Morgunblaðið - 27.10.1994, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 3
FRÉTTIR
Ahugier
áECU-
bréfum
ÚTTBOÐUM á ECU-tengdum
spariskírteinum til 5 ára og
verðtryggðum spariskirteinum
til 5 og 10 ára lauk með opnun
tilboða hjá Lánasýslu ríkisins í
gær.
Alls bárust 22 gild tilboð í
ECU-tengd spariskírteini að
fjárhæð 401 milljón króna.
Heildarfjárhæð tekinna tilboða
er 243 milljónir króna frá 15
aðilum. Meðalávöxtun sam-
þykktra tilboða er 8,58% og er
það í samræmi við þau kjör sem
ríkissjóður nýtur erlendis á hlið-
stæðum bréfum. Meðalávöxtun
er 0,04% hærri nú en í tilboðum
sem tekin voru 12. október sl.
Tvö tilboð bárust í verð-
tryggð spariskírteini til 5 og
10 ára, en lágmarksfjárhæðin,
100 milljónir, náðist ekki.
Tveir sækja
um stöðu
ríkisbókara
TVEIR höfðu sótt um stöðu rík-
isbókara þegar umsóknarfrest-
ur um stöðuna rann út á mánu-
dag.
Umsækjendur eru Gunnar
H. Hall, skrifstofustjóri Hag-
stofu íslands, og Gunnar Rafn
Einarsson, í yfirskattanefnd.
Sá fyrmefndi er viðskiptafræð-
ingur með MS-gráðu í hag-
fræði. Hinn er viðskiptafræð-
ingur og löggiltur endurskoð-
andi. Torben Friðriksson lét af
störfum ríkisbókara 1. ágúst í
sumar.
Magnús Pétursson, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, sagði að skipað yrði í stöð-
una á næstunni.
Bruggaðí
fiskikari
LÖGREGLAN stöðvaði starf-
semi tveggja brugghúsa í
Reykjavík í fyrrakvöld. Á öðr-
um staðnum var um að ræða
fullkomna verksmiðju þar sem
lagt hafði verið í 800 lítra af
gambra í fiskikar en alls var
þar unnt að Ieggja í 1.600 lítra
samtímis að sögn lögreglu.
Þar fundust einnig 40 lítrar
af eimuðum landa auk fullko-
minna 200 lítra eimingartækja,
sem notuð eru til að breyta
gerjuðum gambranum í sterkan
landa.
Forsvarsmaður starfseminn-
ar hefur í yfirheyrslum hjá
fíkniefnalögreglunni játað að
hafa selt um 380 lítra af landa
til unglinga.
Hjá hinum bruggaranum sem
lögreglan heimsótti í fyrrakvöld
fundust-35 lítrar af landa, auk
lítilræðis af amfetamíni.
Lánlausir
lottóspilarar
EKKI riðu landsmenn feitum
hesti frá drætti í Víkingalottó-
inu í gærkvöldi.
Fyrsti vinningurinn, að upp-
hæð 49,3 milljónir, gekk ekki
út. Þrír hæstu vinningarnir á
íslandi gengu heldur ekki út
en 177 voru með 4 tölur réttar
og fengu rúmar 2000 kr. hver.
Fyrsti vinningur verður tvö-
faldur næst og verður hann
væntanlega vel yfir 100 millj.
Morgunblaðið/Ragnar Pálsson
Brúðönd
í heimsókn
BRÚÐÖND hefur verið á Tjörn-
inni í Reykjavík undanfarna
viku, en hingað hefur fuglinn
líklega flækst frá meginlandi
Evrópu. Ævar Petersen, nátt-
úrufræðingur, segir að brúð-
öndin eigi uppruna sinn í Norð-
ur-Ameríku og sé ekki fjarskyld
húsöndinni, sem er að finna hér
á landi. „Brúðendur hafa verið
fluttar inn í andagarða á megin-
landi Evrópu og mér finnst lík-
legt að þessi karlfugl hafi slopp-
ið úr slíkum garði, enda er hann
gæfur. Hér hefur brúðönd sést
tvisvar sinnum áður, fyrst fyrir
20 árum.“ Ævar sagði að erfitt
væri að segja til um hvort fugl-
inn myndi dvelja áfram á Tjörn-
inni. Hann gæti sest hér að,
enda væri hann nógu gæfur til
að nýta sér brauðgjafir mann-
anna.
Suðurlandsbraut 4 • Sími 603878
fös. kl. 9.00-18.00, laug. kl. 10.00-14.00
Skógrækt með Skeljungi