Morgunblaðið - 21.12.1993, Side 24

Morgunblaðið - 21.12.1993, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1993 Strand Bergvíkur VE 505 í Vaðlavík Björgnn fimm manna gekk vel VEGNA veðurs og ófærðar gekk björgunarsveitum á Austurlandi seint að komast í Vaðlavík þar sem Bergvík VE 505 strandaði um klukkan 11 á laugardagsmorgun í Vaðlavík í slæmu veðri, norðaustan 6-7 vindstig- um. Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað úr Reykjavík rétt fyrir kl. 14, tók eldsneyti á Höfn og hélt áfram á strandstað en varð að snúa frá vegna veðurs. Áhöfnin á Bergvík skaut línu til lands þegar björgunarsveitir voru komnar og dró fluglínutæki yfir í bátinn. Skip- brotsmennirnir voru síðan dregnir í land í björgunarstól einn af öðrum og tók það um tíu mínútur. Ljósavél Bergvíkur var allan tímann í gangi og samband var haft við áhöfnina um Nes-Radio og með aðstoð skipa á strandstað. BERGVÍK VE á strandstaðnum í Vaðlavík. Þar er báturinn ennþá eftir að mistókst að ná honum á flot í gærkvöldi. Bandarískur feij uflugmaður lýsti yfir neyðarástandi Ég hélt að þetta flug yrði minn bani ^ ^ Morgunblaðið/Júlíus Holpinn a jorðu FLUGVÉL bandaríska flugmannsins stuttu eftir að hún lenti á Reykja- víkurflugvelli á sunnudagskvöld. Það er Lavell, flugmaðurinn, sem snýr að vélinni. Tilkynnt var um strandið kl. 11.10 á laugardagsmorgun. Björgunar- sveitum SVFI í Neskaupstað, á Eski- fírði og Reyðarfírði var gert viðvart og haft samband við Landhelgis- gæslu vegna þyrlu. Grænlenska loðnuskipið Amarsat kom fljótlega á strandstað og var 'reynt að koma línu á milli skipanna. Bergvík var á miðri víkinni, 150 til 200 metra frá landi, og sneri stefni til hafs. Ferðin gekk seint og illa Björgunarsveit SVFÍ í Neskaup- stað lagði af stað um hádegi með þijá snjóbíla og fjallabíl og skömmu síðar sveitimar á Eskifírði og Reyð- arfírði. Vegagerðin ruddi leiðina í átt að strandstað en ferðin sóttist mjög seint vegna veðurs. Klukkan rúmlega eitt lögðu Björgunarsveit SVFÍ á Egilsstöðum og Hjálparsveit skáta á Héraði af stað á tveimur snjóbflum. Sveitimar komu niður á jafnsléttu kl. rúmlega 18 og hafði för þeirra þá gengið mjög hægt og erfiðlega. Skúli Hjaltason frá Björgunarsveit SVFÍ í Neskaupstað var vettvangs- stjóri og sagði að töluverður skaf- renningur og ofankoma hefði verið á leiðinni og þegar komið var ofan af Víkurheiðinni þurfti að fara fetið ofan í Vaðlavík. „Það var djúpur snjór í giljum, vegurinn horfínn hér og þar, slæmt skyggni og víða stóð gijót upp úr veginum. Þar sem veg- urinn var auður náðu beltin á snjóbíl- unum út í kantana og við þurftum að fara varlega til að skemma ekki bílana. Við vorum í talstöðvarsam- bandi við Nes-Radio og vissum að það var allt í lagi með áhöfnina. Það var mikilvægara að fara hægt yfír og komast örugglega," sagði Skúli. Teknir í land á 10 mínútum „Þeir skutu línu til okkar og tóku svo til sín fluglínutæki, eins og lög gera ráð fyrir. Við tókum þá síðan í land einn af öðrum. Þeir vom mjög vel á sig komnir enda vora þeir þurr- ir allan tímann sem þeir vora um borð og gátu haldið á sér hita. Þeir vora síðan fluttir til Eskifjarðar í snjóbílsagði Skúli. Skúli segir að rúmlega 30 menn hafí verið á strandstað frá sex sveit- um en auk þeirra tóku þátt í aðgerð- unum fímm skip, vegagerðarmenn með snjóruðningstæki, lögregla, þyrla með áhöfn og stjómstöð Land- helgisgæslunnar og starfsmenn Nes- Radio. Aðgerðunum var stjómað frá stjómstöð SVFÍ á Eskifírði en yfír- stjóm var hjá björgunarmiðstöð SVFÍ í Reykjavík. Auk þessara manna lögðu fyrirtæki og einstak- lingar til tæki og mannskap. „í STJÓRNKLEFANUM var hel- kuldi, milli mínus 20-30 gráður á selsíus myndi ég áætla. Þar er lít- ið lampaljós sem brennir mann vanalega ef maður snertir það, en þarna ríghélt ég um Ijósið án þess að finna til sviða til að halda hita á höndunum. Ég hafði vafið fimm plastpokum um hvorn fótinn, tekið ysta fóðrið úr jakkanum og lagt það yfir lærin. Jakkinn var hnepptur upp í háls, ég hafði vaf- ið klút um hálsinn og var með húfu á höfðinu, en gat samt vart hreyft mig undir lokin. Ég hélt að þetta flug yrði minn bani,“ seg- ir Christopher Levell sem er 28 ára gamall feijuflugmaður lítillar tveggja hreyfla flugvélar af gerð- inni BEA60 Duke. Hann lýsti yfir neyðarástandi laust fyrir kl. 19 á sunnudags og aflýsti því um klukkustund síðar þegar margvís- legar ráðstafanir höfðu verið gerðar til að koma honum til að- stoðar. Levell var á leið frá Glasgow til Reykjavíkur og þaðan ætlaði hann til Iowa í Bandaíkjunum. Hann seg- ist aldrei hafa flogið flugvél af þess- ari tegund fyrr. Samkvæmt rannsókn Loftferðaeftirlitsins í gær var vélin í 24 þúsund feta hæð um 230 sjómíl- ur suðaustur af Reykjavík og stefndi á Vestmannaeyjar þegar hann lýsti yfír neyðarástandi. Hitastigið úti fyr- ir var um mínus 50 gráður og bilaði nýlega viðgerð miðstöð flugvélarinn- ar svo að jökulkalt varð í vélinni. Vegna kuldans virkuðu ýmis tæki flugvélarinnar, s.s. sjálfstýring, stað- setningar- og íjarskiptartæki, ekki sem skyldi og hlóðst ís á glugga vélarinnar. Olíuhiti væri mjög lágur og vélin hikstaði vegna ísmyndunar i eldsneyti að því er talið er. Flugsfjórn fálát? Levell segist hafa millilent hér um þijátíu sinnum, og oftlega að vetrar- lagi. Hann segir að fjarskipti sín við íslenska flugstjórnarsvæðið hafi ver- ið einkennileg, sérstaklega í ljósi þess að í þau skipti sem hann hafi flogið hingað áður hafi þau verið til fyrirmyndar. Hann kveðst hafa ítrek- að reynt að fá glögga veðurspá en gengið erfiðlega. „Eg hljóp á milli rása á talstöðinni en náði lengst af ekki sambandi. Þrisvar svaraði flugt- urninn því að hann heyrði ekki til min. Veðrið var miklu verra en veð- urspáin í Skotlandi sagði fyrir um. Ég náði sambandi við flugvél frá British Airways og hann kom skila- boðum til flugturns sem tjáði mér að skipta um bylgjulengd á talstöð- inni svo að þeir gætu talað við mig beint. Þeir vora mjög rólegir, sem vanalega er kost- ur, en þama fannst mér sem þeir tækju mig ekki alvarlega. Ég ákvað að óska aðstoðar, því mér fannst ég ekki fá eðlilega hjálp.“ Þegar yfirlýsing um neyðarástand barst fór flugvél flugmálastjórnar tafarlaust í loftið. Einnig voru gerðar ráðstafanir á Vestmannaeyjaflugvelli þar sem vora þokkanleg lendingarskilyrði. Land- helgisgæslan var einnig látin í við- bragðsstöðu. Kl. 19.54 fann vél Flug- málastjómar litlu vélina skammt austur af Vestmannaeyjum og fylgdi henni eftir það. Levell kveðst þá hafa lækkað flugið niður í 18-20 þúsund fet, og hann hafí þá haft betri stjórn á aðstæðum þótt enn hafí verið ýmsir tæknierfiðleikar, s.s. óeðlilegur olíuþrýstingur og ísing var mikil, sérstaklega eftir að hann fór í gegnum skýjabelti. Að sögn Flug- málastjómar var Levell eindregið ráðlagt að Ienda í Vestmannaeyjum þar sem veður og lendingarskilyrði væra betri en í Reykjavík en þá brá svo við að hann aflýsti neyðarástandi og hélt áfram til Reykjavíkur. Fylgdi ekki ráðum Rannsókn Loftferðaeftirlitsins leiddi í ljós að Levell hafði ekki með- ferðis aðflugskort af Vestmanna- eyja-flugvelli og kaus því að fljúga áfram, þrátt fyrir hættuna samfara þeirri ákvörðun. Hann kveðst hafa heyrt ófagrar sögur af lendingarskil- yrðum í Eyjum og honum ekki ekki litist á blikuna að lenda þar í myrkri, ókunnugur aðstæðum með öllu. Hann hafi einnig metið kringum- stæður svo að þar sem veðurspáin í Skotlandi hafði verið góð, færi snjó- koman og hvassviðrið í Reykjavík hratt yfír og myndi vera um það bil kringum Vestmannaeyjar þegar hann kæmi þangað á sama tíma og veðrið hefði gengið yfir borgina. Hann hafí einnig talið sig hafa ráð- rúm til að endurmeta ákvörðun sína miðja vegu milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur og miða þá við veðrið. í Reykjavík vora gerðar ráðstafanir til að ryðja þá flugbraut sem talin var heppilegust til lendingar þegar ljóst var að Levell ætlaði þangað. „Ég sá aðeins bjarma af lendingarljós- unum. Flugbrautin var vart grein- anleg vegna þess sem hafði safnast á gluggana og úti var þétt snjó- koma, þótt ég gæti ekki greint snjó- inn vegna skorts á útsýni," segir Levell. Hann segir að bensínmælar vélarinnar hafí gefíð til kynna að hann gæti ekki flogið í sveigjum eins og flugstjórn óskaði eftir og lent þar sem gert var ráð fyrir. „Ég hætti að hlusta á flugstjórnina og ákvað að gera það eina sem ég taldi fært í stöðunni, því markmið mitt var aðeins að komast lífs af með öllum ráðum. Ég vildi hitta eiginkonuna mína aftur sem er vanfær og á von á sér á næstu fjórum vikum, ég vildi komast heim um jólin. Hugboð réði ferðinni meir en nokkurt annað,“ segir Levell. Á brautinni var allmik- ill snjór og mikil hálka. Snerist vélin 180-270 gráður í lendingu á braut- inni, en fór þó ekki út af henni. FJÓRIR af fimm manna áhöfn Bergvíkur skömmu eftir að komið var til Eskifjarðar aðfaranótt sunnudags. Mistök við upp- setningu ljóða Vegna mistaka í uppsetningu SKRIFTIR tilvitnaðra ljóða, málvillna og þess að heilar ljóðlínur féllu út í Myrkrið sem virðist svo mikið, ritdómi Erlendar Jónssonar um mðnnum ei nægir ljóðabók Ingimars Erlendar Sig- til skipta urðssonar, Hvítamyrkur, sl. sunnudag, eru hin brengluðu ljóð mig hafði myrkravald svikið, birt í sinni réttu mynd, um leið mál var því samning og höfundur ljóða er beðinn vel- að rifta virðingar. TORFBÆJARKONA geims út í glit hef ég vikið, geng þar á stjömum Nú ertu dauðans til skrifta. lögst á lakið oer ljós í myrkum tóftum dvín LJOSASKIPTI hve líktist þúfu Hve óljós tengsl bogið bakið á milli lífs og ljóðs, ef bungan sneri mig lemstra andstæð upp til mín sjónarmið til blóðs. úr genpum tíma Hve örðug leið gróðurþakið á milli mín og hans, á gamla bænum ég merst í ljósa vitjar þín. skiptum guðs og manns. Christopher Levell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.