Morgunblaðið - 27.10.1994, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skattrannsóknarstj óri
Fleiri
mál kærð
tilRLR
EMBÆTTI skattrannsóknarstjóra
ríkisins hefur sent fyrstu kærumálin
til Rannsóknarlögreglu ríkisins þar
sem eingöngu er um það að ræða
að viðkomandi hafa ekki staðið skil
á greiðslu opinberra gjalda þó ekki
sé ágreiningur um þær skattafjár-
hæðir sem undan eru dregnar.
Þetta kom fram í máli Skúla Egg-
erts Þórðarsonar skattrannsóknar-
stjóra á þingi BSRB í gær. í máli
hans kom fram að hann hefði sett
sér þá stefnu að kæra oftar mál til
lögreglu en gert hefði verið til þessa
við skattrannsóknir. „Það er sjálf-
stætt refsivert brot að greiða ekki
þau opinberu gjöld sem mönnum er
ætlað að innheimta og þá er ég að
tala um vörsluskatta, það er að segja
virðisaukaskatt og staðgreiðslu.
Eina leiðin til þess að standa við
bakið á innheimtumönnum ríkissjóðs
er að kæra þá háttsemi til opinberr-
ar rannsóknar með það fyrir augum
að ná fram refsingum," sagði hann.
Mikil skattsvik/4
Innbrot í átta sumarbústaði í landi Vatnsenda í Skorradal
Þrír menn
handteknir
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
AÐKOMAN var ljót í nokkrum bústaðanna þegar eigendur og
lögreglumenn komu á svæðið um hádegisbilið í gær.
Lögreglan
fann þýfi í
fórum þeirra
BROTIST var inn í átta sumarbú-
staði í landi Vatnsenda í Skorra-
dal í fyrrinótt. Grár fólksbíll sást
á mikilli hraðferð í Skorradalnum
undir morgun. Síðdegis voru 3
menn handteknir í Reykjavík
grunaðir um innbrotið. í fórum
þeirra fannst töluvert þýfi, sem
kom saman við það sem saknað
var úr bústöðunum.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi, ,sem fór á vettvang, er ekki
að fullu ljóst hve miklu var stolið
úr bústöðunum en þó lágu upplýs-
ingar fyrir að saknað væri fjög-
urra sjónvarpstækja, hljómtækja-
samstæðu, myndbandstækis og
nokkurra útvarpstækja. Ekki voru
unnin önnur skemmdarverk á bú-
stöðunum en þurfti til að komast
inn í þá.
Sýnt þótti að styggð hefði kom-
ið að innbrotsþjófunum, því þeir
voru búnir að taka saman hauga
af vamingi sem þeir síðan skildu
eftir við bústaðina er þeir hurfu
af vettvangi. Eftirlitsmaður
svæðisins kom fyrstur á vettvang
og gerði hann lögreglu og eigend-
um strax viðvart um innbrotin.
Sáust á Kjalarnesi
Að sögn lögreglunnar beindist
grunur að mönnum sem sáust á
ferð á gráum fólksbíl á Kjalamesi
í fyrrinótt en þá voru þeir á leið
upp í Hvalfjörð. Eftirgrennslan
leiddi til handtöku mannanna, sem
em utanhéraðsmenn. Hafðist upp
á þeim undir kvöld í gærkvöldi í
Reykjavík.
Seyðisá við Hveravelli brúuð
Morgunblaðið/Einar Gíslason
Kjalvegur öllum
bílum fær á sumrin
Blönduósi. Morgunblaðið.
BRÚARGERÐ yfir Seyðisá á
Kjalvegi skammt norðan Hvera-
valla lauk fyrir skömmu. Hafa
nú allar ár á Kjalvegi verið brú-
aðar og er því hálendið milli
Langjökuls og Hofsjökuls fært
öllum bílum yfir sumartímann.
Það var brúarvinnuflokkur
Gísla Gíslasonar sem annaðist
verkið og að sögn Gísla gekk
verkið vel og því lauk 11. októ-
ber sl. Brúin, sem er þrjátíu
metra löng og breidd akbrautar
3,60 metrar, ber alla umferð.
Aðspurður hver fyrstur hefði
ekið yfir Seyðisá á hinni nýju brú
sagði Gísli Gíslason að það hefði
verið dráttarvél brúarvinnu-
flokksins og skömmu seinna fóru
erlendir ferðamenn um brúna.
Nefnd Jamm og já?
Margir Húnvetningar hafa
haft á orði að brúin fengi nafnið
,,Jamm og já“ til heiðurs Valgarð
Ásgeirssyni á Blönduósi sem
fyrstur lét sér í hug koma að
Seyðisá yrði brúuð, samanber
landfræga vísu hans sem hann
orti fyrir mörgum áratugum:
Fögur er hún Seyðisá
séð af brúnni.
Hvaða brú er það nú þá?
Það er brúin Jamm og já.
Líkur á makaskíptum
á Hótel Holiday Inn
og Sambandshúsinu
LÍKUR eru á að samningar náist á næstu dögum milli Islandsbanka
annars vegar og Samvinnulífeyrissjóðsins og Islenskra sjávarafurða
hins vegar um makaskipti á Hótel Holiday Inn ásamt tveimur hæðum
í Húsi verslunarinnar og Sambandshúsinu á Kirkjusandi.
Ef af því verður er reiknað með
að Samvinnulífeyrissjóðurinn selji
Þróunarfélagi íslands hf. Holiday
Inn og hótelið verði síðan leigt til
Flugleiða, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
íslandsbanki myndi hins vegar
flytja höfuðstöðvar sínar sem verið
hafa í Húsi verslunarinnar í Sam-
bandshúsið. Jafnframt myndu
rúmast þar deildir og dótturféiög
bankans sem eru nú á fimm öðrum
stöðum í bænum.
íslandsbanki tilkynnti sl. vor að
hann hygðist hætta rekstri Holiday
Inn þann 1. nóvember og flytja
höfuðstöðvar sínar og dótturfélaga
í húsið. .1 framhaldi af því lýstu
ýmsir aðilar, m.a. í ferðaþjónustu,
yfir áhuga á hótelinu og hafa við-
ræður um þetta mál staðið yfir um
skeið.
100 herbergi
Holiday Inn hefur yfir að ráða
um 100 vel búnum herbergjum og
sjá ferðaþjónustuaðilar m.a. fyrir
sér að húsið muni nýtast ákaflega
vel í maí næsta vor vegna heims-
meistarakeppninnar í handknatt-
leik.
■ Líkurá/IB
wbLíÉ
Jafntefli
JÓHANN Hjartarson og Helgi
Ólafsson gerðu jafntefli í þriðju
umferð í úrslitakeppninni um ís-
landsmeistaratitilinn í skák.
Hannes IHífar Stefánsson er efst-
ur í keppninni með einn og hálfan
vinning, eftir sigur á Helga. Jó-
hann er með einn vinning og Helgi
er með hálfan vinning.
■ Skákþáttur/30
*
Sverrir Hermannsson bankastjóri Landsbanka Islands um vaxtamál
Ummæli Steingiíms 96,3% ýkjur
SVERRIR Hermannsson bankastjóri
Landsbankans segir að ummæli Steingríms
Hermannssonar seðlabankastjóra á þingi
BSRB og fréttir og umræður í kjölfar þeirra
um hækkun vaxta hjá Landsbanka íslands
séu 96,3% ýkjur. 0,05-0,5% hækkun vaxta
í þremur efstu þrepum endurskoðaðs kjör-
vaxtakerfis bankans snerti aðeins um 3,7%
af útlánum bankans.
Endurskoðun á kjörvaxtakerfinu
„Menn lögðu þannig út af ummælum
[Steingríms Hermannssonar] að almenn
vaxtahækkun hefði átt sér stað í Lands-
bankanum. En sannleikur málsins er nú
talsvert öðruvísi vegna þess að hér hefur
engin almenn vaxtahækkun átt sér stað,“
sagði Sverrir Hermannsson.
Sverrir sagði að það sem um væri að
ræða væri endurskoðun kjörvaxtakerfis
bankans og fjölgun þrepa innan þess úr
fimm í níu. „Astæðan fyrir þessu er sú að
við höfðum áður búið við 5 þrepa kjörvaxta-
kerfi en samkvæmt nýjum reglum, sem við
höfum tekið upp eftir erlendum bönkum,
þótti ástæða til að fjölga þessum þrepum
upp í níu. Þijú neðstu þrepin þokuðust rétt
fram af brúninni; sjöunda þrepið um 0,05
— það þarf að beita stækkunargleri til að
sjá eitthvað af því — 8. þrepið um 0,3%
og níunda þrepið um 0,5%.
Skuldabréfalán okkar, bæði verðtryggð
og óverðtryggð, nema samtals 24,2 millj-
örðum króna. Af þessum miklu fjárhæðum
eru aðeins 3,7% sem þetta snertir, þannig
að hér eru fréttir um almenna vaxtahækk-
un Landsbankans ýktar um 96,3%, ef mað-
ur má að gamni sínu halda fram hlutfalls-
reikningi. Það eru mest fyrirtæki sem eiga
í miklum örðugleikum í þessum þrepum.
Lántakendur eru metnir í kjörvaxtaflokka
eftir stöðu fyrirtækjanna, eftir stjórnun
þeirra, skilvísi og reikningshaldi og kynnum
okkar af stjómendunum. Af þessu sést að
það er með ólíkindum að setja þetta þann-
ig upp að hér sé um vaxtahækkun að tefla.
Þetta er örlítil hreyfíng, sem hér um bil
engin áhrif hefur,“ sagði Sverrir.
Fjárfestar halda að sér
höndum vegna umræðu
„Lykilmenn í fjármálakerfinu geta talað
vexti upp á við. Fyrir nokkrum vikum byrj-
uðu menn að boða hækkaða vexti. Ég sá
til Þórðar Magnússonar hjá Eimskipafélag-
inu hrekja þá skoðun mjög myndariega en
ég er hræddur um að áframhaldandi um-
ræða í þessa veru hafí orðið til þess að fjár-
festar ýmsir og kaupendur á verðbréfa-
markaði hafí haldið að sér höndum, m.a
verkalýðsstjórnir í lífeyrissjóðum, sem bíða
eftir að vextir hækki þótt þeir tali öðrum
tungum þegar það á við.
Óvarlegt tal seðlabankastjóra og ýkju-
fréttir um hækkun vaxta hjá langstærsta
banka þjóðarinnar eru náttúrlega með ólík-
indum og allt hans tal um bankakreppu.
Ég á von á því að Seðlabanki íslands skýri
nákvæmlega hvað hann átti við svo að
hann verði ekki misskilinn og fréttaburður
hans skilinn með þessum hætti. En hann
er búinn að fá traustsyfírlýsingu frá BSRB
og það er vonandi að það dragi hann eitt-
hvað,“ sagði Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbanka Islands.