
Gíslason. Þau koma fólki í hina
einu sönnu jólastemmningu því að
með þeim mæta' Gáttaþefur og
mamma hans Grýla. Hún bæði
syngur og segir sögur.
YAMMAR
Bátavélar
Rafstöðvar
Vinnuvélar
MEiKÚk HE
g 812530
varðveist hefur.
Handritinu fylgja ítarlegar
skýringar Matthíasar Viðars á
hverjum galdri og í viðamikilli
ritgerð um galdra á íslandi og
útrýmingu á heiðinni
þjóðmenningu, bregður hann
óvæntu Ijósi á íslenskan
veruleika, heillandi en
hættulegan!
Galdrar a Islandi
Lærdómsrík bók
- OG KRÖFTUG!
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA