Morgunblaðið - 27.10.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1994 13
LAIMDIÐ
Messa á
Eiðistorgi
í TILEFNI af kirkjuviku, sem
nú er haldin hátíðleg í Reykjavík-
urprófastsdæmum, verður haldin
götumessa á Eiðistorgi á Sel-
tjamamesi fímmtudaginn 27.
október kl. 17.
Það er Seltjamameskirkja,
sem stendur fyrir messunni,
sóknarpresturinn, sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir, þjónar
fyrir altari ásamt sr. Helgu Soff- ■
íu Konráðsdóttur, aðstoðarpresti
í Háteigskirkju, en starfsfólk
kirkjunnar aðstoðar. Fermingar-
böm lesa bænir og gospelkór
syngur undir stjóm organistans,
Viera Gulazslovu. Kl. 16.30 leik-
ur blásarakvintett Tónlistarskól-
ans á Seltjamamesi nokkur lög
þar til messa hefst.
Götumessa hefur einu sinni
áður verið haldin á Eiðistorgi og
þá sóttu hana rúmlega 200
manns.
Meistaramót
fyrirtækja 1
hraðlestri
FYRSTA meistaramót fyrirtækja
í hraðlestri verður haldið í Há-
skóla íslands, Ámagarði, stofu
201, sunnudaginn 30. október
kl. 14.
Mótið fer þannig fram að les-
inn verður stuttur kafli lesefnis
og þátttakendur verða tíma-
mældir og síðan reiknaður út
flöldi lesinna orða á mínútu. Að
lestri loknum svara þátttakendur
10 krossaspumingum úr efninu.
Sá þátttakandi sigrar sem les
efnið á skemmstum tíma og svar-
ar flestum spumingum réttum.
Útreikningur fer fram með þeim
hætti að margfaldaður er saman
fyöldi lesinna orða á mínútu og
fjöldi réttra svara.
Veitt verða ein verðlaun. Sá
fyrirtækisfulltrúi sem sigrar fær
frítt hraðlestramámskeið fyrir
fyrirtæki sitt. Þátttakendafjöldi
má vera allt að 10 starfsmenn.
Námskeið
í skart-
gripagerð
MENNINGARMIÐSTÖÐIN ' í
Gerðubergi gengst fyrir nám-
skeiði í skartgripagerð dagana
29. og 5. nóvember.
Kennt verður tvo laugardaga
frá kl. 13.10-16.50 báða dag-
ana. Námskeiðið er ætlað öllum
á aldrinum átta ára og eldri og
leiðbeinandi verður Anna Flosa-
dóttir. Samskonar námskeið var
haldið í menningarmiðstöðinni á
sl. ári og naut svo mikilla vin-
sælda að margir þurftu frá að
hverfa.
Námskeiðinu • er ætlað að'
kynna einfaldar og ódýrar leiðir
til skartgripagerðar sem geta
hentað fólki á öllum aldri.
Skráning og allar nánari upp-
lýsingar á skrifstofu Gerðubergs.
íslandsmót
kvenna í skák
ÍSLANDSMÓT kvenna verður
haldið dagana 29. október til 4.
nóvember nk. Teflt verður í
skákmiðstöðinni Faxafeni 12,
Reykjavík.
Tefldar verða sjö umferðir eft-
ir Monrad-kerfí. Tímamörk era
l'/2 klst. á 30 leiki og 45 mín.
til að ljúka skákinni.
Vegleg verðlaun era í boði og
fær sigurvegarinn fría ferð á
skákmót eriendis, einhvem tíma
á því tímabili sem hann heldur
titlinum. Mótið er öllum opið.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist fyrir 29. október.
Sjötíu ár liðin frá því að Oddakirkja á Rangárvöllum var reist
ALLIR sóknarprestar Rangárvallasýslu komu til hátíðarmessunn-
ar í Odda, ásamt vígslubiskup, sr. Sigurði Sigurðarsyni.
SR. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup og sóknarpresturinn, sr.
Sigurður Jónsson, kveðja kirkjugesti.
Kirkja í Odda
frá kristnitöku
Var í öndverðu
helguð heilögum
Nikulási, verndar-
dýrlingi sæfarenda
Hellu - Sunnudaginn 23. október
var þess minnst við hátíðarmessu
í Oddakirkju að 70 ár eru síðan
núverandi kirkja var reist í Odda.
Kirkjan var vígð hinn 9. nóvember
1924 sem var 21. sunnudagur eft-
ir þrenningarhátíð og bar hátíðar-
messuna sl. sunnudag upp á sama
dag kirkjuráðsins.
Talið er að Oddakirkja hafi stað-
ið á svipuðum stað allt frá því sú
fyrsta reis þar af grunni, að öllum
líkindum skömmu eftir kristnitöku.
Talið er að sr. Loðmundur Svarts-
son, afi sr. Sæmundar Sigfússonar
fróða, hafi látið reisa þá kirkju.
Kirkjan í Odda mun í öndverðu
hafa verið helguð heilögum Nikul-
ási sem var sérstakur verndardýrl-
ingur sæfarenda.
Núverandi kirkja var sem fyrr
segir reist 1924 að hluta til úr
efniviði kirkju sem sr. Matthías
Jochumsson lét reisa, en hann var
prestur í Odda á sex ára tímabili
á seinni hluta 19. aldar. Yfirsmiður
kirkjunnar var Tómas Tómasson
frá Reyðarvatni á Rangárvöllum
og var hún vígð af Jóni Helgasyni
biskupi, en sóknarprestur á þeim
tíma var sr. Erlendur Þórðarson.
Miklar endurbætur voru gerðar
á kirkjunni 1953, m.a. var hún
máluð og skreytt af þeim Jóni og
Grétu Björnsson. Á árunum 1986-
1990 var lítið safnaðarheimili
byggt og margvíslegar viðgerðir
og endurbætur gerðar á kirkjunni.
Árið 1992 var svo vígt 10 radda
pípuorgel sem smíðað var af Björg-
vin Tómassyni.
Við hátíðarmessuna á sunnu-
daginn prédikaði sr. Sigurður Sig-
urðarson vígslubiskup, sóknar-
presturinn, sr. Sigurður Jónsson,
þjónaði fyrir altari og ritningar-
lestra lásu sr. Arngrímur Jónsson
og sr. Stefán Lárusson, fyrrum
sóknarprestar í Odda. Vandað var
til tónlistarflutnings en á orgel
kirkjunnar lék Halldór Óskarsson
ásamt Guðmundi Sigurðssyni en
Halldór stjórnaði einnig kirkju-
kórnum sem naut aðstoðar söngv-
ara úr nágrannasóknum og frá
Selfossi. Við athöfnina léku einnig
Lárus Sveinsson og dóttir hans,
Hjördís Elín, á trompet. Að messu
lokinni bauð sóknarnefndin til
kaffisamsætis í Hellubíói sem
Kvenfélag Oddakirkju annaðist.
Andvirði gj afa til Sjúkrahúss Suðurlands á árinu 10 millj.
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
FULLTRÚAR SSK og Rauðakrossdeilda Árness-, og Rangárvallasýslu ásamt Aðalheiði Guðmunds-
dóttur hjúkrunarforsljóra og Einari Hjaltasyni yfirlækni á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Skýr vottur um hug og
væntingar íbúanna
Tannlækna-
stofa opnuð
á Reykhólum
NÝLEGA opnaði Ari Bjarnason,
tannlæknir í Búðardal, tannlækn-
ingastofu í Heilsugæslunni á Reyk-
hólum. Ari kemur hér í hverri viku
og er þijá daga í senn en yfir hávet-
urinn mun ferðum hans fækka. Ari
er frá Borgarnesi, sonur Bjarna
Arasonar ráðunautar þar, og er
lærður tannlæknir frá Óslóarhá-
skóla. Með Ara á myndinni er að-
stoðarmaður hans, Hugrún
Thorlacius úr Búðardal.
Selfossi - Tíu milljónir króna
hafa borist Sjúkrahúsi Suður-
lands í gjöfum á þessu ári. Um
er að ræða beinar peningagjafir,
tæki til stofnunarinnar og erfð-
afé frá einstaklingum. Þessar
miklu gjafir til sjúkrahússins frá
Sunnlendingum eru skýr vottur
þeirra miklu væntinga sem íbúar
á Suðurlandi hafa til Sjúkrahúss
Suðurlands. Þetta kom fram í
hófi sem haldið var í tilefni af
því að Samband sunnlenskra
kvenna og Rauðakrossdeild Ár-
nesinga og Rangæinga afhentu
formlega gjafir sínar til sjúkra-
hússins.
Félögin gáfu fullkomið óm-
skoðunartæki af Tosiba Tosbee
gerð að verðmæti rúmar 2,9
milljónir. Rauðakrossdeild Ár-
nesinga afhenti slysastofu heilsu-
gæslunnar hjartastuðtæki,
hjartalínuritstæki og gifssög að
verðmæti 1,1 milljón ásamt „neb-
ulisator" fyrir bráðameðferð við
astma og heyrnarmælingartæki
að verðmæti 130 þúsund kr. Áður
hafði heilsugæslunni borist
„ambulans“-sjúkrabekkur af
fullkomnustu gerð og skurð-
stofulampi.
Þessi tæki auka þjónustuhæfni
slysastofunnar og sjúkrahússins
í heild en það er einmitt mark-
mið félaganna sem fjármagna
gjafirnar með framlögum frá
starfsemi sinni. Samband sunn-
lenskra kvenna gefur út jólakort
fyrir hver jól og afraksturinn af
sölu þeirra rennur beint til
tækjakaupa fyrir sjúkrahúsið.
Blab allra landsmanna!
IRargimblabib
- kjarni málsins!
Prófkjör á Reykjanesi 5. nóvember
Ungur maður úr atvinnulífinu
VIKTJ3R B. KJARTANSS0N
I 5. SÆTI
Kosningaskrifstofur:
Bæjarhrauni 22, Hafnarfirði,
s. 91-650735 og
Hafnargötu 38, Keflavík,
s. 92-12100.