Morgunblaðið - 11.12.1993, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1993
69
Leðursófasett og leðurhornsófar
frá NATUZZI, Ítalíu.
Frábært verð - Margir litir.
Áklæðasófasett og stakir sófar
frá EILERSEN, Danmörku.
Pennavinir
Tvítug þýsk stulka með áhuga á
ferðalögum, tónlist, dansi, bréfa-
skriftum o.fl.:
Evelyn Schauer,
K-Adenauer Strasse 16,
D-78136 Schonach,
Germany.
Finnsk 28 ára gömul kona með
áhuga á hvers kyns íþróttum, ferða-
Iögum og tónlist:
Páivi Hartikainen,
Ulvilantie 20 B 27,
00350 Helsinki,
Finland.
LEIÐRÉTTINGAR
Ranglega nafn-
greindur
í frétt Morgunblaðsins í gær um
opnun Laxveiðiminjasafns í Húsa-
vík var Guðni Halldórsson, safn-
vörður sagður heita Halldór Krist-
insson í myndatexta. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á þessum mistök-
um.
Ekki til hlés
I umsögn Einars Fals Ingólfsson-
ar um Perlur og steina eftir Jó-
hönnu Kristjónsdóttur í blaðinu í
gær féll niður hluti texta. Vitnað
er til þess þegar Jökull segir við
Jóhönnu: „Þér hættir til að skjóta
þér til hlés.“ í framhaldi á að
standa: En hér (í Perlum og stein-
um) skýtur Jóhanna sér ekki til
hlés. Hér er blóð og líf.
Grace prinsessu-
sjóðurinn
Þau mistök urðu við birtingu
myndar af verðlaunahafa Grace
prinsessu-sjóðsins, að Kristín María
Ingvarsdóttir var sögð vera lengst
til vinstri, en hún er lengst til hægri
á myndinni. Er beðist velvirðingar
á þessum mistökum.
Grimmd með
þraut
I grein Rúnars Helga Vignisson-
ar, „Grimmd með þraut“, í blaðinu
miðvikudaginn 8. desember vantaði
einn staf, þannig að merking breytt-
ist smávægilega. í blaðinu hófst
setningin svona: „Hálfu öðru ári
eftir að hann lofaði í blaðaviðtali
samstarfi við aðra yfirmenn stofn-
unarinnar...", en átti að vera:
„Hálfu öðru ári eftir að hann lofaði
í blaðaviðtali samstarfið við aðra
yfirmenn stofnunarinnar...". Beðist
er velvirðingar á þessu.
VELVAKANDI
FÚLT JÓLASMJÖR
KONA í Vesturbænum hringdi
vegna þess að hún vildi segja frá
slæmri reynslu af bakstri úr jóla-
smjöri. Hún sagðist hafa ætlað
að baka úr smjörinu, en þegar hún
hafði brætt það hafi húsið fyllst
af fúlli þráalykt. Nú langar hana
vita hvað þetta smjör sé gamalt
sem verið er að bjóða upp á fyrir
jólin.
ÓSÁTT VIÐ ÞÁTT
HEMMA GUNN
ERLA Þórðardóttir hringdi og
sagðist vera mjög óhress með að
Hermann Gunnarsson skyldi í
þætti sínum sl. miðvikudagskvöld
afklæðast jólasveinabúningnum.
Hún sagðist eiga átta börn og þar
af þijú lítil og hefðu spumingar
vaknað hjá þeim varðandi
jólasveina og það að fá í skóinn.
Erlu finnst Hemmi hafa brotið
niður trú bama á jólasveina með
þessu uppátæki sínu.
ATVINNULEYSIS-
BÆTUROG
DESEMBERUPPBÓT
ATVINNULEYSI er mikið hér á
landi um þessar mundir og sér
ekki fyrir endann á því í bráð.
Fólk veslast upp hér og þar í eirð-
ar- og peningaleysi, því eins og
flestir vita duga 100% atvinnu-
leysisbætur ekki nema rétt handa
sparsömum einstæðingi og stend-
ur þó tæpt. Það er kominn desem-
ber og jólin eru framundan og
fylgja þeim óhjákvæmilega heldur
meiri útgjöld en í öðmm mánuðum
ársins. Og ekki síst af þeim sökum
horfir láglaunafólk til hinnar svo-
kölluðu desemberuppbótar með
nokkmm létti, því óneitanlega
kemur það sér vel um hátíðimar.
40-50 þúsund krónur í mánaðar-
laun em svívirðilega lág og öllum
fomstumönnum verkalýðsfélag-
anna til skammar og sýnir að þeir
em einskis megnugir.
Hjá mínu félagi (Dagsbrún) fá
atvinnuleysingjar með 100% bæt-
ur um 17.000 krónur í desember-
uppbót, séu þeir á skrá síðustu
vikuna í nóvember eða síðar. Sem
sagt, sá sem var á bótum frá jan-
úar 1993 til 15. nóvember fær
enga uppbót, en sá sem er á bótum
frá febrúar til 15. desember fær
fullar 17.000 krónur. Þetta er
hrópandi óréttlæti og dregur úr
trú manna og trausti á verkalýðs-
félögin.
Gunnar Eiríksson,
Hraunbæ 154,
Reykjavik.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gleraugu töpuðust
MÁLMSPANGARGLERAUGU
með plastumgjörð um glerin sem
dökkna í birtu töpuðust líklega
nálægt Prentsmiðju Guðjóns O.,
eða fyrirtækinu Sól í Þverholti
fyrr í vikunni. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 73461.
Lopahúfa tapaðist
KONA hringdi og sagðist hafa
tapað lopahúfu, sem síðar fannst
hjá Strætisvögnum Hafnarfjarðar.
Húfan hafði verið sett á bekk við
skýlið, en þegar konan ætlaði að
ná í hana var hún horfin. Viti ein-
hver hvað hefur orðið um húfuna
er hann vinsamlega beðinn að
hringja í síma 54471.
Leðurjakki tekinn í
misgripum
SVARTUR leðuijakki var tekinn
í misgripum í erfidrykkju í sam-
komusal KK við Vesturbraut 17 í
Keflavík þann 1. október sl. Annar
svartur leðurjakki var skilinn eft-
ir. Þeir sem kannast við þetta eru
beðnir að hafa samband við Guð-
björgu í síma 92-12723.
í D A G
10-18
KRINGWN
Stakir sófar og hornsófar
frá CARTER, USA.
ValMsgögn
O o
ARMULA 8, SIMAR 812275, 685375
Niðstöngin er eitt þeirra 32 korta sem eru VÍKINGAKORTIN.
Þeim fylgir einnig bók meö leiðbeiningartexta.
Sérlega falleg, skemmtileg og þroskandi jólagjöf
Fást í öllum helstu
bökaverslunum
Verð kr. 3255.-
DREiriNGARADILI:
SALA & DREIFING
SlNI: 98S-23334/
8II380
VIKINCA
K O R T I N
- VI5KA NORÐURSINS -