Morgunblaðið - 27.10.1994, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 5
FRETTIR
P K O F K J O R
Samstarfsnefnd hins opinbera
og atvinnulífs skipuð
Aðgerðir gegn
svartri vinnu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
skipuð verði samstarfsnefnd
Reykjavíkurborgar, ríkis og aðila
vinnumarkaðarins er leggi fram til-
lögur um fyrirbyggjandi aðgerðir
gegn svokallaðri svartri atvinnu-
starfsemi. Nefndinni er meðal ann-
ars ætlað að kanna sérstaklega
útboðsgögn og þær kröfur sem
gerðar eru til verktaka.
Jafnframt er gert ráð fyrir að
nefndin kanni skil verktaka á lög-
bundnum gjöldum í opinbera sjóði
og í sjóði verkalýðsfélaga auk sam-
ræmingar á reglum og aðferðum
ríkis og borgar. Lagt er til að borg-
arstjóri tilnefni einn fulltrúa í
nefndina og Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar einn fulltrúa.
Ennfremur verði óskað eftir tilnefn-
ingu tveggja fulltrúa frá fjármála-
ráðuneyti, þar sem annar komi frá
embætti skattrannsóknarstjóra. Þá
verði óskað eftir tilnefningu eins
fulltrúa frá ASÍ, VSÍ og Verka-
mannafélaginu Dagsbrún.
Verktakavinna færist í vöxt
í greinargerð með tillögunni
kemur fram að afleiðing versnandi
atvinnuástands sé margvísleg og
að svokölluð svört atvinnustarfsemi
færist í vöxt. Launþegar séu í stöð-
ugt ríkari mæli ráðnir til vinnu sem
undirverktakar en ekki teknir inn
á launaskrá fyrirtækja. Þá segir;
„Þetta firrir fyrirtæki/verktaka
ábyrgð á viðkomandi starfsmanni
sem e.t.v. uppsker fleiri krónur í
vasann um stundarsakir en ber
sjálfur ábyrgð á að lögbundin gjöld
Kartöflu-
verðinu
þokað
upp á við
LANDSSAMBAND kartöflu-
bænda efndi til fundar með dreif-
ingaraðilum í fyrradag vegna verð-
lagningar sem verið hefur á kart-
öflum upp á síðkastið, og að sögn
Sigurbjarts Pálssonar, formanns
Landssambands kartöflubænda,
voru menn sammála um að smá-
söluverðið væri komið niður fyrir
allt velsæmi og gott hljóð í mönn-
um að gera eitthvað í málinu. „Ég
vonast til að við sjáum það á næstu
dögum að verðið fari að þokast
upp á við,“ sagði hann.
Sigurbjartur sagði að kartöflu-
salan væri að mestu í höndum
bænda sem annaðhvort væru sjálf-
ir með pökkunarstöðvar og dreif-
ingu og síðan væru bændur einnig
eigendur og stjórnendur stærri
dreifingarstöðvanna.
Hann sagði að verðlagningin
upp á síðkastið væri hægt og síg-
andi að draga lífsþrótt úr kartöflu-
bændum, og Ijóst væri að samúðin
væri þeirra megin bæði frá neyt-
endum og kaupmönnum. „Sam-
keppni og einhver átök um mark-
aðinn sem stjórnast af framboði
og eftirspurn er eitthvað allt annað
en það sem hefur verið að gerast,“
sagði hann.
Kartöflubirgðir eru að sögn Sig-
urbjarts eitthvað meiri en árleg
innanlandsneysla hefur verið og
telur hann því ólíklegt að grípa
verði til innflutnings næsta sumar
nema eitthvað óvænt komi upp á.
skili sér í opinbera sjóði.“ Bent er
á að Reykjavíkurborg sé stærsti
útboðsaðilinn á höfuðborgarsvæð-
inu auk þess sem afleiðingar erfiðs
atvinnuástands bitni harkalega á
þegnum hennar. I ljósi þess sé eðli-
legt að borgaryfirvöld hafi for-
göngu um að leita leiða til úrbóta.
T V. I) S S M A ;N |C A
8 K V K 3 AV l K
Sjálfstæðismenn veittu Birni Bjarnasyni afgerandi
stuðning í 3. sæti í síðasta prófkjöri.Með störfum
sínum á Alþingi hefur Björn sýnt að hann
var þess trausts verður
Tryggjum Birni endurkjör í 3. sœti.
BjöknBiaknasqn
Ai ra.m í Q.SÆ.XI
Hvenær dettur
Gullpotturinn?
Nú er hann
illiónir!
Þeir sem spila í Gullnámunni þessa
dagana þurfa að vera viðbúnir að
vinna stórt, því nú er Gullpotturinn
kominn upp í rúmar 8 milljónir og
getur dottið hvenær sem er.
En þaö er fleira eftirsóknarvert, því
vinningar í hverri viku eru yfir 60 milljónir
króna. Þetta eru bæöi smærri vinningar og
svo vinningar upp á tugi þúsunda aö
ógleymdum SILFURPOTTUNUM sem detta
aö jafnaöi annan hvern dag og eru aldrei
lægri en 50.000 krónur.
Haföu keppnisskapið með þér í
Gullnámuna og láttu reyna á heppnina,
- það er aldrei að vita.
Miövikudaginn 26. október kl. 10.30 var Gullpotturinn 7,981,500 kr.
Happdrættisvélar Gullnámunnar eru staðsettar á 30 stöðum víðs vegar um landið