Morgunblaðið - 27.10.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 11
FRETTIR
Undirskriftasöfnun um
mannréttindi kvenna
UNDANFARIÐ hefur hópur
kvenna, sem eru fulltrúar ýmissa
félaga/samtaka kvenna, hist og
ákveðið að standa að undirskrifta-
söfnun hér á landi þar sem skorað
er á Sameinuðu þjóðirnar að fram-
fylgja yfirlýstum ásetningi sínum
varðandi það að tryggja og vernda
mannréttindi kvenna. Þessi undir-
skriftasöfnun er liður í alþjóðlegu
átaki kvenna.
Forsaga þessa máls er sú að sum-
arið 1993 efndu Sameinuðu þjóðirn-
ar til alþjóðaráðstefnu í Vín um
mannréttindi. Konur víðs vegar að
úr heiminum fjölmenntu til Vínar
og efndu til óformlegrar ráðstefnu,
sem haldin var samhliða ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna. Markmið
óformlegu ráðstefnunnar var að
hafa áhrif á samþykktir hinnar
formlegu ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna.
Veturinn 1993 höfðu alþjóðleg
samtök kvenna, sem nefnast „The
Global Campaign for Women’s
Human Rights“ gengist fyrir undir-
skriftaherferð í öllum löndum
heims. Þar var skorað á Vínarráð-
stefnuna að taka inn í mannrétt-
indasáttmála Sameinuðu þjóðanna
ákvæði þess efnis að kynferðislegt
ofbeldi gegn konum sé brot á mann-
réttindum. Þessir undirskriftalistar
voru síðan notaðir af óformlegu
kvennaráðstefnunni sem áhrifamik-
ið tæki í þrýstihópabaráttu þeirra.
Árangur þessa frumkvæðis
Málsvörn
um forn-
leifafræði
FÉLAG sagnfræðinema við Háskóla
íslands stendur fyrir málsvörn á
miðjum degi í Odda, stofu 101, í dag
27. október kl. 12 undir yfirskrift-
inni: Er íslensk fornleifafræði ekki
til?
Framsögumaður er Bjarni F. Ein-
arsson, fornleifafræðingur á Árbæj-
arsafni, og hefur hann 15-20 mín
til umráða. Til þess að ræða um
framsögu Bjarna hafa verið fengnir
Þór Magnússon, þjóðminjavörður,
Guðmundur Magnússon, fréttastjóri
og fyrrverandi þjóðminjavörður, og
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, forn-
leifafræðingur á Þjóðminjasafni ís-
lands.
------♦ ♦ ♦
kvenna var að mannréttindaráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti þá kröfu kvenna víðs vegar
að úr heiminum að kynferðislegt
ofbeldi væri brot á mannréttindum.
Nú hafa áðurnefnd alþjóðasam-
tök kvenna enn á ný blásið til bar-
áttu. Konur í öllum löndum eru
hvattar til að efna til sérstakra
aðgerða dagana 25. nóvember til
10. desember nk. til þess að vekja
athygli á stöðu þessara mála í
hveiju landi fyrir sig. Auk þess eru
konur hvattar til að standa að und-
irskriftasöfnun þar sem enn verði
hnykkt á fyrri samþykktum fundar-
ins í Vín. Þessir undirskriftalistar
verða lagðir fram á ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna um málefni
kvenna, sem haldin verður í Peking
næsta haust.
Allir þeir, sem hug hafa á að
standa að slíkri undirskriftasöfnun
hér á landi eru hvattir til að nálg-
ast undirskriftalistá sem fyrst. List-
arnir liggja frammi á skrifstofu
Stígamóta, Vesturgötu 3. Sími
Stígamóta er 626868 og er þar
hægt að fá allar frekari upplýs-
ingar.
Vegg-
spjöld með
Islands-
myndum
STÚDÍÓ 76 hefur nýverið
gefið út 4 veggspjöld með
Islandsmyndum.
Áhersla er lögð á sérís-
lensk einkenni og samspil
mannlífs og náttúru. Mynd-
irnar eru handunnar á sér-
stæðan hátt sem gefur þeim
listrænan blæ. Spjöldin hafa
verið markaðssett erlendis
en eru nú fáanleg í flestum
bóka- og minjagripaverslun-
um hérlendis og erlendis.
Léttur og nettur stálstóll sem ma stafla.
Fagurlega formaó beyki bak veitir
góðan stuðning og fæst glærlakkað
eða litað I mahóní eöa svörtu. Rúmgóð
og vel bólstruð seta gerir PARÍSTAC
mjög þægilegan. PARÍSTAC er
hannaður af Pétri B. Lútherssyni. Hann
sómir sér vel á flestum þeim stöðum
þar sem fólk kemur saman; i
itaagarsölum, skrifstofum, listasöfnum,
biösS^rp, matsölum, sjúkrahúsum,
íþróttahusum, safnaðarheimilum og
skólum. %
P e 11 a
h ö n n u n
t-
heimsmælikvaröa
REYKAS
Falleg endaíb. á 1. hæð um 114
fm og 26 fm bílskúr. Stofa m.
suöursv., 3 svefnherb. Beyki-
parket. Beyki-eldhúsinnr. Áhv.
byggsj. 2,8 millj. Laus strax.
Arkitekt Vífill Magnússon.
ÞIMiIIOLT
SUÐURLANDSBRAUT 4A
Smiöjuvegi 2 • Kópavogi ■ Sími 672110 • Fax 671688