Morgunblaðið - 27.10.1994, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
80ára
afmæli
HSÞ
HÉRAÐSSAMBAND S-Þing-
eyinga (HSÞ) verður 80 ára
næstkomandi mánudag, 31.
október. Af því tilefni verður
haldinn samkoma á Breiðu-
mýri laugardaginn 29. október
og hefst hún kl. 21.00.
Meðal dagskráratriða _ má
nefna söng þeirra bræðra Ósk-
ars og Péturs Péturssona,
sönghópinn Norðaustan 12,
hagyrðinga, upplestur, fjölda-
söng og fleira. Einnig verður
sýning á myndum, munum og
skjölum sem tengjast sögu
sambandsins. Kvenfélag
Reykdæla sér um veglegar
kaffíveitingar. Veislustjóri
verður Þórhallur Bragason.
Að lokinni dagskrá mun hljóm-
sveitin Gloría frá Húsavík spila
fyrir dansi.
Karlakór
áferð
um Norð-
austurland
KARLAKÓR Akureyrar/
Geysir heldur tónleika á Þórs-
höfn á laugardag, 29. október
kl. 15.00 og kl. 20.30 sama
daga á Vopnafirði. A sunnu-
dag verða síðan tónleikar í
grunnskólanum í Reykjahlíð í
Mývatnssveit. Tónleikaranir á
Vopnafírði eru sameiginlegir
með Samkór Vopnafjarðar en
stjórnandi hans er Kristján
Davíðsson, undirleikari
Zblgnlew Zuchowicz og ein-
söngvari er Bragi Vagnsson.
Karlakórinn hefur undan-
farin ár haldið hausttónleika í
norðlenskum byggðum og hef-
ur uppistaða efnisskrár verið
lög úr söngskrá vortónleika. Á
efnisskránni nú eru m.a. lög
eftir Grieg, Gershwin og Jó-
hann Ó. Haraldsson. Ein-
söngvarar eru Eggert Jónsson,
Ingvi Rafn Jóhannsson, Her-
mann R. Jónsson, Þórður
Kárason, Þorkell Pálsson,
Steinþór Þráinsson og Michael
J. Clarke. Stjórnandi er Roar
Kvam en undirleikari Richard
Simm.
Síðasta sýn-
ingarhelgi
SÝNINGU Sigurðar Árna Sig-
urðssonar í Listasafninu á
Akureyri lýkur 2. nóvember,
síðasta sýningarhelgi er því
nú um komandi helgi. Sýning-
unni hefur verið vel tekið og
fjölmargir lagt leið sína í lista-
safnið.
Sprengiefni
á bryggju
SPRENGIEFNI fannst á vöru-
bretti á bryggju við sláturhús
KEA í fyrrinótt. Starfsmaður
Securitas fann efnið og til-
kynnti til lögreglu.
Um var að ræða níu kassa
af dínamíti sem hver er 25
kíló. Þrátt fyrir nokkra eftir-
grennslan var ekki vitað um
eigendur þess eða hver komið
hafði því á bryggjuna. Starfs-
menn Akureyrarbæjar komu
sprengiefninu fyrir í sprengi-
efnageymslu bæjarins.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hlerinn tekinn um
borð í Hjalteyrina
ÞEIR voru að taka hlerann um
borð, strákarnir á Hjalteyrinni
EA, einu Samherjaskipanna, síð-
degis í gær og síðan átti að Iáta
úr höfn og halda sennilegast á
hefðbundin mið úti fyrir Norður-
landi. Bryggjan iðaði af lífi, það
var verið að hífa og tosa og svo
þurftu menn auðvitað að hrópa
svolítið og kalla. Aðrir fylgdust
með atganginum og vísast hefur
farið fiðringur um formann Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar, Kon-
ráð Alfreðsson, sem renndi niður
á Oddeyrarbryggju, kannski að
kíkja aðeins á sína menn áður
en þeir færu. Félagarnir Grétar
Gíslason og Friðrik Helgason
voru líka hinir spökustu aftan
á, gerðu góðlátlegt grín að lífi
og tilveru bryggjunnar eina síð-
degisstund í snjókomu.
Ráðstefna Húsgulls á Húsavík
Náttúruvernd
heim í hérað?
Tíu dropar
„ YIÐ erum að smakka þrjár teg-
undir af Brasiliukaffi," sagði
Ulfar Hauksson framkvæmda-
stjóri Kaffibrennslu Akureyrar
þegar hann og skrifstofustjórinn
Helgi Örlygsson settu sig í hátíð-
legar stellingar yfir 24 bollum
af kaffi. Það eru miklar tilfær-
ingar í kringum gæðaprófun á
kaffi en þeir Úlfar og Helgi gera
slíkar prófanir 2-3 í viku.
Kaffi frá Brasilíu er misjafnt
að sögn Úlfars, landið er stórt,
jarðvegur misjafn og það ræktað
í mismunandi hæð. Þeir byrja á
að vigta 7 grömm af baunum í
glas og eru baunir hvers glass
malaðar sér eftir að búið er að
fjarlæga þær sem ekki hljóta náð
fyrir augum sérfræðinganna.
Glösunum er raðað á þar til gert
borð með áfastri vél sem sýður
vatn. Borðinu er snúið og um
leið er vatninu dælt í kaffiglösin.
Kaffið verður að hafa náð
ákveðnu hitastigi áður en smökk-
un hefst eða vera 55 gráðu heitt.
Kaffið sem félagarnir smökk-
uðu í gærmorgun stóðst gæða-
prófið og um leið og Úlfar hafði
spýtt út úr sér síðasta sopanum
hringdi hann til Danmerkur og
pantaði farm af kaffibaununum.
NÁTTÚRUVERND heim í hérað?
Virkjanir, umhverfí, jökulsár,
sandur, Iandgræðsla, er yfirskrift
ráðstefnu sem Húsgull á Húsavík
efnir til á Hótel Húsavík næstkom-
andi laugardag. Ráðstefnan hefst
með ávarpi landbúnaðarráðherra,
Halldórs Blöndals, kl. 10.05 og þá
mun fulltrúi umhverfisráðuneytis
ávarpa ráðstefnuna. Alls 'verða
flutt 13 erindi um þau mál er tengj-
ast yfírskrift ráðstefnunnar.
í fréttatilkynningu frá Húsgulli
segir að mikið sé nú rætt um að
ný valddreifíng verði að eiga sér
stað í þjóðfélaginu og horft sé til
sveitarstjórna þegar rætt er um
flutning verkefna frá ríki til
sveitarfélaga, en á sama tíma auk-
ist miðstýring í mörgum málum.
Umhverfismál séu þar ofarlega á
blaði og éinsýnt að stofnanavald
sé þar miklu meira en almennt sé
viðurkennt. Umræður um stór-
verkefni á sviði orkumála gefi til-
efni til að skoða ítarlega hvaða
þátt heimamenn eigi að eiga í
ákvarðanatöku þar um. Engin
teikn séu á lofti um að skipan
umhverfismála verði breytt nema
að frumkvæði heimamanna í hér-
aði og þá verði menn að gera sér
grein fyrir hvort sveitarstjórna-
menn séu í stakk búnir til að taka
ákvarðanir í umhverfismálum; þær
geti lagt stein í götu þjóðþrifa-
mála, opnað möguleika komandi
kynslóða, búið í haginn fyrir ferða-
mennsku eða lagt þá grein í rúst.
Tilgangur ráðstefnunnar er að
komast nær því hvort umhverfis-
mál eigi heima í héraði eða hvort
þeim er best borgið í miðstýrðum
stofnunum í Reykjavík.
Háskólinn
Eríndi um
Evrópu
nútímans
GÖRAN Therborn prófessor í fé-
lagsfræði við Háskólann í Gauta-
borg heldur fyrirlestur við Háskól-
ann á Akureyri í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 27. október, kl. 20.30.
Hann verður fluttur á ensku og fer
fram í stofu 24 í húsi Háskólans
við Þingvallastræti.
Fyrirlesturinn ber heitið Evrópa
nútímans og framtíðarhorfur. Ferill
evrópskra samfélaga frá 1945-
2000. Hann byggir á efni nýútkom-
innar bókar eftir Göran Therborn
um efnahags- og félagsþróun evr-
ópskra samfélaga. Fjallað er um
nútímann sem hugtak, helstu ein-
kenni og sögulegar forsendur, um
evrópsk atvinnumál, velferðarmál,
réttindabaráttu og aukna markaðs-
væðingu í Evrópu frá lokum síðari
heimsstyijaldar.
Sjálfsmynd nútímafólks
Einnig er fjallað um menningar-
leg áhrif félagslegra breytinga á
sama tíma og verður m.a. rætt um
sjálfsmynd nútímafólks, sjóndeild-
arhring þekkingar og viðhorfa og
breytt gildismat. Loks verður fjallað
um félagslegar hreyfíngar og fé-
lagslega stýringu í Evrópu.
Dr. Göran Therborn er prófessor
í félagsfræði við Háskólann í Gauta-
borg og faglegur yfirmaður félags-
fræðideildar skólans. Grunnmennt-
un hans er einkum á þremur af
meginsviðum félagsvísinda, félags-
fræði, stjórnmálafræði og hag-
fræði. Hann hefur starfað mikið á
alþjóðlegum vettvangi og dvalið um
lengri eða skemmri tíma við há-
skóla víða um heim. Hann hefur
setið í stjórn bæði innlendra og fjöl-
þjóðlegra vísindanefnda og sam-
taka og er um þessar mundir for-
maður samtaka félagsfræðinga á
Norðurlöndum. Hefur hann gefið
út á annan tug bóka og skrifað fjöl-
margar greinar í alþjóðleg fræðirit.