Morgunblaðið - 27.10.1994, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C/D/E
11
STOFNAÐ 1913
245. TBL. 82. ARG.
FIMMTUDAGUR 27. OKTOBER 1994
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fjandskap Jórdana og ísraela í 46 ár lýkur með undirritun friðarsamnings
Við höfum
brotið hlekki
fortíðariimar
Arava. Reuter.
„VIÐ HÖFUM brotið hlekki fortíðarinnar, sem hafa bundið okkur
svo lengi í skugga styijalda og þjáninga," sagði Bill Clinton, forseti
Bandaríkjanna, þegar hann fagnaði undirritun friðarsamnings Jórdan-
íu og ísraels í gær. Með honum var bundinn endi á fjandskap ísraela
og Jórdana í 46 ár. Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels, og
Hussein, konungur Jórdaníu, undirrituðu samninginn að viðstöddum
5.000 gestum í Arava-eyðimörkinni fyrir sunnan Dauðahaf.
Þúsundir her- og lögreglumanna
girtu af svæðið þar sem athöfnin
fór fram og mikill viðbúnaður var
í Israel og Jórdaníu vegna ótta við
hermdarverk. Ýmsar hreyfingar
heittrúarmanna meðal múslima
eru andvígar friðarsamningnum og
var honum mótmælt í Amman,
höfuðborg Jórdaníu, í gær. Þá hef-
ur Hamas-hreyfingin meðal Pal-
estínumanna hótað að beijast gegn
honum með öllum ráðum og PLO,
Frelsissamtök Palestínumanna,
saka ísraela um svik með því að
gera Jórdani að gæslumönnum
helgra staða í Jerúsalem.
Dagar þjáninga liðnir
Eftir undirritunina sagði Rabin
að nú væri kominn tími til að láta
sig ekki aðeins dreyma um betri
framtíð, heldur gera hana að veru-
leika, og Hussein sagði að með
guðs hjálp væru dagar dauða og
þjáninga liðnir.
Clinton, forseti Bandaríkjanna,
sem skrifaði undir friðarsamning-
inn sem vottur, kom til Jórdaníu
frá Kaíró í Egyptalandi en hann
mun fara til sex ríkja í Miðaustur-
löndum í ferðinni. í gærkvöld ætl-
aði hann að ávarpa jórdanska þing-
ið í Amman en sumir þingmenn
hugðust ekki mæta til fundarins í
mótmælaskyni. Frá Jórdaníu fer
Clinton til Damaskus í Sýrlandi til
viðræðna við stjómvöld þar og síð-
an til ísraels, Kúveits og Saudi-
Arabíu.
Sýrland næst?
Samningurinn, sem var undirrit-
aður í gær, er sá þriðji, sem ísrael-
ar gera við araba, en þeir tveir
fyrri vom við Egypta og Palestínu-
menn. Er vonast til, að sá fjórði
geti orðið við Sýrland þrátt fyrir,
að mörg ljón séu á veginum. Sýr-
landsstjórn er ekki sátt við samn-
ing ísraela og Jórdana en hún lýsti
yfir í gær, að hún myndi gera allt
til að greiða fyrir allsheijarfriði í
Miðausturlöndum. Um leið vartek-
ið fram, að skilyrði fyrir friðar-
samningi við ísraela væri, að þeir
skiluðu Gólanhæðunum.
Einhugur í ísrael
Samningur Israela við Jórdani
var auðveldari en við Egypta og
Palestínumenn og í ísrael nýtur
hann almenns stuðnings ef undan
eru skildir öfgafyllstu hóparnir. í
Jórdaníu eru skoðanir aftur skipt-
ar enda Palestínumenn fjölmennir
þar og atburðirnir gerðust svo
hratt, að almenningur virðist ekki
vera búinn að átta sig á því að
erkióvinurinn í hálfa öld sé orðinn
vinur.
Reuter
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, klappar fyrir þeim Hussein, konungi Jórdaníu, og Yitzhak Rab-
in, forsætisráðherra ísraels, eftir að þeir höfðu undirritað friðarsamninginn. í ræðu, sem hann flutti
I jórdanska þinginu í gærkvöld, lofaði hann þá, sem störfuðu að friði, en fordæmdi fjandmenn friðar-
ins, „ógnaröflin, sem breiða yfir sig blæju trúar og þjóðemisstefnu og kynda undir ofbeldi".
Varað við lélegu viðhaldi á rússneskum olíuleiðslum
Telja alvarlega olíu-
leka óhjákvæmilega
Ósló, Moskvu. Reuter.
NORSKIR sérfræðingar sögðu í gær að viðhaldið á olíu- og gas-
leiðslum í fyrrverandi lýðveldum Sovétríkjanna væri svo lélegt að
alvarlegir olíulekar væru óhjákvæmilegir. Rússneskir embættis-
menn héldu í gær með flugvélum til Pechora-fljóts í norðurhluta
Rússlands til að stöðva olíuleka sem ógnar viðkvæmu lífríkinu þar.
„Margar af leiðslunum eru að
ryðga í sundur og það er mikið
vandamál," sagði Egil Bergsager,
sem stjórnar olíurannsóknum við
Rogalands-rannsóknastofnunina í
Stafangri.
Álverð í
1.800
dollara
London. Reuter.
ÁLVERÐ fór yfir 1.800 dollara tonn-
ið í gær og hefur ekki verið hærra
í fjögur ár. Er ástæðan vaxandi
þróttur í efnahagslífinu víða um
heim og horfur á aukinni eftirspum.
Álið fór hæst í 1.815 dollara og
segja markaðssérfræðingar, að verð-
ið muni haldast hátt svo lengi sem
helstu álframleiðsluríki standi við
samninginn um að draga úr fram-
leiðslunni. Er það haft eftir áhrifa-
mönnum í evrópska áliðnaðinum, að
það muni verða gert. Á þessu ári
hefur verð á málmi hækkað um þriðj-
ung til jafnaðar.
Reutcr
Konungsgersemar
UM ÞESSAR mundir fer fram sýning í Moskvu á eftirlíkingum á
frægustu djásnum bresku krúnunnar en þau eru eins og margir
vita geymd í Lundúnaturni. Var henni komið upp i tilefni af heim-
sókn Elísabetar drottningar til Rússlands. Ekki er annað að sjá
en þessi rússneska kona sé gagntekin af dýrðinni þótt úr gleri sé.
Bandarískir embættismenn telja
að allt að tvær milljónir fata af hráol-
íu hafi lekið í Pechora-fljót og vald-
ið allt að átta sinnum meirí mengun
en í Exxon Valdez-slysinu við strönd
Alaska árið 1989. Rússneskir emb-
ættismenn segja þetta ýkjur og telja
að líklega hafi um 14.000 tonn
(104.000 föt) lekið í fljótið. Talið er
að olían berist út í Barentshaf.
Norskir sérfræðingar eru sann-
færðir um að margir smærri olíu-
og gaslekar í fyrrverandi sovétlýð-
veldum hafi átt sér stað án þess að
skýrt hafi verið frá þeim.
„Eins og svissneskur ostur“
Thomas Palm, talsmaður Bellona,
norskrar náttúruverndarhreyfingar,
sagði að leiðslurnar væru sífellt að
leka. „Rússnesku leiðslurnar eru í
hræðilegu ástandi," sagði hann.
„Samkvæmt okkar upplýsingum lek-
ur burt um 10-30% allrar olíunnar
í Rússlandi vegna lélegs viðhalds."
Náttúruverndarsamtökin Græn-
friðungar sögðu að rússnesk olíufyr-
irtæki héldu áfram að dæla olíu um
gasleiðslurnar þótt þær væru „eins
götóttar og svissneskur ostur“.
Stríð um frysti-
hús í Suðurey
Þórshöfn. Morgunblaðið.
EFTIR að Fiskavirkning, sem rekur
nú níu frystihús í Færeyjum, ákvað
á laugardag að loka frystihúsinu í
Vogi á Suðurey hefur skapast „striðs-
ástand“ á eyjunni. Mikið atvinnuleysi
hefur lengi verið í Vogi, næststærsta
bænum á Suðurey, og frystihúsið
hefur verið nánast eini vinnustaður-
inn þar í langan tíma.
Framkvæmdastjóri Fiskavirkning,
Bjarti Mohr, segir að þeirri ákvörðun
að loka frystihúsinu þar til næsta
sumar verði ekki breytt. Fiskavirkn-
ing hafí ekki fé til að halda rekstrin-
um áfram, auk þess sem of lítill fisk-
ur berist að landi.
íbúar Vogs hafa hótað að grípa
til harkalegra aðgerða verði frysti-
húsið ekki opnað að nýju. Einn af
þingmönnum nýja flokksins í Færeyj-
um, Verkamannafylkingarinnar, hef-
ur sagt að beiti landstjómin sér ekki
fyrir því að frystihúsið verði rekið í
vetur hafi það alvarleg áhrif á stjórn-
arsamstarfið. Flokkurinn hefur þó
ekki enn sett stjóminni úrslitakosti.