Morgunblaðið - 27.10.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sverrir
Kennt fyrir
opnum dyrum
FORELDRUM skólabarna í Snæ-
landsskóla var boðið að koma í
skólann í vikunni og líta inn í
kennslustofur en kennt var fyrir
opnum dyrum í tilefni af 20 ára
afmæli skólans, sem var í gær.
Margir notfærðu sér þetta og
fylgdust með skólastarfinu eða
skoðuðu nýja álmu með 8 kennslu-
stofum sem tekin var í notkun í
haust.
----♦ ♦ ♦----
Ein stofn-
un annist
samgöng-
ur á sjó
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
kynnt í ríkisstjórninni lagafrumvarp
um sameiningu Siglingastofnunar
ríkisins, Hafnamálastofnunar ríkis-
ins og Vitastofnunar íslands í Sigl-
ingastofnun íslands, en í því er gert
ráð fyrir að sameina fyrrgreindar
stofnanir og ná fram.15 milljón króna
sparnaði á ári.
í umsögn fjárlagaskrifstofu f|ár-
málaráðuneytis kemur fram að al-
menn rekstrarútgjöld muni minnka
um 10 milljónir á ári í kjölfar samein-
ingar, sem skýrist að mesta leyti al
minna mannhaldi við yfirstjórn. Ætla
megi að biðlaunagreiðslur nemi 11
milljónum króna fyrsta árið. Þá sé
gert ráð fyrir að Siglingamálastofn-
un flytji í nýtt húsnæði hjá Vita- og
hafnarmálastofnun í Kópavogi sem
spara muni leigutekju. Á móti komi
að nauðsynlegt verði að stækka hús-
næðið í Kópavogi sem sé áætlaður
um 40 milljónir króna. Ásamtýmsum
öðrum liðum megi því gera ráð fyrir
að samening stofnana minnki útgjöld
um 14-15 milljónir á ári en að viðbót-
arkostnaður verði um 47 milljónir
króna á fyrsta ári.
Styrkir og hagræðir
Að sögn Halldórs Blöndals, sam-
gönguráðherra, er þessi niðurstaða
tilkomin vegna könnunar ráðuneyt-
isins á leiðum til að auka hag-
kvæmni í ríkisrekstri á vegum þess,
sem staðið hefur yfir að undanförnu.
„Ástæðan er einfaldlega sú að við-
fangsefni þessara stofnana skarast
að ýmsu leyti. Þær hafa töluverð
alþjóðleg viðskipti með höndum og
með því að steypa þeim saman tel
ég að þær styrkist og sömuleiðis
útibú þeirra á landsbyggðinni. Fram-
kvæmd samgöngumála á sjó verður
í umsjón einnar stofnunar með sam-
einingu og Siglingastofnun íslands
verður því sterkari útávið og innávið
en þrjár aðskiidar einingar og hæf-
ari til að gegna hlutverki sínu. Við
getum litið til styrkst annarra stofn-
ana sem heyra undir samgönguráðu-
neytið í því sambandi, s.s. Vegagerð-
ina og Flugmálastjórnar," segir Hall-
dór. Hann kveðst gera sér góðar
vonir um að frumvarpið verði sam-
þykkt í vetur og þá um leið muni
undirbúningur sameiningar hefjast.
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 7
FRÉTTIR
Fjöiskyldukönnun í Hafnarfirði
Þriðjungur alið allan
aldur sinn í bænum
UM þriðjungur Hafnfirðinga hefur
alið allan aldur sinn í bænum. Helm-
ingur aðfluttra hefur flutt í bæinn á
síðustu 14 árum og um 15% eftir
1990. Þetta kemur fram í niðurstöðu
fjölskyldukönnunar Viðhorfs hf. fyrir
félagsmálaráð Hafnarfjarðar.
Um 37% aðfluttra koma frá
Reykjavík og 11% frá Kópavogi. Um
þriðjungur flutti vegna húsnæðis-
mála, tæp 18% vegna atvinnu, fjórð-
ungur vegna fallegs bæjarstæðis og
fimmtungur vegna sambúðar við
Hafnfirðing. Engum aðfluttra Hafn-
firðinga líkaði illa að búa í bænum.
Meira en þremur íjórðu líkaði mjög
vel og tæpum 15% fremur vel.
Tæp 60% bæjarbúa hafa þurft að
leita lækninga á síðustu þremur
mánuðum. Almennt heilsufar 80%
hafnfirskra íjölskyldna hefur verið
gott síðustu 12 mánuði.
Tæp 90% hafnfirskra fjölskyldna
búa í eigin húsnæði, þriðjungur í íjöl-
býlishúsi og þriðjungur í einbýli.
Meðalíjöldi herbergja er 4,16. Um
10% heimila skulda ekkert en meðal-
skuldir hinna eru tæpar 4 milljónir.
185/65-14 G00D YEAR verð pr.4 stk. kr. 42.000
í85/65-14 SÖLUÐ verð pr.4 stk. kr. 32.000
Nú bjóðum við vetrardekk á felgum tiibúin
undir bílinn á einstöku verði. - Heillandi
möguleiki, sem sparar bæði fé og fyrirhöfn
V0LKSWAGEN G0LF:
VOLKSWAGEN VENT0 0G JETTA
MITSUBISHI COLT 0G LANCER
HEKLA
////leiY/a /jC'S'f/
VARAHLUTAVERSLUN
Laugavegi 170-174, sími 69 55 00
|175/70-13 KELLY verð pr.4 stk. kr. 42.000.-I
1175/70-13 SÓLUÐ verð pr.4 stk. kr. 36.000.-
1185/70-14 KELLY verð pr.4 stk. kr. 46.000.-j
1175/70-13 KELLY verð pr.4 stk. kr. 36.000.-j
1175/70-13 SÓLUÐ verð pr.4 stk. kr. 30.000.-|