Morgunblaðið - 27.10.1994, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á
þeim sjálfum sem hér segir:
Bjarnarhóll 7, þingl. eig. Ásþór Guðmundsson og Elín
Helgadóttir, gerðarbeiðendur sýslumaðurinn á Höfn og
veðdeild Landsbankans, 31. október 1994 kl. 14.00.
Dalbraut 6, þingl. eig. Jóhann Arngrímur Guðmundsson,
gerðarbeiðendur Kaupþing hf. Kringlunni 5 og sýslumaður-
inn á Höfn, 31. október 1994 kl. 16.00.
Kot í Nesjahreppi, þingl. eig. Ragnar Eðvarðsson, gerðar-
beiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga og ísboltar hf.,
31. október 1994 kl. 15.00.
Sýslumaðurinn á Höfn,
25. október 1994.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á
þeim sjálfum sem hér segir:
Bjarnarhóll 6, þingl. eig. Stjórn verkamannabústaða, gerð-
arbeiðendur sýslumaðurinn á Höfn og veðdeild Lands-
bankans, 1. nóvember 1994 kl. 15.00.
Hrísbraut 9, þingl. eig. Brynjólfur Tiyggvi Árnason og
Hreindís Elfa Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins, Innheimtustofnun sveitarfélaga, Lands-
banki íslands, Bankastræti 7, 101 Reykjavík og Sveinn
Sighvatsson, Hafnarbraut 1, 780 Höfn, 1. nóvember 1994
kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Höfn,
25. október1994.
Strandgötu 33
SÍMI 652790
í dag er mjög hag-
stætt að kaupa at-
vinnuhúsnæði.
í flestum tilvikum
er hægt að fá lán
fyrir allt að 65% af
kaupverði til 15 ára.
ATVINNUHÚSNÆÐI
MIÐBÆR - HAFNARFIRÐI. Um er að ræða
nýtt, glæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsn. í nýja miðbænum.
Eigum eftir til sölu eða leigu eitt verslunarbil á jarðhæð og
örfá á
2. hæð. Skrifstofuhúsn. í TURNINUM með lyftu. Frábærir
möguleikar. Meiriháttar útsýni. VERÐIÐ KEMUR Á ÓVART.
LÆKJARGATA 30. Um er að ræða 368 fm verslun-
ar- og lagerhúsnæði á góðum stað. Húsnæðið er fullbúið og
nýlega gegnum tekið, góð gólfefni, nýjar hita- og raflagnir,
gler og fleira. Tilvalið undir verslun eða heildsölu. Verð 16,0
millj.
TRÖNUHRAUN 8. Um er að ræða 339 fm atvinnu-,
skrifstofu- eða verslunarhúsnæði á 2. hæð í góðu verslunar-
húsi. Á 1. hæð eru verslanir. Húsnæðið er fullbúið. Tilvalið
undir heildsölu, verslun, sólbaðsstofu, skrifstofur og fleira.
LAUST STRAX. Verð 12,0 millj.
BÆJARHRAUN 6. Um er að ræða nýtt 330 fm at-
vinnu-, skrifstofu- eða verslunarhúsnæði á 2. hæð í góðri versl-
unargötu. Á 1. hæð er verslun. Tilvalið húsnæði fyrir skrif-
stofu, heildsölu, verslun og því um líkt. LAUST STRAX. Verð
13,0 millj.
DRANGAHRAUN 5. Um er að ræða tvö bil, annars
vegar 202 fm endabil og hins vegar 134 fm miðjubil. MÖGU-
LEGT ER AÐ SAMEINA EÐA SKIPTA MEIRA NIÐUR. Lofthæð
frá 4 metrum upp í 5,90 metra. Góðar innkeyrsludyr og gott
útipláss. Stækkunarmöguleikar. Húsnæðið er fullbúið og
LAUST STRAX. Tilvalið undir hvers konar iðnað. Ásett verð:
Endabil kr. 8,5 millj. og miðja kr. 5,6 millj.
KAPLAHRAUN 7c. Um er að ræða 114 fm atvinnu-
húsnæði ásamt 15-20 fm millilofti. Lofthæð er frá 3,40 m upp
í 5,20 m. Á millilofti er skrifstofa og undir er eldhús, kaffi-
stofa og snyrting. GÆTI LOSNAÐ FUÓTLEGA. Tilvalið undir
hvers konar léttan iðnað, heildsölu og fleira. Verð 4,5 millj.
TRÖNUHRAUN 1. Um er að ræða nýtt verslunar-,
skrifstofu- og atvinnuhúsnæði. Húsið er á mjög góðum stað
í grónu verslunarhverfi við Reykjavíkurveginn. Miklir möguleik-
ar. Verslunarhúsnæðið er frá 84,4 fm uppí 158,7 fm. Skrifstofu-
húsnæðið er frá 57,8 fm upp í 178,2 fm og atvinnuhúsnæðið
er frá 60,7 fm uppí 70,0 fm. AFH. GÆTI ORÐIÐ FUÓTLEGA.
HLÍÐASMÁRI 8, KÓP. Um er að ræða nýtt 148
fm verslunar- og/eða iðnaðarhúsnæði á 1. hæð í glæsilegu
húsi. Húsið er fullbúið að utan, piássið tilbúið undir tréverk.
Á sömu hæð eru verslanir, sjoppa, myndbandaleiga og fleira.
TIL AFHENDINGAR STRAX. Verð 6,8 millj.
Teikningar og myndir á skrifstofu.
FRÉTTIR
Ekki var gefin út viðvörun á þriðjudag vegna
snjóflóðahættu á Breiðadalsheiði
Engum lögskipað að
gefa út viðvaranir
VERKASKIPTING Veðurstofu og Vegagerðar gerir að sögn Magnúsar
Más Magnússonar, jöklafræðings hjá Veðurstofunni, ráð fyrir að síðar-
nefnda stofnunin sjái um tilkynningar vegna snjóflóðahættu á þjóðvegum.
Veðurstofan hafí því ekki gefíð út tilkynningu um snjóflóðahættu á Breiða-
dalsheiði á þriðjudag. Kristinn Jónsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á
Isafírði, segir að lögskipaður aðili til að gefa út viðvaranir vegna snjóflóða-
hættu sé ekki til og Vegagerðin gefí aðeins út viðvaranir þegar hætt sé
að moka vegna snjóflóðahættu. Hann segir æskilegt að Veðurstofan sjái
um þennan þátt. En til þess þurfi að styrkja snjóflóðadeild hennar veru-
lega. Öndundur Jónsson, yfírlögreglumaður á ísafírði, segir að brugðist
hafí verið eðlilega við beiðni ökumanns annars bílsins sem lenti í snjóflóði
á Breiðadalsheiði þegar bíllinn festist á heiðinni skömmu fyrir flóðið.
Haft hefur verið eftir ökumann-
inum að Veðurstofan hafi ekki
gefið út tilkynningu um snjóflóða-
hættu fyrr en eftir að snjóflóð hafí
fallið. Magnús Már segir slíkt ekki
í verkahring Veðurstofunnar. Hins
vegar tekur hann fram að hann
hafi sjálfur verið staddur á ísafirði
vegna annarra verkefna á mánu-
dag. „Sýslumaðurinn kom til mín
inn á tæknideild ísafjarðarkaup-
staðar og sagði að fallið hefði snjó-
flóð uppi í Kinn. Síðan fékk ég
nánari upplýsingar á lögreglustöð-
unni og varaði lögregluþjónana við
að fara upp á heiðina vegna bíl-
anna. Á meðan veðurskilyrði héld-
ist óbreytt, sama vindátt og skaf-
renningur, væri hættan enn til
staðar," sagði Magnús. Hann tók
fram að engin formleg viðvörun
hefði verið gefin út.
Hann sagði að verkaskipting
milli Veðurstofu og Vegagerðar
gerði ráð fyrir að síðarnefnda stofn-
unin sinnti viðvörunum vegna snjó-
flóðahættu á þjóðvegum. Veður-
stofan hefði einbeitt sér að byggð-
arlögunum. Hins vegar tók hann
fram að, eins og með Óshlíðina,
þyrfti litla ofankomu til að hætta
gæti skapast á veginum.
Mikið verkefni
Aðspurður sagði Magnús að ef
færa ætti eftirlit til Veðurstofu
þyrfti meiri fjárráð og mannskap
til að sinna því. Kristinn Jónsson
tók í sama streng. Hann sagði
mikið verkefni að fylgjast með
hveijum vegarspotta og enginn
gæti tekið það að sér svo vel væri
nema Veðurstofan. En til þess
þurfi að styrkja snjóflóðadeild
hennar verulega.
Kristinn sagði að lögskipaður
aðili til að gefa út viðvaranir vegna
snjóflóðahættu væri ekki til og
Vegagerðin gæfi aðeins einstaka
sinnum út viðvaranir, þ.e. þegar
hætt væri að moka vegna snjóflóð-
hættu. Hann sagði að snjóflóðið á
ASI mótmælir
vaxtahækkun
Ný brú á Jökulsá á Brú
Opnað fyrir
umferð
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
UMFERÐ hefur verið hleypt á
nýju brúna yfir Jökulsá á Brú.
Smíði brúarinnar hófst í byijun
mai og lauk seinni hluta sept-
ember. Vegagerð að brúar-
stæðinu lauk síðar, en fullnað-
arfrágangi vegarins verður
ekki lokið fyrr en að vori.
ftoripmlíil&Mír
- kjarni málsins!
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands ís-
lands mótmælir harðlega ákvörðun
Landsbanka íslands um hækkun
vaxta í efstu álagsflokkum kjör-
vaxtakerfís síns, að sögn til þess
að bæta kjör útlána og til þess að
hvetja lántakendur til þess að bæta
ijárhagslega stöðu sína.
Eftir mikla vaxtahækkun í bönk-
um sumarið 1993 hafa vextir í
bönkum haldist hlutfallslega háir
miðað við ávöxtunarkröfu á ríkis-
tryggðum skuldabréfum og víxlum.
Það skýtur því skökku við að bank-
Breiðadalsheiði væri af þeirri stærð
og gerð að trúlega hefði ekki verið
á það minnst nema af því að tveir
bílar hefðu orðið fyrir flóðinu. En
auðvitað væri mikil heppni að slys
hefðu ekki hlotist af.
Aðeins tveir menn eru hér starf-
andi í tengslum við snjóflóðahættu,
en 130 Islendingar hafa farist í
snjóflóðum hér á landi á öldinni.
Lögregla segir viðbrögð
eðlileg
Bifreið áðurnefnds ökumanns
festist í Kinninni stuttu áður en
snjóflóðið reið yfír. Hann segist
hafa beðið um aðstoð lögreglunnar
á ísafirði og fengið þau svör að hún
aðstoðaði ekki í tilfellum sem þess-
um nema mannslíf lægi við.
Önundur Jónsson, yfirlögreglu-
maður, talaði við manninn og stað-
festi orð hans. Hann benti hins veg-
ar á að hvorugur þeirra hefði litið
svo á að um hættuástand væri að
ræða. Öðnw'si og alvarlegar hefði
verið litið á aðstöðu fólksins í bílnum
í meiri snjó. Að öðru leyti sagði
Öndundur að um eðlileg viðbrögð
hefði verið að ræða. Lögregla hefði
ekki tök á að aðstoða alla sem lentu
í erfíðleikum á heiðinni. Manninum
hefði verið boðinn aðstoð jeppa í
leigubílaakstri en ekki þáð hana.
Hann hefði aftur á móti þegið að-
stoðar hjálparsveitar en hringt aftur
og afþakkað hana þegar honum
hafði borist önnur hjálp.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
inn skuli enn vera að hækka vexti
og þá einkum hjá þeim sem verst
standa og síst mega við auknum
álögum.
I þeirri umræðu sem hefur átt
sér stað innan verkalýðshreyfingar-
innar að undanförnu hefur komið
fram að háir vextir og þung
greiðslubyrði eru að verða óbærilegt
vandamál hjá fjölda heimila í land-
inu. Því er hækkun vaxta í banka-
kerfínu eins og köld vatnsgusa á
þær fjölskyldur sem beijast við að
halda íbúðum sínum.