Morgunblaðið - 27.10.1994, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
h
FRÉTTIR
Tillaga 6 þingmanna stjórnarandstöðu
Nefnd kanni emb-
ættisfærslu um-
hverfisráðherra
Morgunblaðið/Þorkell
BRYNHILDUR Þórarinsdóttir afhendir Einari Sigurðssyni fyrsta framlagið.
Þjóðbókasjóður stúdenta
SEX þingmenn stjómarandstöð-
unnar hafa lagt fram tillögu til
þingsályktunar um skipun rann-
sóknarnefndar níu alþingismanna
til að kanna embættisfærslu um-
hverfismálaráðherra gagnvart
starfsmönnum embættis veiði-
stjóra er hann tók ákvörðun um
að flytja embættið frá Reykjavík
til Akureyrar.
Áhersla skal lögð á réttarstöðu
starfsmanna. Vísað er til 39.
greinar stjómarskrárinnar í þessu
sambandi og nefndinni gert að
skila skýrslu um málið fyrir 31.
janúar næstkomandi.
Akvörðun án samráðs
við starfsmenn
í greinargerð með tillögunni
segir að ákvörðun um flutning
embættisins hafí verið tekin fyrir-
Bréfsími
Toyota
stoppaði
ekki
TOYOTA-umboðið birti óvenju-
lega auglýsingu í Morgunblaðinu
í gær. Þar birtist teikning og þeir
sem vildu vita hvað þama var á
ferð, áttu að faxa inn nafn og
faxnúmer.
Að sögn Lofts Ásgeirssonar hjá
Toyota vora viðbrögðin ótrúleg.
Faxtækið stoppaði ekki allan dag-
inn með fyrirspurnum, bæði frá
einstaklingum og fyrirtækjum, og
svörin vom send um hæl. Sagði
Loftur að leiknum yrði haldið
áfram og næsta teikning birtist í
blaðinu á morgun.
varalaust án nokkurs samráðs við
starfsmenn embættis veiðistjóra
sem fyrst fengu að vita af ákvörð-
uninni eftir að hún var tekin.
Umhverfísráðherra hafí kynnt
ákvörðunina á blaðamannafundi
19. janúar og formlega hafí veiði-
stjóra verið kynnt málið 7. febr-
úar, en ætlunin er að stofnunin
hefji starfsemi á Akureyri 1. febr-
úar næstkomandi.
Alvarleg málsatvik
Ennfremur segir að ástæða sé
einnig til þess að ætla að rætur
þessarar ákvörðunar megi rekja
til persónulegs árekstrar umhverf-
isráðherra við starfsmenn embætt-
isins á óskyldum vettvangi. Þar
sem hér sé um mjög alvarleg
málsatvik að ræða sem hugsan-
lega varði við lög og alþjóðlegar
skuldbindingar, eins og segir í
greinargerðinni, sé eðlilegt að sér-
stök rannsóknamefnd sé skipuð.
Orðrétt segir: „Flutningsmenn
þessarar tillögu fá ekki betur séð
en að umhverfisráðherra hafí í
málafylgju sinni gagnvart starfs-
mönnum veiðistjóraembættisins
beitt mikilli valdníðslu, auk þess
að brjóta gegn óskrifuðum lögum
um mannleg samskipti. Fyrir utan
þann miska sem viðkomandi
starfsmenn og aðstandendur
þeirra hafa orðið að þola er hætt
við að vinnubrögð ráðherra í þessu
máli vinni gegn almennum áform-
um um flutning ríkisstofnana. Hið
sama má einnig segja um fram-
komu ráðherrans gagnvart starfs-
mönnum Landmælinga ríkisins og
Skipulags ríkisins í tengslum við
athugun á flutningi þessara stofn-
ana á fyrri hluta árs 1994.“
Flutningsmenn tillögunnar eru
alþingismennimir Hjörleifur Gutt-
ormsson, Finnur Ingólfsson, Jón
Helgason, Kristín Astgeirsdóttir,
Kristín Einarsdóttir og Svavar
Gestsson.
STÚDENTAR við Háskóla íslands
afhentu í gær stjórn Landsbóka-
safns íslands - Háskólabókasafns
fyrsta framlag í nýjan Þjóðbóka-
sjóð stúdenta. Framlagið var
700.000 krónur og var það af-
rakstur söfnunar meðal stúdenta
sjálfra og innan Háskólans.
Þetta er fyrsti ávöxtur Þjóðar-
átaks stúdenta til eflingar hinu
nýja þjóðbókasafni sem opnar í
GREIÐSLUR sveitarfélaga til ákveð-
inna verka umfram fjárhagsáætlun
eru ekki taldar bijóta í bága við sveit-
arstjómarlög sé nýrrar heimildar
aflað síðar með lögformlegum hætti.
Fram hefur komið að framlög úr
bæjarsjóði Hafnarfjarðar til listahá-
tíðar á síðasta ári voru mun hærri
en upphafleg fjárhagsáætlun sagði
til um. Þar var kveðið á um 10 millj-
óna framlag en búið var að greiða
34 milljónir umfram tekjur af hátíð-
inni úr bæjarsjóði áður en fjárhags-
áætlun bæjarins var endurskoðuð og
Þjóðarbókhlöðunni 1. desember
nk. Markmið þess er að efla kaup
á nýjum vísindaritum í öllum
fræðigreinum, en athugun stúd-
enta hefur leitt í Ijós að íslending-
ar standa öðrum þjóðum þar langt
að baki.
Stúdentar vildu ganga á undan
með góðu fordæmi og hafa á
undanförnum tveimur vikum safn-
að fé í eigin röðum og innan Há-
framlag til hátíðarinnar hækkað.
í sveitarstjórnarlögum segir að til
útgjalda sem ekki eru lögbundin,
samningsbundin eða leiði af fyrri
samþykkt sveitarstjórar megi ekki
stofna nema til komi samþykki sveit-
arstjómar.
Algengt að fjárhagsáætlanir
standist ekíki
Magnús Óskarsson fyrrverandi
borgarlögmaður sagði að algengt
væri að fjárhagsáætlanir sveitarfé-
laga stæðust ekki. Þegar slíkt kæmi
skólans m.a. með sölu á barm-
merki átaksins.
Fulltrúar stúdenta, þau Bryn-
hildur Þórarinsdóttir, fram-
kvæmdasljóri Stúdentráðs, Kam-
illa Rún Jóhannsdóttir, Helga Hlín
Hákonardóttir og Guðrún Hálf-
dánardóttir, afhentu Einari Sig-
urðssyni, landsbókaverði, stofn-
framlag Þjóðbókasjóðsins við at-
höfn í Þjóðarbókhlöðunni.
í ljós, yrði að afla nýrrar fjárheimild-
ar og þá væri komin lögformleg
ákvörðun um að veija peningunum
úr sveitarsjóði. Auðvitað væri ámæl-
isvert ef langur tími liði frá því um-
framfjárútlát yrðu þar til heimildin
væri staðfest, en ekki ólöglegt.
Aukafjárveitingar voru af sama
toga. Þá ráðstöfuðu ráðherrar fé án
þess að heimild væri fyrir því og
eftir á voru samþykkt fjáraukalög.
Magnús sagði að þetta hefði þótt
aðfinnsluvert og nú fær hver ráð-
herra sérstakt framlag á fjárlögum.
Útgjöld s veitarfélaganna umfram fjárhagsáætlun
Ekkí ólöglegt að leita
heimildar eftir á
Ákveðið að nota óráðstafaðar heimildir til útflutningstrygginga
Reynt að viðhalda mörkuðum
fyrir síldarafurðir í Rússlandi
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
að tillögu sjávarútvegsráðherra að
nýta óráðstafaðar heimildir til út-
flutningstrygginga samkvæmt
gildandi lögum og segist ráðherra
binda vonir við að þessi ákvörðun
geti greitt fyrir því að hægt verði
að viðhalda mörkuðum fyrir síld-
arafurðir í Rússlandi. Þetta kom
fram á Alþingi í gær við fyrstu
umræðu um frumvarp til laga um
ráðstöfun síldar til bræðslu. Þing-
menn stjómar og stjórnarandstöðu
fögnuðu framkomu frumvarpsins
og sögðu reynsluna hafa sýnt fram
á nauðsyn þess að heimildir væru
fyrir hendi til að stýra nýtingu síld-
arstofnsins. Var lögð áhersla á að
flýta þyrfti afgreiðslu frumvarps-
ins svo sem nokkur kostur væri,
þannig að hægt yrði að styðjast
við lagaheimildimar vegna veiða á
yfírstandandi vertíð.
Hjá sjávarútvegsráðherra kom
fram að nú væri unnið að útfærslu
tillagna varðandi útflutningstrygg-
ingarnar. Sagði hann ótvírætt að
í Rússlandi væri mikill markaður
fyrir síld og þegar betra jafnvægi
væri komið á innanlandsmál þar
væri mikilvægt fyrir okkur að hafa
viðhaldið fótfestu okkar á mörkuð-
um þar.
Breytt staða á mörkuðum
Margir þingmenn gerðu að um-
talsefni breytta stöðu á hefðbundn-
um útflutningsmörkuðum síldar í
Finnlandi og Svíþjóð ef þessi ríki
gengu í Evrópubandalagið, en við
það mun 14-18% tollur leggjast á
síldina. Sjávarútvegsráðherra
skýrði frá því að viðræður hefðu
átt sér stað milli embættismanna
í Brussell og möguleiki væri á að
útflutningur sfldar til Svíþjóðar
gæti fallið undir skilgreiningar á
ákvæðum samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið eins og
hann væri nú. Öðru máli gegndi
um útflutning til Finnlands þar
sem þar væri um annars konar
vinnslu að ræða. Hann kvaðst hafa
nokkuð góðar vonir um að markað-
aðstæður okkar versnuðu ekki til
muna þó þessi ríki færu inn í ESB.
Þá kom fram hjá ráðherra að
hann hefði að tillögu Hafrann-
sóknastofnunar heimilað nokkrum
frystiskipum síldveiðar í flotvörpu
í tilraunaskyni. Halldór Ásgríms-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, varaði við að hleypa frystiskip-
um í síldveiðarnar og sagðist ekki
sjá nein rök sem mæltu með því.
Veiðar til manneldis
verði fijálsar
Þá upplýsti ráðherra í svari við
fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar
að það hefði verið ítrekað við Rússa
að við værum til viðtals um að
selja síld og loðnu við borðstckk
gegn veiðiheimildum á þorski í
Barentshafi, en engin viðbrögð
hefðu borist. Því hefði verið hafnað
vegna veiða okkur í Smugunni á
síðasta ári, en hann vænti þess að
sá tími kæmi að hægt yrði að taka
upp viðræður við Rússa á þessum
grundvelli.
Breytileg notkunheimilda
Jóhann spurði ráðherra hvernig
hann hygðist nota heimildir lag-
anna og lagði til að veiðar til mann-
eldis yrðu frjálsar og drægjust frá
bræðslukvótanum. Veiðamar yrðu
teknar út þegar liði á vertíðina og
sá kvóti sem farið hefði til mann-
eldis dreginn frá heildarkvóta
næsta árs. Taldi hann engar líkur
á að þetta skapaði hættu á að far-
ið yrði fram úr heildarkvótanum
og eðlilegra að standa þannig að
þessu máli. Sagðist hann telja aðr-
ar ástæður fyrir því að kvóti hafi
farið yfír á loðnubáta heldur en
að síldin hafi staðið djúpt. Ráð-
herra sagði erfítt að segja til um
það fyrirfram hvernig heimildir
laganna yrðu notaðar, það gæti
verið breytilegt frá einum tíma til
annars.
Verslunarfyrirtæki
42% vilja
fulla að-
ild að ESB
FORSVARSMENN 42% íslenskra
verslunarfyrirtækja vilja aðild ís-
lands að Evrópusambandinu, sam-
kvæmt niðurstöðum skoðanakönn-
unar Verzlunartíðinda. Þá styður
fjórðungur þeirra fulla aðild að
NAFTA, fríverslunarsamningi
Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó.
Þeirri spurningu var beint til 81
fyrirtækis hvaða form þau teldu
æskilegast á samskiptum Islands við
Evrópusambandið, þ.e. full aðild, tví-
hliða viðskiptasamningur eða óbreytt
ástand. 34 fyrirtæki, eða 42%, vildu
beina aðild, 43, eða 53%, vildu tví-
hliða samning en 4, eða 5%, töldu
enga ástæðu til breytinga. Þegar
spurt var hvenær ætti að sækja um
aðild töldu 82% þeirra sem vildu fulla
aðild að það ætti að gera strax, en
hin 18% vildu sækja um innan
tveggja ára.
Þegar spurt var hvaða form væri
æskilegast á samskiptum íslands við
ríki Norður-Ameríku í framtíðinni
vildu 69% gera tvíhliða viðskipta-
samning, en tæp 25% vilja að sótt
sé um fulla aðild að NAFTA.
»
l
l
I
*
1
»
I
&
I
!
I
1
i
1
I
1
I